Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1985, Side 27
íþróttir íþróttir íþróttir fþróttir
Mountf ield var
• Travor Stovens og félagar hans hjé Evarton tryggflu sér farseflilinn é
Wembley, annafl érið i röfl.
hetja Everton
miðvörðurinn sterki skoraði sigurmarkið, 2-1,
gegn Luton á 114. mínútu
Frá Sigurbirni Aöalsteinssyni, frétta-
manni DV í Englandi:
— Eftir að við vorum búnir að jafna,
1—1, vissi ég aö við myndum leggja
Luton að velli, sagði Howard Kendall,
framkvæmdastjóri Everton, sem
tryggði sér farseðilinn á Wembley,
annað árið í röð, þegar félagið vann
sigur, 2—1, á Luton í framlengdum
undanúrslitaleik á Villa Park í Birm-
ingham.
Það var Derek Mountfield, miðvörð-
urinn sterki, sem skoraöi sigurmark
Everton á 114. mín. með skalla. Kevin
Sheedy tók þá aukaspyrnu og sendi
knöttinn til Mountfield sem þakkaði
fyrir sig og skoraði sitt tíunda mark á
keppnistímabilinu. Rétt áður hafði
Mountfield fengið glóðarauga eftir
samstuö. — Eg er í sjöunda himni að
hafa skorað sigurmarkið. Þegar 10
mín. voru eftir af leiknum kallaði
Kendall til mín og sagði mér að fara
fram í sóknina og leika eins og mið-
herji, sagöi Mountfield.
„Þetta var eins og
að flýja úr fangelsi”
— sagði Joe Fagan, framkvæmdastjóri Liverpool, eftir jaf ntef lisleikinn,
Frá Sigurbirni Aðalsteinssyni, frétta-
manni DV í Englandi:
— Við sluppum svo sannarlega.
Þetta var eins og að flýja úr fangelsi.
Við vorum heppnir að sleppa,
skoruðum úr tveimur af þremur
skotum sem við áttum að marki
Manchester United, sagði Joe Fagan,
framkvæmdastjóri Liverpool, eftir að
félagið hafði tryggt sér jafntefli, 2—2,
á elleftu stundu í framlengingu gegn
Man. Utd. i undanúrslitum ensku
bikarkeppninnar.
— Það leit lengi út fyrir að við
myndum ekki skora. Þá fengum viö
framlengingu og þegar Frank Staple-
ton skoraði, 2—1, þá hélt ég að allt
væri búið — viö gætum pakkaö saman.
En sem betur fer fáum við annað
tækifæri. Þá verðum við aö taka á
honum stóra okkar — ekki gefa United
tækifæri á að ná yfirhöndinni eins og
hér á Goodison Park, sagði Fagan.
Ron Atkinson, framkvæmdastjóri
United, var afar óhress eftir leikinn,
hreint brjálaður.
— Við erum mjög vonsviknir því við
áttum skiliö að vinna sigur.
Línuvörðurinn var búinn að dæma leik-
mann Liverpool rangstæðan aðeins
augnabliki áður en þeir jöfnuöu, 2—2.
Það virtist enginn sjá hann, sagði
Atkinson og bætti viö: — Leikmenn
mínir eru sárir og reiöir. Við verðum
að leika eins vel gegn Liverpool á
Maine Road á miðvikudaginn eins og
við lékum hér.
Já, það var ekki nema von aö leik-
menn United væru óhressir. Þeir voru
aöeins 76 sek. fró Wembley og þeir
voru miklu betri en leikmenn Liver-
pool, börðust hetjulega og gáfu leik-
mönnum Liverpool aldrei frið.
51.690 áhorfendur sáu leikinn sem
var spennandi. Þaö var ekki fyrr en á
79. mín. aö fyrsta markiö var skorað.
2-2, gegn United
• Paul Walsh — tryggfli Livarpool
jafntafli.
Gordon Strachan tók þá homspyrnu og
sendi knöttinn fyrir mark Liverpool.
Þar var Graeme Hogg sem skallaöi
knöttinn aftur fyrir sig til Bryan
Robson sem skaut aö marki.
Knötturinn hrökk í Mark Hughes og
breytti stefnu þannig aö Grobbi,
markvöröur Liverpool, átti ekki
möguleikaáaðverja.
„Wembley, hér komum við. ..”,
voru áhangendur United byrjaðir að
syngja þegar Liverpool náði mjög
óvænt að jafna, 1—1, á 86. min. Sammy
Lee, Ronnie Whelan og Phil Neal léku
knettinum á milli sín. Neal sendi hann
síðan til Whelan sem skoraði með
þrumuskoti af 16 m færi — knötturinn
hafnaði uppi í horninu án þess að Gary
Bailey, markvörður United, kæmi
vörnumvið.
Þetta var sem reiðarslag á leikmenn
United sem höföu haft undirtökin í
leiknum. Framlenging. Þaö var svo á
98. mín. aö Frank Stapleton skoraði,
2—1, fyrir United með góðu skoti af 20
m færi eftir sendingu frá Hughes. AUt
virtist vera búið, United var á leiðinni
á Wembley. Þaö var svo ekki fyrr en að
73 sek. voru eftir af framlengingunni
að Liverpool náði að jafna, 2—2.
