Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1985, Qupperneq 7

Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1985, Qupperneq 7
DV. LAUGARDAGUR 8. JUNl 1985. 55 mynd.” Og hinn svarar: „Já, hún var ókei. En ég gæti svarið að ég hefði séö hana einhvers staöar áður.” Og ekki aðundra ...” „Sýnishorn úr næstu mynd" Arkush og Dante byrjuðu upphaflega á því að setja saman „sýnishorn úr næstu myndum” hjá New World. „Við fórum alltaf að sjá myndina sem við áttum síðan að sjóða niður í auglýs- ingu,” segir Arkush, „og síðan skrupp- um við á fund til Rogers. Hann sagði alltaf það sama: „Þessa mynd seljum við á grundvelli kynlifs og ofbeldis.” Það var sama hvort um var að ræða Big Bad Mama eða Amarcord eftir Fellini, sem Roger hafði á sínum snær- um. Roger vildi nektarsenur og bíla- eltingarleiki. Hann lét okkur selja Amarcord eins og hún væri ítölsk táningagamanmynd sem af tilviljun væri eftirFellini.” Áhorfendur gabbaðir upp úr skónum Það besta við að klippa saman þessi sýnishorn, að sögn Dantes, var að þeir gátu búið til alveg splunkunýjar myndir sem áttu næsta lítið skylt við þá mynd sem raunverulega var verið að auglýsa. „Hugmyndin var að safna saman filmubútum með mikilli stíg- andi svo fólk gabbaðist til að halda að myndin væri spennandi. Jafnvel þó svo það væru 90 mínútur á milli góðra sena i bíómynd þá klipptum við þær saman. Hvenær sem atburðarásin varö hæg bættum við inn í sýnishom skotum sem við áttum af manni aö skjóta af byssu upp í loftið eða þyrlu að springa í loft upp. Það var notað í mörg sýnishom. Og þegar við vorum að búa til auglýsingamynd fyrir TNT Jackson þá tókum við senu þar sem einhver var að kaupa hveiti og með textanum einum breyttum við þessu í senu þar sem vondir menn voru að smygla lífshættu- legu „Kína-hvítu” inn í landið. Japanir klipptir út og Lorne Greene inn í staðinn Eftirlætið mitt var Flóðbylgjan, japönsk mynd sem Corman dreifði. Við klipptum burt allar senur þar sem Austurlandabúar sáust á tjaldinu og komum í staöinn fyrir senum af Lorne Greene á þingi Sameinuöu þjóðanna, rétt eins og hann væri með í allri mynd- inni. Síðan hristum við myndavélina og dreifðum hveiti út um allt svo þaö var eins og jarðskjálfti stæði yfir. Okkur hefur greinilega tekist vel upp. Þetta var ein af þeim sjaldgæfu myndum þar sem fólk sem kom út úr bíósalnum sagði fólkinu sem stóð í biö- röðaðfaraheim.” Jonathan Kaplan, sem síðan hefur gert rómaöar myndir á borð við Heart Like a Wheel og Under the Edge, hóf einnig feril sinn hjá Roger Corman. Strax á fyrsta degi sem unnið var að tökum á myndinni Stúdentakennar- arnir komst hann í kynni við eilíft vandamál hjá New World Pictures: skort á aukaleikurum vegna peninga- leysis. Corman á skrifstofu sinni; Paul Bartel virðist eiga eitthvað sökótt við hann en Washington og Nixon halda aftur af honum. Arkush og Joe Dante voru látnir búa til „sýnishorn úr nœstu mynd" af japönsku myndinni Flóðbylgjan. Þeir klipptu burt alla Austurlandabúa en bœttu Lorne Greene inn i staðinn. Hvernig 5 mönnum er breytt í heilan hóp „Eg var kominn aö þeim stað í hand- ritinu þar sem sagði: Skot á sal fullan af stúdentum. Ég