Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1985, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1985, Blaðsíða 1
Arnarf lugsmenn víða um lönd að semja um skuldir: „ WÐ ERUM KOMNIR YFIR ERFIÐASTA HJALLANN” „Það má segja að við séum komn- ir yfir erfiðasta hjallann í bili,“ sagði Agnar Friðriksson, fram- kvæmdastjóri Arnarflugs, í samtali við DV í morgun. Vegna slæmrar fjárhagsstöðu fyrirtækisins var samgönguráðherra sent bréf í byrj- un vikunnar og þar gerð grein fyrir því að rekstrarstöðvun blasti við fyrirtækinu. Gripið hefur verið til ýmissa ráða, innheimtuaðgerðir hertar, samið við lánardrottna og stefnt að sölu eigna. Agnar sagði að nú þegar væri búið að senlja við þrjá lánardrottna af tíu. í gær sátu stjórnarformaður Arnarflugs, Haukur Björnsson, og gjaldkeri fyrirtækisins, Guðmund- ur Hauksson, fund í London vegna Kúbusamningsins. Gekk sá fundur vel að sögn Agnars. Sendir voru aðilar frá fyrirtækinu til að semja við viðsemjendur Arnarflugs í Líbýu, Alsír og Saudi-Arabíu og af fregnum sem borist hafa hefur er- indreksturinn í þessum löndum gengið að vonum. Fyrir liggur að selja Boeing 707 vöruflutningavél Arnarflugs og hafa mjög hagstæð tilboð í þá vél verið að berast undanfarna daga. Vegna ákveðinna aðstæðna á sölu- markaði þessum hefur vélin hækk- að í verði um 300 þúsund dollara síðan um helgi. Arnarflug hefur stefnt að því að fá innlenda bankafyrirgreiðslu til að greiða frekar úr fjárhagsstöð- unni en ekki liggur fyrir hvort sú fyrirgreiðsla fæst. Um 140 manns vinna hjá Arnar- flugi í dag. - ÞG Hermenn, sem miða rifflum sínum, hljóta að fá sínu framgengt. Blaðamaður á ritstjórn DV, sem horfir inn í byssuhlaupin, verður að koma boðskap þeirra á framfæri. „Hermennirnir“, leikarar úr Iðnó, verða á Hótel Borg í kvold á skemmtidagskrá í stríðsárastíl. Kynnt verður nýútkomin plata með lögum úr söngleiknum Land míns föður, sem Leikfélagið hefur nú sýnt um sextíu sinnum, og sungið og dansað fram á nótt. DV-mynd PK. Eldvík kyrr- settíHull vegna skulda Eldvík, skip Skipafélagsins Víkur, var kyrrsett i Hull í Bretlandi á mánudag eða þriðjudag. Eldvík var enn í höfn í Huli í morgun, sam- kvæmt upplýsingum þaðan. Skipið var stöðvað vegna krafna frá tveimur aðilum, skipamiðlara og þeim sem annast uppskipun i Hull. Hræðsla við islensk ‘ skipafélög í kjölfar Hafskipsmálsins virðist eiga þátt í stöðvun Eldvíkur. Finnbogi Kjeld, forstjóri Skipafé- lagsins Víkur, segir að ágreiningur sé við skipamiðlarann um reikning að fjárhæð 1,2 milljónir króna. Gámafiskur, sem átti að losa úr Eldvík á þriðjudag, var ekki losaður fyrr en í gær. Fór fiskurinn á uppboð í morgun. Orðrómur hefur verið um erfiða fjárhagsstöðu Skipafélagsins Víkur. Nauðungaruppboð á eignum félags- ins hefur verið auglýst í dag. Finn- bogi Kjeld sagði DV að fjárhagurinn væri ekkert sérstakur en viðunandi. Sagði hann að nauðungaruppboðið hefði verið auglýst vegna 30 þúsund króna skuldar. -KMU. '1 r JolagetraunDV Islandættiað Atvinnulaus — sjá bls. 28 geta unnið Spán eftir 26 ára • -sjábls. 20-21 starfhjáHafskip • - sjá bls. 3 SamruniNT, «5 & .5 1 1 Þjóðviljansog biðja Islending JH Alþýðu umaðsetja Danskirprinsar blaðsins? uppskerm íprinsessuleit — sjá bls. 5 - sjá bls. 2 -sjábls.37 Hafskip á Alþingi: Umræðunni útvarpað fkvöld í kvöld verður útvarpað frá Alþingi umræðu um þingsályktunartillögu Jóhönnu Sigúrðar- dóttur og fleiri um að skipuð verði rannsóknamefnd til að rannsaka viðskipti Hafskips og Útvegsbankans. Umræðan hefst klukkan átta í kvöld og er búist við að hún standi yfir i þrjá tíma. APH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.