Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1985, Blaðsíða 12
56
DV. LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER1985.
l;’.
Iíi
m
m i
Séra Jón Bjarman fangaprestur: „Mig rak i rogastans þegar óg sá umfjöllun fjölmiðla og viðbrögð ibúa i Teigahverfinu/'
Samhjálparstefna
ff
ríkir á Islandi”
„Mig rak í rogastans þegar ég kom
heim um daginn og sá hver viöbrögð
íbúa í Teigahverfi höföu orðið við fyrir-
huguðu meðferðarheimili Verndar í
hverfinu — og skrif fjölmiðla ollu ekki
minni undrun,” sagði Jón Bjarman
f angaprestur í viðtali við DV.
„Ég var að koma af samráðstefnu
fangelsis- og fangapresta í Genf sem
haldin var á vegum Lútherska heims-
sambandsins til undirbúnings sjöunda
heimsþings Sameinuðu þjóðanna um
varnir gegn afbrotum og um meðferð
fanga.”
A samráöstefnunni, sem séra Jón
Bjarman sat, hittust fimmtíu fulltrúar
frá 20 þjóðlöndum.
,Við fanga- og fangelsisprestar á
Norðurlöndum höfum hist og boriö
saman bækur okkar um nokkur undan-
farin ár, en hingað til hefur slík alþjóð-
leg rástefna, sem þessi í Genf, ekki
verið haldin. Það voru reyndar þessir
fundir okkar Noröurlandamannanna
sem voru kveikjan aö ráðstefnunni.”
Starf Verndar
vakti athygli
„Við fjölluðum m.a. um svokölluö
meðferðarheimili sem Nýsjálen "
eru að koma á fót. Ég sagði _______
starfi félagasamtakanna Vern
nefndi að í því starfi skipti mjog um
árangur —tilgóðs.
Þannig var að fyrir fjórum árum
sendu fangar fyrirspurn inn á aðalfund
Vemdar og spurðu hvort þeir mættu
ganga í samtökin.
Það var athugað og síðan lýst yfir að
það væri sjálfsagt mál.
Það reyndist vera mikið heillaspor.
Þar með fóru fyrrverandi fangar að
hafa hönd í bagga varðandi rekstur
meðferðarheimilisins. Þeir þekktu
auðvitaö þörfina manna best og veru-
legur árangur kom fljótt í ljós.
1 ein fjögur ár hafa fastur starfsmað-
ur og hússtjóri verið fyrrverandi fang-
ar. Þeir hafa alveg mótað andann og
verið mjög kröfuharðir. Um svipað
leyti og þetta var réðst fyrrverandi
fangi sem félagsmálafulltrúi á skrif-
stofuVerndar.
Útlendingar undrandi
Það vakti verulega athygli þegar ég
sagði frá þessu nýja fyrirkomulagi á
starfi Vemdar á ráðstefnunni í Genf.
Það kom mér á óvart hvaða undrun
þessi frásögn min vakti. Ég hafði ekki
sjálfur gert mér grein fyrir því að
þetta væri svona merkilegt. En auðvit-
að verður árangur meiri þegar unnið
er með föngum en ekki með þá.
Meðferðarmál fanga á Islandi hafa
tekið stórstígum framförum síðustu
árin. Og það sem hefur blásið byr í
seglin er ákveðin hugarfarsbreyting
sem hér hefur orðið. Félög eins og SÁÁ
hafa haft mikla þýðingu. Og ég vil
einnig nefna Samhjálp hvítasunnu-
manna. Þetta allt hefur gefið fyrrver-
andi föngum nýja von um að það sé
-einhver meöferð til — að það sé stuön-
ings að vænta.
Samhjálparstefna
á íslandi
Það er ríkjandi samhjálparstefna á
Islandi,” sagði séra Jón Bjarman. „Og
sú samhjálparstefna er með þeim
hætti að það eru gerðar kröfur — það
er ekki um neinn undanslátt að ræða,
það eru gerðar kröfur til þeirra sem
þiggja aöstoð samfélags og félaga-
samtaka.
Vegna þess hve vel starf Verndar
hefur gengið rak mig í rogastans þegar
heim kom frá útlöndum og ég frétti af
viðbrögðum fólks við meðferðarheim-
ilinu í Teigahverfinu.
Þar er verið að ýta vanda frá sér. Ég
trúi því ekki að um sé að ræða ótta við
fyrrverandi afbrotamenn. Fólk er
fremur að fria sig ábyrgð, skjóta sér
undan því að horfast í augu við þá sem
á einhvern hátt hafa lent á skjön í sam-
félaginu. En þessi fangamál eru hluti
okkar samfélags og á þeim þarf aö
taka.
Fangavist bætir fáa
Það var inntak í máli manna á ráð-
stefnunni í Genf að fangelsisvist bæri
sjaldan árangur. Það væri eftirmeð-
ferðin sem helst gæti skilað árangri —
hjálp eftir fangelsisvist.
Nú er fangahjálp ekki nýtt fyrir-
brigði. Félagasamtökin Vernd hafa
verið til hér síðan 1959, en það hefur
verið með ýmsu móti hvernig slík
heimili haf a verið rekin. ’ ’
Jón Bjarman sagði að Vernd og
fangar berðust nú fyrir því að fangar
fengju að búa á heimilum á meöan þeir
tækju út sína dóma — og stunda jafn-
framt vinnu. Annaö baráttumál er að
fangar fái leyfi — en fangaleyfi hafa
verið tiðkuö lengi í nágrannalöndum
okkar.
