Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1985, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1985, Page 6
54 DV. LAUGARDAGUR 8. JONl 1985. Bruce Dem 09 Peter Fonda viö \ grundrem afbeUtósofL ktinltfg • • • BO!,Cr^TíCrt**‘>i",,M'n,‘ Innan kvikmyndafræðinnar er til sérstakur flokkur bíómynda sem kallaöar eru B-myndir. Þetta eru ódýr- ar myndir, geröar í Bandaríkjunum flestallar og utan viö stóru kvikmynda- verin. Listrænn metnaöur kvikmynda- geröarmannanna er í algeru lág- marki; myndirnar yfirleitt fullar af of- beldi og öörum æsilegum atburðum, margar teljast vera visindaskáldskap- ur. Áhorfendur þessara mynda munu vera hér um bil sérstakur þjóöflokkur og stunda sínar bíóferðir seint á kvöldin. En þó B-myndirnar séu fráleitt nokk- ur listaverk hafa ýmsar þeirra öðlast það sem í enskumælandi löndum er kallað „cult-following”; svo ævintýra- legar og óborganlegar þykja þær vera. Nokkrir leikstjórar B-mynda eru í huga kvikmyndaáhugamanna nánast goö- sagnapersónur og þar ber hæst Roger nokkurn Corman, manninn sem kallaöur hefur veriö „konungur B- myndanna”. Hér segir af Corman og lærsveinum hans en í þeim hópi eru nokkrir sem seinna hafa orðið stórlax- ar í amerískri kvikmyndagerð. Aldrei tekið í tvigang Dick Miller heitir leikari sem leikið hefur í næstum því hundrað kvikmynd- um en fáir lesendur munu þekkja nafn hans. Nær allar mynda hans hafa verið gerðar fyrir lægri upphæð en það kostar nú að halda samkvæmi í Holly- wood og þær hafa því ekki farið hátt. Miller hefur meðal annars leikið í nokkrum myndum sem Roger Corman stjórnaði. „Eini möguleikinn á því að endur- taka einhverja töku í myndum Cor- mans var ef kvikmyndavélin koll- steyptist. Roger vissi alltaf hvernig hægt var að stytta sér leiö aö markinu. Á sjötta áratugnum bjó hann til mynd sem hét Stríð gervitunglanna og mynd- in var komin á markaö þremur vikum eftir að Rússarnir skutu Spútnik á loft. Þetta gekk svo fljótt fyrir sig að við gerðum aö gamni okkar um að Rússarnir heföu líklega stolið hugmyndinni frá honum.” Nú, þegar kostnaður við kvikmyndir í Hollywood verður æ hærri og framleiðendur heyrast hvísla í skúma- skotum: „Tuttugu og fimm milljónir dollara — ekki meira?” — þá skjóta óneitanlega upp kollinum afrekssögur af annarri gerð; sögur um ódýru leik- stjórana. Og Corman er þar kóngur í ríki sínu. Sumar mynda hans þykja beinlínis klassískar, svo sem Full fata af blóði eða Litla hryllingsbúðin, sem söngleikurinn hans Páls Baldvins var síðar gerður eftir. Þessar myndir voru báðar gerðar fyrir fyrirtækið Ameri- can International Pictures en árið 1970 stofnaði hann sitt eigiö kvikmyndaver og kallaöi það New World Pictures. Lærisveinarnir gera garðinn frægan Fyrirtæki Cormans sendi siðan frá sér fjöldann allan af dæmigerðum B- myndum og þar komust til vits og ára menn sem upp á síðkastið hafa gert garöinn frægan; leikstjórar eins og Jonathan Kaplan (Heart Like a Wheel), Joe Dante (Gremlins), Jonathan Demme (Stop Making Sense), Allan Arkush (Rock’n’Roll High School), Paul Bartel (Eating Raoul), Ron Howard (Splash), Amy Jones (Love Letters), og framleiðend- ur á borð við Jon Davison (Airplane!), Teri Schwartz (Eat My Dust!) og Mike Finnell (Gremlins). Og þessir