Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1985, Qupperneq 16
16
DV. FIMMTUDAGUR10. OKTOBER1985.
Spurningin
Ferðu oft í kirkju?
Siguröur Ólafsson: Þaö keniur fyrir en
er núna oröið langt síöan.
Gísli Kristjánsson: Nei, þaö er ekki
nema viö giftingar og jarðarfarir
núoröiö.
SigmarSigurösson: Nei, mjög sjaldan.
Eg færi þó oftar ef þaö væri ekki alltaf
sama ræöan sem væri flutt.
Erlendur Kristjánsson: Ekki get ég nú
sagt þaö. Sjálfsagt ætti maður að fara
oftar.
Hildur Siguröardóttir: Nei, ég fer ekki
oft í kirkju, það er einna helst aö ég
fari viö sérstök tækifæri, s.s.
fermingar.
Oskar Páisson: Eg fór um daginn en
geri þó yfirleitt lítið af því aö fara í
kirkju.
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
r
Anægður með
Tarkovski
Sjónvarpsáhorfandi hringdi:
,,Ég vil þakka sjónvarpinu fyrir frá-
bært sjónvarpskvöid á mánudaginn.
Þar var einn fremsti kvikmynda-
geröarmaöur heims tekinn fyrir og ein
besta mynd hans sýnd. Fyrir okkur
sem höföum séö hana áöur var þaö
enduitekin ánægja aö sjá þetta
meistarastykki en fyrir aðra hlýtur
iiún aö hafa komiö skemmtilega á
óvart svona á mánudagskvöldi. Aö
vísu naut hún sín ekki sem skyldi í
sjónvarpi en þetta var þó viröingar-
verö tilraun. Vonandi heldur
sjónvarpiö áfram á sömu braut og
flytur okkur sanna menningu heim í
stofu.”
Valsstúlkur vilja fá meiri umfjöllun um kvennaknattspyrnu i fjölmiðlum.
Fleiri myndir af
stelpum í fótbolta
TværíVal skrifa:
Viö erum hér tvær sem æfum fót-
bolta og viljum við kvarta undan
íþróttasíðum dagblaöanna. Á hverjum
degi eru birtar myndir af fyrstu deild
karla í knattspyrnu og öllum öörum
deildum nema kannski þeim yngstu en
þeir flokkar koma alltaf á laugar-
dögum, en aldrei koma stelpur í blööin
og þaö er mjög móögandi því viö erum
ekkert verri en strákar í fótbolta.
Hér sést Tarkovksi vera að leiðbeina aðlleikkonunni i mynd sinni,
Nostalgia, sem sýnd var i sjónvarpi, áhorfendum til mikillar ánœgju.
Akranes:
ÞAKKA SAMHUG
í VERKFALLI
Kristjana Vagnsdóttir skrifar:
„Mig langar til, þótt seint sé, aö fá
aö þakka fyrir þær baráttukveöjur
sem viö fiskvinnslufólk á Akranesi
fengum í stríöi okkar viö refsi-
bónusinn í sumar. Lítinn sem engan
stuöning fengum við frá vinnu-
félögúm okkar, við vorum frekar
sniögengnar meö svip sem sýndi
fyrirlitningu á frekju okkar. Mig
langar aö fá aö þakka fyrir skeyti
sem viö fengum og samhug í réttlátri
baráttu. Okkur var meinað aö
hengja skeytin upp á vinnustað svo
viö gætum sýnt aö þaö væru ein-
hverjir sem skildu þarfir okkar.”
Hvalveiðar:
VORUMST ARODUR
GRÆNFRIÐUNGA
11
Konráö Friðfinnsson skrifar:
Þaö er kannski aö bera í bakkafullan
lækinn að nefna vísindahvalveiöarnar
en ég ætla nú samt að gera það.
I okkar málflutningi hefur því veriö
haldiö fram aö grænfriðunarsamtökin
séu ofstækisfull og hafi lítið vit á því
sem þau tali um, þau spili inn á
tilfinningar en hiröi lítiö um skynsemi.
Þetta er alveg rétt, en erum viö nokkuð
skárri? Höfum viö ekki keyrt þetta
mál áfram af ofstæki? Því þarf allt í
einu núna að rjúka í vísindaveiöar
þegar andstaöan er svona mikil? Eru
virkilega ekki til neinar rannsóknir á
ástandi hvalstofnanna þó þeir hafi
veriö veiddir síöan um aldamót?
Ég legg til aö beöiö veröi í eitt til tvö
ár og tíminn notaöur til aö undirbúa
jaröveginn vel. Má viö þaö nota sömu
aðferöir og grænfriöungar, þaö kostar
að vísu töluverðan pening en má ekki
líta svo á aö honum sé vel variö.
Þaö er staðreynd aö almenningur í
Bandaríkjunum er ótrúlega illa upp-
Hvaifriðunarmenn við mótmælastöðu. Margir óttast áhrifamátt þeirra ef
þeir beita sér gegn fisksölu íslendinga.
lýstur og ég er sannfærður um aö hann
hefur ekki minnstu hugmynd um þaö
sem viö höfum fyrir stafni uppi á
Islandi né gildi hvalveiða fyrir okkur.
Hins vegar veit hann allt um hval-
drápiö.
Auðvitaö reyna forráðamenn Hvals
h/f að halda sínu fyrirtæki gangandi,
þaö liggur í hlutarins eöli. Þeim ber
hreinlega skylda til þess þvi Hvalur h/f
er traust og gott fyrirtæki sem staöiö
hefur á traustum grunni. En allt er
breytingumháð.
Hvar stöndum viö íslendingar ef
stefna grænfriöunga nær hylli al-
mennings? Þá er ég hræddur um aö til
lítils sé að vera meö öll frystihús
landsins full af góöri vöru ef enginn er
káupandinn. Viö mættum illa viö
þessu.
Vanmetum ekki grænfriöunga né al-
menningsálitiö. Beitum skynseminni
og látum tímann vinna meö okkur. Ég
er sannfærður um aö þaö er heilla-
vænlegast.