Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.1985, Blaðsíða 4
4
DV. FÖSTUDAGUR 27. SEPTEMBER1985.
DV á villtasta sveitaballi landsins:
„Ufe is me" íHöfða
þegar fólk streymir inn f annan enda hússins koma jaf nmargir út bakdyramegin
„Singe, jæjm, jibbi-jibbi-jæ. Og allar vorum við jómfrúr þegar við komum
Réttarballiö í Höföa í Svarfaðardal
er villtasta sveitaball landsins. Þaö
er þjóöhátíöarball þeirra sveitunga
og eina balliö á ári sem haldiö er í
Höfða. Kofanum er haldiö spes viö
bara fyrir þetta eina ball. Þaö er
ekki þjóöhátíö nema einu sinni á ári.
Það leynir sér ekki þegar rennt er í
hlaöið aö þarna er villt f jör. Ungling-
ar, pabbar og mömmur, afar og
ömmur. Allir eru á sveitaballinu og
skemmta sér jafnvel.
Og á þessu villtasta sveitaballi
landsins teljast slagsmál til algjörra
undantekninga. Meira aö segja lög-
reglan getur haft það náöugt, þó hún
auðvitað fylgist haukfránum augum
með, svona úrpasslegri fjarlægð.
Höföi er minnsta samkomuhús
landsins. Þaö hýsir engan veginn
þann fjölda sem kaupir sig inn á ball-
ið. Skiptir samt engu máli, húsiö er
nefnilega opiö í báöa enda, eins og
Flokkurinn.
Þetta er sérstök sjón. Þegar liðiö
streymir inn í annan enda hússins
má sjá jafnmarga koma út úr hinum
endanum. Gegnumstreymi eins og
það gerist best og þú átt þér enga
von lendirðu í straumnum.
Vín flýtur um allt húsiö, pelar í
hvers manns rassvasa. Sumir hafa
meö sér trekt og skella pelanum á
borö sjoppunnar. Kólanu hellt beint
á. Þetta er gömul aðferð í Höföa, en
ný í Reykjavík, blöndun á staðnum.
Ekki má gleyma hljómsveitinni.
Þaö er engin önnur en sveit Pálma
Stefár.ssonar. Hún er búin aö spila á
réttarballinu svo lengi sem menn
muna.
„Pálmi fórnar öllu ööru til aö geta
spilaö hér,” sagöi einn sveitunginn. I
sömu andránni heyrðist Póimi
gaula; allir í hringinn, darra da da
da, dadadada.
-JGH
■
Við innganginn
DV-myndir JGH
Allir í hringinn, darra da da da, dadadada. Hljómsveit Pálma Stefánssonar hefur spilað á
róttarballinu i Höfða svo lengi sem menn muna. „Pálmi fórnar öllu öðru til að geta spilað
Og skömmu síðar bakdyramegin. Einstakt ball i þessu minnsta samkomuhúsi landsins.