menn gengu allir í læri hjá Corman í byrjun áttunda áratugarins; sem sé eftir að leikstjóramir Martin Scorsese og Francis Ford Coppola höfðu reynt sig undir hans leiösögn. Líf og fjör í kvikmyndaverinu Þessir ungu menn unnu fyrir fjarska lág laun (Arkush segist til dæmis hafa fengið 85 dollara fyrir að leikstýra, ásamt öðrum, sinni fyrstu mynd fyrir New World, Hollywood Boulevard) en andrúmsloftið í kvikmyndaverinu bætti mikið úr skák. Þar var alltaf líf og fjör og þeim fannst þeir vera lærisveinar einhvers konar seiðskratta sem aldrei var hægt að vita upp á hverju tæki næst. Þegar Joe Dante hóf fyrst störf fyrir Corman bauð framleiðandinn honum í hádegisverð og gaf honum ýmis föður- leg ráð. „Það sem ég man hvað best eftir,” segir Dante, „var aö hann þrástagaðist á því aö ég ætti alltaf að fá mér sæti þegar tækifæri gæfist við upptökur. „Þetta eru langir dagar,” sagði hann. En ráðin komu að litlu haldi því New World átti aldrei pen- inga fyrir stólum.” Allan Arkush var eins konar reddari fyrir New World Pictures. I hvert sinn sem einhver leikstjóri gat ekki staöiö undir álaginu af gífurlegum vinnu- hraöanum sem Corman heimtaði var Arkush kallaður út til að klára mynd- ina. Leikstjórar ganga af göflunum Arkush hafði nýlokið við sína fyrstu mynd þegar Corman skipaði honum fyrir um áratug að flýta sér út í Kali- fomíueyðimörkina þar sem leikstjóri, óvanur hraðanum, var að brotna niður. Þegar Arkush mætti á svæöiö var hinn leikstjórinn alveg á síöasta snúningi, röflaði og blaðraði, klæddur þykkum jakka í brennandi sólarhitan- um, og sendi aöstoðarmenn sina fárán- legra erinda i allar áttir með því að hóta þeim með byssu sem hann bar við belti. Skömmu eftir aö þetta leikstjóra- grey hafði sig á brott fann Arkush að hann var sjálfur hætt kominn af streitu. „Dag nokkum vorum við á leiðinni út í eyðimörkina meö lest flutningabíla og hugðumst hitta leikar- ana sem vom annars staðar á ferð. Maður var oröinn yfirspenntur því tökuáætlunin var svo þétt aö það mátti ekkert fara úrskeiðis, það var varla rúm fyrir klukkustundar töf. Mestar áhyggjur hafði ég af því aö við misst- um sjónar af svarta trukknum sem geymdi mikilvægasta útbúnaöinn okkar. Þegar við vorum um það bil hálfnuð leit ég allt í einu um öxl og sá hvergi svarta trukkinn. Eg ærðist alveg og fór að hrópa: „Guð minn góður, hvar er svarti trukkurinn?” Þá fór fólkið að líta skrýtilega á mig og loks sneri einn aöstoðarmannanna sér að mér og sagði afar blíðlega: „Allan. Þú ert í svarta trukknum.”” Lífshæftulegar brúður úr klefa 69 Jon Davison var nýútskrifaður úr kvikmyndadeild New York háskóla þegar Roger Corman hringdi og bauö honum 500 dollara fyrir aö skrifa hand- rit að mynd sem ákveöið hafði verið að kalla The Deadly Dolls of Cell 69. New World hafði þá nýlega gert nokkrar myndir um kvennafangelsi og enn skyldi höggvið í sama knérunn. „A þeim tíma þóttu mér 500 dollarar vera stórkostleg upphæð svo ég lét Joe Dante hafa helminginn og bað hann aö hjálpa mér að skrifa handritið.” Þegar þeir höfðu lokið verkinu eyddi Davison sínum hluta f járins í flugmiða til Hollywood þar sem hann hitti Corman. Það var fyrst þá sem hann uppgötvaöi aö Corman vildi líka að hann færi til Manila og