Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1985, Side 11
DV. LAUGARDAGUR 8. JUNl 1985.
59
Árið 1901 tóku nokkrir Parísarbúar sig saman og buðust til að greiða
hverjum þeim manni verðlaun sem yrði fyrstur til þess að komast í
samband við geimverur. Það var sérstaklega tekið fram i boði þessu að
Marsbúar teldust ekki með, þar sem það væri aðeins tímaspursmál hvenær
þeir kæmu í heimsókn til jarðar. Nú er það ekki fjarlægur draumur að fyrstu
Marsbúarnir verði ættaðir frá jörðunni. Nú virðist könnun geimsins ætla að
taka nýtt stökk. Sovétmenn undirbúa að senda mannlaus könnunarför til
Mars. Og Bandaríkjamenn hugleiða frekari rannsóknir á geimnum.
— langt og erfitt hindrunarhlaup
ingaöflun og félagslegan og pólitískan
undirbúning ferðar til Mars.
Síöan ráöstefnan var haldin, hefur
hugmyndum um könnun Mars vaxiö
mjög fylgi. Að hluta til stafar þaö af
góðum árangri NASA á síðustu árum
en einnig af öðrum orsökum. Jarðfræð-
ingar hafa fundið loftstein sem líklega
er kominn frá Mars. Hið virta Plánetu-
félag, undir stjóm Carl Sagan, hefur
lengi efast um gildi mannaðra könnun-
arleiöangra um geiminn en hefur nú
lagt þær efasemdir til hliðar og styrkir
nú svokallaða Mars-stofnun sem
gengst fyrir umræöum og rannsóknum
sem teng jast hugsanlegri ferð til Mars.
Stuöningur í Washington hefur auk-
ist líka. Bandaríska þingið hefur sam-
þykkt fjárframlög til byggingar gervi-
tungls, sem setja skal á braut um
Mars. Nýjustu skýrslur sýna að mann-
laust geimfar gæti komist til Mars og
snúið aftur með jarðvegssýnishom fyr-
ir aldamót en slflc ferð myndi kosta tvo
milljarða dollara.
En það er fjarri því að menn séu á
einu máli um ferðir til Mars. Fjöldi vís-
indamanna og geimfara vilja láta
raunverulegt landnám á tunglinu
ganga fyrir öðrum verkefnum. Og ef
markmiöið er það að koma upp rann-
sóknaraöstöðu til frambúðar, annars-
staöar en á jörðinni, hefur tunglið
ýmsa kosti. Þangað er styttra en til
Mars, það er auöveldara að koma
þangað birgðum og visindalegt gildi
rannsókna þar er óefaö.
En þegar allt kemur til alls kann
landnám á Mars aö þykja áhugaverð-
ara verkefni. Arthur C. Clarke, rithöf-
undur og visindamaður, segir að þó
tunglið sé eðlilegur áfangi á braut
geimkönnunar, sé það þó í raun aðeins
eyja, skammt undan strönd jarðar. En
Mars, sem er reikistjama og nærri því
jafnstór og jörðin, er fyrsti nýi heimur-
inn sem manninum býðst að sigrast á.
Landnám á tunglinu þarf ekki aö
rekast á við könnun á Mars. Tækni-
kunnátta sem fengist við landnám á
tunglinu myndi nýtast vel á Mars.
Sovótmenn undirbúa
En svo virðist sem öflugasti hvatinn
til könnunar á Mars komi frá Sovét-
rflcjunum. Sovéskir geimfarar hafa
farið í lengri geimferðir en bandarísk-
ir. Valeriy Ryumin hefur farið í tvær
sex mánaöa geimferðir í röð. Feröin til
Mars tæki tíu mánuði.
