Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1985, Page 4
4
DV. FIMMTUDAGUR12. DESEMBER1985.
FISKMARKAÐIR
Vinnsla,
verð,
markaðir
Fiskréttir
Nýlega stofnuðu 8 fyrirtæki í
fiskiðnaði til samstarfs um fram-
leiðslu fiskrétta í neytendaumbúð-
um. Fyrirtækin eru: Bæjarútgerð
Reykjavíkur (nú Grandi hf.), Fisk-
gæði hf., Humall hf., öll í Reykja-
vík, Rækjuvinnslan hf., Skaga-
strönd, Rækjunes/Björgvin hf.,
Stykkishólmi, Síldarvinnslan hf.,
Neskaupstað, Sæver hf., Ólafsfirði,
og Verktakar hf., Reyðarfirði.
Fyrirtækin munu vinna saman að
vöruþróun en fyrst verður lögð
áhersla á innanlandsmarkaðinn.
Sú vara sem best líkar á innan-
landsmarkaðnum verður fyrst seld
á erlendan markað.
Formaður stjórnar samvinnu-
hópsins hefur verið kjörinn Svavar
Svavarsson, framleiðslustjóri
Granda hf.
Ernst Hemmingsen hagfræðing-
ur hefur verið ráðinn markaðs-
stjóri hópsins og mun hann hafa
aðsetur hjá Útflutningsmiðstöð
iðnaðarins.
Svavar sagði að hafin væri
vinnsla á karfa fyrir Japansmark-
að. Bundnar eru miklar vonir við
að í Japan verði verulegur markað-
ur í framtíðinni fyrir karfann.
Vanda verður mjög til þessarar
framleiðslu því Japanir eru mjög
vandfýsnir á þessa vöru og hafa
stöðugt eftirlit með að hún sé fersk
og góð að öllu leyti. Vinnsla þessi
fellur vel að framleiðslu fyrirtækis-
ins þannig að þegar ekki er unnið
við karfaframleiðsluna þá fer fólkið
í saltfiskvinnsluna, þannig nýtist
vinnuaflið mjög vel.
Reykjavik
í siðustu viku lönduðu togarar
alls 450 lestum. Bátar hafa landað
alls 68 lestum. Verð á þeim þorski
sem landað er innanlands er kr.
21,90 kílóið. Verð á karfa er 12,70,
stór skötubörð eru á kr. 8,30, en
út úr fiskbúð í Reykjavík 170 kr.
Sölur erlendis
Talsvert hefur verið um sölur
íslenskra skipa í Englandi í síðustu
viku. Verð á stórum þorski hefur
verið að meðaltali 55 kr. kílóið, á
millifiski kr. 50, á smáfiski kr. 43.
Fiskur á leið í skip til útflutn-
ings.
Verð á stórri ýsu var kr. 59, á
millifiski kr. 52 og á smáýsu kr. 48.
Stór koli var á 47 kr. kílóið, stór
lúða kr. 112 og karfi kr. 29. Ekki
er búist við að markaðurinn batni
næstu daga, mikið framboð verður
á enska markaðnum í næstu viku
og seinnipart þessarar. Verð á
gámafiski í Englandi: Stór þorskur
50 kr. kílóið, smáfiskur kr. 47, ýsa
kr. 54, koli kr. 57, stór lúða kr. 140,
ufsi kr. 27, stór koli kr. 58, smár
kr. 48. Ekki var fiskurinn í nægi-
lega góðu ástandi, 30% í 2. flokki.
Verðið í Þýskalandi i síðustu viku:
Þorskur 52 kr. kílóið, ýsa 49, ufsi
49, blálanga 44, karfi 53, stór lúða
199. Fiskurinn var góður, allur í
1. flokki. Ástæða fyrir því að ekki.
fæst hærra verð en raun ber vitni
er mikið framboð á fiskmörkuðun-
um og búist er við því að svo verði
fyrst um sinn.
Hamborg
Verð á norskum ufsa hefur fallið
úr 41 kr. kílóið niður í 29 kr. Ýmsar
ástæður eru taldar fyrir þessu verð-
hruni. í fyrsta lagi mikið framboð
affiski, í öðru lagi var mikil hálka
á vegum og slæmt að koma fiskin-
um til kaupenda. Gildir það sama
um danskan fisk. Reiknað er með
að markaðurinn taki ekki miklum
breytingum á meðan aðstæður
breytast ekki hvað framboð snertir.
