Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1985, Blaðsíða 21
DV. MANUDAGUR15. APRIL1985.
21
íþróttir íþróttir íþróttir
Dalglish
ekki með
gegn
íslandi
Iþróttir Iþróttir Iþróttir íþróttir
Atli nefbrotn-
aði eftir 63 sek.
— íleik Dusseldorf gegn Stuttgart
Frá Atla Hilmarssyni, frcttamanni
DV í V-Þýskalandi:
— Atli Eövaldsson varð fyrir því
óhappi, eftir aðeins 63 sek. í lcik
Stuttgart og Diisseldorf, að nef-
brotna. Atvikið átti sér stað þegar
Atli og Andreas Miiiler stukku
saman upp i skallaeinvigi. Þrátt
fyrir nefbrotið lék Atli með Diissel-
dorf allan leikinn.
Það er óvíst hvort Atli getur
leikið nœsta ieik Dusseldorf, gegn
Mannheim. Gerd Zewe er einnig
meiddur hjá Diisseldorf sem er
komið í alvarlega fallhættu.
| • Atli Eðvaldsson. -AH/-SOS.
Miklar öryggis-
ráðstafanir
í Laugardalnum
Yf ir 1000 skoskir áhorfendur koma til Reykjavíkur til að sjá HM-leik íslands
ogSkotlands
— Skoskur öryggisráðgjafi væntanlegur til Reykjavíkur á morgun
og vallarstjóra Laugardalsvallarins.
>á mun hann kanna Laugardalsvöllinn
en Skotar hafa óskað eftir því aö
skosku áhorfendumir verði inni í sér-
girðingum þannig að þeir geti ekki
fariö inn á völlinn óhindraðir.
Það er ljóst að miklar varúðar-
ráðstafanir verða gerðar fyrir leikinn.
Skoska knattspymusambandið sér
eingöngu um sölu aðgöngumiða í
Skotlandi þannig að sambandið hefur
yfirumsjón með hverjir koma hingað
til að sjá leikinn. Það er reiknað með
að áhangendur skoska landsliðsins
komi tii Reykjavíkur sama dag og
leikurinn fer fram og að þeir fari héðan
fljótlega eftir leikinn. Ástæðan
fyrir þessu er sú að það er ekki til hótel-
pláss í Reykjavík fyrir þann mikla
fjölda knattspymuáhugamanna sem
kemur frá Skotlandi.
-SOS.
Það bendir allt til að Kenny Dalglish,
knattspyrnukappinn snjalli hjá Liver-
pool, geti ekki leikið með Skotum gegn
Islendingum í HM-keppninni á Laugar-
dalsvellinum 28. maí. Heldur ekki þeir
John Wark og Alan Hansen sem einnig
leika með Liverpool.
Astæðan fyrir því er sú að líklega
leikur Liverpool til úrslita í Evrópu-
keppni meistaraliða daginn eftir að
landsleikurinn fer fram á Laugardals-
vellinum. Urslitaleikur EM fer fram í
Rotterdam í Hollandi 29. maí.
-SOS.
• Kenny Dalglish.
Það er ljóst að miklar öryggisráðstaf-
anir verða í Reykjavik fyrir heims-
meistaraleik tslands og Skotlands á
Laugardalsveilinum 28. maí. Það er
reiknað með að yfir 1000 skoskir knatt-
spyrnuáhangendur komi til að sjá leik-
inn sem er afar þýðingarmikill fyrir
Islendinga og Skota, en Skotar hafa
tapað tveimur síðustu leikjum sinum,
0—1, gegn Spánverjum og Walesbúum.
Hingað til landsins er væntanlegur á
morgun öryggisráðgjafi frá skoska
knattspymusambandinu. Hann mun
ræða við lögregluyfirvöld í Reykjavík
4
s&\
Sigurður er
óstöðvandi
— skoraði 10 mörk gegn Kiel.