Þá má benda á að Sovétmenn hafa
byggt nýja geimflaug sem kölluð er
Saturnski. Sovéskir vísindamenn spá
því aö innan tíðar muni þeir smiða
þrepskiptar flaugar þar sem efri þrep-
in verði kjamorkuknúin. (NASA hætti
við undirbúning slíkra flauga 1973.) Og
Sovétmenn undirbúa nú smiöi tveggja
tegunda geimskutina. Onnur á aö
veröa lítil flaug fyrir tvo farþega en
hin yröi á stærð við bandarisku geim-
skutluna.
Sovéskir vísindamenn hafa einnig
kynnt framfarir sem orðið hafa í að-
búnaði geimfara. Þeir munu hafa með-
ferðis plöitur í geimferðum, sem
myndu bæði sjá geimförum fyrir súr-
efni og fæði. Slíks aöbúnaðar er aðeins
þörf ef fara á ferðir til Mars eöa aðrar
svipaðar vegalengdir. Eftir þessum
undirbúningi að dæma má búast við að
* Sovétmenn sendi mönnuð geimför til
Mars um aldamót, og manni stöðvar á
plánetunni skömmu síðar.
Þessar framfarir í geimferðatækni
Sovétmanna hafa oröiö til þess að
NASA sýnir nú hugmyndum um ferðir
tilMarsáhuga.
Mönnuð för nauðsynleg
Það er nauösynlegt að senda mönnuð
geimför til Mars, ef tryggja á næga
gagnaöflun. Menn eru mun fljótari að
vinna en vélmenni eins og samanburð-
ur sýnir. Hefði Appollo 15 geimfarið
verið skipað vélmennum hefði það tek-
ið fimm mánuði að safna upplýsingum
og sýnum, sem geimfararnir náöu á
átta tímum.
Ferðalagið til Mars yrði tiltölulega
einfalt. Miöað við heföbundna geim-
flaugahönnun, er hægt að senda geim-
far frá jörðu til Mars á u.þ.b. tveggja
ára fresti, þegar innbyrðis afstaöa
reikistjarnanna er rétt. Ferðin tæki
um tíu mánuði, og síðan þyrfti geim-
fariö að bíöa á sporbaug um plánetuna
þar til innbyrðis afstaöa plánetanna
hentaði fyrir ferðina til baka. Ferðin
fram og aftur tæki því tvö til þrjú ár.
Þessi bið gefur tíma til þess að
stunda rannsóknir. Niðurstaða sér-
fræðinga er sú aö til þess aö stunda
rannsóknir þurfi varanlega rannsókn-
araöstöðu á yfirborði plánetunnar.
Fyrstu Marsfararnir hefðu það hlut-
verk að koma rannsóknarstofunni upp
fyrir þá sem kæmu síðar.
En vegalengdin milli jarðar og Mars
kostar það aö geimfarið sem notað
yrði, þyrfti að vera mun stærra en
tunglförin voru. Flutningsgeta yrði
lflca að vera meiri því flytja þyrfti til-
búnar rannsóknarstofur. Apollo geim-
förin vógu um 100 tonn. Geimfar full-
búið til Mars-ferðar myndi vega um
1000 tonn og þyngdin yrði að mestu
eldsneyti. Þessi þyngd er langt uin-
fram það sem NASA-sérfræðingar sjá
fyrir að hægt verði að koma í loftið,
jafnvel á næstu öld. Áhugamenn um
könnun Mars hafa þvi einbeitt sér aö
því að finna leiöir tU þess að draga úr
þessari þyngd. Þeir hafa bent á ýmsar
leiðir og flestar miöast við að nýta að-
stæður á Mars.
1 fyrsta lagi má benda á að andrúms-
loft á Mars, sem samanstendur af kol-
tvísýringi, köfnunarefni, argon og
vatnsgufu, er góð uppspretta súrefnis
og vatns. Þar að auki eru íshettumar á
pólum plánetunnar að hluta úr vatni og
sumir visindamenn teija að vatn sé
einnig undir yfirborði plánetunnar,
frosið. Plöntur myndu fá gnægð koltví-
sýrings.
