Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.1985, Side 3
DV. FÖSTUDAGUR 27. SEPTEMBER1985.
3
Hreyfingar á innlánum íbönkum ogsparisjóðum síðustu 13 mánuði:
Stærstu bankarnir hafa
misst út 800 milljónir
Frá því aö styrjöld hófst í banka-
kerfinu um sparifé landsmanna,
fyrir rúmu ári, hafa tveir stærstu
bankarnir, Landsbankinn og
Búnaðarbankinn, misst út til hinna
bankanna 784 milljónir króna. Er þá
miðaö við að þeir hefðu haldið
óbreyttu hlutfalli af heildar-
innlánum.
Allir aðrir bankar hafa bætt hlut
sinn eitthvað. Sparisjóöirnir misstu
lítillega framan af en hafa nú sótt sig
aftur og eru meö svipað hlutfall og
fyrir ári. Ljóst er að Búnaöar-
bankinn hefur farið hlutfallslega
verst út úr samkeppninni og misst út
386 milljónir.
Landsbankinn hefur raunar misst
út hærri upphæð, 398 milljónir, en af
mun hærri stofni. Utvegsbankinn er
eini ríkisbankinn sem hefur bætt sig,
um 299 milljónir frá hlutfallinu fyrir
ári. Iðnaðarbankinn hefur bætt sig
um 207 milljónum, Samvinnu-
bankinn 194, Verslunarbankinn 108
Og Alþýðubankinn 71 milljón, en
hann hefur verið drjúgur í sókninni
frá áramótum.
I töflunni sem fylgir hér eru birtar
tölur um innlán eins og þau stóðu 30.
júní í fyrra og í árslok, svo og eins og
þau voru 31. júlí í sumar. Þar er
hlutur hvers banka tíundaður og
sparisjóðanna sem heildar. Taflan
sýnir þróunina innan bankakerfisins
á þessu timabili.
Mikil tilfærsla hefur oröiö á milli
reikningstegunda á þessum tíma,
sérstaklega eftir að reikningar með
alls konar sérkjörum voru boðnir í
ágúst í fyrra. Á þeim eru nú yfir sjö
milljarðar króna. Það fé hefur í
miklum mæli verið flutt af bundnum
reikningum og ahnennum
sparibókum.
HERB
Innlán í bönkum og sparisjóöum 30.06.84 Millj.kr. % af heild 31.12.84 Millj.kr. %af heild 31.07.85 Mitlj.kr. % af heild
Alþýöubankinn 437 2,0 496 2,0 687 2.2
Búnaðarbankinn 3.949 18,5 4.478 17,8 5.318 17,2
Iðnaöarbankinn 1.439 6,7 1.798 7,1 2.230 7,2
Landsbankinn 8.059 37,7 9.239 36,7 11.226 36,4
Samvinnubankinn 1.340 6,3 1.599 6,4 2.050 6,7
Utvegsbankinn 2.086 9,7 2.582 10,3 3.207 10,4
Verslunarbankinn 760 3,5 1.104 4,4 1.338 4,4
Sparisjóðir 3.308 15,6 3.860 15,3 4.777 15,5
21.378 100,0 25.156 100,0 30.883 100,0
- Ódrekkandi mjólk:
Innkölluðu 3000 lítra
Tíu tonnum af tré-
staurum stolið
Mörgum mjólkurþambaranum á
Suðurlandi brá í brún þegar hánn ætl-
aöi að fara að gæöa sér á helgarmjólk-
inni. Reyndist vera hin megnasta ólykt
af henni og ef einhver hafði kjark í sér
til að bragða á mjólkinni fannst hið
megnasta remmubragð. Neyddist fólk
til aö skila mjólkinni, því hún var alveg
óneysluhæf.
„Mannleg mistök,” sagöi Birgir
Guðmundsson, framkvæmdastjóri
Mjólkurbús Flóamanna. „Við geril-
sneyðingu urðu smámistök, en þó ekki
þannig aö mjólkin væri ógerilsneydd.
Við urðum að innkalla um 3000 lítra.
Svona lagað getur verið érfitt við að
eiga og getur því miður alltaf skeð.”
SMJ.
SelduaflaíHull
Frá Emil Thorarensen, Eskif iröi:
Báöir skuttogarar Eskfirðinga
seldu afla sinn í Hull í vikunni.
Hólmatindur SU—220 seldi á þriöju-
daginn 126 tonn fyrir krónur 6,190
þúsund. Meðalverð fyrir kílóið var
krónur 49,20. Hólmanes SU—1 seldi á
fimmtudaginn 140 tonn fyrir krónur
6,421 þúsund. Meðalverð fyrir kílóið
var krónur 45,98.
Báðar þessar tölur teljast góðar en
verð fór iækkandi þegar á vikuna leið
vegna aukins framboðs á fiski bæði
frá fsiandi og betri veiði í Norðursjó.
-ÉH.
Verktaki var að taka upp gamla
símastaura á svæðinu frá Hvamms-
vík aö Bryn judalsá í Hvalfirði síðast-
liðið sumar. Voru þetta tréstaurar
sem var komiö fyrir í hrúgu í gryfju
rétt við Fossá. Þegar átti að flytja
staurana til Reykjavíkur um miöjan
júlí í sumar kom í ljós að búið var aö
stela 70 staurum. Hver staur er um
sex metra langur og vegur á bilinu
120—150 kíló.
Rannsóknarlögregla ríkisins biður
þá sem geta gefið úpplýsingar í
þessu máli að hafa samband í síma
44000.
-EH.
nk. laugardag og sunnudag
— 19 í sýningarsal Bílasalans
við Hvannavelli á Akureyri
1986-árgerðirnar frá Mitsubishi
Galant
Colt
Einnig Range Rover Vouge
Lancer station
Tredia
Vörukynningar í gangi
frá Sana, Lindu og Bautanum
alla helgina
•“•“SVflí
„otuður"-
Athugið að Mitsubishi bílarnir
ery bestir íí endursölu