Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1985, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1985, Side 16
60 DV. LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER1985. Jonah Roberts var einstaklega var- færinn maöur. Þegar okkar saga ger- ist, var hann orðinn miöaldra, 46 ára — og til þess tekið hversu sómakær hann væri og hægur, einlægur fjölskyldu- maður, giftur og þriggja sona faðir — og sívinnandi. Hann bjó í Edwardville í Pennsyl- vaníu, starfaði þar sem vélstjóri í Barre-verksmiðjunni. Dag nokkum var hann á leiðinni akandi að sækja Mary, konu sína og sá tvær mannverur standa við vegar- brúnina. Jonah hafði heyrt, eins og aðrir — að varasamt gæti verið að taka puttamenn upp í bílinn. Hann hafði margoft lesið um það í blöðum, að oft réöust puttaferðalangar á ökumenn — og reyndar höföu nýlega verið framdir hryllilegir glæpir, sem raktir höfðu verið til puttaferðalanga. M.a. hafði frést af heilli fjölskyldu úr nágranna- bæ Jonah, sem hafði verið myrt. En Jonah hægöi ferðina. Þetta var í júni og kvöldin voru björt, þannig að hann gat virt mennina tvo vandlega fyrir sér. Þeir virtust ungir, varla af menntaskólaaldri, virtust raunar vera dæmigerðir skólastrákar frá góðum, amerískum heimilum — á leið heim í sumarleyfi. Hann stöðvaði því bílinn og opnaði afturdyr. „Eruð þið að fara langt?” spurði hann, þegar þeir klifruðu inn. „Jamm,” svöruðu þeir. Næst þegar Jonah opnaði augun horfði hann framan í hóp rannsóknar- lögreglumanna, sem beygðu sig yfir hann. Hann lá í rúmi á Aðalsjúkrahús- inu með skotsár í öxl og alvarlegt taugaáfall. Jonah hafði verið í taugalosti þegar sjúkrabíllinn kom með hann að kvöldi þess 10. júní, en hann mundi samt eitt- hvað af því sem gerst hafði. Og Louis G. Feldmann lögreglumanni fannst saga hans eiginlega ósköp venjuleg. Puttamennirnir voru tveir, sagði Jonah, og annar þeirra otaði skamm- byssu að honum, neyddi hann til að aka út í vegarkantinn utan við bæinn. Þar gerðu þeir sig líklega til að taka Mary með valdi, en hún hafði komið í bílinn til hans, nokkrum mínútum áður en hann hitti puttamennina. „Hvað gerðist nákvæmlega, Jonah, geturðu sagt okkur það?” spurði Feld- mann. Þrír dagar voru liðnir frá atburðinum og Jonah var farinn að jafna sig af taugalostinu. „Voru þeir báðir meðbyssur?” „Já.” „Og annar þeirra var í aftursætinu með konunniþinni?” „Já.” Hann hugsaði sig um, bætti svo við: „Þegar við höfðum ekið stundarkom, létu þeir mig stöðva bíl- inn og annar þeirra sagöi Mary að koma aftur í til sín. Hinn kom fram í til mín.” „Ogsvo?” „Svo ókum við spottakom og nærri Þjóðgarðinum sögðu þeir mér að stoppa bilinn og ráku mig út. Annar þeirra kom út með mér. Hinn var kyrr í bílnum með Mary. Svo æpti hún allt í einu og ég hljóp að afturdyrunum.” „Sástu hvað var að gerast?” „Nei, það var of dimmt. Sá sem var utan viö bílinn greip í mig, en ég slapp frá honum. Þá skaut hann á mig. Og hann skaut mörgum skotum, en ég fann aðeins fyrir einu... fleira man ég trauðla. Ég man þó að ég reis á fætur og ætlaði að bílnum, en þá voru þeir farnir. Eg leitaði ekki að þeim. Allt var i móðu fyrir mér... bíliinn stóð þarna, ég komst undir stýrið. En lyklarnir voru horfnir, en einhvern veginn mundi ég eftir varalykli undir fram- sætinu, teygöi mig niður og fann