Eldsneytisstöðvar
Mars myndi lflca bjóða upp á gnægð
eldsneytis. Finnist orkugjafi má skilja
að súrefni og vetni í vatnssameindum
og þar með fengist eldsneyti til heim-
ferðarinnar. Ef fara á hringferð milli
plánetanna eru það eldsneytisbirgðim-
ar sem ráða stærð geimfarsins. Ef ekki
þarf að bera aUar eldsneytisbirgðir
með frá upphafi breytir það öUu.
En slflcur ávinningur fengist ekki
frítt. Þessi hugmynd hefur því aðeins
hagnýtt gfldi, að tækin sem þarf tU
þess aö kljúfa vatnssameindir séu mun
léttari en eldsneytið sem ella þyrfti.
En ef slflc trici yröu hluti af varanlegri
stöð á yfirborði plánetunnar yrði
ávinningurinn stórkostlegur.
önnur hugmynd, sem sett hefur ver-
ið fram, er sú að senda tvö geimför.
Fjórir geimfarar yrðu í öðm farinu,
sem héldi tU Mars og lenti. Hitt geim-
farið væri mannlaust og færi á spor-
baug umhverfis Mars. Þegar geimfar-
arnir hefðu lokið rannsóknum sinum
fæm þeir með UtUU geimskutlu upp í
seinna farið, og héldu heimleiðis.
Aðrir hafa lagt tU að fyrstu geimfar-
amir tU Mars lendi ekki á plánetunni
sjálfri heidur á tunglum hennar, Phob-
os og Deimos. Kosturinn við tunglin er
sá að þau em talin vera 20% vatn og
mætti því nota þau sem eldsneytis-
brigðir. Auk þess að nýta vatnið sem
eldsneyti myndi það einnig þýða að
geimfarar þyrftu að hafa minna súr-
efni og vatn meðferðis frá jörðu.
Það mætti jafnvel senda vatn frá
Phobos til tunglsins þar sem Utið sem
ekkert vatn er að finna. Fyrir þann
kostnað, sem fylgdi því að senda einn
Utra af vatni frá jörðu tU tunglsins,
mætti senda f jóra lítra vatns frá Phob-
osi til tunglsins.
Lífkerfi
Sovétmenn hafa mikinn áhuga á
tunglum Mars. Þeir munu halda áfram
rannsóknum sínum á Mars með tveim
geimskotum 1988. Tilgangur þeirra
skota er sá að koma ómönnuðum för-
um tU Phobos og kanna það.
En áður en hægt er að senda mannað
geimfar tU Mars þarf að fuUkomna
nauösynlegt lífkerfi í geimskipunum.
TU þessa hefur verið gengið út frá því
aö ferðalög til Mars krefðust lok-
aðra lífkerfa með stöðugri endurnýt-
ingu vatns og lofts en unnið er að upp-
byggingu slflcra kerfa vegna fyrirhug-
aðra geimstöðva. SUkt kerfi er þó ekki
endilega nauösynlegt fyrir geimstöö
nærri jörðu sem fengi birgðir sendar
þaðan. En fyrir ferð tU Mars er þaö
bráðnauðsynlegt.
Vandinn er sá, að geimstöðvaráætl-
un NASA, er miöuð við að rannsókna-
og hönnunarkostnaður verði ekki meiri
en 8 miUjarðar dollara. Rannsóknir og
hönnun á lokuðu lífkerfi yrðu mjög
dýrar og vegna þess að kostnaður við
að koma geimstöðinni á braut um
jörðu og halda henni við er ekki talinn í
þessum átta miUjörðum er Uklegt að
NASA velji þann kostinn að halda uppi
flutningum á vatni og súrefni tU stöðv-
arinnar. Þó eru rannsóknir á lokuöum
lífkerfum forsenda fyrir lengri könn-
unarferðum um geiminn, svo sem tU
Mars, og einnig fyrir því sem margir
telja nærtækari möguleika, nefnUega
byggingu stöðvar á yfirborði tunglsins.