Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1985, Blaðsíða 16
16
DV. MÁNUDAGUR15. APRÍL1985.
Spurningin
Fékkst þú páskaegg?
Axel Eggertsson bilstjórl: Það fengu
allir páskaegg heima hjá mér og hafði
það málsháttinn „Vogun vinnur vogun
tapar”.
Petra Jakobsdóttir flskvinnslukona:
Nei, ég fékk ekkert páskaegg þessa
páska og smakkaði ekki einu sinni á
súkkulaði.
Inga Eðvaldsdóttir afgreiðsludama:
Eg hef ekki fengið páskaegg síðan ég!
var 26 ára og lét allt súkkuiaðiát vera
um páskana.
Andri Gislason: Eg fékk eitt páskaegg
númer 4. Þaö var mjög gott og máls-
hátturinn var: „Enginn verður frægur
afengu”.
Edda Edvardsdóttir verslunarmær:
Eg fékk engin páskaegg enda finnst
mér þau ekki svo góð. Hins vegar fékk
ég konfekt í staðinn.
Hrafnhildur Jónsdóttlr verslunarmær:
Eg fékk eitt páskaegg númer 3. Þaö
var mjög gott en ég man ekki hver
málshátturinn var.
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
„Fagna samkeppni
frá Steindórsplaninu
Jens Guðmundsson skrifar:
Um daginn geröi ég athugasemd
við einkennilega þjónustulund
reykvískra leigubílstjóra. A sama
tíma og erfitt var að fá leigubíl fóru
leigubílstjórar í kábojleik á götum
borgarinnar. Þeir eltu greiöa-
þjónustuleigubíla frá Steindórs-
planinu, reyndu að króa þá af, keyra
utan í þá, hleypa lofti úr dekkjunum
á þeim og brjóta rúðurnar í þeim.
Afkastamesti frístundapenni
landsins, Kristinn Snæland, vísar
þessu til fööurhúsa. Hann fullyrðir
að leigubílstjórar hafi einungis tekið
smástríðsdans umhverfis lögreglu-
stöðina viö Hlemm til aö espa lög-
regluna. Annað var það ekki.
Eg ætla ekki að dæma um það hver
hefur rétt fyrir sér í þessu máli, K.S.
annars vegar eða lögreglan, ríkis-
fjölmiðlarnir, dagblööin og bílstjórar
af Steindórsplaninu hins vegar. Hitt
get ég þó tekiö undir með K.S. að „ef
leigubílar ættu að anna þörfinni á
annatímum þyrfti að fjórfalda tölu
þeirra”. Hér erum við að tala um
lokunartíma öldurhúsa og þegar
veður er vont.
K.S. spyr hvort samhengi sé á milli
athugasemdar minnar viö kábojleik
leigubílstjóra og þess að hafa teiknað
merki Sendibíla sf. á Steindórs-
planinu. Svo er ekki. I fyrsta lagi eru
Sendibílarnir á Steindórsplaninu hf.
en ekki sf. I öðru lagi teiknaöi ég ekki
hið ágæta merki þeirra. Mér skilst
reyndar að merkið sé lítiö yngra en
ég sjálfur.
Ástæðan fyrir athugasemd minni
viö kábojleik leigubílstjóra er
einungis sú að ég sem neytandi er
oröinn langþreyttur á langtímabið
eftir leigubíl á annatímunum áður-
nefndu. Af sömu ástæðu fagna ég
samkeppninni frá Steindórsplaninu,
ekki síst vegna þess að bílstjórarnir
á Steindórsplaninu eru með kredit-
kort í öllum sínum bílum. þeir taka
lægra startgjald, þeir aka á lægri
taxta og hann margfaldast ekki þótt
ekið sé yfir brýr eða bæjarmörk.
Nýjustu fréttir herma jafnframt aö
Steindórsmennirnir hafi sótt um
leyfi fyrir ódýrri þjónustu 2ja—3ja
manna leigubíla. Þessu fagna ég rétt
eins og Neytendasamtökin og allir
þeir sem aðhyllast heilbrigða
samkeppni í stað einokunar.
Bréfritara finnst Megas hafa vanvirt helgi póskanna.