hann. Eg ræsti bílinn og ók eitthvað. Svo leið égútaf.” „Mennirnir tveir — geturöu lýst þeim frekar?” spuröi Feldmann. „Við verðum aö f á lýsingu á þeim. ” Jonah hafði áður sagt lögreglunni að puttamennirnir hefðu verið ungir, kannski tvítugir og virtust snyrtilegir, stuttklipptir, nánast dæmigerðir „mömmudrengir” úr góðum skóla. „Það var þess vegna sem ég tók þá í bílinn,” hafði hann sagt... En nú reyndi hann að gefa nákvæm- ari lýsingu: „Annar þeirra var í brún- um sportjakka. Sá var lægri í loftinu. Og var með regnkápu á handleggnum. Hinn var dökkhærður... sá sem fór aftur í til Mary... ég man lítið eftir honum. Kannski getur Mary sagt ykk- ur eitthvað um hann...” Þögn. „Hún man alltaf eftir andlitum,” sagði Jonah. Þeir sögöu honum þá aö Mary væri látin. Og að þeir hefðu fundið lík hennar í aftursæti bílsins fyrir þremur dögum. Hún hafði verið skotin tvívegis í höfuöið. Mary Roberts var jarðsett daginn eftir. En Jonah var enn svo illa á sig kominn andlega, að læknar bönnuöu honum að fara í jarðarföriría. Feldmann og menn hans hófu nú umfangsmikla leit. Og þaö leiö ekki á löngu áður en hinar miklu mannaveið- ar sem Feldmann stjómaði, skiluðu árangri. Feldmann kom með tvo hrædda unglinga til Jonah, þar sem hann var á spítalanum að jafna sig. Jonah sat uppi í rúminu og horfði á unglingana. „Eru þetta mennimir? ” spurði Feld- mann. Þeir voru ekki réttu mennimir. Sennilega á sama aldri, en alls ekki likir hinum tveimur. „Mér þykir þaö leitt, en þetta eru ekki mennimir,” sagði Jonah. Sá stóri sem fór í aftur- sætið með Mary var með yfirskegg, en þótt hann hefði auðvitað getað rakað það af sér, þá — ” „Yfirskegg!” gólaði Feldmann. „HvíJ fjáranum sagðirðu það ekki fyrr?” „Eg mundi bara ekki eftir því fyrr en einmitt núna. Eg mundi það þegar... þessi drengur kom inn og ég reyndi eins og ég gat að sjá andlit morðingjanna fyrir mér.” „Ef þú skyldir skyndilega minnast einhvers til viðbótar, gerðu það þá fyrir mig að segja mér frá því! ” Daginn eftir sendi Feldmann út nýja lýsingu á öðrum morðingjanna og bætti nú við yfirskeggi. Og svo var bara að bíða og athuga hvað leitarmenn hefðu upp úr krafs- inu. Og þeir fengu að bíða. Bráðlega voru menn farnir að tala um þennan glæp sem enn eitt „lager- morðið”, þ.e. morö sem fer í skrána hjá lögreglunni og verður aldrei upp- lýst. Feldmann hafði sent menn til aö spyrja fólk í nágrenninu þar sem Jonah sagöist hafa stöðvaö bílinn til að taka puttamennina með, hvort eitt- hvað hefði heyrst þetta kvöld. En enginn á svæðinu gat sagt neitt sem varpaö gat ijósi á máliö. Málið virtist vera að læsast í öng- stræti þegar einn aðstoðarmanna Feld- manns æddi inn á skrifstofuna til hans og virtist ákaflega undrandi. „Hvað er nú? ” spuröi Feldmann. „Ég var að koma frá spítalanum,” sagði lögreglumaðurinn. „Og þar gerðist nokkuð skrítið. Jonah Roberts var kallaður í símann. Eg hlustaði á það samtal á hlerunarlínu. Það var kona sem hringdi og sú var í öngum sínum. Hún sagði Jonah að hann lygi varðandi skotárásina, að þetta hefði alls ekki gerst eins og hann lýsti. Svo af vikuWÖÖ^ ' °9h;otki hau» nó „OloHa^-^^umanna „úniéWWutv^i Eftit þatta uná Há* sporO á- Sérstæð sakamál — Sérstæð sakamál — Sérstæð sakamál — Sérstæð sakamál

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.