Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1985, Page 20

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1985, Page 20
7 ■ » t Sjómennska Sjómennska (showmennska) er alls ráðandi í fréttum bandarísks sjónvarps. Miklu fremur en mat eöa nákvæm útlistun á því sem er aö ger- ast. Þar situr fréttamaðurinn í fyrir- rúmi og heldur uppi sjómennsku í glamúrstíl. Takturinn og tempóiö skipta öllu og frægö þeirra sem birt- ast á skjánum. Fréttaþáttur í sjónvarpi er fremur til skemmtunar en upplýsingar. „Næstum allt í sjónvarpinu veröur aö hafa skemmtanagildi,” segir Postman. „Ekki upplýsinga- gildi. Þaö er ekki um neins konar rökræðu eöa samhangandi hugsun aö ræöa í sjónvarpinu. Pólitíkin verður skemmtun. Fréttirnar verða skemmtun. Efnahagsmálin og trú- málin veröa skemmtun. Jafnvel vísindin verða skemmtun. Þaö er bara ímyndun að allar tækniframfarir komi manneskjunni til góöa. Viö verðum aö reikna meö því aö sjónvarpiö og aðrir f jölmiðlar geti dregið úr margbreytileika greindar okkar ... við verðum aö reikna með því aö fjölmiðlarnir dragi úr getu okkar til aö hugsa óhlutlægt. Viö megum ekki gleyma því,” segir Postman, — „aö fyrrum uröu menn að tjá sig í orðum ef þeir vildu segja frá einhverju. Og það þvingaði menn til að búa til hugtök. TU að geta lýst hlutum og málefnum veröa menn að geta dregið eölilegar álykt- anir af hinum ýmsu kringum- stæðum. Menn uröu að velja, hafna, bera saman — hugsa! En þegar ekki þarf annaö en benda með sleikifingri til aö eiga tjáskipti viö aöra þá hverfa orðin, höndin skrifar ekki og greindin skreppur saman.” Það er sjálfsagt hverjum Islendingi ljóst aö sjómennskan er þegar oröin staöreynd í íslenskri pólitík og f jölmiölun. „Hinn nýi stUl” mun breyta okkar samfélagi, breyta okkur sjálfum. Eigum við að hafa áhygg jur? -GG. MAGINN, ekki heilinn Fyrir daga sjónvarps gáfu stjórn- málaforingjar jafnan út póUtískar yfirlýsingar sem lesendur þeirra eða áheyrendur uröu síðan að vega og meta upp á eigin spýtur og taka af- stööu. Og vitanlega olU stemmning og tilfinningar miklu um niöurstööu hverju sinni. Góöir ræðumenn eins og Lincoln eða Roosevelt skreyttu mjög ræður sínar og yfirlýsingar með myndríku máli, auðskiljanleg- um dæmisögum og öðrum útúr- dúrum. En fyrst og fremst urðu þeir aö færa rök fyrir máli sínu, útskýra, komast að eðlilegri niöurstöðu. Postman heldur því fram að tími hinna greindu ræðuskörunga sé liðinn undir lok. Og aö nú á dögum sé það ekki spurning um hvaö stjórn- málamenn segja heldur hvernig. Það eru ekki orðin, sem menn láta út úr sér, sem skipta máli heldur útlit, svipbrigði, klæðaburöur, sviti eða tár. Það er hin sjónræna upplifun áhorfandans sem skiptir máli, ekki mat hans á því sem sagt er. Ronald Reagan — sam enginn hefur lesifl neitt eftir. Og enginn hefur heldur sófl myndina Bedtime for Bonzo (Héttatimi hjó Bonzo), nó ýmsar fleiri af lálegustu myndum Reagans. Röksemdafærsla úr sögunni Ofanskráö klausa er upphaf skemmtilegrar greinar eftir Banda- ríkjamanninn Neil Postman en hann er prófessor í fjölmiðlafræðum við New York háskóla. Postman bendir á að í heimalandi sínu, þar sem sjónvarp hefur lengi verið hinn ráðandi fjölmiöill, sé öll eiginleg röksemdafærsla úr sögunni og þar meö hæfileikar samfélagsins til að rökræða mikilsverð mál af skynsamlegu viti. Maginn, ekki heilinn Sjónvarpsfréttamaður einn hjá NBC í Bandarikjunum orðaði þessa breytingu nokkuð eftirminnilega. Hann sagði: „Kjósendur og áhorf- endur á níunda áratug aldarinnar eru meðvitaðri í auknum mæii en áður. Þessi meðvitund er eitthvað sem finnst fyrir í maga sjónvarps- áhorfenda.” Og fréttamaðurinn sagöi einnig að þessi merkilega til- finning í skeifugörninni, eða þar um kring, væri áhorfendum stoð þegar þeir væru að gera sér grein fyrir hvaö í máiflutningi skipti máli. „Þessi fréttamaöur,” segir Post- man, — „er í raun aö segja að þessi magatilfinning sjónvarpsáhorfenda útheimti