Verð á norskum og dönskum laxi
var 240 kr. fyrir smæsta laxinn en
hæst kr. 380.
París
Verð hefur lækkað verulega síð-
ustu dagana. Mikið hefur safnast
fyrir á mörkuðunum og var verð á
kílói af norskum þorski í síðustu
viku kr. 114 að meðaltali. Verð á
stórum laxi hefur verið nokkuð
stöðugt, kr. 413. Verð á reyktum
laxi frá Noregi er 1000 kr. kílóið.
Danskur reyktur lax var í nokkru
lægra verði, kr. 930. Sama verð var
á Kanadalaxi. Ein fisktegund virð-
ist standa vel í verðstríðinu en það
eru stór skötubörð, 160 kr. kílóið,
einnig er stór ufsi i góðu verði, 90
kr. kílóið að meðaltali.
London
Að undanförnu hefur verið nokk-
uð rólegt yfir verði á fiskmarkaðin-
um, verðfall hefur þó orðið á flest-
um fiskafurðum. Verð á hausuðum
þorski, kr. 109, á rauðsprettu, kr.
80 til 85 kr., verð á ferskri síld var
29 til 53 kr. Verð á laxi hefur verið
380 kr. Þetta verð er allt miðað við
norskan fisk, ísaðan.
Madrid
Svipað verð hefur verið á hausuð-
um norskum þorski, kr. 109. Verð
á laxi hefur verið svipað og í Lon-
don.
New York
Þakkargerðarvika setti svip sinn
á markaðinn hjá Fulton í New
York þannig að ekki var mikil
eftirspurn eftir fiski síðustu viku
nóvember. Verð á stórum ferskum
laxi frá Noregi stóð þó í 460 kr.
kílóið en safnast hafði fyrir smærri
lax og var heldur lélegt verð á
honum. Verð á hörpuskelfiski frá
íslandi stóð í kr. 407 af stærðinni
40/60 (40-60 stk. i kílói) og smærri,
60/80, var á 350 kr.
Vesturströnd Bandaríkjanna
Rækjuveiðar hafa gengið vel á
þessu ári og hefur veiðin þrefaldast
á við það sem hún var á síðasta
ári. Rækjan hefur verið stór, 90/
-110 stk. i kg.
Chile
Frá Chile hafa borist til Banda-
ríkjanna 137 tonn af laxi fyrrihluta
árs 1985 að verðmæti 600 þúsund
dollarar en innflutningur þaðan
var 29 tonn á sama tíma 1984.
Perú
Gert er ráð fyrir að þrjár fiski-
mjölsverksmiðjur verði opnaðar nú
þegar ansjósuvertíðin hefst í Perú.
Verksmiðjur þessar hafa verið
lokaðar í 3 ár. Búast fiskifræðingar
við aukinni fiskgengd á miðin.
Útflutningur á fiski
til Englands
Frá 1. janúar til 30. júní höfðu
íslendingar flutt til Englands sjáv-
arafurðir fyrir rúmlega 240 millj.
kr. Á sma tíma fluttu Danir út fisk
fyrir sömu upphæð en Norðmenn
höfðu þá flutt til Englands frosinn
fisk fyrir 1.420 milljónir og ísvarinn
fisk fyrir 240 milljónir króna.
Ingólfur Stefánsson.
365 milljónum bætt í húsnæðiskerfið:
200 milljónir
tilaðlétta
greiðslubyröar
— greiðslujöf nun miðuð við kauptaxta
en ekki launataxta
Svokölluð milliþinganefnd hefur
skilað til félagsmálaráðherra álits-
gerð. Hún beinist fyrst og fremst að
þeim sem eru í greiðsluvanda. Eftir
áramót er síðan búist við annarri
skýrslu þar sem fjallað verður um
framtíðarskipan húsnæðismála og
nýtt húsnæðislánakerfi. Ríkisstjórn-
in hefur þegar fjallað um álit nefnd-
arinnar og er samkomulag um að
stefna beri að þeim atriðum sem bent
er á að þurfi að gera til að létta undir
með þeim sem eru að koma yfir sig
þaki.
