Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1985, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1985, Síða 20
20 DV. LAUGARDAGUR12. OKTOBER1985. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 55., 66. og 72. tölublaöi Lögbirtingablaðsins 1985 á eigninni Melgeröi 2, þingl. eign Hafsteins Sæmundssonar, fer fram að kröfu skattheimtu rikissjóös í Kópavogi á eigninni sjálfri fimmtudaginn 17. október 1985 kl. 14.45. Bæjarfógetinn í Kópavogi. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 101., 104. og 106. tölublaöi Lögbirtingablaðsins 1985, á eigninni Kastalageröi 1, þingl. eign Hafsteins Júlíussonar, fer fram aö kröfu Brunabótafélags Islands, skattheimtu ríkissjóðs í Kópavogi og Ás- geirs Thoroddsen hdl. á eigninni sjálfri miðvikudaginn 16. október 1985 kl. 16.00. Bæjarfógetinn í Kópavogi. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 101., 104. og 106. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985 á eigninni Kársnesbraut 38 — hluta —, tal. eign Mariu Guðrúnar Walters- dóttur, fer fram að kröfu Gjaldheimtunnar i Reykjavík, Bæjarsjóðs Kópavogs og Helga V. Jónssonar hrl. á eigninni sjálfri miðvikudaginn 16. október 1985 kl. 14.45. Bæjarfógetinn í Kópavogi. Nauðungaruppboð sem auglýst hefur verið i Lögbbl. á mb. Auðbjörgu GK-86, þingl. eign Sigurjóns Sigurðssonar og Sveins Gunnarssonar, fer fram við skipiö sjálft í Grindavíkurhöfn að kröfu Árna Einarssonar hdl., Inga H. Sigurðs- sonarhdl.og Póstgiróstofunnarfimmtudaginn 17.10. 1985 kl. 10.00. Bæjarfógetinn í Grindavík. Nauðungaruppboð sem auglýst hefur verið í Lögbbl. á fasteigninni Víkurbraut 13 í Grinda- vik, þingl. eign Sveins ívarssonar og Guðnýjar Elvarsdóttur, fer fram á eigninni sjálfri að kröfu Ásgeirs Thoroddsen hdl. fimmtudaginn 17.10. 1985 kl. 10.30. Bæjarfógetinn í Grindavik. Nauðungaruppboð sem auglýst hefur verið í Lögbbl. á fasteigninni Teigi i Grindavik, þingl. eign Inga Á. Árnasonar, fer fram á eigninni sjálfri að kröfu bæjarsjóðs Grindavíkurfimmtudaginn 17.10. 1985 kl. 11.00. Bæjarfógetinn í Grindavik. Nauðungaruppboð sem auglýst hefur verið í Lögbbl. á fasteigninni Hraunbraut 1 í Grinda- vík, þingl. eign Gylfa Þórðarsonar, fer fram á eigninni sjálfri að kröfu bæjarsjóðs Grindavikurfimmtudaginn 17.10. 1985 kl. 11.00. Bæjarfógetinn í Grindavik. Nauðungaruppboð annaö og síðasta á fasteigninni Hellubraut 6, neðri hæð, í Grindavík, þinglýst eign Gunnars Sigurðssonar, fer fram á eigninni sjálfri aö kröfú Veðdeildar Landsb. Isl. og Tryggingastofnunar rikisins fimmtudaqinn 17.10. 1985 kl. 11.15. Bæjarfógetinn i Grindavík. Nauðungaruppboð annað og siðasta á fasteigninni Höskuldarvöllum 15 i Grindavík, þingl. eign Héðins Smára Ingvaldssonar, fer fram á eigninni sjálfri að kröfu Gylfa Thorlacius hrl. fimmtudaginn 17.10. 1985 kl. 11.15. Bæjarfógetinn í Grindavík. Nauðungaruppboð sem auglýst hefur veriö í Lögbbl. á fasteigninni Efstahrauni 2VÍ Grinda- vik, þingl. eign Róberts Þórðarsonar, fer fram á eigninni sjálfri að kröfu Garöars Garðarssonar hrl., Tryggingast. rikisins og bæjarsjóðs Grindavíkurfimmtudaginn 17.10.1985 kl. 11.30. Bæjarfógetinn I Grindavík. Nauðungaruppboð sem auglýst hefur verið í Lögbbl. á fasteigninní Mánagerði 5 í Grindavík, þingl. eign Siguröar Vilmundarsonar, fer fram á eigninni sjálfri að kröfu Garöars Garöarssonar hrl. fimmtudaginn 17.10. 1985 kl. 11.45. Bæjarfógetinn í Grindavík. HIN HLIÐIN: Gylfi Kristjánsson, fréttastjóri á Dagi, á skrifstofu sinni á Akureyri. Áhugi á flugi, lærði gullsmíði, end- aði í blaðamennsku — Gylfi Kristjánsson, f réttastjóri á Degi, sýnir ásér hina hliðina Golf ið skemmtilegt — Hvernig verð þú tómstundum þínum? „Ég hef verið að reyna í mörg ár aö ná tökum á því að leika golf eins og maður en það hefur gengið treg- lega. Bæði vegna þess að ég hef aldrei getað stundað það grimmt og svo er víst eitt og annað sem ég tók í mig í byrjun sem erfitt er- að losna við á golfvellinum, eins og rangt grip, röng sveifla, slæm