nákvæmlega enga kunnáttu í tungumáli eöa rökfræði og að þekking á þeim tveimur sviðum bara þvælast fyrir áhorf- gera þeim erfiðara fyrir aö Þetta er í raun hinn nýi Ætli það, að láta magann taka viö af heilanum, sé ekki næsta tröllaukiö skref burtu frá fornum hefðum. Þeg- ar þeir Madison, Hamilton og fleiri mörkuöu útlínur bandarískrar stjórnarskrár, gengu þeir út frá því aö fullgildur ríkisborgararéttur kreföist þess að hver rikisborgari væri vel læs og gæti greint ýmislegt sem samfélagið heldur að honum. Þess vegna fengu þeir sem voru yngri en tuttugu og eins árs ekki kosningarétt þar eð menn gerðu ráö fyrir að þaö krefðist nokkurs þroska aö geta til' fulls skilið hiö þrykkta orð.” Hver hefur lesið Reagan? En nú eru aðrir tímar. Postman spyr hvort nokkrum landa sinna haf i nokkru sinni dottið í hug að lesa eitt- hvað eftir Ronald Reagan. Eða aöra stjómmálamenn sem áberandi eru vestra. Og viö hér getum spurt okkur hins sama. Hefur nokkur maöur áhuga áhuga á þvi að velta í alvöru fyrir sér því sem Albert eöa aðrir á- berandi pólitíkusar segja á þingi? Reyndar erum viö ekki komin jafnlangt í átt til ólæsis og sumar aðrar þjóðir — er manni nær að halda. Að minnsta kosti sjá flokks- málgögn iðulega ástæöu til að þrykkja langar ræður þingmanna þótt eflaust eigi þær ræður ekki marga lesendur. En við erum vitni að því hvert sjónvarpið er að fara með pólitíska umræðu, pólitíska röksemdafærslu. Hvað eftir annað koma illa talandi moðhausar úr pólitíkinni og tafsa á bjagaðri íslensku um áríöandi mál — og áhorfandinn er nákvæmlega engu nær eftir langan þátt. Stjómmála- menn koma, aö því er virðist, hiklaust í öflugasta fjölmiðilinn með það fyrir augum að svara hálfvegis út í hött, svara ekki eða tala um eitthvað annað en það sem til umræðu er. Þaö er „sjónvarps- framkoman" sem skiptir mestu, ekki hvað sagt er. Nýjustu fréttir frá Bandaríkjun- um herma aö Charlton Heston leikari sé líklegur frambjóöandi á snærum Repúblíkanaflokksins. Og fari svo að Heston verði í framboði fvrir þá, þá munu demókratar bjóða framGregory Peck. Gragory Peck — frœgari en Heston og hefur leikifl i vinsælli myndum, oftast gófla gssja en líka Jósef Mengele. Ef af frambofli yrfli, myndi sú mynd væntanlega hverfa af markaflnum. „Til er bráöskemmtileg kvik- mynd sem heitir Guöimir hljóta að vera geggjaöir. Sú mynd fjallar um fólk á Kalaharisléttunni í Suöur- Afríku og hvernig fer fyrir menningu þess fólks þegar flugmaöur einn í lítilli flugvél fleygir tómri kókflösku niöur í þorp þeirra. Flaskan verður þessu fólki einhvers konar guðsgjöf. Það hefur aldrei fyrr séð flösku og veit ekki einu sinni hvað gler er. Og hið undarlega er að ekki er til nema þessi eina flsaska. Hún er fyrir fólk- inu eitthvað alveg nýtt og framandi. Klofningur myndast í samfélaginu og hin friðsæla samkennd sem hefur ríkt í samfélagi þeirra og menningu er nærri því að springja. Fólkið fer að elska þessa flösku meira en hvert annaö og ástandið lagast ekki fyrr en foringi ættflokksins skilar guðunum aftur flöskunni með því að fleygja henni út fyrir endimörk veraldar. Kvikmyndin er skemmtileg og verður að teljast full af merkum vísindum því að auðvitaö f jallar hún alls ekki um Kalaharifólkið heldur um Bandaríkjamenn, Breta, Þjóð- verja — og sennilega líka Islendinga. Hún varpar fram spumingu: Hvers konar menning er þaö sem við sitjum skyndilega uppi með þegar mitt á meðal okkar er komin tiltekin flaska? Flaskan okkar er auövitaö sjónvarpiö. Og viö getum ekki skilaö guöunum aftur sjónvarpinu heldur verðum við að læra að lifa með því og kappkosta að tortíma ekki sjálfum okkur. I Bandaríkjunum er þetta oröið alvarlegt vandamál. ” Charlton Heston — hann hefur nýlega þeg- ifl hlutverk i Dynasty i stafl þess afl stefna 6 framboð til þings 1986. En þafl hefur mikla pólitiska þýflingu að sjóst i sjónvarp- inu einu sinni i viku. •(

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.