Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1985, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1985, Síða 11
DV. LAUGARDAGUR 8. JUNl 1985. 59 Árið 1901 tóku nokkrir Parísarbúar sig saman og buðust til að greiða hverjum þeim manni verðlaun sem yrði fyrstur til þess að komast í samband við geimverur. Það var sérstaklega tekið fram i boði þessu að Marsbúar teldust ekki með, þar sem það væri aðeins tímaspursmál hvenær þeir kæmu í heimsókn til jarðar. Nú er það ekki fjarlægur draumur að fyrstu Marsbúarnir verði ættaðir frá jörðunni. Nú virðist könnun geimsins ætla að taka nýtt stökk. Sovétmenn undirbúa að senda mannlaus könnunarför til Mars. Og Bandaríkjamenn hugleiða frekari rannsóknir á geimnum. — langt og erfitt hindrunarhlaup ingaöflun og félagslegan og pólitískan undirbúning ferðar til Mars. Síöan ráöstefnan var haldin, hefur hugmyndum um könnun Mars vaxiö mjög fylgi. Að hluta til stafar þaö af góðum árangri NASA á síðustu árum en einnig af öðrum orsökum. Jarðfræð- ingar hafa fundið loftstein sem líklega er kominn frá Mars. Hið virta Plánetu- félag, undir stjóm Carl Sagan, hefur lengi efast um gildi mannaðra könnun- arleiöangra um geiminn en hefur nú lagt þær efasemdir til hliðar og styrkir nú svokallaða Mars-stofnun sem gengst fyrir umræöum og rannsóknum sem teng jast hugsanlegri ferð til Mars. Stuöningur í Washington hefur auk- ist líka. Bandaríska þingið hefur sam- þykkt fjárframlög til byggingar gervi- tungls, sem setja skal á braut um Mars. Nýjustu skýrslur sýna að mann- laust geimfar gæti komist til Mars og snúið aftur með jarðvegssýnishom fyr- ir aldamót en slflc ferð myndi kosta tvo milljarða dollara. En það er fjarri því að menn séu á einu máli um ferðir til Mars. Fjöldi vís- indamanna og geimfara vilja láta raunverulegt landnám á tunglinu ganga fyrir öðrum verkefnum. Og ef markmiöið er það að koma upp rann- sóknaraöstöðu til frambúðar, annars- staöar en á jörðinni, hefur tunglið ýmsa kosti. Þangað er styttra en til Mars, það er auöveldara að koma þangað birgðum og visindalegt gildi rannsókna þar er óefaö. En þegar allt kemur til alls kann landnám á Mars aö þykja áhugaverð- ara verkefni. Arthur C. Clarke, rithöf- undur og visindamaður, segir að þó tunglið sé eðlilegur áfangi á braut geimkönnunar, sé það þó í raun aðeins eyja, skammt undan strönd jarðar. En Mars, sem er reikistjama og nærri því jafnstór og jörðin, er fyrsti nýi heimur- inn sem manninum býðst að sigrast á. Landnám á tunglinu þarf ekki aö rekast á við könnun á Mars. Tækni- kunnátta sem fengist við landnám á tunglinu myndi nýtast vel á Mars. Sovótmenn undirbúa En svo virðist sem öflugasti hvatinn til könnunar á Mars komi frá Sovét- rflcjunum. Sovéskir geimfarar hafa farið í lengri geimferðir en bandarísk- ir. Valeriy Ryumin hefur farið í tvær sex mánaöa geimferðir í röð. Feröin til Mars tæki tíu mánuði. Þá má benda á að Sovétmenn hafa byggt nýja geimflaug sem kölluð er Saturnski. Sovéskir vísindamenn spá því aö innan tíðar muni þeir smiða þrepskiptar flaugar þar sem efri þrep- in verði kjamorkuknúin. (NASA hætti við undirbúning slíkra flauga 1973.) Og Sovétmenn undirbúa nú smiöi tveggja tegunda geimskutina. Onnur á aö veröa lítil flaug fyrir tvo farþega en hin yröi á stærð við bandarisku geim- skutluna. Sovéskir vísindamenn hafa einnig kynnt framfarir sem orðið hafa í að- búnaði geimfara. Þeir munu hafa með- ferðis plöitur í geimferðum, sem myndu bæði sjá geimförum fyrir súr- efni og fæði. Slíks aöbúnaðar er aðeins þörf ef fara á ferðir til Mars eöa aðrar svipaðar vegalengdir. Eftir þessum undirbúningi að dæma má búast við að * Sovétmenn sendi mönnuð geimför til Mars um aldamót, og manni stöðvar á plánetunni skömmu síðar. Þessar framfarir í geimferðatækni Sovétmanna hafa oröiö til þess að NASA sýnir nú hugmyndum um ferðir tilMarsáhuga. Mönnuð för nauðsynleg Það er nauösynlegt að senda mönnuð geimför til Mars, ef tryggja á næga gagnaöflun. Menn eru mun fljótari að vinna en vélmenni eins og samanburð- ur sýnir. Hefði Appollo 15 geimfarið verið skipað vélmennum hefði það tek- ið fimm mánuði að safna upplýsingum og sýnum, sem geimfararnir náöu á átta tímum. Ferðalagið til Mars yrði tiltölulega einfalt. Miöað við heföbundna geim- flaugahönnun, er hægt að senda geim- far frá jörðu til Mars á u.