Kenny DalgUsh sendi knöttinn þá fyrir
mark United þar sem Ian Rush var á
réttum stað og skallaði knöttinn að
marki. Gary BaUey náði að snerta
knöttinn en hann fór yfir hannog hrökk
niður viðmarklínuna. Paul Walsh, sem
hafði komið inn á sem varamaður fyrir
John Wark, geystist fram og skoraði,
2-2.
Félögin þurfa að leika aftur, í
Manchester á miðvikudaginn. Þess má
geta að Liverpool hefur ekki unnið
sigur á United í bikarkeppni í 64 ár.
-SigA/-SOS.
Luton byrjaði leikinn af miklum
krafti og voru leikmenn félagsins betri
í fyrri hálfleiknum. Kevin RatcUffe
bjargaði þá skoti á markUnu og einnig
Gary Stevens. Það var svo á 37. min.
sem besti maður vallarins, Ricky Hill,
náði að skora, 1—0, fyrir Luton, eftir
sendingu frá Wayne Turner. Hann fékk
knöttinn fyrir utan vítateig og þrumaði
honum í mark Everton, stöngin inn.
- Fyrri hálfleikurinn var hræðileg-
ur hjá okkur. Leikmenn mínir vissu
það þannig að ég þurfti ekkert aö segja
við þá í leikhléi, sagði Kendall.
Leikmenn Everton komu ákveðnir til
leiks í seinni hálfieik og náðu yfirhönd-
inni. Paul Bracewell átti skot í stöng-
ina á marki Luton og Les Sealey,
markvörður Luton, varði skot frá
Sheedy. Það var svo þegar aðeins 5
mín. voru eftir af leUttímanum að leik-
menn Everton náðu að skora. Kevin
Sheedy, aukaspyrnusérfræðingurinn
mikli, tók þá aukaspyrnu og sendi
knöttinn fram hjá varnarvegg Luton
og í markið fór knötturinn, 1—1. Það
þurfti því að framlengja ieikinn.
Eins og fyrr segir skoraöi Mountf ield
sigurmarkið á 114. mín. Geysileg fagn-
aðarlæti brutust þá út. -SigA/-SOS
Hættulegar
golfkúlur
flugu um
Frá Sigurbirni Aðalsteinssyni, frétta-
manni DV í Englandi: — Það voru
nokkrir áhorfendur handteknir á
bikarleikjunum í Englandi um helgina.
31 var tekinn fastur á leik Liverpool og
Manchester United. Þar flugu ýmsir
hlutir, eins og hnífar og golfkúlur með
nöglum í. Ein kúlan hafnaði i höfði eins
áhorfendans og önnur í fótlegg annars.
• 100 áhorfendur voru handteknir á
leik Everton og Luton.
-SOS
Klotztil
Hamburger
Frá Atla Hilmarssyni — fréttamanni
DV í V-Þýskalandi: — Hamburger
hefur fest kaup á enn einum leikmann-
inum. Peter Klotz hjá Mannheim
skrifaði undir samning við Hamburger
til ársbis 1987. Klotz er sóknar-
leikmaður.
-AH/-SOS
i Gary Lineker i
itil Bordeaux? i
Frá Árna Snævanr, frétta-
manni DV í Frakklandi:
Miklar likur eru nú taldar á
því að enski landsliðsmaðurinn
hjá Leicester, Gary Lineker,
fari til Bordeaux. Forráða-
menn Bordeaux eru mjög
spenntir fyrir Lineker og
standa nú yfir samningavið- ■
ræður miili forráðamanna fé- _
laganna. |
-SK. |
• Halilhodzic.
Halilhodzic
er úr leik
Frá Árna Snævarr, fréttamanni
DV í Frakklandi:
Markamaskinan mikla, Halilhod-
zic, sem leikur með franska liðinu
Bordeaux mun að öllum líkindum
ekki leika meira með liðinu á þessu
keppnistímabili vegna meiðsla sem
hann hlaut í leik Bordeaux og Rac-
ing Paris fyrir skemmstu. Þetta er
mikið áfall fyrir frönsku meistar-
ana en Halilhodzic hefur skorað 27
mörk það sem af er þessu tímabili.
Þrátt fyrir að hann muni ekki geta
leikið meira með Bordeaux er hann
svo gott sem öruggur með marka-
kóngstitilinn í Frakklandi þvi næst-
markahæsti leikmaðurinn hefur
skorað 19 mörk.
-SK.
Jafnteflð
f Skotlandi
Báðum undanúrslitaleikjunum í
bikarkeppninni í Skotlandi lauk
með jafntefli á laugardaginn.
Dundee United og Aberdeen gerðu
markalaust jafntefli fyrir framan
30 þús. áhorfendur á Tynecastal
Park í Edinborg.
Motherwell og Celtic gerðu
jafntefli, 1—1, á Hampden Park í
Glasgow. Gary McAllister skoraöi
fyrst fyrir Motherwell á 14. mín. en
það var miðvallarspilarinn,
Tommy Burns, sem jafnaði fyrir
Celtic á 23. mín.
-sos
Sigur hjá
Brighton
Tveir leikir fóru fram í ensku
knattspyrnunni í gær. NottsCounty
og Brighton léku i 2. deild og sigr-
aði Brighton með tveimur mörkum
gegn einu.
Þá var einn leikur í 3. deild.
Doncaster sigraði Y ork 3—0.
-sk.
Íþróttir Íþróttir Iþróttir íþróttir
DV. MÁNUDAGUR15. APRIL1985.
Everton aftur á Wembley: