Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1985, Page 10
DV. FIMMTUDAGUR10. OKTOBER1985.
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Umsjón: Guðmundur Pétursson og Þórir Guðmundsson
Mubarak hef ur farið
sér hægt fyrstu árin
Pólland:
Biðraðavetur framundan
Hosni Mubarak er nú aö byrja
fimmta áriö sitt sem forseti Egypta-
lands og viröist nú aetla aö hrista af
sér deyfðina sem einkennt hefur
þessi fjögur ár hans sem þjóöarleið-
toga. Á hann þó enn viö sömu erfið-
leikana aö glíma bæði á efnahags-
sviöinu og í stjórnmálunum.
Efnahagsþrengingarnar hafa
fremur harðnað þennan tíma
Mubaraks heldur en hitt. Gjaldeyris-
tekjur hafa minnkað bæöi af olíuút-
flutningi og launum egypsks vinnu-
afls erlendis og innflutningur hefur
aukist. En sérfræðingar eru sam-
mála um aö til strangra sparnaöar-
ráðstafana verði ekki gripið án þess
aö eiga á hættu um leið aö úr verði
pólitísk sprenging.
Hreyfing heittrúaðra múhameös-
trúarmanna, sem oft hefur látiö til
sín heyra, þótt fámenn sé, hefur á
síöasta ári látiö æ meira aö sér
kveða.
Samskiptin viö fyrri bandamenn í
arabaheiminum hafa heldur ekki
'enn færst í samt lag aftur eftir
'friöarsamninga Egypta viö Jsraels-
menn.
Vandamálin
tekin í arf
Þetta eru allt mál sem Mubarak
hlaut í arf þegar hann, óþekktur utan
landsteinanna, hófst úr varaforseta-
embættinu upp í leiðtogasætið eftir
aö ofsatrúarmúslímar réöu forvera
hans, Anwar Sadat, af dögum í
október 1981. Eftir fjögurra ára setu
í forsetastóinum segja sumir landar
Mubaraks að hann sé enn aö liðka sig
í nýja starfinu.
Breytingar
í aðsigi
En menn segja aö þetta standi til
bóta því aö hinum 57 ára gamla
Mubarak hafi aukist sjálfstraust og
aö hann sé farinn aö taka á sig rögg.
Hann hefur til þessa orðiö aö feta sig
sáttastíginn og varast aö æsa upp
gegn sér skipulagða andspyrnu. Þaö
er sagt að hann hafi látið taka fast á
öllum tilburðum ofstækismúslíma til
mótmælaaðgerða en án þess þó aö
hefja ofsóknir gegn þeim. Á efna-
hagssviðinu er hann byrjaöur aö
fikra sig áfram og hefur meðal ann-
ars nokkrum sinnum á þessu ári
gripið til veröhækkana, þó í smáum
stíl í hvert sinn til þess aö brenna sig
ekki á sama soðinu og Sadat sem
missti öll tök vegna óeiröa er brutust
út í kjölfar þess aö hann felldi hiöur á
einu bretti allar niöurgreiöslur á
matvörum 1977.
I málefnum arabaheimsins hefur
Mubarak komiö Egyptalandi aftur
inn í atburöarásina meö því aö koma
á að nýju stjórnmálasambandi við
Jórdaníu. Hann styður viöleitni
Hússeins Jórdaníukonungs sem miö-
ar aö friöarsamningum við Israel
meö þátttöku Palestínuaraba.
Ýmsir fréttaskýrendur hafa trú á
því aö Mubarak eigi eftir að reynast
Egyptalandi farsæll forseti þegar frá
líði þótt vandamál þjóöar hans séu
engan veginn auöveld úrlausnar.
Samkvæmt núgildandi stjórnarskrá
getur hann setið tvö ár enn án þess
aö efna til kosninga en það eru engin
takmörk sett því hve mörg kjörtíma-
bil sami maöurinn sitji í forsetastól
landsins.
Karlmannanærföt veröur aftur
erfitt aö fá þennan vetur og útiitiö
fyrir nægt framboð á ljósaperum er
ekki öllu bjartara.
En Pólverjar geta þó huggað sig
við aö ástandið er nú betra en oft
áöur og úrvalið meira.
„Þetta er svo erfitt,” hrópaöi kona
nokkur yfir sig í stórbúöinni
Centrum í Varsjá. Hún hélt á hvítum
nærbuxum: „Ég er mjög hamingju-
söm yfir aö hafa fundið þær eftir aö
hafa leitaö svo lengi.”
Næst karlmannajakkarekkunum
er biöröð fólks sem hangir um 50
saman til aö kaupa sér makrílsdósir
En enginn reynir einu sinni að leita
aö ljósaperum. Þær klaruðust allar
fyrir tveim vikum.
140.000 viðskiptavinir
á dag
Fólk kemur alls staöar aö í
verslunarhugleiðingum til versl-
unarinnar Centrum í Varsjá. Sú búö
er flaggskip 36 slíkra búöa í stærri
borgum Póllands. Hinar sjö slíkar
búöir Varsjá draga aö um 140.000
viðskiptavini á dag.
Þrátt fyrir aö sumar nauðsynja-
vörur séu af skornum skammti er
meira í hillunum en fyrr á áratugn-
um. Þá var efnahagur Póllands í rúst
eftir aö síendurtekin mistök í stjórn
efnahagsmála og ólgu meöal verka-
lýös.
Endurbætur í efnahagsmálum,
sem byr jað var á fyrir þremur árum,
hafa þýtt aö Centrum hefur haft
meira svigrúm til eigin ákvaröana-
taka. Hægt er aö borga starfsfólki
bónusa, segir sölustjórinn, Hanna
Wojtulewska.
koma þeirri vöru á hillurnar í
Centrum. Jafnvel sendiráðsbúöirnar
uröu uppiskroppa með klósettpappír
í síðustu viku en sendiráðin leystu
vandann meö því að panta klósett-
pappírinn sérstaklega frá Vestur-
Berlín.