„Þessi leyfi frá fangelsinu eru ný-
lega lögfest — en það stendur á fram-
kvæmdinni. Sömuleiðis hefur það verið
lögfest að fangar skuli hafa leyfi til aö
stunda nám utan fangelsis. Þetta hvort
tveggja hefur verið í gildi og stundað
annars staöar á Norðurlöndum um
árabil — og hér í tilraunaskyni. Til-
raunimar með þetta hér hafa gengið
mjög vel. Enginn fanganna, sem leyfi
hafa fengið, hefur brugðist trausti.”
Fangelsisvist
fyrir ölvunarakstur
Hér á landi eru fangelsi bæði fá og
smá — smá ef miða skal við þau stóru
fangelsi sem til eru í f jölmennari lönd-
um. Séra Jón Bjarman sagði að yfir-
leitt væri talið að best væri að fangelsi
hýstu ekki fleiri en fimmtíu manns.
Fangelsið aö Litla-Hrauni tekur ekki
við fleiri en fimmtíu og tveimur. Og
önnur fangelsi á Islandi eru minni.
En í þessum fangelsum sitja menn
sem hlotið hafa dóma fyrir ýmiss kon-
ar afbrot. Þar eru innbrotsþjófar,
gjarna ungir að árum þvi fátitt er aö
fangar séu mikið eldri en þrítugir.
„Það er eins og afbrotahneigð fari af
mönnum með aldrinum,” sagði séra
Jón. Og við hhð þeirra eru kannski
menn sem uppvísir hafa orðið að auðg-
unarbroti — kannski gripnir seint og
um síðir, þá komnir á miöjan aldur. En
það er þó reynt aö hafa þá á Kvía-
bryggju. Og svo eru þeir sem fengið
hafa fangelsisdóm fyrir að aka bíl ölv-
aðir. Til skamms tíma gátu þeir sem
fengu fangelsisdóm vegna ölvunar-
aksturs fengið dómum sinum breytt í
fjársekt. Sú heimild hefur nú verið af-
numin — og drukknir ökumenn, sem
lögreglan kemur höndum yfir, geta nú
eins búist við því að þurfa að dúsa í
grjótinu einhvern tíma — væntanlega í
betrunarskyni.
-GG.
Winston Churchill — myndin tek-
in 1904. Hann stjórnaði nú ekki
siður með sverði en penna.
Orð sem ekki
gleymast
Á baksíðu helgarblaðs DV í dag er
fjallaö um orðlist og stjómmálamenn,
ræðuskörunga fyrri tíma og sjónvarps-
þvogl nútimans.
„Guð gaf manneskjunni orð í munn
til þess að hún gæti leynt hugsun
sinni,” sagði Talleyrand einhvem
tíma. Og vissulega virðist stjómmála-
mönnum oftlega takast vel upp að
dylja hugsun sína, þegar þeir taka sér
orð í munn. Og oft er þetta gert með
því einu að nota svo mörg orð, að
áheyrendur hreinlega drukkni.
En þeir eru enn til, stjórnmála-
mainimir sem geta komið fyrir sig
orði. Það var þannig sagt um Adlai
Stevenson, sem tapaöi í forseta-
kosningum gegn Eisenhower (sem
sumir sögöu að hefði varia kunnað að
tala) að hann notaði orðin eins og væri
hann að skylmast — oft eins og stæði
hann fyrir sýningu í fimlegri og hraðri
hugsun.
Stevenson sagði einhvem tíma um
sjálfan sig að hann væri „besti forseti
sem Bandaríkin hafa aldrei haft”.
Hann var þingmaður í mörg ár — og
þótti mörgum súrt í broti þegar hann
varð að lúta í lægra haldi fyrir golf-
leikaranum vinsæla, miðlungs-
manninum Eisenhower — sem, eins og
Reagan, notaði tímann í Hvíta húsinu
tilað hvílasig.
Ádlai Stevenson var í framboði bæði
1952 og 1956 og beiö afhroð í bæði
skiptin fyrir Ike. Þegar honum skildist
að kosningabarátta hans 1956 var
einnig farin fjandans til, breytti hann
baráttunni í einhvers konar sýningu á
sínum eigin gáfum og hnyttni.
Eftir einhverja kappræöuna gegn
repúblíkönum sagði Stevenson: „Ef
þiö hættið að breiða út lygar um mig,
þá lofa ég aö hætta aö segja
sannleikann um ykkur! ”
Winston Churchill gat bitið frá sér,
ekki síöur en Stevenson. Einhvern
tíma var það í þinginu, að umræður í
Neðri málstofunni höfðu hitnaö mjög,
og kona ein úr hópi þingmanna reis á
fætur og æpti aö þeim gamla
Churchill: „Herraminn! Þéreruðkóf-
drukkinn!”
Churchill, sem var nýkominn úr mat
og haföi visulega fengið sér neöan í
því, bæði með matnum og kaffinu, leit
upp yfir blöðin sem hann var með í
höndunum og sagöi: „Já, frú, það
kemur heim. Og þér, þér eruð ljót. En
ég — ég verð orðinn allsgáður snemma
í fyrramálið.”
Vel svarað? Já — en getur víst ekki
talist sérlega kurteislegt.
Þeir Churchill og Stevenson eru
báðir horfnir af pólitískum vettvangi.
Og fjölmiðlafræðingarnir farnir að
kvarta undan því að þeir sem við hafa
tekið séu varla talandi. Það er umræða
sem hefur skotið upp kollinum hér á
landi — og sumir pólitíkusar farnir að
smeUa fingrum þegar þeir lýsa eigin
hæfileikum. -GG.
Adlai Stevanson — besti for-
setlnn.