Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1985, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1985, Qupperneq 12
12 DV. LAUGARDAGUR12. OKTOBER1985. duus ^ ^ > Bjorkra i að sjálfri Erfitt er að átta sig á, hvaö ætlast landinu, hvort þær séu miðaðar við fyrir flestar hinna nýju bjórkráa í matargesti eöa bjórdrykkjumenn. Nauðungaruppboð sem auglýst var I 55., 66. og 72. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985 á eigninni Eiðistorgi 5, ib. 701, Seltjarnarnesi. þingl. eign Kristjáns Bóas- sonar, fer fram eftir kröfu Ólafs Gústafssonar hdb, Brunabótafélags Islands og Verslunarbanka Islands á eigninni sjálfri mánudaginn 14. október 1985 kl. 14.15. Baejarfógetinn á Seltjarnarnesi. Nauðungaruppboð sem auglýst var I 55., 66. og 71. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985 á eigninni Lágholti 2A, Mosfellshreppi, þingl. eign Helgu Jóhönnu Magnúsdóttur, fer fram eftir kröfu Veödeildar Landsbanka Islands á eigninni sjálfri mánudaginn 14. október 1985 kl. 16.00. Sýslumaðurinn I Kjósarsýslu. Nauðungaruppboð annað og síðasta á fasteigninni Garðhús i Vogum, þingl. eign Ástríðar Hákonardóttur, fer fram á eigninni sjálfri að kröfu Veðdeildar Landsb. Isl., Þorvalds Lúövíkssonar hrl. og Garðars Garðarssonar hrl. fimmtudaginn 17.10. 1985 kl. 14.00. Sýslumaðurinri í Gullbringusýslu. Nauðungaruppboð sem auglýst hefur veriö í Lögbbl. á fasteigninni Arageröi 9 í Vogum, þingl. eign Antons H. Pálssonar fer fram á eigninni sjálfri að kröfu Jóns G. Briem hdl., Ásgeirs Thoroddsen hdl. og Gissurar V. Kristjánssonar hdl. fimmtudaginn 17.10. 1985 kl. 14.15. Sýslumaöurinn í Gullbringusýslu. Nauðungaruppboð sem auglýst hefur verið i Lögbbl. á fasteigninni Hábæ í Vogum, þingl. eign Þorbjörns Danielssonar, fer fram á eigninni sjálfri að kröfu Veðdeildar Landsb. Isl., fimmtudaginn 17.10. 1985 kl. 14.30. Sýslumaöurinn i Gullbringusýslu. Nauðungaruppboð sem auglýst hefur verið i Lögbbl. á fasteigninni Aragerði 14 i Vogum, þingl. eign Guðmundar Pálssonar, fer fram á eigninni sjálfri að kröfu Inga H. Sigurössonar hdl. og Brunabótafélags Islands fimmtudaginn 17.10. 1985 kl. 14.45. Sýslumaðurinn i Gullbringusýslu. Nauðungaruppboð sem auglýst hefur verið I Lögbbl. á fasteigninni Djúpavogi 181 Höfnum, þingl. eign Magnúsar F. Hjelm, fer fram á eigninni sjálfri að kröfu Jóns G. Briem hdl., fimmtudaginn 17.10. 1985 kl. 16.00. Sýslumaðurinn I Gullbringusýslu. Nauðungaruppboð annað og síðasta á fasteigninni Seljavogi 1 I Höfnum, þingl. eign Krist- ins Rúnars Hartmannssonar, fer fram á eigninni sjálfri að kröfu Róberts Árna Hreiðarssonar hdl. fimmtudaginn 17.10. 1985 kl. 16.15. Sýslumaðurinn I Gullbringusýslu. Nauðungaruppboð annaö og síðasta á fasteigninni Djúpavogi 20 I Höfnum, tal, eign Sigurðar Björgvinssonar, fer fram á eigninni sjálfri að kröfu Vilhj. H. Vilhjálmssonar hdl., Veðd. Landsb. isl., Brunabótafélags islands og Jóns G. Briem, hdl. fimmtudaginn 17.10. 1985 kl. 16.30. Sýslumaðurinn i Gullbringusýslu. 