Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1985, Page 37
DV. FIMMTUDAGUR10. OKTOBER1985.
37
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Nancy
hlustaði
alltaf
Áður hefur veriö skýrt frá því hér á
síöum hvernig leikkonan Jane
Wyman þjáöist í hjónabándi meö
þeim málglaða Ronald Reagan sem
aldrei þagnaði — jafnvel ekki í
svefni. En það er sjálfsagt að segja
frá ævintýrum sem enda vel og svo
var um samband Ronalds við Nancy
Davis sem dáðist aö orðsnilldinni
hvað sem á gekk. Hann haföi horfst í
augu við vandamálið með málgleð-
ina sem rænt hafði hann eiginkonu,
börnum og einstaka vinum — og var
tekinn upp á að hlusta á aðra svona
til tilbreytingar.
En þá kom Nancy. Hún gat ekki
dregið dul á hrifningu sína hvaö sem
Ronald malaði og þar með var fjand-
inn laus — hann endaði sem forseti
Bandaríkjanna nokkrum árum síð-
ar. Því meira sem af vörum hans
hraut þeim mun hrifnari og áhuga-
samari varð Nancy — ómetanlegur
æfingabolti fyrir mann sem gerir
ræðumennsku að lífsstarfi. Hún lítur
upp til hans á öllum sviðum og ekki
Iþarf annað en skoða myndir af þeim
hjónum eða sjónvarpsupptökur —
Nancy lítur ekki af gullinu sínu og
gleymir aldrei að leggja eyrun við
gullkornum eiginmannsins.
Nýleg mynd af þvi fræga Gaborgengi og þarna er mamman komin í hópinn. Smám saman fór hún að
fylgja enda erfitt að greina nokkurn aldursmun þegar frá leið.
GABOR-GENGIÐ
Barnamyndir eru alltaf með ein-
dæmum vinsælar og hér kemur ein af
Gaborgenginu en það eru þær systur
Magda, Zsa Zsa og Eva Gabor. Þær
eru einkum þekktar fyrir að giftast vel
fjáðum karlmönnum og taka þátt í
ljúfa lífinu af krafti. Eitthvað er nú
tekið aö draga af þeim systrum á síð-
ari árum — aldurinn að færast yfir —
en móðirin hefur svo líka bæst í hópinn
og sér um að þær gangi ekki of langt í
hressileikanum.
Fyrrnefnd mynd er í miklum metum
hjá Zsa Zsa sem segir hana minna sig
á horfna dýrðardaga bernskunnar
heima í Ungverjalandi þegar móöirin
fór með þeim í óperuna á hverjum
laugardegi — allar voru með f jóluvönd
í fangi. Lífið fór síðar ómjúkum hönd-
um um þær systur — einkum þó Evu og
Zsa Zsa — og í dag forðast þær hjóna-
bönd eins og heitan eldinn — enda báð-
ar með langa reynslu af hjónalífi sem
alltaf endaði meö skilnaöi.
Mynd af Gaborgenginu i Ungverjalandi. Sætar og saklausar Magda,
Zsa Zsa og Eva og höfðu ekki grun um Ijúfa lifið sem beið þeirra með
tilhoyrandi þyrnum hinum megin Atlantsála. Zsa Zsa var 5 ára þegar
myndin var tekin og segir þetta með betri minningum á lífsleiðinni.
„Það besta sem ég fæ er banani, kornflex og seriós," sagði vinkonan,
Helga Margrét, og lét snjókarlinn hneigja sig virðulega fyrir Mikka
mús.
Börn og fullorðnir eru oft ekki á einu
máli um bragðgæði hinna ýmsu fæðu-
tegunda og því hefur færst í vöxt aö
sérstakur barnamatseðill er boöinn á
helstu veitingahúsum þar sem búast
má viö yngra fólkinu í hópi gestanna.
Flugleiöir hafa ákveðiö aö feta í þessi
spor og fengu í lið með sér barnahóp úr
Keflavík til þess að velja matseðilinn
aö eigin höfði. Það var því ys og þys í
kaffiteríu Flugleiða þar sem bragð-
prófunin fór fram og krakkarnir
ófeimnir við að gefa matnum einkunn.
„Síðast þegar ég fór í flugvél var
bara bleikt skyr þar —' ojbara — það
var ekki gott,” segir ein kotroskin með
fléttur í trúnaðarrómi. Og bætir við:
„Ég hef þrisvar sinnum farið í flug-
vél og man ekki hvað ég fékk að borða í
hin skiptin en það var ekki gott held-
ur.”
