Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.1985, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.1985, Blaðsíða 28
40 DV. FÖSTUDAGUR27. SEPTKMBER1985. Helgi Karlsson, Vallargötu 21 Sand- gerði, sem andaðist á sjúkrahúsi Keflavíkur 20. þ.m.,verður jarðsung- inn frá Hvalsneskirkju laugardaginn 28. þ.m. kl. 14. Hansína Ágústa Sigurðardóttir lést 19. september sl. Hún fæddist 8. ágúst 1902 á Stokkseyri. Foreldrar hennar voru Sigurður Hannesson og kona hans, Guðrún Magnúsdóttir. Hún giftist Jóni Símonarsyní bakarameistara, en hann lést áriö 1978. Þau hjónin eignuðust þrjú börn. Utför Hansínu verður gerð frá Fossvogskirkju í dag kl. 13.30. Guðrún Rútsdóttir hjúkrunarkona er látin. Hún fæddist 13. júlí 1912 á Sigurðarstöðum á Melrakkasléttu, Dóttir Finnboga Rúts Jónsonar og Marenar Ragnheiður Friðrikku Lárus- dóttur. Guðrún giftist Jafet Ottóssyni og eignuðust þau eina dóttur. Guðrún lauk námi í hjúkrun í Danmörku. Síöustu árin rak hún hjúkrunarheimili fyrir aldraða á Lond Island í NY-ríki ásamt systur sinni. tJtför hennar var gerð frá Fossvogskirkju í morgun kl. 10.30. Sigurbjörg Guðmundsdóttir andaðist í Borgarspítalanum 12. september. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þormóður ögmundsson, fyrrverandi aðstoðarbankastjóri, Miklubraut 58, andaðist að morgni 25. september í Vífilsstaöaspítala. Sigmar Guðmundsson húsasmíða- meistari, Sléttahrauni 26 Hafnarfiröi, andaöist þann 24. september í Borgar- spítalanum. Gunnhildur Halldórsdóttir Jónsdóttir, Tjarnargötu 39, andaðist í Borgarspít- alanum 18. þ.m. Útförin hefur farið fram. Sveinn G. Sveinsson byggingar- fræðingur er látinn. Steinþór Carl Ölafsson lést 18. september sl. Hann fæddist á Skaga- strönd 18. nóvember 1923, sonur lijónanna Olafs Lárussonar og Bjargar Carlsdóttur Berndsen. Steinþór starfaði lengst af hjá Pósti og síma. Eftirlifandi eiginkona hans er Guörún Halldórsdóttir. Þeim hjónum varð fimm barna auðið. Utför Steinþórs veröur gerð frá Langholtskirkju í dag kl. 13.30. Tapað -fundið Pési er týndur Þessi fallegi köttur fór frá heimili sínu, Hlíöarvegi 16, Kópavogi, sl. laugar- dag, sást síðan viö Skjólbrautina. Hann var með bláa ól. Ef einhver hefur oröið var við hann lifandi eða látinn þá vinsamlegast láti vita í síma 44894. Fundarlaunum er heitið fyrir kisa. Tilkynningar Kvikmyndir í MÍR Kvikmyndir eru sýndar í húsakynnum MlR alla sunnudaga kl. 16. Sýndar eru sovéskar kvikmyndir, jöfnum höndum frétta-, fræðslu- og heimildarkvik- myndir og leiknar myndir, gamlar og nýjar. -Nk. sunnudag, 29. september, verða sýndar nokkrar frétta- og fræðslumyndir úr ýmsum áttum, m.a. mynd um neðanjarðarbrautir í Sovét- ríkjunum, nyrstu borg Sovétríkjanna o.fl. Skýringar með kvikmyndunum eru á ensku og íslensku. Aðgangur öll- umheimill. Félag makalausra Aöalfundur verður haldinn laugardag- inn 28. september í Iðnaðarmannasaln- um, Skipholti 70, 2. hæð, kl. 14. (Uppi yfir versl. Herjólfi). Dagskrá sam- kvæmt lögum, dansleikur með diskó- tekinu Dísu á sama staö kl. 22 um kvöldið. Vetrardagskrá Guðspekifélagsins Vetrardagskrá Guðspekifélagsins hefst í kvöld í húsi félagsins að Ingólfs- stræti 22 meö opinberu erindi Birgis Bjarnasonar, sem fjalla mun um til- viljanir. , Að vanda verður á dagskrá í vetur fjölbreytt efni, sem tengist andlegum málum á sviöi trúarbragða, sálfræði, í gærkvöldi i gærkvöldi Frænka gamla eða frændi Mér þykir ákaflega vænt um út- varpið. Og þegar þær stundir hafa komið að ég hef lent i að gagnrýna (réttar nefnt einhvers konar athugasemd um dagskrá) þennan fjölmiöil hef ég jafnan gert það með vondri samvisku — og iörast siðar. Það hefur stundum verið svipað því og að gagnrýna foreldra sina — eöa afa og ömmu: Það hefur einhvern veginn svo lítiö upp á sig, lýsir sjálf- um manni meira en þeim sem gagn- rýndur er. Þessi tilfinning er að sjálfsögðu sprottin af því að ég óx upp með íslenska Ríkisútvarpinu, þaö var nánast fjölskyldumeðlimur. Seinni árin hefur þessi fjölskyldu- meðlimur svo fjarlægst — eöa ég hef fjarlægst. Stundum liða svo dagar og jafnvel vikur að ég opna varla fyrir útvarpið. Þá fæ ég samviskubit. Eg fæ tiifinningu sem er ekki ósvipuö þeirri sem stundum gerir vart við sig hafi ég vanrækt að líta til gamallar frænku eöa frænda. En svo læt ég verða af því að koma í heimsókn. Og frændinn verður glaður við. Og það rifjast upp fyrir mér aö hann var og er bráðskemmti- legur og raunar furðulegt aö maður skuli ekki heimsækja hann daglega. Það er þægileg tilfinning. Þá til- finningu fékk ég í gærkvöldi. Eg leyfði útvarpinu að mala fram yfir miðnættið. Og mér leið eins og forðum, þegar maður var ekki eins og útspýtt hundsskinn í lífsbarátt- unni heldur undi sér rólegur i nota- legheitum heimilisins, hafði nægan tíma og göfgandi dagskrá í útvarp- inu var ómissandi. Kvöldfréttir. Daglegt mál. Leikrit. Kynjaveröld. Kvöldstund í dúr og moll með Knúti R. Magnússyni. Fréttir og dagskrár- lok. Eg þakka fyrir mig. Gunnar Gunnarsson. Jónas Jónasson, útvarpsmaður á Akureyri: Hann Pétur er hafsjór af sögum Mér gafst lítill tími til aö fylgja dagskrá Ríkisútvarpsins eftir í gær- kvöldi. Eg og mínir samstarfsmenn höfum verið á kafi í tilraunum með svæðisútvarp hér á Akureyri. Þann 1. október hefjast útsendingar fyrir alvöru og fyrsta svæðisútvarp á landinuferigang. Það er fyrst og fremst í byggð viö Eyjafjörð sem þessar útsendingar heyrast og allt noröur til Grímseyj- ar. Þó ekki vel á Olafsfirði, en viö reynum að leysa það vandamál fljót- lega. Eitthvað heyrist til okkar í Þingeyjarsýslum, í Mývatnssveit og á Húsavík, svo dæmi séu nefnd. Draumurinn er að geta verið með fasta dagskrá á miðvikudögum á millikl. 21og23. I samkeppni við Dallas? Þótt olía renni nú oröið um æðar Islendinga þá er ágætt fyrir Norðlendinga aö geta hvílt sig á hitanum þarna í Texas og skipt yfir á svæðisútvarp á Akureyri. Þótt tími minn haf i að mestu farið í þetta tilraunaútvarp í gærkvöldi þá tókst mér að hlusta á Gcstagang Ragnheiðar Davíðsdóttur. Hún er af- skaplega notalegur útvarpsmaður og það var gaman að hlusta á Pétur Pétursson, þann gamla hauk, sem var sjálfum sér líkur. Hlusta á hann herma eftir Helga Hjörvar og Þór- bergi og seg ja skrýtlur af Páli Isólfs- syni. Hann Pétur er hafsjór af sögum og sagði frá útvarpsmönnum sem ég þekkti vel sjálfur. Hann kenndi mér þegar ég var að stíga mín fyrstu skref sem þulur. Fyrir háttinn setti ég tónlist eftir Mozart á fóninn. Það var gott undir svefninn. vísinda, heimspeki, dulfræði og dul- speki (mystik). Á miðvikudögum verður skrifstofan opin frá kl. 15. Leiöbeiningar í hug- leiöslu fyrir byrjendur hef jast kl. 18.15, og eru fyrir alla sem áhugá hafa, en kl. 19.30 verður fræðsluflckkur um and- lega heimspeki. Á föstudögum kl. 21.00 verða til skiptis opinber erindi og fræðsluflokk- ar, þar sem meöal annars verður f jall- að um sálfræði frá sjónarmiði hug- ræktar og kristna mystik. Á laugardögum veröur opið hús frá kl. 15.00 til 18.00 og verður þá m.a. flutt ýmist efni af hljóð- eða myndböndum. Geðhjálp — þjónusta Geðhjálp veröur með opið hús á mánu- dögum og föstudögum frá kl. 14—17 og laugardögum frá kl. 14—18 í félagsmið- stöðinni að Veltusundi 3b. Símaþjón- usta er á miðvíkudögum frá kl. 16—18: s. 25990. Símsvari allan sólarhringinn gefur upplýsingar um starfsemi fé- lagsins. Vetraráætlun veröur auglýst síðar. Sinfóníuhljómsveit Æskunnar með tónleika Sinfóníuhljómsveit Æskunnar heldur tvenna tónleika. Þeir fyrri verða á morgun kl. 17 í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Stjórnandi er Mark Reed- man. Á efnisskrá veröur Flugeldasvíta eftir Hándel, The Quiet City eftir Aar- on Copland, Serenade fyrir 13 blásara eftir R. Strauss og Sinfónía nr. 2 (Eroica) eftir Beethoven. Síðari tón- leikarnir verða í Ytri-Njarðvikur- kirkju á sunnudaginn kl. 16. Vetrarstarfsemi Árnesinga- kórsins í Reykjavík Árnesingakórinn í Reykjavík er nú að hefja vetrarstarfsemi sína. Á starfsskránni í vetur verða jólatónleik- ar, vortónleikar og sameiginlegir tón- leikar með Samkór Selfoss og Árnes- kórnum. Kórinn getur enn bætt við sig fólki í allar raddir. Starfsemi kórsins var með mesta móti síöastliðið ár, og endaði starfsárið með söngferð til Norðurlanda. I ferðinni kom kórinn víða fram, m.p. í Osló, Gautaborg og Kaupmannahöfn. Söngstjóri kórsins var Guðmundur Omar Oskarsson, und- irleikari Guðni Þ. Guömundsson og fararstjóri í ferðinni var Guðmundur Guðmundsson. Guðmundur Omar Oskarsson hefur verið söngstjóri kórsins um árabil en lætur nú af störfum. Hlín Torfadóttir hefur veriö ráðinn söngstjóri. Formað- ur Árnesingakórsins í Reykjavík er Ester Steindórsdóttir. Félagar í Lionsklúbbi Hafnarfjarðar munu um helgina vera með sína árlegu perusölu. Ákveöið hefur veriö aö allur ágóði af perusölunni renni til röntgen- tækjakaupa á Sankti Jósefsspítala í Hafnarfiröi. Lionsmenn vænta þess að Hafnfirðingar taki vel á móti þeim eins og undanfarin ár. Kappræða um bjór og bjór- líki Þriðjudaginn 1. október kl. 20 fer fram fundur á vegum JC í Reykjavík á Hótel Borg. Munu þeir Jón Ottar Ragn- arsson dósent og Jón Helgason dóms- málaráðherra skiptast á skoðunum um bjór og bjórlíki. Fyrirkomulag fundarins verður þannig að ræðumenn fá 7 mínútna framsögu fyrst í staö. Síðan 2x3 mínútur í fyrirspurnir og svör hvor til annars og loks verða fyrirspurnir úr sal leyfðar. Reka þeir félagar síðan endahnútinn á fundinn meö 3 mínútna lokaorðum. Allir eru velkomnir og aðgangseyrir verður á bilinu 100 til 150 krónur og eru kaffiveitingar innifaldar. Kópavogsganga Frístundahópurinn Hana nú í Kópa- vogi gengur aftur á morgun, laugar- daginn 28. september. Á morgun er hópnum boöið að skoða listaverk eins Hana nú-félaga í Hvömmunum. Mark- mið hinnar vikulega göngu Hana nú er hreyfing, súrefni og samvera. Lagt er af stað frá Digranesvegi 12 kl. 10.00 fyrir hádegi. Allir Kópavogsbúar eru velkomnir. Agnarögn tveggja ára Félagsmiðstöðin Agnarögn við Fögru- brekku í Kópavogi verður tveggja ára á sunnudaginn. Af því tilefni verður haldinn unglingadansleikur annað kvöld og hefst hann kl. 21. Þá mun Val- geir Guðjónsson Stuðmaður skemmta, hljómsveitin Band nútímans leika og einnig veröur danssýning og diskótek. Á sunnudaginn (sjálfan afmælisdag- inn) verður opið hús í Agnarögn frá kl. 16 til 19. Þá eru Kópavogsbúar yngri sem eldri hvattir til að koma og skoða staðinn og þiggja kaffiveitingar. 6árafangelsi fyrir hnífstungu 19 ára gamall piltur hefur verið dæmdur í Sakadómi Reykjavíkur í sex ára fangelsi fyrir manndrápstilraun. Atburðurinn átti sér stað fyrir utan unglingaskemmtistaðinn Traffík í apríl sl. Réðst árásarmaðurinn fyrir- varalaust á 17 ára gamlan dreng og stakk hann meö hnífi í kviöarholið. Sá sem fyrir árásinni varð hlaut mikiö sár af völdum hnifstungunnar en hefur nú náö svo til fullum bata. Hníf- stungumaðurinn var látinn sæta geð- rannsókn og reyndist hann sakhæfur. Dóminn kvað upp Pétur Guðgeirsson sakadómari. -EH. Grænmetið: Nýrfram- kvæmdastjóri ráðinn I gær var ákveðið á stjórnarfundi Grænmetisverslunarinnar að ráða Gest Einarsson rekstrartæknifræðing sem framkvæmdastjóra fyrirtækisins. Gestur tekur því við störfum af Gunn- laugi Björnssyni sem lætur nú af störf- um. Þá var einnig samþykkt á fundinum að segja upp öllu starfsfólki fyrirtækis- ins fyrir 1. október. Það er gert vegna skipulagsbreytinga sem von er á. Búist er við að flestir starfsmennirnir veröi endurráðnir. APH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.