Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1985, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1985, Side 17
DV. LAUGARDAGUR 8. JUNl 1985. 65 Um mállýskur Mállýskumyndun hefur verið lítil á íslandi. En hvernig verður þeirra mál? Eitt af sérkennum íslenskrar tungu er hve mállýskumunur er lítill. Sé litið til annarra landa kemur i ljós að viðast hvar er mun meiri mállýskumunur. Mállýskur verða yfirleitt til þegar hópar manna einangrast. Máliö breyt- ist á annan veg þar en á öðrum stöðum. Að vísu er þetta ekki alveg svona ein- falt því mörk milli tungumáls og mál- lýsku eru ekki alltaf skýr. Ýmsar skýringar eru til á þessari sérstöðu íslenskunnar. Vegna fjarlægðar landsins frá öðr- um löndum eru áhrif þaðan minni en ella. önnur skýring er að samgöngur hafa verið greiðar innanlands og að málsvæðið er hringlaga þannig aö mál- breytingar sem upp koma á einum stað eiga greiða leið til beggja átta. Ekki er að efa að bókmenntir þjóðarinnar eiga drjúgan þátt í að hamla gegn mállýsk- um. Hér hafa aöeins verið nefndar fáar skýringar. Sjálfsagt koma mun fleiri til álita. Mállýskur geta orðið til á hvaða sviöi málsins sem er. Þær geta verið á sviði framburðar, orðaforða, beygingar- fræði o.s.frv. Dæmi um allt þetta eru til á Islandi. Mállýskurannsóknir á Islandi eru fremur iitlar til. Ef frá eru taldar at- huganir einstaklinga fyrr á öldum má segja að aðeins ein rannsókn hafi verið gerð sem rísi undir því nafni. Það var mállýskurannsókn Björns Guðfinns- sonar sem gerð var á árunum 1941—43. Hún er reyndar feikilega yfirgripsmik- il og merkileg. Hann og samstarfs- menn hans prófuöu framburð um það bil tíunda hvers Islendings. Niðurstöð- ur þessara rannsókna fylla tvær stórar bækur. A þeim byggist raunverulega flest sem vitað er um framburöarmál- lýskur í landinu. Núna stendur yfir önnur rannsókn, íslensk tunga 17 Eiríkur Brynjólfsson gerð af Höskuldi Þráinssyni og Kristj- áni Amasyni. Þar er ætlunin aö prófa öll þau atriði sem Bjöm rannsakaði og fleiri tU. Sömuleiöis er ætlunin að ná til allra þeirra sem Bjöm rannsakaði i þeim tilgangi að fá úr því skorið hvem- ig fólk breytir framburði sínum frá bamæsku til fullorðinsára. Af öðrum íslenskum mállýskurann- sóknum má nefna slatta af BA-ritgerö- um sem gerðar vom viö háskólann um útbreiöslu einstakra orða. Sammerkt með öllum þessum rann- sóknum er að málfarsleg atriði em rannsökuð með tilliti til landfræðilegr- ar útbreiðslu. En mállýskur geta farið eftir öðrum mörkum en landfræðileg- um. Þær geta verið háðar ýmsum fé- lagslegum þáttum. Þjóðfélagslegar mállýskur Þjóöfélagslegar mállýskur — þetta er reyndar ekki gott orðalag en ég kann ekkert betra — geta verið af ýmsu tæi. Einasta skilyrðið fyrir myndun þeirra er að tilteknir hópar einangrist félagslega. Þá á ég ekki við einhverja utangarösmenn eða tötralýð heldur einfaldlega einhvem hóp manna sem hefur tiltekin sérkenni. Dæmi þar um eru böm, unglingar, íþróttamenn, sjómenn o.s.frv. Allir kannast viö það aö ekki hafa ungir og gamlir sams konar málfar. Oröaforði er allt annar og hugsanlega framburður. Sömuleiðis er mismunur á máli karla og kvenna. Ymsir faghóp- ar og starfshópar hafa sérkenni í máli svo og stéttir. Rannsóknir á þessu eru afar skammt á veg komnar á Islandi. Víöa erlendis eru þær mun lengra komnar, sjálfsagt vegna þess aö siik skipting er þar meira áberandi, sbr. stéttamál- lýskur í Englandi og Bandarikjunum. Reyndar verður ekkert fullyrt um tilvist slíkra mállýskna á Islandi en ýmislegt bendir til þess aö svipað gildi hér á landi og annars staðar þótt vita- skuld séu slíkar mállýskur minna áberandi hér á landi. Onnur skýring á því hve þessu er lítill gaumur gefinn hér er að hér ríkir ákveðin tregða til að viðurkenna að slikar mállýskur geti verið til. Ein