'leit sér Þær eru tvíátta sem veitingahús og krár í senn, ekki aðeins tU að sýnast fyrir yfirvöldum, heldur viröast þær af misjöfnum mætti reyna að halda úti matreiðslu í hefðbundnum stU veitingahúsa. Þetta er ekki auðvelt í fram- kvæmd, enda viröist ríkja svæða- skipting og tímaskipting mUli borð- halds og bjórdrykkju í þessum krám. Góður matur og bjór fara sjaldan saman, svo sem greinilega sést í út- löndum. Fólk fer annaðhvort út tU aö fá sér koUu eða tU að halda sér mat- arveizlu. Ef það stefnir á bjórinn, lít- ur það á hugsanlegan snæðing sem nauösynlegt snarl með bjórnum. I Bretlandi fá menn sér tU dæmis hina kunnu kjöt- og nýmakássu. Duus i Fischersundi er greinilega að þreifa sig í átt tU eiginlegrar bjór- krár. Síðast þegar ég kom þar í há- degi, var búið að setja upp hlaðborö með kæfum, súrmeti og salati, dálít- ið í átt við það, sem víða má sjá í er- lendum bjórkrám. Til viðbótar var svo boðið upp á mjög stuttan, hæfi- lega stuttan matseðil með sjö réttum í hádeginu og þrettán á kvöldin. Duus er samt ekki venjuleg bjór- krá að útliti, aö minnsta kosti ekki að flatarmáli. Niðri er að vísu krár- svipur í þröngu skoti, sem rúmar um 30 bjórdrykkjumenn. Uppi er hins vegar langur matsalur, sem rúmar yfir 70 matargesti og Utur út eins og matsalur. Angurvær eftirsjá Húsbúnaður er þar svipaöur og niðri, en allur þó af vandaðri gerö, einkum borðin. Þau eru gamaldags, úr heilum viöi, með tveimur breiöum fótum og trébandi á milli. Við þau eru fallegir pílárastólar í sama dökk- brúna litnum, sem og stiginn upp á hæðina og barskenkimir tveir með bj órglasarekkum fyrir ofan. Súlur og bitar burðarvirkis hins gamla húss sjást greinilega. A ljós- um veggjum eru nokkrir tugir gam- alla ljósmynda, flestra frá Reykja- vík fyrri tíma. Þeir eru líka prýddir mörgum skipslugtum og nokkrum speglum. Stíllinn er í samræmi við lúiö trégólfið og magnar eins konar angurværa eftirsjá fyrri og þá senni- lega betri tíma. Dúklausar borðplötur bera mottur undir diska og á kvöldin kertaljós aö auki. Munnþurrkur voru úr nokk- urra gramma léttum pappír. Eitt kvöldið sat enn eftir í loftinu bjór- fnykur hádegisins. I hin skiptin var salurinn hreinn og ferskur. Niðursoð- inn hávaði var stundum nokkuð hátt stilltur. Minna hefði dugað til að yfir- gnæfa drafið í tveimur bjórgestum. Þjónusta reyndist góð og fremur fagleg í tvö skiptin. I þriðja sinnið var þó hluta kaffisins hellt á undir- skálina. Þjónustan sagði „úps”, en gerði ekkert frekar í málinu, jafnvel þótt munnþurrkur gesta séu ekki af þeirri stærðargráöu, að þær nýtist sem pollaþurrkur. Matseðlarnir voru með tiltölulega einföldum og fljótlegum réttum. Seðlarnir einkenndust af réttum, sem fást í tveimur veitingahúsum af hverjum þremur, svo sem sniglum, laxatvennu, síldarþrennu og djúp- steiktum camembert. Þetta kom ekki á óvart, en hitt kom á óvart, að flest, sem prófað var, reyndist allt að því nærfæmislega eldað, mun betur en i meðal-veitingahúsi. Ekki fór svo sem fyrir mikilli mat- reiðslu í rækjuskál með sveppum og kotasælu. En rækjumar voru ferskar og bragðgóðar og sveppimir gáfu þeim ekkert eftir. Hvort tveggja var í töluverðu magni og með nær engu gumsi í kring. Ofan á var kotasæla, en ekkisósa. Soðin ýsa var frekar bragðgóð, “L? H Kokkahúfur eru fyrir matreiðslu og blóm fyrir umhverfi og þjónustu, en krónupeningarnir tákna verðlagið. Jónas Kristjánsson skrifar um veitingahús ekki eins gífurlega mikið soðin og víða tíðkast hér, borin fram með stinnum, hvítum kartöflum og bræddu smjöri, sem var í sérstakri skál og ekki fljótandi um allt á disk- inum eins og víða tíðkast hér. Kokkurinn virtist hafa meira en í meðallagi gott lag á fiski, því að létt- ristaður silungur frá Laugarvatni var