Er nú langmarkahæstur íV-Þýskalandi
Frá Atla Hilmarssyni, fréttamanni DV
í V-Þýskalandi:
— Sigurður Sveinsson er hreint
óstöðvandi þessa dagana með Lemgo
— hann skorar og skorar. Hann var í
miklum ham á laugardaginu er hann
skoraði 10 mörk gegn Kiel. Það dugði
þó ekki til sigurs — Jóhann Ingi
Gunnarsson og lærisvelnar hans fóru
með sigur af hólmi í Lemgo, 17—21.
• Siguröur er nú langmarkahæstur í
V-Þýskalandi, hefur skorað 154 mörk í
Bundesligunni.
• Þá má geta þess að dregiö var i
aðra umferð bikarkeppninnar um
helgina. Lemgo dróst gegn 2. deildar-
liðinu Barmstedt, Essen gegn
Metaloplastika
lagði Atletico
Metaloplastika vann sigur, 19—12,
yfir Atletico Madrid í fyrri úrsiitaleik
félaganna í Evrópukeppni meistara-
liða. Leikurinn fór fram í Sabac i Jágó-
slavíu. 4 þás. áhorfendur sáu leikinn og
voru heimamenn yfir, 9—6, í leikhléi.
Þeir sem skoruðu mörkin í leiknum voru:
Mctaloplastika: Mrkonja 6, Vujovic 5,
Isakovic 4, Portner 2, Vukovic 1 og Cvetkovic
1.
Atletico Madrid: Millian 5, Alonzo 3, Reino
1, De la Punete 1, Parilla 1 og Ström 1.
Seinni leikurinn fer fram í Madrid 21. apríl.
-SOS.
Ribe tapaði
Ribe, liðið sem Gísli Felix Bjarnason
og Gunnar Gunnarsson leika með í
Danmörku, náði ekki að tryggja sér
bikarmeistaratitilinn í handknattieik.
Félagið lék gegn HIK í Ribe og mátti
þola stórtap, 18—29.
-SOS.
• Sigurður Sveinsson.
Dusseldorf og Wanne-Eiken gegn
Alderhold. -AH/-SOS.
• Skoskir knattspyrnuunnendur eru skrautlegir. Þessi mynd var tekin
af nokkrum Skotum á Spáni árið 1982 þegar HM fór þar fram.
DV-mynd: Sigmundur.
Ömar Torfa opnaði
markareikning sinn
— skoraði tvö mörk þegar Framarar lögðu KR-inga að velli, 3-0
Omar Torfason, landsliðsmaður-
inn snjalli í knattspyrnu, kom held-
ur betur til leiks á vel pássuðum
skotskónum þegar Framarar
tryggðu sér sigur (3—0) yfir KR-
ingum í Reykjavikurmótinu i
knattspyrnu á gervlgrasvellinum i
Laugardal í gærkvöldi. Framarar
tryggðu sér þar með aukastig.
Guðmundur Steinsson skoraði
fyrsta mark Fram í leiknum, en
síðan tók Omar til sinna ráða —
skoraði tvö mörk. Framarar yfir-
spiluðu KR-inga algjörlega í leikn-
um og gátu unnið stærri sigur.
> Ómar Torfason.
— Eg var að mörgu ieyti ánægö-
ur með leikinn og baráttuna hjá
strákunum, sagði Asgeir Elíasson,
þjálfari Fram, eftir leikinn. —
Mörkin sem við skoruðum voru vel
gerð og þau gátu orðið fleiri. Hall-
dór Pálsson, markvörður KR,
bjargaði td. tvisvar sinnum mjög
vel, á síðustu stundu, sagði Asgeir.
— Þessi leikur sýndi að strákarn-
ir geta gert góða hluti þegar þeir
mæta til leiks með réttu hugarfari
og gefa alit í leikinn, semþeir eiga,
sagði Ásgeir.
-sos