Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1985, Qupperneq 19
DV. FIMMTUDAGUR10. OKTOBER1985.
19
Iþróttir íþróttir íþróttir íþróttir
„Ég hræðist áhorfendur
á leiknum f Reykjavík”
— sem er besti handknattteiksmaður Svía
í dag og jafnframt sá skotharðasti
— segirOlle Olson, þjálfari Lugi frá Lundi, en lið hans mætir Valsmönnum
_______________ í Evrópukeppninni í handknattleik
knattleiksmaöur ársins. Hann er aö
sjálfsögöu fastur maöur í sænska
landsliöinu og á síðustu ólympíuleikum
var þaö einmitt hann sem skoraöi sig-
urmark Svía gegn Spánverjum og
þetta mark hans tryggði Svíum þátt-
tökurétt í A-keppninni í Sviss á næsta
ári. Markið skoraöi Jilsén meö þrumu-
skoti beint úr aukakasti á síöustu sek-
úndum leiksins gegn Spánverjum.
-SK.
• Björn Jilsón og Mia Hermansson, handknattleiksmenn órsins i Svíþjóð. Jilsón þessi er skotharðasti
leikmaður í sœnsku deiidinni og verða FH-ingar að hafa á honum sórstakar gœtur ef ekki á illa að fara.
Frá Gunnlaugi A. Jónssyni, frétta-
manni DV í Svíþjóð:
Þegar FH-ingar mæta sænska liðinu
Rcdbergslid í Evrópukeppni meistara-
liða í handknattleik verða þeir að hafa
sérstakar gætur á stórskyttunni Birni
Jilsén sem er talinn skotharðasti leik-
maður í sænskum handknattleik í dag.
Áriö 1982 lék Jilsén þessi með sænska
liöinu Heim og það var fyrst og fremst
honum aö þakka aö liðið varö þá meist-
ari. Síðan lá leiö Jilséns til spænska
liösins Tres de Mayo, sem Siggi Gunn.
og Einar Þorvarðarson leika meö í
dag, og þá var ekki aö sökum að
spyrja, Heim féll í 2. deild. Þegar
Bjöm kom aftur heim til Svíþjóöar
gekk hann til liðs viö Redbergslid sem
þá haföi unniö sig upp í All Svenskan.
Og enn var það mest fyrir mikla hæfi-
leika Jilséns aö Redbergslid varö
sænskur meistari í fyrra. Björn Jilsén
varð markahæsti leikmaöurinn í All
Svenskan í fyrra ásamt Sten Sjögren
hjá Lugi og Jilsén var kosinn hand-
Krankl
með 16
mörkíl2
leikjum
gegn Rapid Vín I
I
I
| — Framarar verða að
j hafa á honum sérstakar l
I ” 1
l
I Framarar verða að hafa góðar ■
Igætur ó miðherjanum snjalla, |
Hans Krankl, þegar þeir leika gegn _
I austurríska liðinu Rapid Vin í |
! Evrópukeppni bikarhafa i 2. um- ■
| ferð. I
IHansi gamli hefur nefnilega I
verið með skotskóna óvenjuvel ■
■ reimaða í austurrísku deildinni þaö I
I sem af er. Hann hefur skorað 16 *
| mörk í 12 síðustu leikjum með Rap-1
* id Vin i 1. deildinni í Austurriki en _
I alls hefur liðið skorað 49 mörk i |
_ þessum tólf leikjum. Hans Krankl ■
| er langþekktastí leikmaður Rapid I
IVín og það var einmitt hann sem I
skoraði cina mark austurriska liðs- ■
Iins i úrslitaleiknum i Evrópu-1
kcppninni gegn Everton í fyrra *
I eins og knattspyrnuáhugamenn |
" muna eflaust eftir en leikurinn var ■
I sýndur i beinui útsendingu í is-1
lenska sjónvarpinu
-SK.
I
I
I • Hans Krankl hofur verið ó J
I skotskónum að undanfömu. |
^Skoiar hann gegn Fram?
FH-ingar þurfa
aðstöðva
Bjöm Jilsén
Frá Gunnlaugi A. Jónssyni, frétta-
manni DV í Sviþjóö:
„Ég get ekki sagt að ég sé yfir mig
ánægöur meö Val frá íslandi sem mót-
herja. Ég er kannski ekki svo mjög
hræddur viö Valsliðið sjálft, það eru
áhorfendurnir í Reykjavík sem ég
hræðist mest,” sagöi Olle Olson, þjálf-
ari sænska handknattleiksliðsins Lugi
frá Lundi sem Valsmenn drógust gegn
í Évrópukeppninni í haudknattleik.
„Ég hef reynslu af íslenskum áhorf-
endum. Þegar ég þjálfaöi Drott áriö
1979 lékum viö gegn Val. Viö unnum
fyrri leikinn hér í Svíþjóð og náöum
síðan nokkru forskoti í leiknum í
Reykjavík en þá tóku 3000 brjálaðir
áhorfendur í Reykjavík sig til og gerðu
út af viö okkur. Viö töpuðum eingöngu
vegna áhorfendanna sem eru mjög of-
stækisfullir.”
Og Olson heldur áfram: „Það er allt-
af mjög erfitt aö leika gegn íslensku
liöi, hvort sem um er aö ræöa félagslið
eöa íslenska landshöiö. Hlutfallslega
held ég þó aö íslensku félagsliöin séu
sterkari en íslenska landsliöiö og leikir
okkar gegn Val veröa mjög erfiðir. Viö
munum reyna aö fá upplýsingar um
Valsliðið hjá Brynjari Haröarsyni,
sem leikur hér í Svíþjóö, og einnig hjá
Jóni Hjaltalín Magnússyni sem í eina
tíö lék meö Lugi. Ég veit ekki hvort
þeir eru tilbúnir aö láta einhverjar
upplýsingar af hendi en viö munum
reyna fyrir okkur,” sagöi Olson, og
veröur aö teljast mjög bjartsýnn ef
hann ætlar sér aö fá formann Hand-
knattleikssambands Islands til aö gefa
sér upplýsingar um íslenskt lið í
Evrópukeppni.
Olson veit greinilega ekki aö í Lundi
og nágrenni búa um 350 Islendingar og
munu þeir fjölmenna á leik Lugi og
Vals í Svíþjóö. Þeir munu láta vel í sér
heyra og veröa eflaust mikill styrkur
fyrir Valsliöiö. Fyrri leikur liöanna fer
fram í Lundi 3. nóvember. 'SK.
Stuttgart í öðru
Stuttgart, liö Ásgeirs Sigurvinssonar
í v-þýsku knattspyrnunni, er nú komiö
í annaö sæti keppni íþróttablaðsins
íkeppni Kickerum superknöttinn
Oskarsigraði
Fyrir skömmu fór fram þriðja
styrktarmótið fyrir sveit Golf-
klúbbs Reykjavíkur vegna
fyrirhugaðrar þátttöku sveit-
arinnar á Evrópumóti félagsliöa í
golfi sem fram fer á Spáni i
nóvember. Leikinn var höggleikur
meö fullri forgjöf og urðu úrslit
þessi:
högg nettó
1. Óskar Ingason 62
2. Hannes Guðnason 66
3. LeeTianChoi 68
4. Pétur Pétursson 68
-SK.
Kicker um „superknöttinn” Knöttur
sá er veittur fyrir árangursríka
sóknarknattspyrnu. Annars lítur listi
efstu liða þannig út?
1. WerderBremen 29
2. Stuttgart 25
3. Mönchengladbach 20
4. Fort. Diisseldorf 18
5. Bochum 16
6. Hamburger
7. Bor. Dortmund
8. Niirnberg
9. Bayer Leverkusen
Liö Lárusar Guömundssonar og
Atla Eðvaldssonar, Bayer Uerdingen,
er nú í 14. sæti meö sex stig.
-fros.
Herrakvöld hjá Fram
Knattspyrnufélagið Fram heldur
herrakvöld á veitingahúsinu Þórscafé
fimmtudaginn 17. október nk.
Margt veröur gert til skemmtunar,
þekktir sem óþekktir listamenn koma
fram, uppákomur ýmsar, happdrætti
o. fl.
Heiðursgestur kvöldsins veröur
Sverrir Hermannsson, núverandi
menntamálaráðherra, og flytur hann
ræöu.
Veitingar veröa óvenjuglæsilegar a
sjávarréttahlaöborði.
Framarar og alhr velunnarar
félagsins eru hvattir til aö koma og
taka meö sér gesti. Miðar eru víöa
seldir, m.a. í Framheimilinu viö
Safamýri, símar 34792/35033.
Allur hagnaöur af herrakvöldinu
rennur beint í framkvæmdir viö nýja
Framheimilið sem senn veröur
fokhelt.