Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1985, Qupperneq 3
DV. LAUGARDAGUR12. OKTOBER1985.
3
Lánsumsókn Búseta:
Lögð fyrir hús-
næðisstjóm
í næstu viku
Vonir standa nú til að álit félags-
íbúðanefndar um lánsumsókn Búseta
verði lagt fram á fundi húsnæðisstjóm-
ar næsta miðvikudag. I húsnæðisstjóm
verður síðan tekin endanleg afstaða
um hvort Búseti fær lán úr bygginga-
sjóöi verkamanna.
Uppi í Grafarvogi bíður krani og hef-
ur beðið í nokkrar vikur eftir því að
geta byrjað að grafa grunn fyrir húsi
því sem Búseti hyggst byggja þar. En
vegna dráttar ákvörðunar um lánveit-
ingu til Búseta hefur ekkert orðið úr
framkvæmdum.
— Eru Búsetamenn að verða úrkula
vonar?
„Nei, ekki segi ég það. Hins vegar ef
ekkert gerist í þessum málum á næst-
unni er útlitið ekki glæsilegt,” segir
Reynir Ingibergsson, framkvæmda-
stjóri Búseta.
Félagssamtökin hafa sent bréf til fé-
lagsmálaráðherra þar sem hann er
beðinn að greiða götu þeirra. Félags-
málaráðherra segist vera allur af vilja
gerður í þessu máli.
Fyrst verður að afgreiða málið úr fé-
lagsíbúðanefnd, sem er undimefnd
húsnæöisstjórnar.
„Við höfum verið að skoða þetta mál
undanfarnar vikur. Það er fyrst og
fremst veríð að kanna með hvaða hætti
Búseti fellur að lögunum um bygginga-
sjóð verkamanna,” segir Grétar Þor-
steinsson, formaður nefndarinnar.
Hann segist vona að því verki ljúki á
næstu dögum og málið verði vonandi
lagt fyrir húsnæðisstjóm í næstu viku.
APH
24 ÁRA MAÐUR í
GÆSLUVARDHALD
Sakadómur Reykjavíkur úrskurðaöi
24 ára mann í gæsluvarðhald til 20.
nóvember. Maðurinn var handtekinn
sl. miðvikudag, en hann hugðist fara
utan á fimmtudagsmorguninn. Hann
er grunaður um að hafa svikiö um 600
þúsund krónur út úr bönkum og fyrir-
tækjum á tveimur sl. mánuðum og not-
að peningana til þess að kaupa fíkni-
efni erlendis og smygla þeim til lands-
ins og selja.
Rannsókn á þessum málum hefur
staöið yfir í langan tíma. Maðurinn
hefur játað en öll kurl eru ekki komin
til grafar. Rannsóknarlögregla ríkis-
ins vinnur nú við að ná endum saman.
-SOS
TM-HUSGOGN
tCllVM
*
Sídumúla 30. simi 68-68-22
tcr inc Sófasettíð-----------------------------------------
Stórfallegt sófasett á hagstæðu verði
skoðið það um heigina iai"!"'d:::„kt:l2,1ik2lo1g;,1r16