Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1985, Qupperneq 2
"V. LAUGARDAGUR12. OKTOBER1985.
ÞRKMUNGUR UNGS
FÓLKS í REYKNUM
Á sama tíma og niu af hverjum tíu
ungmennum nota áfengi meira eöa
minna eru þaö aðeins þrír af
hverjum tíu sem nota tóbak. Sígar-
ettureykingar eru þar mest stund-
aöar og þar eru stelpur i meirihluta.
Þetta er ein af þeim niöurstöðum
sem koma fram eftir könnun land-
læknis og fleiri á vímu- og ávana-
efnaneyslu ungs fólks úr árgöngun-
fleiri stelpur en strákar reykja sígarettur
um 1968, 1966 og 1964. Af 2.136 sem
svöruðu, svöruöu 30,7% þannig aö
þau notuðu tóbak, 33,8% stelpna og
27,9% stráka.
Mest tóbaksnotkun var í ár-
gangnum 1964 og þar reykja 42,4%
kvenna og 38,4% karla. I hinum ár-
göngunum er notkunin áþekk en
nokkru minni en hjá þeim elstu.
Sem fyrr segir eru sígarettureyk-
ingar algengasta tóbaksnotkunin.
Karlkynið notar einnig nokkuö bæði
vindla og píputóbak, kvenkynið ber
þaö aðeins viö. Meira aö segja eru til
stúlkur sem taka í nefiö eöa vörina
þótt piltar séu þar ögn fleiri.
Flestir byrja aö reykja á aldrinum
14—17 ára en ætlað er aö 5—9% unga
fólksins byrji reykingar 13—14 ára
eða yngri. Rúmlega 44% sógöust
reykja heima aö staöaldri, 25% í
skólanum eða nágrenni en 31%
annars staöar.
I könnuninni kom einnig fram aö
41,4% sögöu feður sína reykja og
37,5% mæöur sínar. t>á sögöu 31,2%
systkini sín reykja.
-HERB.
Þorsteinn
úr nef nd
Vegna þess aö Þorsteinn Pálsson
tekur við starfi fjármálaráðherra
veröur hann að fara úr fjárhags- og
viðskiptanefnd neðri deildar en þaö er
eina nefndin sem hann á sæti í á Al-
þingi.
Samkvæmt venju sitja ráðherrar
ekki í nefndum Alþingis. Þingflokkur
sjálfstæðismanna hefur ekki enn
ákveöið hver tekur sæti Þorsteins í
nefndinni.
Þingflokkarnir hafa allir valiö sína
formenn. Ástandiö er óbreytt nema aö
Sigríður Dúna Kristmundsdóttir tekur
viö formannsstarfi af Kristínu Hall-
dórsdóttur í Samtökum um kvenna-
lista.
Olafur G. Einarsson heldur áfram
sem þingflokksformaður hjá Sjálf-
stæðisflokki, Páll Pétursson hjá Fram-
sóknarflokki, Eiöur Guðnason hjá Al-
þýðuflokki, Guömundur Einarsson hjá
Bandalagi jafnaðarmanna og Ragnar
Arnalds hjá Alþýðubandalagi.
Á þriöjudag veröa væntanlega kosn-
ir þingforsetar og varaþingforsetar.
Líklegt þykir aö óbreytt skipan veröi í
þau störf.
APH
Flest bendir til að pólitiskar sefingabúðir hafi risið á flötinni fyrir framan Menntaskólann í Reykjavík.
Ungir mennskælingar æfa þar nú hlaup í skarðið á sama túninu og ráðherrarnir lærðu þann fjöruga leik.
DV-mynd GVA.
RÁÐHERRA-
LEIKUR?
Þriðjungur af lífeyri
í hitaveitukostnað
DV ræðir við ellilífeyrisþega á Akureyri
Mikil reiði ríkir nú meöal Akur-
eyringa vegna hárra orkureikninga
frá hitaveitu staöarins. Má segja aö
tveir menn hittist ekki svo aö hita-
veituna beri ekki á góma.
Páll Halldórsson, 83 ára ellilífeyris-
þegi, er einn þeirra sem hafa fengið
óvænta sendingu frá Hitaveitu Akur-
eyrar. Þann 1. október sl. barst honum
reikningur upp á 7.366 krónur fyrir
septembermánuö.
Páll starfaöi áður sem trésmiöur.
Sér til framfæris hefur hann nú ellilaun
og greiðslur úr lífeyrissjóöi trésmiöa.
Þaö gerir samtals um 20.000 krónur á
mánuði. Af því fer rúmur þriðjungur
til hitaveitunnar.
Páll býr í einbýlishúsi aö B jarmastíg
6 á Akureyri. Þaö er meðalstórt, byggt
1942.
