Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1985, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1985, Blaðsíða 5
DV. LAUGARDAGUR12. OKTOBER1985. Sjóræningjarnir í ítölskum höndum: Bandaríkin vilja framsal Ránið á palestínsku hryðjuverka- mönnunum mun halda lögfræðingum í vinnu í marga mánuði, segja sér- fræöingar. Bandaríkjamenn hafa krafist þess að Palestínumennimir f jórir verði framseldir. Þeir segja að bandarískir dómstólar eigi jafnmik- inn rétt á að fara með mál sjóræn- ingjanna eins og ítalskir dómstólar. Italar munu líklega ekki vera sam- mála. „Bandarískar orrustuvélar í al- þjóðlegri lofthelgi neyddu flugvél annars lands, sem var að borgara þess þriðja' innanborös, að lenda á landsvæði þess fjórða,” sagði einn lögfræðingur og hristi hausinn. Ef sjóræningjarnir veröa sendir fyrir bandarískan dómstól eiga þeir yfir höfði sér dauðarefsingu fyrir morðið á gömlum Bandaríkjamanni i hjólastól sem þeir drápu um borö í skipinu. Heimildir innan PLO segja að ná- inn samstarfsmaöur Yassers Ara- fats, Abu Abbas, hafi verið um borð í egypsku flugvélinni með sjóræn- ingjunum. Talsmaður Bandaríkja- forseta segir að tveir Palestínumenn aðrir en sjóræningjarnir hafi verið um borð og Italir hafi fullvissað Bandaríkjamenn að þeir verði hafðir í haldi fyrst um sinn. Reagan Bandaríkjaforseti sagði í gær að nú mætti hryðjuv.erkamönn- um vera ljóst að þeir gætu hvergi faliðsig. Læknar gegn kjarnorku- vá f engu f riðarnóbelinn Friöarverðlaun Nóbels í ár fá alþjóð- leg samtök lækna gegn kjarnorkuvá. Stofnendur samtakanna munu taka á móti verðlaununum í Osló í desember. Þeir eru Bandaríkjamaöurinn Bern- ard Lown og Sovétmaðurinn Evgení Tsjazov. Báðir eru nú í Genf þar sem þeir halda upp á fimm ára afmæli samtak- anna. Nóbelsnefndin veitti samtökunum friðarverðlaunin fyrir að minna menn á „hinar hörmulegu afleiðingar kjarn- orkustríðs”. Iðgjöldin of há í áratugi — segja Samvinnutryggingar um brunatryggingar húsa Húseigendur í landinu hafa áratug- um saman greitt hærri iðgjöld af brunatryggingum en ástæða var til með hliðsjón af áhættu, segir í frétt frá Samvinnutryggingum í tilefni af samn- ingi sem tryggingafélagið gerði við Hafnarfjarðarbæ þann 8. október síðastliöinn. I frétt Samvinnutrygginga segir ennfremur: „Við athugun á þróun iðgjalda og tjóna i Hafnariirði siðastliðin fimm ár Fáskrúðsfjörður: Bónus- samningar samþykktir Frá Ægi, fréttaritara DV, Fáskrúðs- firði: Á fundi Verkalýðs- og sjómanna- félags Fáskrúðsfjarðar, sem haldinn var í gær, voru bónussamningarnir fyrir frystihús samþykktir með 32 atkvæðum gegn 10. Sjö seðlar voru auðir. Bónussamningar fyrir saltfiskverk- un voru samþykktir samhljóða. kom í Ijós að af hverjum 100 krónum, sem íbúar Hafnarf jarðar greiddu í ið- gjöld, voru þeim greiddar 26 krónur vegna tjóna. Þar sem eitt sveitarfélag, eins og til dæmis Hafnarfjörður, er tæplega marktæk stærð við slika athugun, var tjónshlutfall einnig athugað á Stór- Reykjavíkursvæðinu öllu og kom þá í ljós svipuö niöurstaöa, það er að segja 25 til 30 prósent tjón af iðgjöldum. Þegar tilboð í brunatryggingar húsa í Hafnarfirði voru opnuð þann 17. september síðastliðinn kom í ljós að til- boð Samvinnutrygginga var hag- stæðast fyrir húseigendur í Hafnar- firði, sem nú hefur leitt til þeirrar niðurstöðu að bæjaryfirvöld hafa samið við félagið um tryggingar þess- ar og með því sparaö íbúum byggðar- lagsinsumfjórarmilljónir króna.” I frétt Samvinnutrygginga segir að tilboð félagsins hafi nú þegar haft áhrif á iðgjöld í öðrum byggðarlögum og muni að lokum allir landsmenn njóta góös af. „Framtak bæjarstjómar Hafnar- fjarðar og tilboð Samvinnutrygginga mun lækka iðgjaldakostnað lands- manna um tugi milljóna króna.” segja Samvinnutryggingar. -KMU. Forseti Rotary Interna- tional heimsækir ísland Um næstu helgi kemur hingaö til lands forseti Rotary International, bandaríski skurðlæknirinn, Edward F. Cadman. Hann kemur hingaö ásamt konu sinni, Mary Jean, í boði íslenska Rotary-umdæmisins. Cadman er nú á ferðalagi til að heimsækja Rotary- klúbba vítt um veröld. Meðan Cadman dvelur hér heimsækir hann m.a. forseta Islands, Landspítalann og Hitaveitu Suöur- nesja í Svartsengi. Á sunnudaginn, 13. október nk., situr hann sameiginlegan hátíðarfund íslenska Rotary- umdæmisins í hádeginu á Hótel Sögu í boði Húnboga Þorsteinssonar, umdæmisstjóra Rotary hér á landi, en hann er félagi í Rotary-klúbbi Borgar- ness. Rotary-fundurinn á Hótel Sögu hefst kl. 11.30. Edward F. Cadman. Það er víðar togad þessa dagana en íþingflokkum stjórnarflokkanna. í átakamiklu reiptogi, sem efnt var til í gœr milli menntaskólanna við Hamrahlíð og Sund, háru Hamrahlíðarmenn loks sigur úr býtum. DV-mynd: PK. =t f ^ - -(ll 4 Þit 4 tír æk 1 PJOfl -....Xiílil 1 FRÁGANGUR INNFLUTNINGSSKJALA, * FRÁGANGUR ÚTFLUTNINGSSKJALA, BANKAÞJÓNUSTA OG FERÐIR í TOLL, $ UMSJÓN MEÐ ENDURSENDINGUM TOLLAFGREIDDRA OG ÓTOLLAFGR. VARA, $ VERÐÚTREIKNINGAR, * PÖKKUN OG UMSJÓN BÚSLÓÐA TIL FLUTNINGS, * TRANSIT VÖRUAFGREIÐSLA, TELEXÞJÓNUSTA, * VÉLRITUNAR- OG LJÓSRITUNARÞJÓNUSTA, ERLENDAR BRÉFASKRIFTIR, VIÐSKIPTABRÉF,

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.