Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.1985, Síða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.1985, Síða 30
V* 42 DV. FÖSTUDAGUR 27. SEPTEMBER1985. r' s m á rSK :ífi IR 1 í\ Afbragð I Stories of Johnny — Mark Almond (Virgin) Mark Almond hefur alltaf verið i uppáhaldi hjá mér — þessi hýri sveinn! Allt frá þvi Soft Cell gaf út Tainted Love hefur Almond verið minn maður (engan misskilning). Dálitiö brokkgengur eins og gerist og gengur en The Boy Who Came Back i fyrra var dásemd og nú þetta lika svakalega fína lag, blástur & strengir & mjúkar línur — en samt töff. Ótrúlega gott. Afbragð II lf I Was — Midge Ure (Chrysalis). Fyrsta lag af væntanlegri sólóplötu söngvara Ultravox, Midge Ure; hér eru vanir menn og vönduð vinna og tómt mál að tala um annaö en topplag. Mér kæmi ekki á óvart þó If I Was hreykti Bowie og Jagger út toppsæti breska listans þegar í næstu viku. Þetta heitir j að hafa fagmenn i faginu! Lean On Me — Red Box (Sire) i sumar hafa sprottið upp í Bretlandi margar athyglisverðar tiljómsveitir. Þessi hlýtur að eiga framtiðina fyrir sér, Lean On Me verður einfaldlega betra þvi oftar sem maður heyrir það og Red Box hlýtur að vera komin á beinu brautina. Lagið frá því i fyrra, Saskatchewan, sem fylgir hér i kaup- bæti á tvöfaldri smáskífu — og er með sama marki: gæði framan hægra, snilld aftan vinstra. Brand New Friend — Lloyd Cole And the Commotions (Polydor) Ein af plötum ársins í fyrra að mínum dómi var Rattlesnake með^perlur eins og Perfect Skin og Forest Fire. Vörumerki Lloyd Cole er að semja litil nett popplög með angurværum undir- tón — og hann virkar dálítið gáfulegur fyrir vikið. Þetta nýja lag er á sömu nótum og lögin í fyrra. Skortjr kannski herslumuninn. Óbragð I Be Near Me — ABC (Phonogram) Ég hélt einu sinni að Martin Fry (hét hann það ekki annars?) væri næsti spámaður poppsins þegar ABC kom blaðskellandi með sómalög eins og Poison Arrow og The Look Of Love. En það reyndist bara stutt gaman en skemmtilegt. Nú er langt um liðið og ABC hljómar bara eins og gömul spila- dós sem hefur verið kastað úti horn. Phil Collins — Don't Loose My Number (Atlantic) ; Enn eitt lagið af jakkar-vinsamlegast- afþakkaðir-plötunni. Má afþakka svona lag i leiðinni? Er ég einn um þá skoðun að Phil Collins sé farið eins og hundinum forðum sem eltist bara við skottið á sér? Hann er að verða eins trúverðugur og Svala-auglýsing, Phil Collins,’- sem bara fyrir örfáum árum söng og spilaði af stakri innlifun. Svona fer heimur versnandi. Óbragð II She's So Beautifui — Cliff Richard (EMU Ó, mig auman. Þetta er ámóta spennandi og niðursuðudós. Ég veit að lagið er samiö og spilaö af Stevie j Wonder og smámælti Ciiíf syngur eins , sætt og honum er unnt. En mætti ég þá I heldur biðja um niðurskorið vísitölu- ’/* brauð. BRYAN ADAMS - RECKLESS: Kröftugt gallabuxnarokk Ég las einhverstaðar að Bryan Ad- ams væri helsta útflutningsvara Kan- adamanna að Canada Dry frátöldu. Þessi ungi rokkari hefur enda skotið sér uppá stjörnuhimininn síðustu mán- uðina með þriðju breiöskífu sinni: Reckless. Með jöfnu millibili hefur lög- um af þessari plötu veriö skotið uppá vinsældalista og flest komist í betri sætin; eitt þeirra, Heaven, fór til dæm- is alla leið á topp bandaríska listans í sumar og nýverið hefur hljómaö í eyr- bryan adams um útvarpshlustenda lagið Summer Of '69 en það lag varð til þess að skrifari þessara lína fór að gefa Bryan Adams frekarigaum. Önnur lög af Reckless sem þekkt hafa oröið eru Somebody og Run To You og