Þær úrbætur sem nefndin boðar
byggjast á því að bætt verði 365
milljónum við framlag ríkissjóðs til
Byggingarsjóðs ríkisins. Ríkisstjórn-
in hefur þegar ákveðið að leggja til
að lífeyrissjóðir kaupi meira af
skuldabréfum af byggingarsjóðunum
til að fá meira fjármagn.
Úrbæturnar
Nefndin gerir ráð fyrir að á næsta
ári verði 200 milljónum króna úr
Byggingarsjóði ríkisins varið til að
létta greiðslubyrði íbúðareigenda
vegna skammtímalána. Þessir pen-
ingar verða ekki lánaðir beint úr
sjóðnum. Hugmynd nefndarinnar er
að skuldbreytingar fari fram í gegn-
um banka og sparisjóði. Maður sem
skuldar t.d. 300 þúsund krónur á
skammtímalánum getur óskað eftir
skuldbreytingu, t.d. í 10 ár. Bankinn
getur hins vegar litið svo á að hann
hafi ekki bolmagn til að skuldbreyta
til lengri tíma en til 7 ára. Láninu
verður samt sem áður skuldbreytt í
10 ár. Bankanum gefst kostur á að
selja Byggingarsjóði hluta af skulda-
bréfunum. Til þess verða þessar 200
milljónir notaðar. Þá er þess getið
að þegar hefur ríkisstjórnin lagt
áherslu á að lánum verði skuldbreytt
í bönkum.
Þá leggur nefndin til að gerðar
verði lagfæringar á ákvæðum um
tekju- og eignarskatt varðandi vaxt-
afrádrátt á lánum til íbúðarhúsnæðis
þannig að þessi réttur verði ótvíræð-
ur. Einnig að skuldbreýtingar rýri
ekki rétt til skattafrádráttar. Þá
verður einnig athugað að tengja
hámarksfrádrátt við hreina eign
viðkomandi.
Félagsmálaráðherra sagði við DV
að þegar væri byrjað að vinna að
þessum breytingum og búast mætti
við að gerðar yrðu lagabreytingar
nú fyrir jól. Nefndin leggur til að
þeir sem sækja um lán hjá húsnæðis-
stjórn og eru að kaupa eldra húsnæði
í fyrsta skipti fái lánið greitt eftir 6
mánuði. Aðrir eftir 9 mánuði. Þeir
sem eru að byggja í fyrsta skipti fái
lán í tvennu lagi. Fyrst helminginn
eftir einn eða tvo mánuði og síðan
restina eftir 6 mánuði. Lán af þessu
tagi verða 35 prósent 1. júlí af staðal-
íbúð og 40 prósent seinna á árinu.
Fyrir þá sem eru að byggja í annað
sinn eða hafa byggt oftar verður
lánum skipt í þrennt og greitt út á 6
mánaða fresti.
Breytingar á greiðslujöfnun
Það er einnig athyglisvert að
nefndin leggur til að við útreikning
greiðslujöfnunar verði miðað við
vísitölu kauptaxta en ekki launa-
taxta eins og ákveðið var í vor á
Alþingi. Þetta var nokkuð umdeilt
atriði á Alþingi í vor. Gagnrýnt var
að þegar miðað væri við launavísi-
tölu kæmu allar yfirgreiðslur inn í
útreikninginn. Guðmundur Bjarna-
son, formaður nefndarinnar, sagði
að samkomulag hefði verið um þessa
breytingu, m.a. vegna þess að notkun
launavísitölu kæmi ójafnt niður á
landsmönnum. Fullyrða mætti að
launaskrið væri mun minna úti á
landi en á höfuðborgarsvæðinu. Nú
þyrfti hins vegar að gera lagabreyt-
ingar á þessu ákvæði.
APH
í dag mælir Dagfari
I dag mæiir Dagfari
I dag mælir Dagfari
Happdrættisrannsókn án tafar
Það hrökk margur eyminginn
í kút þegar Háskólahappdrættið
kunngerði úrslit úr síðasta
drætti. Ófáir höfðu horft vonar-
augum til þessa dráttardags
með þá bjartsýni í huga að ef til
vill fengist nú loksins einhver
vinningur sem gæti létt undir í
lífsbaráttunni þegar jólagjafa-
bölið stendur sem hæst. En
hvað kemur á daginn eftir að
hinn langþráði dráttur hafði
loks verið framkvæmdur? Jú,
Happdrætti Háskólans hirti hátt
í 20 milljónir króna af vinning-
unum. Hér er greinilega maðk-
ur í mysunni. Happdrættið aug-
lýsir stíft vinningsvonir og vinn-
ingsupphæðir sem í boði eru.