Um tónleika Megasar:
Rokkgarg
á páskum
Kona úr Kópavogi hringdi:
Eg tel mig hvorki vera íhaldssama
né gamaldags en ég má til með að lýsa
vanþóknun minni á tónleikahaldi
Megasar á páskadag. Það hefur verið
venja að engar skemmtanir hafi verið
haldnar þessa helgidaga. Messurnar
hafa yfirleitt verið það eina sem farið
hefur fram þessa daga. Þó að Megas
hafi flutt þarna tónlist við sálma
séra Hallgríms, sem vissulega eru
trúarlegs eðlis, þá var þarna spiluö
rokktónhst, vafalaust hávært garg
sem ekki á við á sjálfan páskadaginn.
Ef það verður ekki spornaö við þessari
óheillaþróun strax þá getum við alveg
eins búist við því að helgi páskanna
verði algerlega virt aö vettugi í
framtíöinni.
Óþolandi kettir
Kattahatari skrifar:
Það á ekki af okkur að ganga, borg-
arbúum, sem viljum vera lausir við
skarkala sveitalifsins og hinn óþolandi
ágang dýranna. Nú má halda hunda
hér í Reykjavík, illþefjandi skepnur
sem skíta borgina út í orðsins fyllstu
merkingu. Verr er mér þó við árans
kettina. Þessi illa gefnu dýr troða sér
alls staðar inn og hlandlykt þeirra
fyllir hvern kima borgarinnar. Þeir
stökkva fyrir bíla og valda umferðar-
slysum og eru svo margir að helst
minnir á plágu.
Dýr eiga heima í sveitum. Borgirnar
eiga að vera griðastaðir okkar
mannfólksins. Það væri best ef
meindýraeyðir tæki sig til og kæmi
öllum köttum í höfuðstaönum fyrir
kattarnef.
„Dýr eiga heima í sveitum," segir kattahatari m.a.
Tarkowsky við komuna til íslands.
Sjónvarpið sýni
Tarkowsky-
myndir
Gunnar hringdi:
Nýlega var haldin í Reykjavík kvik-
myndahátíð, helguð sovéska kvik-
myndaleikstjóranum Tarkowsky.
Mikil umræða átti sér stað um myndir
hans og reyndi sovéska sendiráðið
m.a. að stööva hátíðina.
Við sem búum úti á landi áttum ekki
kost á því að sjá myndir þessa
umdeilda leikstjóra. Því vil ég mælast
til þess að sjónvarpið taki einhverjar
myndir hans til sýningar. Þaö væri vel
þegiö.
„Kona er nefnd María Markan”:
Leiðrétting vegna umræðu um sjónvarpsþátt
María Markan skrifar:
Ég hef orðið þess vör að nokkurs
misskilnings gætir varðandi
sjónvarpsþátt er var endursýndur sl.
miðvikudag, eftir 13 ár.
Ýmsir hafa talað viö mig um að
Pétur Pétursson þulur hafi hraðað
sér að ljúka samtalsþætti okkar. Að
mínum dómi er Pétur mjög
tillitssamur og hæverskur. Hins
vegar gætti misskilnings milli
upptökumanna sjónvarpsins og
okkar, einkum mín. Er það skiljan-
legt, í Spennu augnabliksins, þegar
maöur opnar hug sinn fyrir alþjóð
um sinn eigin lífsferil.
Okkur Pétri hafði víst verið sagt
hve langan tíma við hefðum, en
einhvern veginn fór það framhjá
mér. Pétur lét mig ráða feröinni í
samtalinu, en var stöðugt áminntur
af tímaverði sem var okkar vinsæli
söngvari, Guðmundur Guðjónsson.
Þegar fór að líða á seinni hluta
þáttarins áttaði ég mig ekki á hvaö
tímanum leið en sá að Pétri brá er
tímavörður lyfti upp spjaldi og á því
stóö 0. Þá sagöi ég: „Hvað, er tíminn
búinn?”
Þar af leiddi að Pétur vildi ekki
hætta þættinum í miðri frásögn
minni en þurfti náttúrlega að hraða
sér mjög til þess aö ljúka efninu áður
en filman væri búin og slökkt yröi á
upptökutækjunum.
Vonandi veit fólk nú hvernig á
þessu stóð.