Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1985, Síða 34
34
DV. FIMMTUDAGUR10. OKTOBER1985.
Opið ð laugardögum
PANTANIR
SÍMI13010
. " KREDIDKOR 'tÁþjONUS TA
HÁRGREIÐSLUSTOFAN
KLAPPARSTÍG 29.
GEYMSLUHÚSIMÆÐI
óskast sem allra fyrst, 200 ferm, með inn-
keyrsludyrum.
Húsnæðið verður að vera upphitað.
Hafið samband við auglýsingaþj. DV í síma
27022. H -2800.
Nauðungaruppboð
á lausafjármunum
Að kröfu tollinnheimtu rlkissjóðs og Eimskipafélags Islands hf., fer
fram opinbert uppboð laugardaginn 12. október 1985 að Kaplahrauni
3, Hafnarfirði og hefst kl. 13.30. Uppboöiö fer fram til lúkningar
ógreiddum en gjaldföllnum aöflutningsgjöldum, flutnings- og
geymslukostnaði o. fl.
Þess er krafist að seld verði ýmiss konar húsgögn og húsgagnahlut-
ar, svo sem bekkir, skápar, innréttingar o. fl., stangajárn, 15.362 kg,
vörur úr póstverslun, fatnaður, snyrtivörur o. fl., varahlutir, sýnishorn
(styttur), leirflísar, postulln, 118 kg, glervara, 114 kg, kornflögur, 1.8201
kg, vinyláklœði, 200 kg, bifreiö, PMW-Audi, brúnn sykur (melassi) kom
með m/s Hofsjökli 27.7. 1984, vörulisti nr. 5 (viötakandi óþekktur) og
fleira.
Baajarfógetinn I Hafnarfiröi, Garðakaupstað
og á Seltjarnarnesi.
Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu.
Uppboð
Eftir kröfu Hestamannafélagsins Fáks fer fram opinbert uppboö á
hrossum föstudaginn 11. október 1985 kl. 18.00 viö hesthús Fáks að
Víöivöllum i Víöidal.
A. Grár hestur, ca 6 —8 vetra, tal. eign Jóhanns G. Jóhannessonar.
B. Bleikur hestur, ca 6 —7 vetra, tal. eign Jóns Steinbjörnssonar.
C. Brúnskjóttur hestur, ca 14 vetra, tal. eign Þórhalls Halldórssonar.
D. Leirljós hryssa, ca 14 vetra, og grár hestur, ca 3 vetra, tal. eign Sig-
urðar Ottóssonar.
E. Leirljóshryssa, ca 10 —12 vetra, tal. eign Kristins Sigurðssonar.
F. Grár hestur, ca 4 vetra, og grá hryssa, ca 4 vetra, tal. eign Trausta
Finnbogasonar.
G. Rauður hestur, ca 6 vetra, tal. eign Sigvalda Ægissona..
H. Hross í óskilum sem ekki er vitaö um eigendur aö.
I. Rauöskjóttur hestur, litill, ca 10 vetra.
2. Jarpur hestur, mark fjööur aftan vinstra.
3. Brúnn hestur meöstjörnu, fulloröinn.
Hross þessi voru í landi Ragnheiðarstaöa í Gaulverjabaejarhreppi.
4. Jarpstjörnóttur hestur, ca 8 — 10 vetra. Var í landi Arnarholts á
Kjalarnesi. Hrossin veröa seld meö 12vikna innlausnarrétti samkv.
56. gr. laga nr. 42/1969.
Greiðsla viö hamarshögg.
Uppboðshaldarinn i Reykjavik.
Styrkir til náms
í Svíþjóð
Sænsk stjórnvöld bjóða fram nokkra styrki handa
erlendum námsmönnum til að stunda nám í Svíþjóð
námsárið 1986—87. Styrkir þessir eru boðnir fram í
mörgum löndum og eru öðru fremur ætlaðir til náms sem
eingöngu er unnt að leggja stund á í Svíþjóð. Styrkfjár-
hæðin er 3.510 s. kr. á mánuði námsárið, þ.e. 9 mánuði.
Til greina kemur að styrkur verði veittur í allt að þrjú ár.
Nánari upplýsingar um styrki þessa fást í menntamála-
ráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, en umsóknir
skulu sendar til Svenska Institutet, box 7434, S —103 91
Stockholm, og lætur sú stofnun í té tilskilin umsóknar-
eyðublöð fram til 1. desember nk., en frestur til að skila
umsóknum er til 15. janúar nk.