leit í kringum mig og sá að við höfðum ekki nema fimm aukaleikara. Hvernig átti að breyta þeim í heilan hóp af krökkum? Þegar ég náði í Roger í símanum sagöi hann: „Sjáðu tii, Jonathan. Eg tók upp stríðið milli Italíu og Grikk- lands með fjórum mönnum og einum runna. Þú hlýtur að geta búið til hóp úr þessu.” Eg notaði síðan langa linsu, lét auka- leikarana hlaupa í hring, lét aðstoöar- mennina fara í nýja jakka og ganga fyrir framan myndavélina. Voila! Fullt í húsinu.” Buðust til að gera ódýrustu mynd fyrirtækisins Annað vinsælt ráð New World til að útvega fólk í hópsenur var að halda tombólu. „Þar sem viö höfðum ekki efni á að borga neinum,” segir Davi- son, „lofuðum við þeim sjónvarpstæki á tombólu eftir vinnu. Svo fórum viö og keyptum notaö litsjónvarp á 100 doll- ara og þannig gátum við útvegaö okkur hundrað aukaleikara.” I B-myndunum er ímyndunaraflið það eina sem getur komið í stað pen- inga. Joe Dante viðurkennir kindar- lega aö hinar ógnvekjandi stjörnur í hryllingsmynd hans, Piranha, hafi í raun verið gúmmífiskar sem filmaðir voru á botni sundlaugar í Los Angeles. Þeir Dante og Arkush voru enn í sýnishornunum þegar þeir ákváðu að tími væri kominn til þess að þeir legðu út á braut leikstjórnar. Með hjálp Davison, sem hafði verið hækkaður í Ein af frægustu myndunum sem Corman lét gera hjá New World var Death Race 2000. Hér er David Carradine í mikilfenglegu hlutverki sinu. Alan Arkush klippti myndina The Final Comedown með Billy Dee Williams niður, bœtti tuttugu mfnútum við hana og — voilal Til varð splunkuný mynd sem kölluð var Blast. tign og gerður yfirmaöur framleiðsl- unnar hjá New Worlds, lögðu þeir net sín fyrir Corman. Hugmyndin var ómótstæðileg fyrir Corman, þóttust þeir vita; þeir buðust til þess að gera ódýrustu mynd sem New World hefði nokkru sinni framleitt. Bútar úr gömlum kvikmyndum klipptir inn í nýja „Þaö sem gerðist var að Jon Davison lenti á fylliríi með Roger eftir hádegis- verð og veðjaði við hann að við gætum gert mynd fyrir 60.000 dollara,” segir Arkush. Odýrustu myndir Cormans fram aö því höfðu kostað um 100.000 dollara. Roger varð stórhrifinn. Ekki aðeins vegna þess að myndin yrði svona ódýr heldur var ætlunin að nota búta úr öðrum kvikmyndum til að fylla inn í nýju myndina. Það voru meira að segja myndir sem ennþá var verið að sýna í bíóhúsunum, Crazy Mama og DeathRace 2000.” „Engir tveir mega passa saman" Eftir að hafa komið sér upp lager af filmubútum og skeytt þá saman eftir reglunni: „Engir tveir mega passa saman”, þá tóku þeir upp það sem eftir var af myndinni, Hollywood Boule- vard. Myndin naut nokkurra vinsælda í ýmsum þröngum hópum enda mun söguþráðurinn vera fullkomlega út í hött. Að nafninu til er fylgst meö basli kvikmyndagerðarmanna hjá fyrirtæk- inu Miracle Pictures og ber það meira en lítið svipmót New World. Hún var tekin upp á aöeins tíu dögum og flestir leikararnir eru starfsmenn New World, þar á meðal Paul Bartel (sem leikur brjálaöan leikstjóra) og Jona- than Kaplan (óhæfur aöstoðarmaöur hans). Eins og Dante segir sjálfur hógværlega er eini galli myndarinnar sá að „ef maður þekkir ekki til þá er myndin hreinasta