ugglaust eiga fleiri lög plötunn- ar frama vísan; hér syngur Adams til dæmis dúett á móti Tinu Turner og það væri víst einhver skrýtin viðskipta- sjónarmið ef það lag, It’s Only l.ove, yrði ekki gefiö út á smáskífu. Tónlist Bryan Adams er sosum eng- an veginn frumleg. Hann fylgir gam- alli formúlu sem Bruce Springsteen, Bob Seger og fleiri hafa þróað, kraft- mikið rokk í einfaldri uppbyggingu þar sem engin nýtískuhljóöfæri fá hljóm- grunn; hér spila gítar, trommur, bassi og hljómborð allar rullur með söngvar- ann sjálfan í forgrunni. Bryan Adams er líka sagður snillingur á sviði og minna má á að sá oröstír sem fer af hljómleikum hans varð til þess að hon- um bauðst að taka fyrsta lagið á Live Aid hljómleikunum í sumar í Banda- ríkjunum. Reckless mun vera þriðja plata Bryan Adams. Eg hef ekki heyrt tvær fyrri plöturnar nema einstaka lög á stangli en varla er spurning iniðað við velgengni Kanadamannsins uppá síð- kastið að Reckless er heilsteyptasta og besta platan hans til þessa. Eg fullyrði það alténd þangað til annaö kemur í ljós. -Gsal RANDY CALIFORNIA - RESTLESS Rokkarí af gamla skólanum Þaö eru sjálfsagt ekki margir er kannast viö söngvarann og gítarleikar- ann Randy California og á það við um undirritaðan. Ekki hafði ég heyrt hann nefndan fyrr en mér barst plata hans Restless í hendur, og ekki fannst mér nafnið traustvekjandi. Randy Cali- fornia er eins og nafn á lélegum leik- ara sem reynir allt til að vekja á sér athygli. En nóg um það. Þaö er tónlist RC sem hér er til umfjöllunar og þar ægir saman ýmsum tónlistarstefnum þótt þungarokkið sé þar mest áber- andi. Restless inniheldur tíu lög sem öll eru samin af RC. Söngur hans er nú ekkert til að hrópa húrra fyrir. Hefur litla rödd sem hann aö vísu beitir kunnáttusamlega. Gítarleikari er RC aftur á móti vel liðtækur og kemur það best fram í Camelot, lagi sem hann leikur eingöngu. randy california Eins og áður sagöi er þungarokkiö mest áberandi og viröist kappinn ætt- aöur úr þeirri sveit, en þó rennir hann á önnur miö og finnst mér honum tak- ast best upp í lögum eins og Jaek Rabitt, ágætu lagi, þar sem lækkað er aðeins í gítarnum og meiri áhersla lögö á melódíska uppbyggingu og Murphy’s Law, bar sem RC ásamt aðstoðar- mönnum er allt í einu farinn aö minna á Moody Blues. Þó að mínu mati séu þetta tvö bestu lögin á plötunni eru sjálfsagt þungarokksaödáendur á ööru máli. Aftur á móti er ekkert lag á Restless sem er líklegt til vinsælda og því er ég hræddur um að þessi rokkari af gamla skólanum verði að gera betur til aö ná einhverjum árangri. Plötur eins og Restless eru til í þúsundatali og iang- flestar hafa orðið gleymskunni að bráð. HK. SOME STRANGE FASHION - ONE THE JUGGLER Hæfileikamaður á villigötum Fyrst eftir að ég fór aö hlusta á þessa plötu með hljómsveitinni Some Strange Fashion varð mér hugsað til þess hve sumir tónlistarmenn geta verið hræðilega ófrumlegir. Ekki nóg með að tónlist, útsetningar, söngur og allt heila giliið sé stælt heldur er líka um tíu ára gamla stælingu að ræða og gott betur en það. Some Strange Fashion er nefnilega vasaútgáfa af David Bowie — einsog hann var á árunum 1971 til 1974. Vissu- lega ekki leiöum aö líkjast en nokkuð seint á ferðinni. Skýringin á þessu öllu saman kom svo þegar farið var að glugga nánar á plötuhulstur. Þar dúkkaði nefnilega upp gamalkunnugt nafn — Mick Ron- Fyrir þá sem enn eru engu nær skal þess getiö að Mick þessi Ronson var einmitt gítarleikari í hljómsveit Bowies — The Spiders From Mars — á árunum 1971 til 1974. Ronson