Menntamálaráðunaytið,
4. október 1985.
Mývatnssveit:
Tæknibylting
í Kísiliðjunni
- f ramleiðsla verksmið junnar gengur vel
Dieter Brinkmeyer og Gúnter Casimir, Þjóðverjarnir sem unnu við upp-
setningu vélasamstæðunnar.
Frá Finni Baldurssyni, fréttaritara
DVíMývatnssveit:
I haust hefur staöiö yfir uppsetning
nýiTar vólasamstæðu i Kísiliðjunni
h/f. I henni eru sjálfvirkur staflari og
plastari og fara pokarnir meö kísil-
gúrnum nú frá pökkunarvélum, sem
eru þær sömu og verið hafa eftir færi-
böndum í staflarann sem raöar
pokunum á vörupalla, pallettur, og eru
3 pokar i hverri röö. Þaöan fara
palletturnar í pressu og síðan í
plastarann sem býr sjálfur til plast-
hettur úr plastlengju af stórri rúllu og
steypir hann hettu yfir hverja pallettu
og hitar síðan plastiö meö gasloga og
herpir þaö aö pokunum.
Aö lokum skilar þessi vélasamstæöa
frá sér 2 plöstuðum pallettum hliö viö
hlið á enda kerfisins og þar eru þær
teknar meö lyftara og þeim raöaö upp í
skemmu, tilbúnum til flutnings frá
verksmiðjunni.
Þetta mun spara 5 starfsmenn því
fækkaö veröur um einn pakkara á
hverri vakt og veröa þeir nú tveir í staö
þriggja áöur. Vélasamstæöan var
tekin í fulla notkun um miöjan
september. Hún var sett upp af starfs-
mönnum fyrirtækisins. Einnig unnu
viö uppsetninguna Þjóöverjarnir Giint-
er Casimir og Dieter Brinkmeyer sem
stjórnaöi uppsetningu véla. Þeir eru
frá framleiöandanum sem er þýska
fyrirtækiö Möllers Maschinenfabrik.
Árni Pálsson, rafvélavirki í Kísiliöj-
unni, stjórnaöi uppsetningu rafkerfis
vélasamstæöunnar. Svipaður búnaður
var settur upp í Sementsverksmiöju
ríkisins á sl. vetri frá þessu sama fyrir-
tæki. Eftir 8 mánuöi var framleiðsla
Kísiliöjunnar á árinu yfir 19 þús. tonn
og stefnir því í nýtt framleiðslumet.
Sigurður Arnar Ólafsson að setja
pallettur i nýju vélasamstæðuna.
Ellert Hauksson að pakka. Ekki var
skipt um pökkunarvélar.
DV-myndir Finnur Baldursson.
Vaskir sveinar
og einir á báti
— en bryggjusmiðir og siglarar miklir
Þeir eru vaskir sveinar og vanir
menn á tjörninni vestan Drottningar-
brautarinnar á Akureyri, allir 10 ára
og í fjóröa bekk Barnaskóla Akur-
eyrar. Og búnir aö læra heima þegar
viö hittum þá á mikilli siglingu dag
einn síödegis.
„Viö erum í skólanum fyrir hádegi
og siglum hér á tjörninni hvern einasta
dag þegar þaö er gott veður. Viö eigum
heima hérrétthjá.”
Það var sjálfur kafteinninn og út-
gerðarmaöurinn, Stefán Freyr
Jóhannsson, sem varö fyrir svörum. I
áhöfn hans voru þeir Eiríkur Arnar
Magnússon og Hilmar Þór Pálsson.
AUir eru þeir miklir siglarar og
reyndar bryggjusmiöir líka. Eftir þá
liggja tvær krossviðarbryggjur viö
tjörnina. „Nei, viö erum nú ekki í
neinum siglingaklúbb, erum bara
hérna fy rir okkur í rólegheitunum. ’ ’
-JGH.
Riddarar tjarnarinnar róa í rólegheitum. Frá vinstri: Stefán skipper
Jóhannsson, Eirikur Arnar Magnússon og Hilmar Þór Pálsson. — Hvað um
skólann? ,,Það er allt i lagi, við erum búnir að læra heima."
DV-mynd JGH.