Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.1985, Blaðsíða 5
DV. FÖSTUDAGUR 27. SEPTEMBER1985.
5
Hvað ætla þeir að gera á þinginu?
NÝSKÖPUNIN ER EINS OG
NÝJU FÖTIN KEISARANS
— segir Guðmundur Einarsson í Bandalagi jafnaðarmanna
„Viö munum halda áfram baráttu
okkar fyrir breyttum stjórnarhátt-
um. Viö munum í því sambandi bæöi
flytja ný mál og endurflytja. Þaö eru
mál eins og aöskilnaður valdhátt-
anna, ábyrgö embættismanna og
stjórnmálamanna og aukið lýöræði.
Þá munum viö halda áfram aö vinna
aö máli sem varöar aukin völd
manna á heimaslóð. I því sambandi
finnst okkur grundvallaratriöi aö
menn hugsi ekki hvaö ríkið eigi aö
láta af hendi til héraös og sveitar-
stjórna heldur verði þetta þveröf-
ugt,” sagöi Guömundur Einarsson,
formaöur þingflokks Bandalags jafn-
aöarmanna, um þaö hvaö hans flokk-
ur hyggst leggja áherslu á á næsta
þingi.
„Viö höfum einnig undanfariö
veriö að líta á mál eins og skattamál,
tollamál og dagvistunarmál. Viö
munum halda áfram aö leggja
áherslu á atvinnumál og nýsköpun,
sérstaklega hvað varöar smáfyrir-
tæki. Sjálfstæöisflokkurinn stóð fyrir
því á síöasta þingi að fella tillögu
okkar um smáfyrirtæki. Ég geri ráö
fyrir aö við munum leggja fram
þessa tillögu í endurbættri mynd því
aö þaö er ekki hægt aö láta þessa
dáðadrengi í Sjálfstæðisflokknum
monta sig af því aö þeir styöji fram-
tak fólks og einstaklinga og vinni síö-
an þveröfugt við þaö.
Síöan er ljóst að nokkur mál veröa
fyrirferðarmikil á þessu þingi. Þar
má fyrst telja fiskveiöistefnuna sem
„Við munum leggja áherslu á at-
vinnumál og nysköpun," segir
Guðmundur.
væntanlega veröa harðar umræður
um. Þá veröa skatta- og tollamál
mikiö rædd og ekki síst vegna fjár-
laganna og fyrirheita sjálfstæöis-
manna um lækkun tekjuskatts.
Þá veröa miklar umræöur um
skólamál. Þaö er ljóst aö skólakerfiö
getur ekki veriö óbreytt. Okkur hefur
mistekist margt, eins og í sambandi
viö virkjanir, togaramál og erlendar
skuldir. Viö erum aö sjálfsögöu
ábyrg í þessum málum og um leið af-
urðir skólakerfisins. Þannig aö
skólakerfiö getur ekki verið án þátt-
töku ef þaö á aö fara ofan í saumana
á orsökunum fyrir þessu.
Þá veröur ekki komist hjá því að
húsnæðismál veröi stórmál á þessu
þingi. Nú er gífurlegur samdráttur í
húsbyggingum og nauö þess fólks,
sem þarf að byggja, mjög mikil. Ég
held aö Sjálfstæðisflokkurinn, sem
hefur haldiö uppi sjálfseignarstefnu
og frelsi í þessum efnum, veröi aö
gera sér grein fyrir því að þaö er
hreint ekkert frelsi aö vera kross-
festur meö óviöunandi skuldastööu
vegna þess eins að menn vilja eign-
ast húsnæöi,” sagði Guðmundur.
Hann var einnig spurður um hvaö
ætti eftir aö einkenna þetta þing öðru
fremur.
„Eg held að bæjarstjórnarkosning-
ar verði stór þáttur í þinghaldinu,
sérstaklega þegar fer aö líða á þing-
iö. Umræðurnar um fjárlögin geta
oröiö mjög harðar. Nú hefur þessi
ríkisstjórn setið í tvö ár og menn
hafa nú leyfi til aö spyrja um árang-
ur. Ríkisstjórnin hefur þóst gera
góöa hluti en samt er staöreyndin sú
aö þaö hefur aldrei veriö jafnerfitt að
koma saman fjárlögum og núna,
aldrei veriö eins alvarlegt ástand í
húsnæöismálum, og þessi svokallaða
nýsköpun, sem ríkisstjórnin virðist
vera með á heilanum, er ekkert ann-
að en nýju fötin keisarans. I þessu
sambandi hefur farið miklu meira
fyrir oröum en geröum,” sagði Guð-
mundur Einarsson. APH
VETi
^annpríiaberóluntn
Crla
Snorrabraut 44. Sími 14290
SUMAR
HAUST
Margar stæröir af tilbúnum römmum og úrval rammalista.
PÓStSendum. Snorrabraut44. Sími 14290 PÓSthÓlf 5249.
ÁRSTÍÐIRNAR ,stærð 30 x 30,
saumaðar með dökkbrúnu í Ijósan jafa, fjórar saman r
_________pakkningu. Verð kr. 925,-
SPREIMGJUVERD A:
Hljómtækjum
Feröatækjum
Vasadiskóum
Hátölurum
Bíltækjum
Allt að
60%
afsláttur!
BETA og VHS
myndbandssnældur
og hljómsnældur
á ævintýralegu veröi ' ‘
Póstkröfusendingar
afgreiddar samdaegurs
SJÓNVARPS
BUDIN
Lágmúla 7 — Reykjavík
Sími 68 53 33
fer hver aö verða
síðashir
érl
VERÐIÐ
í fullu gildi!
System
708
Gamla
verölð:
E5j«50
Sprengju-
verðið:
19.950