geröi myndina. „Það tók mig góöa stund að átta mig á því að með orðunum „gera myndina” meinti hann að ég ætti að leikstýra henni,” segir Davison. Myndin sem aldrei var gerð Viku seinna hittust þeir aftur og þá tilkynnti Corman að hann vildi að Davison léki aöalhlutverkiö í myndinni í þokkabót. „Eina vandamálið var að stærsta karlhlutverkið í handritinu var svartur karatesérfræðingur sem átti að kýla í klessu allan her Filippseyja.” Eftir að hann byrjaði að endurskrifa handritið svo það rúmaöi mann sem hvorki var svartur né karate-sérfræð- ingur fóru vandamál Davison fyrst aö færast í aukana. „Eg fór að ná í vegabréfið mitt fyrir Filippseyjaferðina. Aður hafði ég fengið stöðumælasekt þegar ég fór út á flugvöll til að ná í leikara í aðra Cor- man-mynd. Kona Rogers, Julie, hafði fullvissað mig um að hún myndi sjá um sektina. Því virðist hún hafa gleymt því þegar ég náði í vegabréfið mitt á lögreglustöðinni var ég handtek- inn og mér stungið inn fyrir umferðar- lagabrot. Ég fékk að hringja eitt símtal og gerði þau mistök að hringja aftur í Julie. Þó ég væri bókstaflega hringjandi úr steininum sagðist hún vera önnum kafin og bað mig að reyna að hringja aftur daginn eftir. Það eina sem ég veit er að þessi mynd var aldrei gerö og ég lít á þaö sem mesta happ ferilsmíns.” Gamlar myndir klipptar upp á nýtt Það var oft ekki laust við að menn gripi „déja vu” tilfinning þegar þeir horfðu á New World kvikmyndir, ekki sist vegna þess að gömul filma var oft klippt upp á nýtt þegar efni hennar komst aftur í tísku. Ein af fyrstu myndum Arkush Blast var í rauninni ný útgáfa af The Final Comedown sem gerð hafði verið nokkrum árum fyrr. Billy Dee Williams lék aðalhlutverkið í The Final Comedown en nú haföi stjama hans hækkað töluvert eftir kvikmyndir eins og Lady Sings the Blues. „Roger ákvað þess vegna að senda myndina frá sér á ný en undir nýju nafni. Þar sem upprunalega myndin hafði veriö uppfull af mjög pólitískum ræðum lét Roger skera hana niður í 55 mínútur og bæta síðan 20 mínútum af hasarviðístaðinn. Eg hafði f jóra daga til þess að taka þessar mínútur og eftir að það var orðið of seint reiknuðum við út að þetta þýddi að við urðum að ná einu skoti á fimmtán minútna fresti á upptökustað. Fyrsta daginn sem við fórum út að skjóta tók að rigna. Við stóöum þama og klóruöum okkur í höfðinu og vissum ekkert hvað við áttum að gera þegar símasjálfsali hinum megin götunnar byrjaði allt i einu að hringja. „Setn betur fer sá enginn myndina..." Guð veit hvemig hann vissi að við vorum einmitt þama en þetta var Roger. Það eina sem hann sagði var: „Ég veit hvaö þið emð að hugsa. Regnið skiptir ekki máli, haldiði bara áfram aö taka.” Roger var alltaf að gefa manni stórkostleg ráð eins og: „Allan, þú þarft að láta meira gerast í forgrunninum. Skoðaöu David Lean.” Og ég hugsaði með mér — hvað ætti David Lean að vera aö gera hér, að taka 20 mínútur af filmu á fjórum dögum? Sem betur fer sá enginn myndina, eða að minnsta kosti mjög fáir. Eg man að ég sá hana einu sinni í The World, versta og subbulegasta bíóinu í Hollywood. Þegar hún var búin sagði einhver strákur við kunningja sinn: „Mér fannst þetta nú bara ágæt

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.