Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1985, Qupperneq 36

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1985, Qupperneq 36
36 DV. LAUGARDAGUR12. OKTOBER1985. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 53., 60. og 62. tbl. Lögbirtingablaös 1985 á hluta í Hjaltabakka 28, þingl. eign Skafta Einars Guöjónssonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavlk á eigninni sjálfri þriöjudaginn 15. október 1985 kl. 14.15. Borgarfógetaembaettiö í Reykjavík. Nauðungaruppboð annaðog síöasta á hluta í Grettisgötu 52, þingl. eign Páls G. Jónssonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar i Reykjavík á eigninni sjálfri þriöjudaginn 15. október 1985 kl. 11.00. Borgarfógetaembættið í Reykjavik. Nauðungaruppboð annaö og siöasta á hluta í Hjaltabakka 14, þingl. eign Þorsteins Hjálmarssonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík og Landsbanka islands á eigninni sjálfri þriöjudaginn 15. október 1985 kl. 14.00. Borgarfógetaembættiö i Reykjavik. Nauðungaruppboð sem auglýst var i 102. tbl. Lögbirtingablaös 1984 og 2. og 8. tbl. þess 1985 á Engjaseli 19, þingl. eign Sigmundar Stefánssonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík á eigninni sjálfri þriðjudaginn 15. október 1985 kl. 13.30. Borgarfógetaembættiö í Reykjavík. Nauðungaruppboð annaö og síöasta á hluta í Grettisgötu 58B, þingl. eign Árna Jóns Bald- vinssonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík, Veðdeildar Landsbankans, Gunnars I. Hafsteinssonar hdl. og Tryggingastofnunar rikisins á eigninni sjálfri þriöjudaginn 15. október 1985 kl. 11.15. Borgafógetaembættið í Reykjavik. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 48., 60. og 62. tbl. Lögbirtingablaðs 1985 á hluta í Kleifarseli 16, tal. eign Þorbjörns Guöbjörnssonar, fer fram eftir kröfu Veödeildar Landsbankans og Gjaldheimtunnar í Reykjavík á eigninni sjálfri þriöjudaginn 15. október 1985 kl. 15.15. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Nauðungaruppboð annaö og síöasta á hluta í Teigaseli 4, þingl. eign Ingibjargar Vilhjálms- dóttur, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík, Veðdeildar Landsbankans og Útvegsbanka Islands á eigninni sjálfri þriðjudaginn 15. októberl 985 kl. 15.30. Borgarfógetaembættið i Reykjavik. Nauðungaruppboð annaö og siöasta á hluta í Dalseli 36, þingl. eign Daniels Öskarssonar, fer fram eftir kröfu Guðjóns A. Jónssonar hdl., Veödeildar Landsbank- ans og Gjaldheimtunnar í Reykjavík á eigninni sjálfri þriöjudaginn 15. október 1985 kl. 15.00. Borgarfógetaembættiö í Reykjavík. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 104. tbl. Lögbirtingablaðs 1984 og 1. og 11. tbl. þess 1985 á hluta í Skipasundi 56, þingl. eign Kára Einarssonar, fer fram eftir kröfu lönlánasjóös, Tryggingastofnunar rikisins, Landsbanka Islands, Gjaldheimtunnar i Reykjavík og Útvegsbanka Islands á eigninni sjálfri miövikudaginn 16. október 1985 kl. 14.15. Borgarfógetaembættið i Reykjavik. Nauðungaruppboð sem auglýst var I 53., 60. og 62. tbl. Lögbirtingablaös 1985 á hluta I Nökkvavogi 15, þingl. eign Sigurðar K. Sigurössonar, fer fram eftir kröfu Tryggingastofnunar ríkisins og Veödeildar Landsbankans á eign- inni sjálfri miövikudaginn 16. október 1985 kl. 14.00. Borgarfógetaembættiö í Reykjavík. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 71., 75. og 81. tbl. Lögbirtingablaös 1985 á hluta í Sigtúni 25, þingl. eign Einars Ólafssonar, fer fram eftir kröfu Veödeildar Landsbankans, Baldurs Guölaugssonar hrl., Búnaðarbanka Islands og Gjaldheimtunnar í Reykjavík á eigninni sjálfri miövikudaginn 16. október 1985 kl. 13.45. Borgarfógetaembættið i Reykjavík. Roger Moore sem James Bond — góður, auðvitaö, en prógrammifl afleitt. Um prógrömm Undirritaöur man þá tíö þegar mikilvægi prógramma fyrir unga bíógesti var meira en orö fó lýst. Þetta var fyrir daga textaðra mynda og þó var prógrammiö lykillinn aö efni myndarinnar. Án þess skildi maöur hvorki upp né niður í mynd- inni og hélt engum þræöi. Og pró- grammið var marglesið. Víst hefur þýöing prógramma minnkað en þau eru sumum samt jafnnauðsynleg og poppkomiö. Þess vegna f jallar pistillinn í dag um slíka bæklinga. Áöur en lengra er haldiö er rétt og skylt að vekja athygli lesenda ó því aö orðiö prógramm er merkt með spumingarmerki í Orðabók Menn- ingarsjóös. Þaö þýöir aö orðið er „vont mól sem forðast ber í