Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1985, Qupperneq 22
22
DV. LAUGARDAGUR12. OKTOBER1985.
„Sumir eru f rjálsari en allir
JL að eru blikur á lofti í
íslenskum stjómmálum. Innanflokks-
deilur um starfshætti og leiðir aö
hinum göfugu markmiöum hafa
borist út fyrir herbúöir flokkanna —
og raunar er fólk hætt að jésúsa sig
yfir deilum í Alþýöubandalaginu,
Sjálfstæðisflokknum eöa Bandalagi
jafnaöarmanna — fljótlegra er að
segja aö engar heyranlegar deilur séu
í Framsóknarflokknum. Og að þess
vegna sé sá flokkur hugsanlega
dauöur úr öllum æöum.
Alþýöubandalagið hélt miðstjómar-
fund um síðustu helgi og þar var
stundum gripiö til breiöu spjótanna.
„Þaö kom fram bullandi gagnrýni á
vinnubrögð forystu flokksins, bæöi
formannsins og þingflokksins,” sagöi
heimildarmaður DV að fundi loknum.
„Þaö voru ekki mikil átök, en menn
ræddu af mikilli hreinskilni til aö ná
áttum í flokknum,” sagöi annar.
Formaöurinn, Svavar Gestsson, sagöi
eftir fundinn: „Þaö var margt
gagnrýnt. Þessar deilur um flokks-
starfiö eru ekki stórbrotnar. Menn
eru þarna eins og félagar aö leita aö
sameiginlegriúrlausnáhlutunum...”
Við settumst niöur ásamt Svavari
daginn sem Þorsteinn Pálsson flutti
inn í fjármálaráðuneytið, Sverrir
geröist menntamálaráöherra, Ragn-
hildur ráöherra tryggingamála og
Albert fór nöldrandi í iðnaðarráðu-
neytið. „Það er auövitaö þannig,”
sagöi Svavar — „aö í stjómmála-
flokki, eins og í öðrum félögum, þarf
stööugt að vera að endurskipuleggja
vinnuna með tilliti til breyttra
aöstæöna. Núna stendur yfir hressileg
umræöa í Alþýöubandalaginu um
starfshætti flokksins. I þeirri unræöu
er allt á dagskrá. Eg vona að út úr
þeirri umræðu komi þaö sem geri
flokkinn færari í baráttunni út á við
áður en langt líöur. Þetta er róttæk
umræöa í róttækum flokki. Ekkert er
heilagt — ekki formaðurinn frekar en
annað. Þessi umræða á að geta skilað
okkur áleiðis.”
— Er deilt um valdsvið for-
mannsins — færö þú ekki að ráða því
sem þú vilt?
„Ég er nú ekki þannig formaður að
ég sé endilega að hugsa um aö fá aö
ráða því sem ég vil. Fyrir mér er
aðalatriðið að flokkurinn sé samstiga
og að menn séu í sameiningu aö leysa
verkefnin. Ég er gagnrýndur fyrir
það að vera of frekur til fjörsins.
Sumir segja aö ég sé of sterkur. Aðrir
segja of veikur. Eg get ekki sjálfur
dæmt um þaö. Málið er mér of skylt
til aö ég geti haft vit á því. Viö
þurfum að bæta starfshætti flokksins
til að tryggja betur samstarf og áhrif
hinna einstöku félaga — og daglegar
ákvaröanir eins og unnt er. Aö því
lýtur t.d. tillaga um aö kjósa formann
flokksins beint af flokksfélögum — og
fleira. Viö erum að reyna — við erum
aö reyna aö gera flokkinn betri. En
flokkur verður aldrei fullkominn, sá
flokkur sem er fullur af sjálfumgleði
er dauöanum merktur. Hin pólitiska
eilíföarvél hefur ekki veriö fundin
upp, sem betur fer.”
Reynir á þrekið. . .
Alþýðubandalagið hefur komið illa
út í skoðanakönnunum. Spilla þessar
deUur, eða þessi umræða, ekki fyrir
— verður flokkurinn ekki veikur í
stjórnarandstöðu?
„Ég held að Alþýðubandalagið sé
ekki veikt í stjómarandstöðu miðaö
viö þaö sem oft gerist. Þaö sem er
erfitt núna er staða verkalýöshreyf-
ingarinnar. Og hvort þetta kemur vel
eöa illa út fyrir flokkinn skal ég ekki
um segja. Þaö getur vel veriö að
þetta komi að einhverju leyti illa út.
Það getur lika vel verið að menn líti
jákvæöum huga til flokksins, segi
sem svo aö þarna séu menn að skoöa
hlutina — þarna séu menn að skoöa
sjálfa sig ekki siður en aöra. Þessi
umræöa í flokknum reynir á lýöræðis-
legt þrek flókksins. Menn þurfa
auðvitaö aö vera tilbúnir til aö taka
þátt í umræöu meö eðlilegum hætti.
Lýöræöi er ekki bara uppbygging á
einhverjum valdapíramíða. Lýðræði
er spurningin um þaö hvort þú ert
tilbúinn aö hlusta og reyna að átta
þig á þeim sjónarmiöum sem þú
heyrir. Lýöræði er þaö að bera
virðingu fyrir manninum sem með
þér er á hverjum tíma. Þetta hafa
ýmsir menn séð — eins og t.d. Davíð
Oddsson og einræðisherrar fyrr á
öldinni — aö lýðræðið er seinvirk
stjómunaraöferö. En lýðræðið er sú
stjómunaraðferö sem ég vil hafa —
og meirihluti þjóðarinnar vill áreiöan-
lega hafa.
Fyrir mér er aöalatriöiö að ég hef
trú á því aö í þessari umræðu sé
nægilega mikill heiðarleiki og góöur
vilji þannig aö flokkurinn verði
sterkari á eftir en fram kemur
núna.”
— Ekki „leiðinlegur, staðnaður
kerfisflokkur”?
„Nei!
Þaö hlýtur aö vera nauösynlegt