„Hitakostnaöur hjá mér er nú hærri
en nokkru sinni fyrr,” sagöi Páll. „Eg
er ekki einn um aö vera óánægður meö
þetta því hálfur bærinn talar um þessa
háureikninga.”
Þetta mun rétt vera sem sést best á
því að stööugur straumur fólks hefur
verið til hitaveitunnar undanfarna
daga. Eru menn aö láta kanna siná
reikninga því að margir álíta aö hita-
veitan hafi áætlað um of aö þessu sinni.
Jón G. Hauksson/Akuroyri.
„Hitakostnaður hjá mér er hærri nú en nokkru sinni fyrr," segir Páll
Halldórsson. DV-myndJGH.
Hlaðvarpinn:
Fékk 2 millj-
óna styrk
f rá Albert
Fjármálaráöherra, Albert Guö-
mundsson, veitti Hlaðvarpanum,
húsi kvenna viö Vesturgötu 3,
tveggja milljóna kr. styrk sl.
mánudag.
„Þetta er styrkur til menningar-
stofnunarinnar sem konur eru aö
setja á stað við Vesturgötu,” segir
Albert Guömundsson.
Þessi styrkur kemur Vesturgötu 3
- mjög vel og var fyrirsjáanlegt aö
erfiðlega mundi ganga aö greiöa
afborgun af húsunum sl. mánudag
sem nam 1,35 milljón krónum.
„Þetta bætir hag okkar mikiö og
gefur okkur tíma til aö vinna áfram
aö uppbyggingu menningarmiö-
stöðvar kvenna að Vesturgötu 3,”
segir Helga Bachmann, formaöur
stjórnar Vesturgötu 3 hf. APH
Alþýðuflokkurinn
frestar vantrausti:
Ætla að sjá
hvaðbýrí
Þorsteini
Á flokksstjórnarfundi Alþýöu-
flokksins, sem haldinn var í Borgar-
nesi á dögunum, var samþykkt aö
lýsa yfir vantrausti á ríkisstjómina í
þingbyrjun. Nú virðist hins vegar
ætla aö verða bið á þessari van-
traustsyfirlýsingu.
„Við erum nú ekki endilega hættir
við það. Hins vegar hefur
Sjálfstæðisflokkurinn tekiö af okkur
ómakiö og lýst yfir vantrausti á efna-
hagsstefnu ríkisstjórnarinnar, og
fjármálaráðherra sérstaklega, með
þeim mannaskiptum sem nú hafa
oröiö. Viö ætlum því aö bíða átekta
og sjá hvaö þessar breytingar þýöa
pólitískt séö. Við munum því bíöa
eftir nýju fjárlagafrumvarpi nýs
fjármálaráöherra vegna þess aö það
mun skera úr um það hvort hérna sé
um aö ræða breytingar í efnahags-
málum eöa ekki,” segir Jón Baldvin
Hannibalsson, formaður Alþýöu-
flokksins, í viötali viö DV og segir aö
vantraust á ríkisstjómina verði
endurskoöaö þegar Þorsteinn er bú-
inn aö sýna hvaöa breytingar veröa
gerðar. APH
Nýja Dauphin-
þyrlan afhent
í næstu viku
Aerospatiale-verksmiöjumar
frönsku afhenda Islendingum
Dauphin-þyrluna nýju næstkomandi
miðvikudag, 16. október. Fjórir
starfsmenn Landhelgisgæslunnar
fara út á mánudag eöa þriöjudag til
aösækjaþyrluna.
Þeir sem fara út eru flugstjórarn-
ir Páll Halldórsson og Benóný Ás-
grímsson, Páll Halldórsson tækni-
stjóri og Jón Pálsson yfirflugvirki.
Ekki liggur fyrir hvaða daga þyrl-
an kemur til Islands. Gæslumennira-
ir þurfa einhverja daga í þjálfun á
þyrluna og til aö kynnast nýjum
tækjabúnaði. Þá mun taka þrjá eða
fleiri daga að fljúga þyrlunni heim í
áföngum. -KMU.
olBiL ast0
ÞROSTUR
685060
vö
Flytjum allt frá smáum
pökkum upp í heiiar bú-
slóðir innanbæjar eða hvert
á land sem er.
685060
LÖGGJÖF SETT UM
VERÐBRÉFAMARKAÐ
Að sögn Steingríms Hermannssonar
forsætisráöherra verður lagt fram
frumvarp til laga um veröbréfa-
markaöinn hér á landi á Alþingi í
vetur.
Hann sagöi að mikilvægt væri aö sett
yrðu lög um þennan markað svo hægt
væri aö hafa stjórn á fjármagnskostn-
aöi og vöxtum. Hann benti á aö aðeins
22 prósent af útlánsfé færu í gegnum
bankana. Afgangurinn færi í gegnum
lifeyrissjóöi og „hinn opna markaö á
götuhomum” eins og hann orðaöi þaö.
APH