Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1985, Side 1
DAGBLAÐIЗVÍSIR
231. TBL. - 75. og 11. ÁRG. - FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 1985.
Ég skil ekki þessi við-
brögð Steingríms eftir á
„Þetta var borið undir forsætis-
ráðherra og það voru hérna hjá mér
tveir menn þegar ég talaði við hann í
sima og hlustuðu á samtalið. Bæði
Indriði Þorláksson og Kristján
Thorlacius,” sagði Albert Guð-
mundsson fjármálaráðherra í sam-
tali við DV í morgun þegar borin
voru undir hann viðbrögð forsætis-
ráðherra um að hann tryði því varla
að Albert hefði gert samning við
BSRB. Samningurinn felur í sér 3
prósenta hækkun til allra félaga inn-
an BSRB.
— Þú skilur þá ekki þessi viðbrögð
forsætisráðherra?
„Nei, ég veit ekki hvers vegna
hann er aö reyna að komast undan
því að hafa samþykkt það sem ég er
að gera. En þaö er fjármálaráðherra
að taka ákvörðun í þessum efnum,
ekki forsætisráðherra né ríkisstjórn-
arinnar. Þetta heyrir undir mig enn-
þá.
Eg upplýsti hann bara um þetta
sem forsætisráðherra og fékk
jákvæðar undirtektir. Eg skil því
ekki þessi viðbrögð hans eftir á, enda
erum við sammála um aö fólkið er
ekkert of launað,” sagði Albert
Guðmundsson.
Síðdegis í gær sömdu þeir Albert
Guömundsson fjármálaráðherra og
Kristján Thorlacius, formaður
BSRB, um að allir félagar innan
BSRB ættu að hækka um einn launa-
flokk. Þetta felur í sér 3 prósenta
launahækkun og jafngildir um 9
milljóna króna útgjöldum fyrir ríkið
á mánuði. Samkomulagið gildir frá
l.þessamánaðar.
APH
m-
Selveidimenn á Akranesi hafa gert það gott að undanförnu og veitt allt upp í 400
kílóa seli. Hér er verið að hífa einn vœnan sel í land en í trillunni stendur einn
veiðimannanna, Jón Valdimarsson. Notaður er stór herriffill með sprengikúlum
við veiðarnar. Sjá nánar á bls. 4.
íslendingurinn í Osló neitarað tala
— sjá bls.2
Biðraðavetur framundan í Póllandi
— sjábls. 10
Geirmestur
drengskapar-
maðurí
íslenskripólitík
— sjábls. 13
Hitnarf kolunum hjá Hitaveitu
Reykjavíkur — sjá bis. 5
Valgefínn sigurí lokin
— sjá bls. 21
Fálkinn
íffnuformi
— sjá bls. 11
Æskan
aðdrukkna
fáfengi?
— sjá bls. 2
Togari
tekinnaf
Húsvíkingum
— sjábls.4