Sauðsvartur almúginn lætur sig
auðvitað engu skipta hvort
Háskólinn er á hausnum eða
ekki en kaupir miða í þeirri von
að fá vinning. Happdrættið
heldur því fram að fjórði hver
miði gefi vinning og í framhaldi
af því kaupir margur maðurinn
fimm miða til að vera öruggur,
eins og gefur að skilja. Auk þess
ero birtar hástemmdar auglýs-
ingar um þær upphæðir sem um
er dregið hverju sinni. Hins
vegar er þess hvergi getið að
einn aðili þarf ekki að kauþa
miða eða huga að endurnýjun
mánaðarlega en spilar samt
með. . . Það er happdrættið
sjálft. Fyrirsögn á baksíðu
Morgunblaðsins i gær segir að
hæsti vinningshafinn hafi hlotið
sex milljónir króna í Happdrætti
Háskólans. Hér er auðvitað um
hina örgustu fréttafölsun að
ræða því við lestur fréttarinnar
kemur í ljós að Happdrætti
Háskólans fékk annars vegar
tíu milljónir á trompmiða og
hins vegar fimm milljónir á
annan trompmiða. Ekki er getið
smærri vinninga í umræddri
frétt en hins vegar blandast
engum hugur um að sigurvegari
jóladráttarins er happdrættið
sjálft.
Þessa dagana eru vissir al-
þingismenn ákaflega rannsókn-
arglaðir. Það væri því ekki úr
vegi að einhver þeirra manna
færi fram á opinbera rannsókn
á starfsemi Happdrættis Há-
skólans og annarra happdrætta
í leiðinni.
Það hlýtur hver heilvita mað-
ur að sjá að svona blekkinga-
riðja getur ekki haldið áfram án
afskipta hins opinbera. Hver er
happdrættisskatturinn á hverja
fimm manna flölskyldu í
landinu? Hversu mikið fé borga
fátækir verkamenn til happ-
drættis sem hirðir svo þá vinn-
inga sem búið er að gefa í skyn
að muni renna til þeirra skatt-
borgara sem af súrum sveita
reiða fram fé í happdrættishít-
ina. Hér er um slíkt stórmál að
ræða að það á ekkert betra ski-
lið en opinbera umræðu undir
stjórn Ólafs Ragnars Grímsson-
ar. Vel að merkja, er sá maður
ekki enn á launum hjá Háskóla
íslands? Eru honum kannski
greidd laun úr sjóðum happ-
drættis sem liggur á því lúalagi
að blekkja fólk til að kaupa
happdrættismiða sem fyrirfram
er búið að ákveða að séu eign
Háskólans? Og svona í leiðinni,
hver greiðir ferðakostnað Ólafs
Ragnars út um allan heim í
þeim friðarferðum sem hann
segist standa í? Þetta verður
auðvitað að rannsaka í leiðinni.
Þar sem Alþingi á hér hlut að
máli, enda starfa bæði happ-
drættin, það er að segja Ólafur
Ragnar og Háskólahappdrættið,
undir lögum frá Alþingi, verður
að skipa almenna borgara í
rannsóknarnefndina. í þessu
sambandi þarf að upplýsa
margt. Til dæmis hvers vegna
húsakynni Happdrættis Háskól-
ans eru ekki flóðlýst á kvöldin.
Hefur happdrættið svona mikið
að fela eða hvað? Ekki skal farið
lengra út í þessa sálma að svo
komnu máli enda hljóta þessi
mál að fá ítarlega umfjöllun í
fréttum fjölmiðla eftir að Ólafur
Ragnar hefur verið tengdur
þeim. f lokin er aðeins rétt að
benda fréttamönnum á að afla
nákvæmra upplýsinga um þá
banka sem hafa tekið þátt í að
fjármagna rekstur Háskóla-
happdrættisins svo og hvaða
hliðarfyrirtæki tengjast þessum
rekstri hugsanlega - með eða
án flóðlýsinga. - Dagfari.