sá einnig um að aðstoða Bowie viö útsetningar, hljóöblöndun og fleira á þessum árum. Þaö er því engu líkara en að Ronson greyið hafí legið í dvala síðasta áratug eða svo fyrst hann telur það vænlegt aö bjóða upp á jafnútjaskaöa frasa og tuggur og með þessari hljómsveit. Ronson er aö vísu saklaus af laga- smíðum á þessari plötu en útsetningar eru hans svo ekki verður um villst. Lögin eru hins vegar eftir söngvara Some Strange Fashion, Rokko Lee, I SMÆLKI Sælnú! Poppfólk i Bretiandí hefuf á síðustu vikum stutt áróðursherferð gegn heróínneyslu með hljómleikahaldi. Þungarokks- svertin Iron Maiden bætir um bet- ur og ver ágóða af nýju lagi, Murders In the Rue Morgue, til baráttunnar gegn dópinu. Boð skapur Iron Maiden er þessi: Nei - mundu að íþróttir og tónlist eru meiri vimugjafi en nokkurt fíkni efni, faróu þvi gætilega... Smá sagnahöfundurinn Pete Town send úr Who, sem sagt var frá , síðasta Smælki, hefur hóað sam- an í hljómsveit til þess að koma fram á hljómleikum gegn dópi fyrstu daga nóvember. Meó hon um verða Dave Gilmour (úr Pink Floyd), John „Rabbit" Bundrick, Simon Phillíps og fleiri... Söngv- ari U2, Bono, kemur fram á næstu plötu írsku þjóólagasveitarinnar Clanned og syngur þar dúett með höfuðpaur Clanned, Maire Brenn an... Nýjar breióskífur eru að koma út með lcicle Works, Marc Almond og Fall... Fyrrum fyrirliði Van Halen, David Lee Roth, fer með hlutverk í kvikmynd sem tek in verður á næstunni og heitir Crazy From the Heat; Roth samdi sjálfur handritið vió Pete Angelus... Madonna er alltaf aó senda frá sér ný lög og hafa þau flest verió að finna á síðustu breiðskífu frú Penn, Like A Virgin. A mánudaginn kemur verður ný smáskífa í breskum búðum meó lagi sem er alveg glænýtt og hvergi að finna annars staðar en á þessari 2ja laga plötu. Lagið heitir Gainbler - og nú mega toppsætin vist fara að vara sig... Þaó er ekkert smátt i sniðum þegar Kevin Rowland er annars vegar. Dexy’s Midnight Runners eru á leið i hljómleikaferð að kynna nýju breiðskífuna og hafa sett heil- mikla sýningu á svió sem ku heita: Park St. Soutn || og fjölgað hefur verió i hljömsveitinni úr þremur i ellefu... Ýmsum hefur þótt þaó í meira lagi kyndugt að L hljómleikaplata frá Live Aid hljóm- ™ leikunum skuli ekki vera komin út fyrir löngu. Þeim sem hins vegar þekkja til samkeppninnar í útgáfu hransanum þætti það hins vegar skrýtið ef samkomulag næðist um slíka hljómleikaplötu. Þessi tnál eru mjög til umræðu um þessar mundir og einhverjar likur sagðar á þvi aó Live Aid plata liti dagsins Ijós i skammdeginu... Marillion ■ fyrir utan eitt sem er eftir bassaleikar- ann Lushi (þvílík nöfn!). Fyrrgreindur pflaust náð langt sem hann hljómar alveg :rði fyrir rúmum tíu ár- ■ líka tæknin haft sitt aö ennfremur það aö Ronson sy. óar bakraddir. Þaö vekur athygli að Ronson hefur nú bætt við sig trommuleik fyrir utan gítar- og hljómborðsleik og ber það vissulega vott um hæfileika hans sem | tónlistarmanns. Hér er hann hins veg- 1 ar á villigötum og fer illa meö þessa hæfileika sína og hans vegna vona ég að hann rati sem fyrst á betri braut á ný hver svo sem hún kann að vera. -SþS- varð að aflýsa frekari hljómleika haldí á dögunum. Ástæðan: háls bólga.Fish... That's What Friends Are For er heiti á smáskífu sem nokkrir heimskunnir söngvarar aetla að gefa út í félagi á næstunni í þágu rannsóknar á AIDS. Meðal flytjenda verða Stevie Wonder, Elton John, Dionne Warwick og Gladys Knigt... Búið í bili... Gsal

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.