Hagfræðingar með
áhyggjur
Á meðan pólskir neytendur fagna
þeirri aukningu á úrvali neysluvara
sem þó má sjá eru hagfræðingar
áhyggjufullir vegna mikilla launa-
hækkana sem ekki er haldið uppi
með aukningu á framleiðslu.
Laun hækka um 20 prósent á ári en
iðnaöarframleiösla jókst ekki nema
um 2,2 prósent á milli janúar og
ágúst. Takmarkiö samkvæmt áætl-
unum var 4,5 prósent aukning.
Opinberar tölur sýna veröbólgu í
kringum 13 prósent. Það er reyndar
miklu minna en 100 prósentin sem
verðbólgan var fyrir tveimur árum
en hagfræðingar segja aö verðbólgan
sé í raun miklu hærri.
Pólverjar geta lítið gert nema
yppta öxlum yfir litlu vöruvali og litl-
um gæöum, en það gerir ekki sölu á
vörum til vestursins auöveldari.
Gjaldeyrishagnaður féll á fyrstu átta
mánuðum þessa árs niður í 613
milljón dollara, úr 962 milljónum
dollara í fyrra. Hagnaöur á viðskipt-
um viö útlönd er Póllandi bráönauð-
synlegur til að geta borgaö niður
erlend lán.
Hagfræðingar og tímarit þeirra
segja aö grípa veröi til haröra ráö-
stafana til aö virkja efnahagslífið.
Smábreytingar dugi ekki lengur;
þaö þurfi kerfisbreytingar.
þykir æði varkár en liklegur til að láta meira að sér kveða eftir fyrstu
Hosni Mubarak Egyptalandsforseti
fjögur árin 6 forsetastóli.
Tveir forverar hans voru líka slíkir
menn aö þaö var ekki auðvelt aö setj-
ast í sæti þeirra. Gamal Abdel
Nasser, sem andaöist 1970, var einn
af helstu leiötogum þriðja heimsins á
sínum tíma. Arftaki hans, Anwar
Sadat, var kynngimagnaður leiötogi
sem hikaði hvergi aö kúvenda stefnu
þjóöarskútunnar um hálfhring þegar
honum bauð svo viö aö horfa. Hann
leiddi Egypta og Arababandalagiö til
stríös viö ísraelsmenn 1973 en samdi
síöan friö viö Israel í algjörri óþökk
viö fyrri bandamenn. Hann þáöi áöur
margháttaöa aöstoö frá Sovétrikjun-
um en rak síðan alla sovéska ráöu-
nauta úr landi og tók upp samstarf
viö Bandaríkjastjórn.
Mubarak, sem er fyrrum stríös-
hetja, yfirmaöur egypsku flugsveit-
anna sem böröust yfir Sinaí í stríöinu
1973, hefur haldiö sig á lægri nótum í
forsetaembættinu. Vörumerki hans
er varfærnin sem kemur sér betur í
heimi þar sem ofstækið situr jafnan í
næsta sæti, eins og forveri hans fékk
að kenna á. Mohammed Hassanein
Heykal, fyrrum ritstjóri Al-Ahram
og einn kunnasti fréttaskýrandi og
stjórnmálaskriffinnur þarna eystra,
segir aö varfærni Mubaraks eigi ræt-
ur að rekja til flugþjálfunar hans og
henni megi kenna hve lítiö hefur ver-
ið gert. — „Þaö er of mikið gert aö
því aö hita upp hreyflana án þess aö
reyna flugtak,” segir Heykal. „Viö
skulum vona aö það verði einhvern
tíma reynt að fara á loft.”
I viðtali við fréttamann Reuters
lýsti Heykal þessum þrem forsetum
Egypta í leikhúsmáli: „Hjá Nasser
var leiksýning, enda sæmilegt hand-
rit. Hjá Sadat voru ýmsar leikhús-
brellur en ekkert handrit og engin
leiksýning. Núna er ekkert handrit
og ekki einu sinni leikhúsbrellur svo
að áhorfendur bíða fyrir auðu leik-
sviöinu.
Ástandið i búðunum hefur skánað síðan þessi mynd var tekin en ekki nógu mikið.
Góð laun =
3000 krónur
Laun eru góð hjá Centrum, miðað
við aðrar verslanir í Póllandi. Sölu-
maöur fær um 10.000 zloty á mánuði
(3.000 krónur) en yfirmaður getur
fengiö f jórfalda þá upphæö.
Wojtulewska segir aö aukin neysla
almennings muni gera þaö að verk-
um að sala hjá Centrum aukist um 20
prósent og veröi 68 milljarðar zloty,
eða einn og hálfur miiljarður
íslenskra króna. „Fólk hefur nóg af
peningum,” segir Wojtulewska.
Ákveður sjálf
laun og verð
Centrum-keöjan heldur nú upp á 15
ára afmæli sitt. Hún hefur lofað aö
bæta þjónustuna, enda fái hún sjálf
aö ákvaröa verö og laun og hvaö hún
selur.
En það eru ljón á veginum. Það ill-
vígasta er lítiö framboö frá framleið-
endum, segir Wojtulewska. Skortur
á baðmull hefur orsakað þaö aö lítið
er um nærfatnað á búðarborðunum.
Hvað ljósaperurnar varðaöi átti
búöin von á sendingu en hún myndi
ekki fullnægja eftirspurn.
Einna tilfinnanlegastur er skortur-
inn á klósettpappír í Póllandi.
Wojtulewska segist því miður ekki
hafa náð í góðan framleiöanda til aö