Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.1985, Blaðsíða 1
Bardagi banka og sparisjóða um spariféð:
MINNSTl BAMINN BLÆS
lÍT í VAXTASTRÍÐINU
Sigurvegari í keppninni um inn-
lánsfé í bönkum og sparisjóðum er
Alþýöubankinn, frá ársbyrjun til
loka júlí. Innlánaaukning í kerfinu
varð 22,6% en í Alþýðubankanum,
langminnsta bankanum, 38,5%.
Sigur Alþýðubankans byggist al-
gerlega á sérkjarareikningum með
8—9% vöxtum auk verðtryggingar
og miklu hærri vöxtum á verðtryggð-
um almennum innlánum en hjá öðr-
um fram um mitt þetta ár.
Alþýöubankinn hefur nú lækkaö
vexti á almennu verðtryggðu innlán-
unum í sama horf og almennt er boð-
ið. En heldur 8—9% vöxtum umfram
verðtryggingu á „stjörnureikning-
um” fyrir unga, aldna og þá sem
binda innlegg í tvö ár.
Kostaboð Alþýöubankans leiða þó
ekki til einhlítrar niðurstöðu. Hann
hefur boðið langbesta ávöxtun á
tékkareikningum og sömu og aörir
hæstu á hlaupareikningum. Hjá
Alþýðubankanum hafa innlegg á
þessum veltureikningum aukist um
aðeins 0,6% frá áramótum en 11,6% í
heildarkerfinu.
I öðru sæti í innlánakeppninni er
Samvinnubankinn með 28,2%, Út-
vegsbankinn er í þriðja sæti með
24,2%, Iðnaöarbankinn í því fjórða
með 24,0%, sparisjóðirnir fimmtu
með 23,8% aukningu innlána, í sjötta
sæti er Verslunarbankinn með 21,2%
og sjöunda Búnaöarbankinn nokkru
lægstur með 18,7%.
Lausafjárstaða bankanna er afar
misjöfn. Eini bankinn sem átti lausa-
fé í júlílok var Verslunarbankinn, 11
milljónir. Sparisjóðimir áttu hins
vegar heilar 123 milljónir lausar. Al-
þýðubankinn var 5 milljónir í mínus,
Búnaöarbankinn 14, Samvinnubank-
inn 49, Iðnaðarbankinn 85, Otvegs-
bankinn 443 og Landsbankinn 1.041
milljón í mínus.
Bankarnir eru þannig flestir að
lána umfram innlegg og byggja það
á yfirdrætti í Seðlabankanum ellegar
erlendum lánum, þó mest yfirdrætt-
mum.
HERB.
— Sjáeinnigbls.3
Pilturinn bíður björgunar á þaki bílsins.Hann var bæði kaidur og hrakinn
þegar hjálp barst. Á innfelldu myndinni sjást lögreglumenn koma á
gúmbáti til að bjarga piltinum. DV-mynd JGH
Bíll þeyttist út í sjó á Akureyri í gærkvöldi:
„Fljótir, fljótir,
mér er svo kalt”
— þrír piltar björguðust
á undraverðan hátt
Frá Jóni G. Haukssyni, blaðamanni
DVáAkureyri:
„Fljótir, fljótir, mér er svo kalt,”
hrópaði einn þriggja pilta sem björg-
uðust með undraverðum hætti þegar
bíll þeirra þeyttist 10 metra út í sjó
fram af Drottningarbrautinni á Akur-
eyri í gærkvöldi. Tveir piltanna syntu í
land. Þeim þriðja var bjargað af þaki
bílsins sem var á kafi í sjó.
Bíllinn, sem er af gerðinni Mercury
Comet, flaut fyrst eftir að hann hafnaði
í sjónum. En fljótlega byrjaði hann að
sökkva með piltaha enn innanborðs.
Tveir þeirra voru í öryggisbelti en
tókst með snarræöi að losa sig úr þeim.
„Ég hrópaöi til félaga minna að opna
ekki dyrnar, heldur reyna frekar að
skrúfa niður rúðurnar og skríða út um
gluggana,” sagði ökumaður bílsins
þegar DV ræddi við hann á heimili
hans í gærkvöldi.
Þeim tókst öllum þremur að komast
út um glugga bílsins. ökumðaurinn og
sá sem sat í aftursætinu brugðu á það
ráö að synda í land. En sá sem var við
hliö ökumannsins klifraði upp á húdd
bílsins og þaðan upp á þak hans.
Þar híröist hann kaldur og hrakinn í
um tíu mínútur er lögreglan, á gúm-
bát, bjargaði honum. Fjöldi manns
safnaðist saman á Drottningarbraut-
inni og fylgdist meö piltinum hírast á
þaki bílsins úti í sjó.
Ökumaður bílsins sagði í gærkvöldi
aö hann hefði verið að fara fram úr bil
þegar skyndilega birtist bíll á móti.
„Ég sveigði snöggt yfir á hægri kant-
inn aftur en viö það missti ég vald á
bílnum þannig að hann fór aftur út á
vinstri vegarhelminginn og þaðan út af
veginum.”
-EH.
Kísilmálmverksmiðja:
Búist við svari
eftir2mánuði
Nú er búist við að fyrirtækið Rio
Tinto Zink svari því ákveöið eftir 6 til
8 vikur hvort það hefur áhuga á aö
reisa kísilmálmverksmiöju hér á
landi. Næsta mánudag er síöan fund-
ur forráðamanna norska fyrirtækis-
ins Elkem og Islendinga, í Osló.
Aö sögn Birgis Isleifs Gunnarsson-
ar, formanns stóriðjunefndar, er
ekki búist við ákveðnu svari frá Elk-
em í Osló, en gert er ráö fyrir að fyr-
irtækið skýri betur frá hverjar óskir
þess eru í sambandi við kisilmálm-
verksmiðju.
Undanfarið hefur Rio Tinto Zink
verið að kanna möguleikana á að
reisa verksmiðju hér. I gær var
stödd sendinefnd frá fyrirtækinu til
aö afla nánari upplýsinga.
„Þeir eru á fullu að vinna í þessu
og það er ljóst að áhuginn er mikill
en spurningin er auðvitað hver hin
endanlega niðurstaða verður,” sagði
Birgir Isleifur. -APH