Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1985, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1985, Page 14
62 DV. LAUGARDAGUR 8. JUNl 1985. Mozart að fá sér kaffi i Salzburg. þessum ferðum okkar og við snerum aftur heil niöur á jafnsléttu eftir aö hafa virt fyrir okkur skíðafólkið. Badgestein Badgestein var næsti viðkomustaður okkar. Staðurinn er frægur fyrir böð sín og heilsusamlegt vatn. Maður tók enga sénsa og hélt sig við bjórinn. 1 Dorfgestein var næst á dagskránni. Það virtist vera ódýrasti staðurinn af þeim sem við heimsóttum. Rólegur staður, vel fallinn til útivista. Agæt andstæða við Wunderbar í Zell am See. Dorfgestein var síöasti viðkomustaður okkar í Austurríki og næst fórum við til Frankfurt. I Frankfurt er gerólíkur andi miðað við það sem maður kynntist í Salzburg. Allt miklu stærra og stórborgarbragur sem maður verður var við í aftursæti ieigubils með talstöð, útvarp í gangi og við blasa ljósaskilti sem bjóða upp á allar tegundir af klámi. Búðarglugg- amir buðu nú einnig upp á rafmagns- tæki á góðu verði og tískufatnað. Við heimsóttum Davíð Vilhebnsson í ' Frankfurt en hann veitir skrifstofu Flugleiða þar forstöðu. Davíö sagði okkur að aðsókn Bandaríkjamanna væri undirstaða þess að flugið til Salz- burg yrði reglubundið í framtíðinni. Dæmið myndi aldrei ganga upp með Islendingum einum. Hann sagði okkur að feröir til Islands væru afar dýrar fyrir venjulega Evrópubúa en áhugi fyrir þeim væri mikill. Winterberg Hann heitir Rudi Knapp, kappinn sem sótti okkur daginn eftir til aö sýna , okkur Winterberg, síðasta viðkomu- staðinn í þessari ferð. Við fengum hvert um sig raöhús til að hafa það huggulegt í og síðan skoöuðum við svæðið. A staðnum er til dæmis sund- laug, tenniskennsla, bóling, aðstaða til að fara í pEukast og tepokakast!, auk tívolís í nágrenninu. Rudi Knapp talar íslensku og vinnur af kappi við að þýða . alla bæklinga á staðnum á þá tungu. Hann sagði að bráðlega yrði matseöill- inn tilbúinn á íslensku. Ekkert sérlega aökallandi fannst mér því hann var svo góður aö þaö var hægt að panta blind- andi af honum þó maöur skildi ekki orð. Sæmundur Guövinsson, blaðafulltrúi Flugleiða, sagði okkur í því sambandi vs* frá manninum sem var í París. Hann varð að gera blindpöntun vegna tungu- málaörðugleika. Fyrst pantaöi hann og fékk grænmetissúpu. Þá ætlaði hann að snúa sér aö aðalréttinum en fékk blómkálssúpu. Þriðju tilraunina gerði hann neðar á matseðlinum og fékk franska lauksúpu. Súpumáltíð mannsins var farin að vekja verulega athygli á veitingastaðnum þannig að hann hugöist reka af sér slyðruorðið og pantaði eftir neðstu linunni á matseöl- inum. Þá fékk hann tannstöngul. Eftir dvölina í Winterberg var flogið heim. Rudi ók okkur til Lúxemborgar og við hinkruöum eftir vélinni þar. I ljós kom að við vorum að fljúga heim á þrjátíu ára afmælisdegi Lúxemborgar- flugsins. A þessu tímabili hefur flug- félagið flutt fimm milljónir manna til og frá Lúxemborg. Boðið var upp á kampavín á leiðinni (að vísu ekki drukkið úr háhæluðum skóm).

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.