Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1985, Page 44

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1985, Page 44
FRÉTTASKOTIÐ Sími ritstjórnar: 68 66 11. Auglýsingar, áskrift og dreifing, sími 27022. Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt — hringdu þá sima 68-78-68. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greið- ast 1.000 krónur og 3.000 krónur fyrir besta fréttaskotið i hverri viku, Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 1985. Kópavogur: Fenguhækkun Bæjarstjóm Kópavogs hefur samiö við bæjarstarfsmenn um hækkun launa sem nemur einum launaflokki. Jafngildir það þrjú prósent hækkun. Þessi samningur kemur í beinu framhaldi af samn- ingi Alberts Guðmundssonar við BSRB nú í vikunni um sömu hækk- un. Er þetta fyrsti samningurinn sem gerður er á þeim grundvelli og búist er viö aö fleiri fylgi á eftir. Þá hefur borgarstjóri samþykkt sams konar hækkun til starfs- manna Reykjavíkurborgar. Tilboðsfrestur ennframlengdur öskar Magnússon, DV, Washington: Frestur til að skila tilboðum i flutninga sjóleiðis fyrir vamarlíðið hefur enn verið framlengdur, nú til 4. nóvember. Að sögn Frank Cost- ello, lögmanns Rainbow Naviga- tion-skipafélagsins, sem nú annast þessa flutninga að mestu, mun þetta væntanlega vera gert til að fullnægja ákvæðum bandarískra laga. Þar er kveðið á um samtals 45 daga fyrirvara f rá því að útboðið er formlega tilkynnt. 20 árekstrar Ekkert slys hafði orðið á mönn- um í umferðinni í Reykjavík í gær- kvöldi, þegar DV fór í prentun, en þá var búið að skrá 20 árekstra hjá lögreglunni i Reykjavík. Þess má geta að 22 árekstrar og eitt slys varð í umferðinni á föstudegi fyrir ári. -SOS Fær ASÍ 3%? Fær ASI lfka þá 3% kauphækkun sem BSRB samdi um viö fjármála- ráöherra? Þeirri spumingu veröur væntan- lega svarað alveg næstu daga. ASI hefur óskað eftir fundi með VSl um málið og krefst þess að fá þessa kauphækkun. Hjá VSl vom stif fundahöld í gær um kröfu ASI. EINANGRUNAR GLER 666160 Hér eftir tala menn bara um Bandalag ástarinnar... Fhkksforystan undir iatkvæöagreidslum — Steingrímur Sigf ússon alþingismaður féll í stjórnarkjöri Á löngum og hörðum f ramhaldsað- alfundi Otgáfufélags Þjóöviljans á fimmtudagskvöldiö varð flokksfor- ystan undir í atkvæðagreiöslum bæði um ritstjómarstefnu blaðsins og kosningu til stjómar. Meöal þeirra fulltrúa forystunnar sem féllu viö stjómarkjörið var Steingrímur Sig- fússon alþingismaður. Á fundinum, sem stóð fram yfir miðnætti, urðu snarpar deilur um hvort Þjóðviljinn ætti að vera þröngt flokksmálgagn eða „víðsýnt blað”. Meðal þeirra, sem mæltu fyrir þvi að blaðiö yrði á ný fyrst og fremst flokksmálgagn upp á gamla móðinn, voru formaðurinn, Svavar Gestsson, Sigurjón Pétursson borgarfulltrúi og Ingi R. Helgason. össur Skarp- héðinsson ritstjóri, Oskar Guð- mundsson ritstjómarfulltrúi, Kristín Olafsdóttir og Olafur Ragnar Gríms- son voru meðal þeirra sem mæltu með stuðningi við núverandi rit- stjómarstefnu og varð sú lína ofan á í atkvæðagreiðslu með verulegum at- kvæðamun. Kosið var til stjómar og vara- stjómar, samtals 13 manns. Uppstill- inganefnd, sem starfað hafði í sam- vinnu við flokksforystuna, gerði til- lögu um menn, en Hilmar Ingólfsson, bæjarfulltrúi í Garðabæ, kom með viðbótartillögur. Af lista forystunnar féllu m.a. Steingrímur Sigfússon al- þingismaður og Snorri Konráðsson, Adda Bára Sigfúsdóttir rétt náði kosningu — munaði þar aðeins þrem- ur atkvæðum. Kristín Olafsdóttir og Olafur Ragnar Grímsson fengu flest atkvæði í kosningunni. Af nýjum