bull. Það gerast allir þessir brjáluöu hlutir en eina ástæðan fyrir þeim er sú að við áttum filmubút- ana viöhöndina.” Rifrildi, niðurlæging brottrekstrar Ein af þeim New World myndum sem hvað best gekk var sú sem lagði til ýmsa búta í Hollywood Boulevard: Death Race 2000. Leikstjóri var Paul Bartel, sem aö líkindum er frægastur fyrir Eating Raoul. „Roger var að fara af staö meö Big Bad Mama og hann lét mig leikstýra hluta myndarinnar sem aðallega byggðist upp á nokkrum bílaeltingar- leikjum qg slagsmálum. Myndin heppnaðist mjög vel og New World græddi sand af peningum á henni. Þá var komið að Death Race 2000 sem átti aö vera stórmyndin hjá fyrirtækinu árið 1974 og af því Roger þóttist sjá að ég væri góður í hasar bauö hann mér myndina. Eg er ekkert hrifinn af bíla- leikjum og raunar ekki af bílum sem slíkum en tók þetta engu að síöur aö mér. Næsta árið gekk á með handrits- breytingum, rifrildum, niðurlægingu og brottrekstrum. Handriti breytt eftir útliti bíla Bílarnir í myndinni voru í smíðum næstum jafnlengi og handritiö sjálft og einu sinni í viku fórum við að skoöa hvernig þeir litu nú út. Einn bílanna leit út eins og mannýgt naut, annar eins og krókódíll, sá þriðji eins og sprengja og svo framvegis. Ef einn bil- anna leit betur út en hinir hverju sinni heimtaði Roger að aðalhetjan fengi þann bíl og þá þurfti að breyta handrit- inu til þess að skaplyndi hetjunnar hæfði bílnum. En loksins var þetta búið og þá tókum við myndina upp á fjórum vikum. Klippingin tók álíka tíma og Roger þoldi ekki niðurstöðuna. Það var ekki nóg blóð en of mikið af bröndurunum. Endirinn var alveg frá- leitur í hans augum. Þegar David Carradine keyrir burt og ekur yfir Don Steele í lokin þá vildi Roger að Steele yrði tættur í sundur meö vélbyssu. Ég sagði: „Svona nú, Roger, þessi mynd fjallar um að keyra fólk niður og hún veröur aö enda þannig.” „Nei,” sagði Roger, „Frankenstein er oröinn forseti Bandaríkjanna og for- seti Bandaríkjanna keyrir fólk bara ekkiniður.” Blóðslettum laumað inn í eftir á Eg hlustaði ekki á hann og tók þetta bara upp á minn hátt. Hann hefur aldrei fyrirgefið mér. Hann var mjög reiður. En Roger sendi þá út annað kvik- myndagengi til þess að taka upp nokkrar senur þar sem höfuö fuku og blóöiö rann í sti íðum straumum. Þessu bætti hann síðan inn í myndina en neyddist til að taka meirihlutann út aftur þegar kvikmyndaeftirlitið hótaði að banna myndina innan 18 ára. Undir eins og eftirlitið hafði svo leyft myndina fyrir 16 ára og eldri laumaöi hann þessum senum flestum inn á nýjan leik. Þetta var plagsiöur hans þegar kynlíf og ofbeldi voru annars vegar. Við vorum eiginlega aldrei á einu máli um þessa mynd en hún gekk ljóm- andi vel. Eg hafði unnið fyrir Roger í heilt ár að þessari mynd og fengið 5000 dollara í laun og einu sinni bauð hann mér í stað bónusar hluta af ágóðanum. En þegar peningarnir fóru að streyma í kassann afhenti hann mér 500 dollara bónus og þóttist ekkert muna eftir ágóðahlutnum. Hann útskýrði fyrir mér aö bókhaldið væri alltof flókið til að slíkt væri mögulegt...” Samantekið, snúið og sneitt: -IJ.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.