ís- lensku”. Þetta er rétt aö lesendur festi sér vel og rækilega í minni og muni, næst þegar þeir þurfa aö kaupa svona bók- menntir, að biöja um efnisskrá viðkomandi kvikmyndar. Eða hvað? Kvikmyndin Víg í sjónmáli Mér barst nýlega í hendur efnis- skrá fyrir ofangreinda kvikmynd. Ég hef aö vísu ekki séð myndina em mér hefur veriö sagt aö hún sé ágæt. Þaö sama get ég alls ekki sagt um prógrammiö. Þaö er ljótt. Það er illa gert hvaö varðar útlit, þýöingu, málfar og stafsetningu. Þetta er ekki texti sem unninn er af neinum metnaði. Höfundurinn hef- ur kastað til þess höndunum. Og verst er að þaö er algerlega aö óþörfu. Meö vandvirkni og yfirlestri hefði mátt bæta úr sumum göllunum. Og ef höfundurinn heföi ekki treyst sér til þess heföi hann átt aö leita á náðir einhverra sem gætu leiðbeint honum eöa unniö fyrir hann verkið. Ég hef flokkað þaö sem mér finnst helst athugavert viö textann. Það hljóðarsvo: Smekkleysa Þaö fyrsta sem mér finnst athuga- vert er smekkleysa sú sem felst í frá- gangi bæklingsins. Forsíðan er greinilega tekin úr er- lendum bæklingi. Þar er hvert orö á ensku að því undanskildu aö neðst er nafn fyrirtækisins sem fjölritaði og kvikmyndahússins. Þetta er aö minu mati smekkleysa. Kvikmyndin heitir á ensku A View to A Kill sem þýtt er Víg í sjónmáli. En þrátt fyrir þessa ágætu þýöingu á heiti myndarinnar er eins og höfund- ur textans skammist sin fyrir hana því myndin er alls staöar nefnd á ensku utan einu sinni, innan sviga á blaösíðu 12. Þetta er líka smekkleysa. Íslensktunga34. Við þaö bætist að bæklingurinn er illa hannaöur og uppsetning texta og mynda ljót. Textinn er settur á tölvu en setjarinn hefur ekki haft fyr- ir því aö jafna dálkana sem þó á aö verahægur vandi. Þetta var þriöja smekkleysan. Stafsetningin Satt að segja eru stafsetningarvill- umar ekki margar, reyndar undar- lega fáar. Þær eru nákvæmlega 27 talsins. Þar af eru nokkrar kommu- villur. Af villum má nefna aö hans er allt- af skrifaö hanns, fyrirtæki verður fyrltæki og flókinn tölvubúnaður veröur flókin tölvubúnaöur. Þess má geta aö þrátt fyrir urmul enskra nafna í prógramminu er ekki ein einasta ensk stafsetningarvilla. Þaö er vitaskuld vegna þess að höfundurinn hefur haft enskan texta fyrir framan sig. Á hinn bóginn er rétt aö vekja at- hygli á því að i orðabók hefur hann upplýsingar um stafsetningu ís- lenskra oröa. Og þar eiga menn aö leita séu þeir í vandræðum. Málfarið Þaö er slæmt. Greinilega er um enska þýðingu aö ræöa. Það skín í gegnum textann á mörgum stöðum. Fyrir bregður orö- um sem hingaö til hafa ekki verið til í íslensku og veröa vonandi ekki notuö lengi og sömuleiðis er enskri setn- ingagerö fylgt eins og skuggi fylgir þeimsemhanná. Á bls. 4 er þessi málsgrein: „Eftir aö hann hefur fjarlægt dvergrása- tölvukubb af breska njósnaranum 003, sem var drepinn viö lok njósna- aðgerðar í sovéskri rannsóknarstofn- un í Síberíu, hefur James Bond (Rog- er Moore) flóttaaögerö á leiftur- hraða yfir jökla og ísöræfi norðaust- ur Rússlands (en sú kvikmyndataka fer aö mestu leyti fram á Islandi) — meö stuðningi hinnar undurfögru Kimerlev James (Mary Stavin).” Njósna- og flóttaaðgeröir? Hvað á maöur aö segja? Bull? Málsgreinin er líka klúöursleg vegna fjölda innskota og vitlausrar uppröðunar efnisins. Innskotiö um kvikmyndatökuna á Islandi er dæmi um innskot sem betur færi ó annan hátt. Og mér finnst neyðarlegt að kynna James Bond til sögunnar sem „hann”. Og ísöræfi? Höfundurinn veit lík- lega að öræfi er í íslensku síöur notaö um jökla og því grípur hann til þess óyndisúrræðis aö bæta ís fyrir fram- an. I staöinn fyrir að nota sögnina aö fjarlægja heföi til dæmis máttt nota aö taka eða hiröa. Og svona mætti lengi telja. Nokkru síöar er f jallaö um erkibóf- ann vellauðuga, Zorin. Hann „hefur grætt fé sitt af viöskiptum í olíu- og gasiðnaöinum..segir í pró- gramminu. Þaö þýöir væntanlega aö hann hafi grætt á viðskiptum með olíu og gas. Nokkrum línum neöar er enn eitt nýyröi, reiðhestabú. Þar leggja menn stund á reiðhestablöndun. Annaö nýyröí! Leynilögreglumaöur nokkur hlýt- ur „bráðan endi”, þ.e.a.s. hann deyr! Nokkur slagorð eru á bls. 12. Þar segir meðal annars: Stærsta James Bond opnun frá upphafi... allra tima aösóknarmet á stærsta bíó i London... James Bond mynd allra tima. Og þá er víst nóg komið af sýnis- hornum úr þessu makalausa pró- grammi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.