aðalhindrunin í þessu er sú lenska að skipta málafbrigðum i rétt og röng. Af- brigði í málfari manna eru ýmist talin gamall arfur, finnanleg í fornum bók- um, eða rangt mál sem menn þurfi að venja sig af. Eg tel brýnt að menn hætti þessum einkunnagjöfum um málfar manna. Ekki þó þannig að menn setjist með hendur í skauti og segi: Það er alveg sama hvemig menn tala. Heldur hitt að menn geri sér grein fyrir því að þeg- ar eitthvað er taiið öðra réttara þá byggjum við meira og minna á heföum genginna kynslóða sem hafa mótaö mál og þjóöfélag fortíðarinnar. I öðru lagi að við leggjum persónulegt mat okkar til grundvallar. Ef menn temja sér þennan hugsun- arhátt og þar með umburöarlyndi gagnvart málfari náungans þá verða þeir um leið miklu færari leiðbeinend- ur handa þeim sem leiösögn þurfa. DV-mynd VHV. Tala karlar og konur eins? Þessu svara ég neitandi. Reyndar get ég ekki rökstutt það svar mitt telj- andi en þó má nefna nokkur dæmi. Hefur nokkur heyrt karlmann strjúka gluggatjaldaefni í vefnaðar- vöruverslun og segja með aðdáun: Mikið gasalega er þetta lekkert efni! Sömuleiðis er ég efins um að karlár kalli almennt lítil böra rassgat. Vitaskuld eru þetta aðeins tvö lítil dæmi. En þótt þau séu fá og smá dæm- in sem finna má á förnum vegi þá eru þau þó vísir að meiru eins og mjóir eru oft. Þessi fáu dæmi segja okkur einfaldlega að slíkur málfarsmunur er til. Máliö er einfaldlega að finna hann með rannsókn á málfari kyn janna. John Irving. Nýjasta bók þessa metsöluhöfundar (Garp, Hotal New Hampshire) fjallar einkum um fóstureyðingar. Hugarfóstur lohn Irvings John nokkur Irving hefur á siöustu árum tryggt sig i sessi sem einn mesti metsöluhöfundur vestan hafs og bækur hans þykja líka hinar þokkalegustu bókmenntir. Margir kannast ugglaust við bækur eins og The World According to Garp og Hotel New Hampshire sem báðar hafa verið kvikmyndaðar og myndirnar sýndar hér á landi. Það er nú taliö til tíðinda í ameriskum bóka- kreösum að Irving hefur sent frá sér nýja bók og ber hún nafnið The Cider House eða Eplasafahúsið i lauslegri þýölngu. Helsta átrúnaðargoö Irvings í bók- menntum er Charles Dickens og rétt eins og sá gamli Englendingur vili Irving gjarnan benda á og afhjúpa ýmislegt þjóðfélagslegt misrétti sem að hans dómi viðgengst i þjóðfélaginu. Viðfangsefni hans í nýju bókinni er harla viökvæmt mál, aö minnsta kosti vestur i Bandaríkjunum, það er að segja fóstureyðingar og réttur kvenna til þess að gangast undir slíkar aðgerðir. Sagan gerist á löngum tíma, enda eru blaðsiðurnar i bandarisku út- gáfunni 560, og hefst frásögnin fyrir um 100 árum. Ungur læknir setur þá upp munaðarleysingjahæli, i Maine að sjálfsögðu, og hann telur ekki eftir sér að framkvæma jafnframt fóstur- eyðingar ef hann er viss um að barnið sé óvelkomið og móðirin ekki fsr um að ala það upp. Einn drengjanna á munaðarleysingjahælinu veröur sér- legur skjólstæðingur hans þar til drengurinn, Homer Wells, fyllist and- styggð á fóstureyöingum gamla læknisins og hefur sig á brott. Síðan tekur við löng og flókin frásögn sem hefur það að markmiði að sýna Homer fram á að hann hafi rangt fyrir sér. Að þvi er bandariskur gagnrýnandi fréttaritsins Time segir hefur Irving aldrei sýnt meiri hæfiieika í fléttum og hraða frásagnarinnar. Hann hefur það helst á móti bókinni að í henni komi 'enn og aftur fram að Irving líti á persónur sinar sem hjálparlaus fórnarlömb lifsins; þær fái engu ráöiö um örlög sin og megi eigi sköpum renna. En um leið tekur hann fram að Eplasafahúsiö sé hin besta skemmtun og það var Irving svo sem líkt. Tökum á... tækin vantar! FjÁRÖFLUN 7. OG 8. JÚNÍ til tækjakaupa fyrir væntanlega hjartaskurðdeUd Landspítalans LANDSSAMTÖK HJARTASjÚKUNGA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.