staða og þess háttar. Það er eiginlega ýmis- legtað! Annars les ég mikið, er blaðasjúkl- ingur, og svo hef ég fram undir þetta verið sjónvarpsáhorfandi í frístund- um.” — Hvað um framtíðaráformin, þú ert ekkert á leiðinni til Reykjavíkur? „Ekki í augnablikinu a.m.k., þótt aldrei skuli maður segja aldrei. Ég er í áhugaverðu starfi á skemmtileg- um vinnustað þannig aö ég er ekki farinn að hugsa til þess að breyta til. En mitt fólk er í Reykjavík og vissu- lega væri gaman að geta skroppið þangað oftar en hingað til þótt ekki værimeira.” -SK. „Mig minnir aö það hafi verið árið 1967 sem ég byrjaði að skrifa um körfuknattleik í Morgunblaðið og ég var þar lausráðinn viö körfubolta- skrif fram til ársins 1976 að ég réöst sem íþróttafréttamaður á Vísi sál- uga. Þar var ég fram til ársins 1981 er leiðin lá til Dags á Akureyri,” sagði Gylfi Kristjánsson, fréttastjóri á Degi á Akureyri, er við báðum hann að rekja í stuttu máli feril sinn í blaöamennskunni, en Dagur á Akur- eyri er sem kunnugt er nýlega orðið dagblað, hiö fyrsta utan Reykjavík- ur. „Það er stutt um liðið síðan Dagur varð dagblað, fór úr 3 blöðum á viku í 5, svo það er ekki komin mikil reynsla á þau mál,” sagði Gylfi er við spurðum hann hvernig hefði gengið að gefa Dag út sem dagblaö. „Þó verð ég að segja það að þær undir- tektir, sem við höfum fengið, hafa verið mjög jákvæðar og áskrifendum hefur f jölgað mikið.” Flugið slltaf heillað — Hvað veldur því að þú hefðir viljað vera flugmaöur ef blaða- mennskan hefði ekki orðið fyrir val- inu? „Ég veit það varla. Sem unglingur fór ég oft út á flugvöll í Reykjavík, bara til að fylgjast með því sem þar var að gerast. Það var eitthvaö sem heillaði og ég kann alltaf vel við mig um borð í flugvél. Hins vegar er ljóst að ég verð aldrei flugmaður, læknir- inn minn sagði mér nefnilega eftir augnskoðun að ég væri litblindur á rautt og grænt og það gengur víst ekki í háloftunum.” — En hvers vegna varö blaða- mennskan fyrir valinu? „Þaö var tilviljun í upphafi. Síðar lærði ég gullsmíði og starfaöi við þá iðn í 10 ár hjá þeim frábæra smið, Jens Guöjónssyni. En íþróttimar toguðu í mig og þegar mér bauðst starf sem íþróttafréttamaður við Vísi sló ég til. Þótt ég hafi gengið í önnur störf bæði á Vísi og á Degi hef ég lengst af skrifaö um íþróttir jafn- framt.” NAFN: Gylfi Kristjánsson FÆDDUR: 18. ágúst 1948. EIGINKONA: Birna Blöndal. BÖRN: 4. BtLL: Enginn (konan á einn). STAÐA: FréttastjórL LAUN: Ekki nógu mikll. ÁHUGAMÁL: Iþróttir. HLESTIKOSTUR: Stundvís. HELSTIVEIKLEIKI: Latur. HVAÐ FER MEST I TAUGARNAR A ÞÉR? óstundvísi. UPPAHALDSMATUR: Það sem ég éthverjusinni. UPPÁHALDSDRYKKUR: Létt- mjólk. HVAÐA PERSÖNU LANGAR ÞIG MEST TIL AÐ HITTA? Rene van der Kerkhof. UPPÁHALDSLEIKARI, ISLENSK- UR: GesturEinar Jónasson. UPPÁHALDSLEIKARI, ERLEND- UR: Enginn. UPPAHALDSHUÓMSVEIT: Stór- hljómsveit Ingimars Eydal. uppAhaldsstjórnmAlamað- UR: Stefán Valgeirsson. HLYNNTUR EÐA ANDVIGUR RlKISSTJÓRNINNI: Hlynntur. HVAR KYNNTIST ÞU KONUNNI ÞINNI? A balli á Hótel Borg. HA'AÐ VILDIR ÞÚ HELST GERA I ELLINNI? Hafa það gott. UPPAHALDSSJÓNVARPSÞATT- UR: Fréttir. UPPAHALDSSJÓNVARPSMAÐ- UR: Ómar Ragnarsson. UPPAHALDSFÉLAG I IÞRÓTT- UM: Arsenal. EF ÞÚ YNNIR EKKI VIÐ BLAÐA- MENNSKU HVAÐ VILDIR ÞÚ ÞA HELST GERA? Vera fiugmaður. úPPAHALDSBLAÐ : Dagur. UPPÁHALDSTIMARIT: Sportveiöi- biaðið. UPPAHALDSSTJÓRNMÁLAMAÐ- UR, ERLENDUR: Erlendur Paturs- son. EF ÞU YRÐIR HELSTIRÁÐAMAÐ- UR ÞJÓÐARINNAR A MORGUN HVERT YRÐI ÞITT FYRSTA VERK? Fá mér menn í hina stólana. ANNAÐ VERK: Koma á þjóðarat- kvæðagreiðslu um bjórinn. EF ÞU ÆTTIR EKKI HEIMA A ISLANDI HVAR VILDIR ÞÚ ÞA HELST BÚA? á Irlandi. VASKAR ÞÚ UPP FYRIR KONUNA ÞlNA? Og fyrir sjálfan mig. MYNDIR ÞO TEUA ÞIG GÓÐAN EIGINMANN? Það held ég ekki. FALLEGASTI STAÐUR A IS- LANDI: Þórsmörk. FALLEGASTI KVENMAÐUR SEM ÞO HEFOR SEÐ: Æi, hvað heitir húnnú aftur? HVAÐ ÆTLAR ÞÓ AÐ GERA A MORGON? Vinna dálitið og slappa * af.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.