mönnum, sem kosningu hlutu og styðja núverandi ritstjómarstefnu, má nefna Ásmund Ásmundsson, Hilmar Ingólfsson og Mörð Ámason. Stjómin kýs formann úr sínum röðum á fyrsta fundi sínum. Fráfar- andi formaður er Svavar Gestsson. Ekki er talið víst að hann nái endur- kjöri í þá stööu. -ESJ. Þeir heilsast með virktum, núverandi og fyrrverandi framkvæmdastjóri Vinnuveitendasambands Is- lands, Magnús Gunnarsson og Þorsteinn Pálsson. Á myndinni eru einnig Víglundur Þorsteinsson, for- maður Fll, og Gunnar J. Friðriksson, formaður VSÍ. Þeir gengu aliir á fund forsætisráðherra i gær. DV-mynd KAE Reynt að ná Þórunni ÞH af 130 m dýpi: Vírinn slitnaði — Það verður reynt aftur, sagði Heiðar Baldvinsson, eigandi bátsins Frá Jónl G. Haukssyni — frétta- manni DV á Akureyri: „Eg var hræddur um að þetta væri svona, að vírinn myndi ekki halda. Þetta em vissulega vonbrigði en ég sef í nótt. Og það verður reynt aftur.” Þetta sagði Heiðar Baldvinsson, skipstjóri frá Grenivík — eigandi tólf tonna eikarbáts, Þórunnar ÞH 255, er reynt var að hífa bátinn upp af 130 mdýpiígærdag. Söguleg stund. Þetta var í fyrsta skipti á Islandi sem slíkt er reynt af svo miklu dýpi. Þórunn ÞH, eða Titanic, eins og sumir kalla hana, sökk út af Ölafsfirði í nóvember í fyrra. Mannbjörg varð. Heiðar, sonur hans og annar skipverji kom- ust i gúmbát. Heiðar fékk þegar áhuga á aö bjarga bátnum. Hann fékk til liðs við sig Stefán Hjartarson kafara, en hann annaöist neðansjávarmynda- tökuna af gæsluþyrlunni sem fórst á Vestf jörðum í fyrra. DV var með Heiöari og fylgdarliöi við björgunartilraunina í gær. Farið var á tveimur bátum — flóabátnum Drangi og Oskari, ellefu tonna báti Heiðars. Drangur hífði — spennan var í al- gleymingi. Vírinn strekktist — þetta ætlaði að hafast. En því miður, vír- inn gaf sig. — „Þetta var gott átak og báturinn hefur liklega veriö að losna úr sandinum,” sagði Hákon Isaks- son, skipstjóri á Drangi. Þess má að lokum geta að þyrla Landhelgisgæslunnar var hífð upp af 80 m dýpi. —JGH/-SOS VSÍ-menn ræda við Steingrím og Þorstein: „Stórslys” „Eins og til var stofnað var farið á fund Steingríms og Þorsteins til að fá skýringar og hvað þetta þýddi af sjón- arhóli stjómarinnar,” sagði Magnús Gunnarsson, framkvæmdastjóri VSI, í samtali við DV í gær. Um hádegisbil í gær fóru forsvars- menn VSI á fund Steingríms Her- mannssonar forsætisráðherra og Þor- steins Pálssonar, verðandi fjármála- ráðherra, eins og greint var frá í DV í gær. Tilefni fundarins var launahækk- un BSRB-manna sem Albert Guð- mundsson gekk frá á miðvikudag. „Staðan var rædd fram og til baka en því miður fékkst engin niðurstaða,” sagði Magnús aö loknum fundinum. „Það er ljóst að hér hefur átt sér staö stórslys sem við eigum eftir að sjá hvaðaafleiðingarhefur.” -t>G Þrjár atkvæða- greiðslurí útvarpsráði Á fundi útvarpsráðs í gær var gengið til atkvæöagreiðslu um um- sækjendur í stöður á fréttastofu Rikisútvarpsins. Fyrir lágu 17 umsóknir um 4 stöð- ur, 2 stöður til lengri tíma en 2 til sexmánaða. Atkvæði féllu þannig að Páll Benediktsson fékk 7 atkvæði, Hjör- dís Finnbogadóttir 6 atkvæði, Bjarni Sigtryggsson 5 atkvæði og Olína Þorvarðardóttir 4 atkvæði. Þaö gekk ekki alveg upp í fyrstu at- rennu að jafna atkvæöunum og tví- vegis þurfti að endurtaka atkvæða- greiðsluna. I fyrstu atrennu voru þrír um- sækjendur jafnir með 3 atkvæði hver en í þriðju lotu fékk Olína fjórða atkvæðið. Ráðning umsækjenda er í hönd- um útvarpsstjóra, Markúsar Arnar Antonssonar. -þg

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.