Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.1985, Blaðsíða 33
DV. FÖSTUDAGUR 27. SEPTEMBER1985.
45
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
íslend-
ingarnir á
staðnum
Það eru ýmsar sögur til af Færeying-
um hérlendis og misvirðulegar í við-
horfum gagnvart þessum frændum
okkar á næstu eyjum. Á ferð um Fær-
eyjar urðu á veginum Islendingarnir á
staðnum — klettar nærri landi viö
norðurenda Austureyjar.
Sagan segir að fyrrum hafi Islend-
ingar af tröllakyni brugðiö sér til Fær-
eyja. Þegar heim átti að halda greip
græðgin tröllkonuna heljartökum, hún
ákvað aö stela eyjunum og færa til Is-
lands. Við tilfærsluna notaði hún reipi
mikið sem brugðið var utan um næsta
klett og síðan skipaði hún karli sínum
að draga eyjarnar af stað. Færeying-
um til happs gætti hún ekki tímans,
sólarupprásin kom fyrr en varði og
hjúin urðu bæði að steini. Þar standa
þau öðrum græðgisgötum víti til varn-
aöar og enn þann dag í dag benda Fær-
eyingar, frásögninni til stuðnings, á
djúpt far í klettinn eftir reipi skessunn-
ar.
baj
Enginn skildi Glenn Ford — að honum
sjólfum meötöldum — svo hann giftist
geðlækninum sínum, Kebrinu Kinkade.
„Enginn
skilur mig”
— sagði Glenn
— og giftist
geðlækninum
Gamla sagan um manninn sem hall-
ar sér fram á barborðið og segir þjón-
inum að eiginkonan skilji hann ekki
hefur árum saman fengið harðbrjósta
sálir til þess að flissa af illkvittni. En
þetta er síður en svo fyndið og þegar
svo er komið að flestir vinir og vanda-
menn standa í sömu sporum og eigin-
konan fer máliö að vandast. Ef maður-
inn svo skilur ekkert í sjálfum sér held-
ur er einungis ein leið fær — að leita til
geðlæknis og athuga hvort hann veit
eitthvað um máliö.
Einmitt þetta henti bandaríska leik-
arann Glenn Ford á dögunum. Eigin-
konur númer eitt og tvö, Elanor Powell
og Kathy Hays, höfðu forðað sér með
hraði og þegar sú þriðja, Cynthia Hay-
ward, fór að dæmi fyrirrennaranna sat
Glenn einn eftir og skildi hvorki upp né
niður í konunum — hvað þá að hann
botnaði eitthvað í sjálfum sér.
Það var ekki nema um eitt að ræða
— Glenn brenndi til næsta geðlæknis til
þess að leita að sjálfum sér. Þaö
reyndist vera kvenmaður, um það bil
þrjátíu árum yngri en hann, og vissi
strax hvernig allt var í pottinn búið.
Réttur læknir á réttum stað og til þess
að vera viss um að tapa ekki þræðinum
smellti Glenn sér í hnapphelduna með
lækninum, Kebrinu Kinkade, og fær
því meðhöndlun gratís þessa dagana.
Hann er búsettur í HoIIywood þar sem
einna dýrast er aö týna sjáifum sér og
því er þarna umtalsverð rekstrarhag-
ræðing á ferðinni. Og þau búa í húsinu
hans, glæsivillu í Beverly Hills, og þar
syndir Kebrina í sundlauginni alsæl
eins og gullfiskur í krús.
Lífið getur
verið veisla
en maður verður
að passa aðéta
ekki yfir sig
Viðtai við indriða G.
Þorsteinsson
Lífsreynsla:
Átu allt nema
slátrið
Páll Pálsson, fyrrum
bóndi, segir frá því er
hann bjargaði Bretum í nauð
Tíska:
Gleraugnatískan
Tennis
Kynning á íþróttinni
Á öðrum fæti
erað þessu sinni
Einar Kárason
rithöfundur
og hann heldur
einnig áfram
dálki sínum
Nokkur
spursmál