Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.1985, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.1985, Blaðsíða 36
FRÉTTASKOTIÐ Sími ritstjórnar: 68-66-11. Auglýsingar, áskrift og dreifing, sími 27022. Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt — hringdu þá i sima 68-78-58. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað i DV, greið- ast 1.000 krónur og 3.000 krónur fyrir besta fréttaskotið i hverri viku, Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. FÖSTUDAGUR 27. SEPTEMBER 1985. Fjármálaráðuneytið: Neitar Búseta um skatta- frádrátt —tökufyrstu skóflustungu frestað Það virðist ekki blása byrlega þessa stundina hjá húsnæðissam- vinnufélaginu Búseta. I dag átti aö taka fyrstu skóflustunguna að bygg- ingu 46 íbúða á vegum Búseta en ljóst er að það verður að fresta því vegna þess aö dregist hefur að veita lán úr Byggingasjóði verkainanna. Þá hefur fjármálaráðuneytiö úr- skurðað að félagar í Búseta geti ekki nýtt sér svokaliaða húsnæðissparn- aðarreikninga, sem samþykktir voru á Alþingi í vor. Samkvæmt úrskurði fjármála- ráðuneytisins geta þeir einir nýtt sér þessa reikninga sem eru ekki að f jár- festa í eigín húsnæöi og að félagar í Búseta falli ekki undir þá skilgrein- ingu. Samkvæmt þessum reikning- um eiga þeir sem þá nýta aö fá ákveðinn skattafrádrátt. Búseti, hef- ur, í samvinnu við Alþýðubankann, unniö aö gerö slíks sparnaðarreikn- ings fyrir félaga í Búseta. Urskurður fjármálaráðuneytisins hefur það i för með sér að Búseti getur byrjað með þennan sparnaðarreikning í bankanum en mun, að svo stöddu, ekki geta nýtt sér hann til skattafrá- dráttar. Að sögn formanns Búseta, Jóns Rúnars Sveinssonar, fclldi félags- málaráöherra þann úrskurð í janúar sl. aö Búseti ætti rétt á láni úr Bygg- ingasjóöi verkamanna. Búsetí sótti um 30 milljón króna lán eða þriðjung * af kostnaði viö framkvæmdirnar. Umsókn var lögð inn fyrir um tveim- ur mánuðum en ekkert bólar á láni. „Það sem hefur gerst er að hús- næðismálastjórn hefur verið sein að koma þessu frá sér og þetta er orðinn ákaflega leiðinlegur seinagangur,” segir Jón Rúnar. APH The/t'Ttf£!l2m EINANGRUNAR GLER 666160 Hluti glæsilegs saf ns íslenskra f rímerkja til sölu erlendis: Metinn á minnst ellefu milljónir Glæsilegasta safn, sem hefur ver- ið sett saman af íslenskum frímerkj- um, verður selt á uppboði í Málmey í október. Aöeins hluti af safninu veröur seldur þá, en andvirði þessa hluta er áætlaö um 11 milljónir króna. Taliö er að dýrasta hluta safnsins verði haldið eftir og hann seldur síöar ef markaður reynist góöur. Það var sænskur iönjöfur, aö nafni Holger Crafoord, sem setti saman þetta safn, en hann er nú nýlátlnn. Safnið er heimsfrægt og hefur veriö verðlaunað á frímerkja- sýningum út um víða veröld. Kom það m.a. á sýningu hér á landi 1973 og fékk verðlaun. Safnið mun vera svo heilsteypt og gott að nánast er ókeift að setja saman svipaö safn í dag. Heyrst hefur að nokkrir íslending- ar hafi hugsaö sér aö far út til Sví- þjóöar á uppboðiö. Eru það bæði kaupmenn og safnarar. Telja má þó ólíklegt að þeir hafi bolmagn né að- stöðu til aö bjóöa í merkin. Þetta kom fram í viötali við Finn Kolbeins- son, varaformann í Landssambandi íslenskra frímerkjasafnara, en mörgum íslenskum söfnurum leikur hugur á að eignast þessi merki. SMJ Bónussamningarnir: Felldir í Höf n og Þor- Víkurfréttir hreinsaðar út úr Grindavík í gær: „Dreifum blaðinu til kaupenda þar aftur” Í 1 -*— ■ ..;-»r Ritstjórar Vikurfrétta, Páll Ketilsson og Em’il Páll