Vinkona hennar kemur að borðinu
með bakkann sinn og sú stutta upplýsir
okkur um að hún sjálf heiti Jana María
Sigurðardóttir en vinkonan Helga Mar-
grét Olafsdóttir.
„Brostu, Helga Margrét, sérðu ekki
aö maðurinn er að taka mynd af þér?
Skipunartónninn setur Helgu Margréti
út af laginu þannig að feimnin nær ger-
samlega yfirhöndinni.
„Veistu aö mamma mín er svo
hrædd við hundinn hennar Helgu Mar-
grétar?” Þetta er sagt í trúnaðarrómi.
„Þegar hún er berfætt og hundurinn
þefar af fótunum á henni, segir hún:
Farðu Konní! ” Meö fylgir hress hlátur
og smávægileg viðbót.
„Svo verður mömmu minni svo flök-
urt þegar hún heyrir í flugvél að hún
getur ekki einu sinni horft út um glugg-
ann!”
„Eg hef aldrei farið í flugvél, nema í
maganum á mömmu,” skýtur vinkona
hennar hógvær inn í og Jana er fljót að
hugga. „Ein stelpa sem ég þekki hefur
aldrei á ævi sinni farið upp á völl.”
Svipurinn sem fylgir bendir til aö
þarna séu ótrúlegar staðreyndir á ferð-
inni. Vinkonurnar sýna matnum mik-
inn áhuga og ræða innihaldið af þekk-
ingu. Eru reyndar báðar með jógúrt og
banana á bakkanum, ásamt korni og
brauöi. Segjast aðspurðar alltaf boröa
svona í morgunmat og því eigi að gera
þaö í flugvél líka. Enda þyki þeim
þetta gott.
Starfsfólk Flugleiða er á þönum í
kringum gestina við að taka niður ósk-
ir hinna ungu dómara og gæta þess að
ekkert fari úrskeiöis. Þær stuttu fylgj-
ast rólyndislega meö athöfnum þeirra
eldri og svo segir Jana stundarhátt:
„Þeir eru ruglaðir, þessir karlar —
núna taka þeir bakkana og allir eftir að
borða það sem er á þeim! ” Þessu fylg-
ir kitlandi fliss yfir heimsku og fáfræði
hinna fullorönu.
„Annars er skrýtið að fara í flugvél.
Síðast var ekkert að gera, bara blað að
skoða.”
Fullyrðingin kom vegna smáhluta
sem verið var að sýna þeim, en um
borö í Flugleiðavélum fá börnin lita-
bækur, liti, spil og önnur smáleikföng
til þess að stytta stundirnar.
„Þetta er skemmtilegt, ég kann
ólsen-ólsen og veiðimann,” segir Jana,
lítur snöggt upp, bendir á mann við
langborðið meö sýnishornunum og seg-
ir: „Vá, hvað maðurinn fær sér mikið,
núna er hann búinn með tvo svala! ’ ’
Það er liöið aö lokum þessarar
bragðprófunar og í ljós kemur að börn-
in hafa mun betri matarsmekk en hinir
fullorðnu höfðu gert sér grein fyrir í
upphafi. Langflestir vildu jógúrt, korn
og ávexti en inn á milli voru svo súkku-
laðistangir og sleikipinnar.
Á útleið smellir Jana sér að boröinu
og sýnir poka sem hún fékk að skilnaði.
„Fékk Flugleiðaspil, Flugleiðakort,
liti, litabók og kall.” Henni veröur litið
á bakkann á borðinu og bætir snögg-
lega viö.
„Eigum við ekki að ganga frá þessu
og hvað á að gera við þessa brauð-
mylsnu?” Hún þrífur bakkann, tekur
bréfþurrkuna af, hellir mylsnunni í
hvelli á gólfið og setur þurrkuna vand-
lega á aftur. Sléttar svo ánægö yfir,
kveður og snarast út. Bragöprófun fyr-
ir Flugleiöafyrirtækið er lokiö af henn-
ar hálfu.
^n„úrapo—-uta
~ -..III
Áfram
Skapstærsta par veraldar —
Tatum O’Neal og Joe McEnroe
viröast hafa fundiö aöferð til
þess aö hanga saman þrátt fyr-
ir hörkuátök inn á milli. Tatum
er stórkostlegur stuöningur á
vellinum — hávær öskur og
hvatningaróp ýta undir Jóa
karlinn og rugla andstæöing-
ana í ríminu.
Meðfylgjandi myndir voru
teknar á einum kappleikjanna,
núna í haust og segja meira en
mörg orö um ómetanlega hæfi-
leika Tatum sem vallargests!