Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1985, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1985, Side 10
' i 1 I I í I ! DV. LAUGARDAGUR 8. JUNl 1985. KAPPHL AIIP TIL MARS Plánetan Mars er hentugur áfangi að miða að af ýmsum ástæðum. Geim- könnun er flókið verkefni sem krefst mikillar skipulagningar. Ef takmarkið værí sett á Mars og miðað við mannað könnunarflug og rannsóknir á yfir- borði plánetunnar myndi það markmið stýra geimkönnun um langan tíma. Og Mars er eðlilegur áfangi á leið til loft- steinabeltisins en þangað telja margir að mannkynið muni sækja mest af hrá- efnum sinum í framtíöinni. Og Mars er byggilegasta pláneta sólkerfisins, frá sjónarhóli mannskepnunnar, fyrir utan jöröina, auðvitaö. Á Mars finnast hráefni, sem tryggja það aö þar má framleiða súrefni og vatn í nægum mæli til þess að gera hugsanlegum íbúum plánetunnar lífið auðvelt. Það er mögulegt að málmar og jafnvel demantar kunni að finnast á Mars en það er ólíklegt að náma- vinnsla verði tekin upp. Hagkvæmara yrði að nýta Mars sem bækistöð fyrir nýtingu loftsteinabeltisins. En það eru aðrar visindalegar ástæður sem rétt- læta það að senda mönnuð geimför til Mars. Landslag á Mars, gígar, þurrir árfarvegir og jökulhettur á pólum plánetunnar geyma einstæðar upplýsingar um fortiðina. Meðal þeirra spuminga, sem upplýs- ingar fengnar á Mars gætu leyst, eru gátur um veðurfar og orsakir isalda. Jörðin, og Líklega allt sólkerfið, gengur öðru hverju gegnum ísaldir og skiln- ingur á því fyrirbæri gæti reynst mönn- um dýrmætur. Áhugaleysi Ahugi á könnun Mars hefur ekki ver- ið mikill síðustu ár. Á árunum milli 1960 og 1966 veitti Bandariska geim- feröastofnunin, NASA, sextíu sinnum fjármagn til undirbúnings rannsókna vegna ferða til Mars. En þegar skammt var liðið á síðasta áratug var það ljóst að stofnunin hafði ekki frek- ari áhuga á hugmyndum um slíkt. For- svarsmenn stofnunarinnar óttuðust að andstæðingar geimkönnunar á banda- ríska þinginu myndu leggjast gegn geimskutluáætluninni á þeirri for- sendu að hún væri fyrsta skrefið í átt að mönnuðu flugi til Mars. I skýrslu sem gefin var út 1976, og fjallaði um markmiö geimkönnunar fram aö aldamótum, var í einni máls- grein vikið að mönnuðum könnunar- flaugum til annarra pláneta í sólkerf- inu. „Fyrir nokkrum árum gekk okkur svo illa að fá stuðning við verkefni, sem þegar voru í fullum gangi, að okk- ur þótti ekki taka því að hugleiða stærri verkefni,” segir Jeff Briggs, háttsettur starfsmaður NASA. Draum- urinn um mannaö könnunarflug til Mars lifir aðeins í brjóstum nokkurra hugsjónamanna. Þeir kölluðu sig „Mars-neðanjaröarhreyfinguna” og stóðu fast á þeirri sannfæringu sinni að plánetan Mars væri hið eölilega tak- mark i næsta áfanga geimkönnunar. Neðanjarðarhreyfing „Mars-neðanjarðarhreyfingin” varö til 1977 og þrem árum siðar gengust samtökin fyrir ráðstefnu um tilgang og aðferðir við könnun plánetunnar. Ráð- stefnan naut ekki opinbers stuðnings en þótti takast mjög vel. Þar ræddu hundrað ráöstefnugestir vandamál svo sem markmið leiðangursins, hönnun farkostar, umhverfi áhafnar, upplýs- | j- WijfM ' ' ' / ' /'/ • ' / • ■. ■. ■ . ■■ ... .;.■;.■. ■.. ■ ■.■.-,. ■■ ■ ' ' . .' ’ ■■■,■ ■ .■■

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.