frekar milt eldaöur. Hann var þess vegna bragðgóður, borinn fram í litlu smjöri og steinselju. Að þessu sinni voru hvítu kartöflurnar ofsoðnar, en eins og í hinu tilvikinu var mest af smjörinu borið fram í sérstakri skál. Piparsteikin hét nautabuff Nautabuffsteikin var hrásteikt eins og um var beðið. I henni var gott hráefni, svo að hún var meyr. En hún var allt of mikið pipruð og hefði ef til vill getað gengiö sem piparsteik, en um slíkt hafði bara ekki verið beðið. Enn meiri pipar var í sósunni, sem hét raunar piparsósa og var óvið- kunnanlega mjölmikil. Með fylgdu ferskir sveppir, pönnusteiktir, létt- soðnar gulrætur og brokkál, svo og bökuð kartafla með kotasælu í sár- inu. Hrásalatiö með aðalréttunum var ómerkilegt. Þaö var mestmegnis ís- berg, skreytt meö einum tómatbáti og líklega verksmiðjuframleiddri eggjasósu. Meiri reisn var yfir brauðkörfunni, sem jafnan var sett á borð. Þar var smjör með mörgum sneiðum af tvenns konar brauði. Aðurnefnt hlaðborð fól í sér tvenns konar kæfu, keimlíka, en frambæri- lega, ennfremur þrenns konar brauð, fábrotið hrásalat, svo sem hvítkál, tómata, gúrku, sveppi og lauk, einn- ig ólífur, sýrðar gúrkur og smágúrk- ur og ioks tvenns konar síld með rúg- brauði. Borðinu fylgdi eggjasósa og hæfilega krydduð kotasæla. Aðgang- ur að borðinu kostaði 280 krónur. Bezti rétturinn, sem prófaður var, reyndist vera loftmikil ostaterta með kiwi ofan á, vínberjum til hliðar og þeyttum rjóma í skál. Ég hef satt að segja ekki fengið betri ostatertu hér á landi, ekki einu sinni á dýrustu stöðum. Kaffiö var ágætt, ekki borið fram með rjómablandi, heldur hreinum rjóma. En það kostaöi lika 60 krónur. Vínlistinn í Duus er sami skrípaleik- urinn og í flestum bjórkrám lands- ins. Þar er Santa Christina eini ljósi punkturinn innan um atriði, sem mundi varða viö meiðyrðalög að lýsa nánar. Ef frá er skilið fremur ódýrt kalda hlaðboröið með kæfunni, er Duus í meðalflokki verðlags veitingahúsa. Þríréttaður matur með hálfri flösku af frambærilegu vini og kaffi kostaði að miðjuverði 1104 krónur að kvöldi og 862 í hádeginu. Þetta er svona svipað og Bixiö og heldur ódýrara en Fógetinn og Torfan, sem mega telj- ast í þessum sama verðflokki. Eg bjóst ekki við miklu af bjórkrá og var tiltölulega ánægður með út- komuna í Duus. En frá sjónarhóli matargerðarlistar hefur staöurínn ekkert sérstakt fram að færa. Jónas Kristjánsson. HÁDEGI 110 RjómalöguS blómkáhsúþa 160 GúllassúpaDuus 18} Rækjuskál meSsveppum og kotasœlu 193 Gratineruð rækjubrauðsneið með salati 280 Paté hlaðborð meðsúrmeti oj? salati 24} SUdardiskur að hætti hússins 27} Pönnusteikt smálúða með dillsósu 210 Soðin ýsa með hvítum kartöflum og bræddu smjön KVÖLD 26} Ristaðir sniglar á teini með kryddgrjónum 24} Laxatvenna meðpiparsðsu og ristuðu brauði 1}} Gúllassúpa Duus 160 Sjávarréttasúpameðrækjumauki 37} Ristuðsmálúðuflök ala Porteri, hrísgrjón, pilau 36} Léttristaður LauRarvatnssilungur með hvítu smjöri 48} Humar o/> hörpuskelfiskur au gratin, camembertsósa 46} Sinnepskrydduð lambahryggsneið með ristuðum sveppum, sperj>ilkáli }43 Steiktar grísalundir Grecy með Rulrótum, œtiþistil- botnum 663 Nautabuffsteik Duus með humarhölum, rjómapipar- sósu 168 Djúpsteiktur camembert með ristuðu brauði 143 Ostaterta Sælkerans 123 Rjómaís með kahlúalíkjör 0% kiwi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.