þ.b. tveggja ára fresti, þegar innbyrðis afstaöa reikistjarnanna er rétt. Ferðin tæki um tíu mánuði, og síðan þyrfti geim- fariö að bíöa á sporbaug um plánetuna þar til innbyrðis afstaöa plánetanna hentaði fyrir ferðina til baka. Ferðin fram og aftur tæki því tvö til þrjú ár. Þessi bið gefur tíma til þess að stunda rannsóknir. Niðurstaða sér- fræðinga er sú aö til þess aö stunda rannsóknir þurfi varanlega rannsókn- araöstöðu á yfirborði plánetunnar. Fyrstu Marsfararnir hefðu það hlut- verk að koma rannsóknarstofunni upp fyrir þá sem kæmu síðar. En vegalengdin milli jarðar og Mars kostar það aö geimfarið sem notað yrði, þyrfti að vera mun stærra en tunglförin voru. Flutningsgeta yrði lflca að vera meiri því flytja þyrfti til- búnar rannsóknarstofur. Apollo geim- förin vógu um 100 tonn. Geimfar full- búið til Mars-ferðar myndi vega um 1000 tonn og þyngdin yrði að mestu eldsneyti. Þessi þyngd er langt uin- fram það sem NASA-sérfræðingar sjá fyrir að hægt verði að koma í loftið, jafnvel á næstu öld. Áhugamenn um könnun Mars hafa þvi einbeitt sér aö því að finna leiöir tU þess að draga úr þessari þyngd. Þeir hafa bent á ýmsar leiðir og flestar miöast við að nýta að- stæður á Mars. 1 fyrsta lagi má benda á að andrúms- loft á Mars, sem samanstendur af kol- tvísýringi, köfnunarefni, argon og vatnsgufu, er góð uppspretta súrefnis og vatns. Þar að auki eru íshettumar á pólum plánetunnar að hluta úr vatni og sumir visindamenn teija að vatn sé einnig undir yfirborði plánetunnar, frosið. Plöntur myndu fá gnægð koltví- sýrings. Eldsneytisstöðvar Mars myndi lflca bjóða upp á gnægð eldsneytis. Finnist orkugjafi má skilja að súrefni og vetni í vatnssameindum og þar með fengist eldsneyti til heim- ferðarinnar. Ef fara á hringferð milli plánetanna eru það eldsneytisbirgðim- ar sem ráða stærð geimfarsins. Ef ekki þarf að bera aUar eldsneytisbirgðir með frá upphafi breytir það öUu. En slflcur ávinningur fengist ekki frítt. Þessi hugmynd hefur því aðeins hagnýtt gfldi, að tækin sem þarf tU þess aö kljúfa vatnssameindir séu mun léttari en eldsneytið sem ella þyrfti. En ef slflc trici yröu hluti af varanlegri stöð á yfirborði plánetunnar yrði ávinningurinn stórkostlegur. önnur hugmynd, sem sett hefur ver- ið fram, er sú að senda tvö geimför. Fjórir geimfarar yrðu í öðm farinu, sem héldi tU Mars og lenti. Hitt geim- farið væri mannlaust og færi á spor- baug umhverfis Mars. Þegar geimfar- arnir hefðu lokið rannsóknum sinum fæm þeir með UtUU geimskutlu upp í seinna farið, og héldu heimleiðis. Aðrir hafa lagt tU að fyrstu geimfar- amir tU Mars lendi ekki á plánetunni sjálfri heidur á tunglum hennar, Phob- os og Deimos. Kosturinn við tunglin er sá að þau em talin vera 20% vatn og mætti því nota þau sem eldsneytis- brigðir. Auk þess að nýta vatnið sem eldsneyti myndi það einnig þýða að geimfarar þyrftu að hafa minna súr- efni og vatn meðferðis frá jörðu. Það mætti jafnvel senda vatn frá Phobos til tunglsins þar sem Utið sem ekkert vatn er að finna. Fyrir þann kostnað, sem fylgdi því að senda einn Utra af vatni frá jörðu tU tunglsins, mætti senda f jóra lítra vatns frá Phob- osi til tunglsins. Lífkerfi Sovétmenn hafa mikinn áhuga á tunglum Mars. Þeir munu halda áfram rannsóknum sínum á Mars með tveim geimskotum 1988. Tilgangur þeirra skota er sá að koma ómönnuðum för- um tU Phobos og kanna það. En áður en hægt er að senda mannað geimfar tU Mars þarf að fuUkomna nauösynlegt lífkerfi í geimskipunum. TU þessa hefur verið gengið út frá því aö ferðalög til Mars krefðust lok- aðra lífkerfa með stöðugri endurnýt- ingu vatns og lofts en unnið er að upp- byggingu slflcra kerfa vegna fyrirhug- aðra geimstöðva. SUkt kerfi er þó ekki endilega nauösynlegt fyrir geimstöö nærri jörðu sem fengi birgðir sendar þaðan. En fyrir ferð tU Mars er þaö bráðnauðsynlegt. Vandinn er sá, að geimstöðvaráætl- un NASA, er miöuð við að rannsókna- og hönnunarkostnaður verði ekki meiri en 8 miUjarðar dollara. Rannsóknir og hönnun á lokuðu lífkerfi yrðu mjög dýrar og vegna þess að kostnaður við að koma geimstöðinni á braut um jörðu og halda henni við er ekki talinn í þessum átta miUjörðum er Uklegt að NASA velji þann kostinn að halda uppi flutningum á vatni og súrefni tU stöðv- arinnar. Þó eru rannsóknir á lokuöum lífkerfum forsenda fyrir lengri könn- unarferðum um geiminn, svo sem tU Mars, og einnig fyrir því sem margir telja nærtækari möguleika, nefnUega byggingu stöðvar á yfirborði tunglsins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.