Jónsson, halda hér á þeim 400 eintökum sem Grindvikingar skiluðu í gær. „Viö erum ákveðnir í að kæra þá er skrifuöu þetta bréf. I því er atvinnu- rógur af verstu gerð. Þetta eru gerræö- isleg vinnubrögð sem nefndin hefur í frammi með því að gera blaðið upp- tækt í Grindavík,” sagöi Páll Ketils- son, annar ritstjóri Víkurfrétta, í sam- tali viðDV. I gær dró til tíöinda í svokölluðu „Víkurfréttamáli”. Nokkrir Grindvík- ingar tóku sig þá til og hreinsuðu blað- ið upp þar til varla var að finna eintak í þorpinu, og héldu með 400 eintök á rit- stjórnarskrifstofur Víkurfrétta í Kefla- vík, en blaðinu var dreift á Suöurnesj- um í gær. Nefnd sú, sem kosin var á borgarafundinum í Grindavík fyrir skömmu, stóö að baki þessum aðgerð- um og einnig dreifði hún bréfi til allra Grindvíkinga í gær þar sem vegið var harkalega aö Víkurfréttum og Grind- víkingar beönir um að hundsa blaöið alfarið og auglýsa ekki í því. Þá voru þeir beðnir að hafa samband við vini og kunningja í sama tilgangi. „Við erum sko ekki búin aö gefast upp. Við höfum fengið okkur lögfræö- ing og ætlum að lögsækja ritstjóra Vík- urfrétta. Með þessum aðgerðum í gær vildum við sýna ritstjórunum í tvo heimana. Það er skoðun okkar að upplag Víkurfrétta eigi heima á sorpeyöingar- stöð,” sagði Berta Grétarsdóttir, einn nefndarmanna, í samtali við DV. „Við erum ekki búnir aö gefast upp. Fjöldi Grindvíkinga hringdi í okkur í gær og vildi fá blaðiö. Við munum dreifa því eftir nýjum leiöum í Grinda- vík í dag,” sagöi Páll Ketilsson rit- stjóri. -SK. lákshöfn Bónussamningar fiskvinnslufólks hafa verið felldir á tveimur stöðum, í Þorlákshöfn og Höfn í Hornafirði. Verkalýösfélög viða norðaniands og austan hafa fengiö frestað atkvæða- greiðslu þar til nánari skýringar hafa fengist á samningunum. I flestum stærstu verstöðvunum liafa samningarnir verið samþykkt- ir; i Reykjavík, Hafnarfirði, Kefla- vík, Grindavík, á Akranesi, í Olafs- vik, á Siglufirði, Eskifirði og i Nes- kaupstaö. I Þorlákshöfn og Hornafirði er unniö eftir nýju samningunum. Nýtt bónusverkfall hefur ekki veriö boðaö þar. Guömundur J. Guðmundsson, formaður Verkamannasambands- ins, taldi skýringuna á andstööunni að hluta mega rekja til þeirrar sér- stöðu þessara staða að þar væri meira pakkaö á Bretlandsmarkaö en sú vinna hefði vegna einhverra mis- taka ekki fengið jafnmikla hækkun i samningunum og aörar greinar. -KMU. Dagamunur hjá Degi: DV FYRST TIL AÐ GEFA DEGIBLÓM Dagblaðiö Dagur kom út úr prent- vélunum um níuleytið í gærmorgun. Söguleg stund. Þetta var fyrsti dag- ur blaðsins sem dagblaðs. Sannar- lega ástæða til að gera sér dagamun. Enda var það gert. Tappar skutust úr kampavínsflöskum með viðeig- andi hljóðum. Skál! Síðan var snitt- um rennt niður í leiðinni. Og fljótlega tóku haming juóskaskeytin aö berast. Það vorum samt viö á DV sem komum fyrstir með blómin. Góöan daginn, með forláta blómvendi og allt það. Ritstjórinn, Hermann Sveinbjörnsson, tók við rósunum. Með blómvendinum fylgdi auðvit- að umslag. Utan á því stóö: „Dag- blaðið Dagur.” Þá var það sjálft kortiö. Hamingjuóskirnar voru þess- ar: „Dagur eitt. Kæri Dagur. Inni- legar hamingjuóskir meö daginn. Megir þú sem helsti keppinautur DV á Noröurlandi eiga góöa daga. DV.” Og strax á eftir skutust fleiri tapp- ar úr kampavínsflöskum. -JGH. DV fyrst til að fagna nýjum Degi með blómum. Jón G. Hauksson, blaðamaður DV á Akureyri, afhendir hér ritstjóra Dags, Hermanni Sveinbjörnssyni, blómvöndinn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.