Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1985, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1985, Síða 16
16 DV. FIMMTUDAGUR12. DESEMBER1985. Spurningin Hefur þú fengið keðjubréf? Tove Bech, húsmóðir:Nei, en ég veit vel hvernig bréf það eru. Ég þekki að vísu engan sem hefur fengið svoleiðis bréf. Það er engin ástæða til að óttast þau. Hver heldur þú að trúi á svona vitleysu? Þórir Kjartansson, íþrótta- kennari:Nei, en ég þekki marga sem hafa fengið svoleiðis bréf en fáa sem hafa svarað þeim. Fólk tekur þessu mjög illa og er hrætt við hótanirnar sem fylgja. Ég myndi aldrei svara keðjubréfi, ekki nenna að standa í því. Sigurður Hannesson, múrari: Nei, en ég hef séð margar útgáfur af þeim. Það má ekki slíta keðjuna, þá er margt í húfi. Æ, ég myndi bara láta það eiga sig ef ég fengi svona og ekkert vera hræddur við það. Erna Kristjánsdóttir, gjald- keri:Já, 4 eða 5 og bara rifið þau. Það hefur ekki haft neitt slæmar afleiðingar fyrir mig. En það eru sumir hræddir. Mín hafa ekki verið svo ógeðsleg eins og mér skilst að þau geti verið. Hafþór Óskarsson, nemi:Nei, en ef ég fengi þá myndi ég ekki slíta keðjuna heldur senda vinum og kunningjum. Það er gaman að svona bréfum og smá félagsskapur þó í orði sé. Ég væri ekkert hræddur við að slíta en það gæti haft eitthvað gott í för með sér ef maður tæki þátt í þessu. Það fer að vísu eftir því hver stendur að baki bréfinu. Halla Katrín, sölumaður:Ekki ég en bróðir minn. Hann sendi áfram og hélt að hann fengi þá eitthvað, kannski tyggjó. En hann fékk ekki neitt. Það fer eftir því hvernig bréf ég fengi hvort ég yrði með eða ekki I en ég myndi ekki taka mikið mark á \ svona bréfum. Lesendur Lesendur Lesendur Ólánsamur ökumaður: Fyrir nokkru varð ég fyrir óhappi sem svo marga hendir í umferðinni í Reykjavík þrátt fyrir ítrustu aðgæslu ökumanna samkvæmt margendurteknum tilmælum Um- ferðarráðs; ég nefnilega lenti í árekstri. Það vildi til á horni Grensásveg- ar og Miklubrautar þann 30. sept- ember sl. Ég var á svörtum Datsun en hinn billinn var rauð Mazda. Auðvitað átti ekki að verða neinn árekstur þarna þar sem götuljós eru til að greiða fyrir áfallalausri umferð. En annaðhvort hef ég eða bílstjóri Mözdunnar misskilið ljós- in. Hann segir að ég hafi keyrt yfir á rauðu en ég held því fram að hann hafi keyrt yfir á rauðu og ég á grænu. Hvernig sem við körpum um þetta fram og aftur þokast aldrei neitt í samkomulagsátt enda þykj- umst við báðir hafa greint ljósin rétt. Mér finnst með ólíkindum hvað tveir menn geta verið ósam- mála um jafneinfalt mál. Til að þessi deila megi taka enda og við getum farið að hugsa um eitthvað annað en götuljós vil ég biðja ajla þá sem geta gefið upplýs- ingar um hvernig ljósin voru, þegar rauða Mazdan skall á Datsúninum mínum, að hafa samband við mig í síma 43426 Götuljós eiga að greiða fyrir áfaUalausri uniferð , en til þess þurta allit aó »«"* Þ»u ré“ Hver ók yf ir á rauðu? Ég vil fá gallann Ein sem bíður: Ég vil taka undir orð mannsins sem lét í sér heyra í sambandi við verð- launin hjá rás 2. Ég tók þátt í getraun hjá þeim í júlí í sumar í þætti sem hét Lög og lausnir. Ég var svo „hepp- in“ að vinna íþróttagalla, en hef bara ekki fengið hann enn. Ég skrifaði til þeirra á rás 2 og það oftar en einu sinni, en samt hef ég ekkert heyrt frá þeim. Mér finnst þeir ekkert eiga með að lofa verðlaunum nema þeir standi við það. Annars er rásin alveg við mitt hæfi, gott fólk og góðir þættir. Ef þeir sem vinna við úthlutun vinn- inga hjá rás 2 sjá þessar línur og vilja bæta ráð sitt að því leyti sem um ræðir þá er nafnið mitt að fá hjá lesendaþjónustu DV. Hvenær fá íbúar þessa fallega bæjar að hlust á rás tvö? Fyrst rás tvö, síðan rás þrjú Fréttaritari DV, Flateyri: 177 íbúar á Flateyri við Önundar- (jörð skora hér með á yður, herra útvarpsstjóri, að þér beitið yður fyrir því að útsending rásar tvö nái hingað til okkar sem fyrst. Við teljum það sjálfsagt réttlætis- mál þar sem dagskrá rásarinnar hefur verið efld til muna og mörgum áhugaverðum atburðum gerð þar sérstök skil. Það er mikið hagsmuna- mál fyrir landsbyggðina að njóta sömu réttinda og Reykjavíkursvæðið varðandi opinbera þjónustu. Sé það rétt að hefja eigi á næstunni útsend- ingu á rás 3 fyrir Reykjavíkursvæðið finnst okkur að skilyrðislaust beri að ljúka áður dreifikerfi rásar tvö um allt land. Með von um skjót viðbrögð í þessu máli óskum við Ríkisútvarpinu alls hins besta í framtíðinni. Það voru góðir menn sem stóðu að byggingunni en ég vil að nafninu verði löglega breytt. Kallið það ekki Klepp Ónafngreindur skrifar: Það er illgirni og mannvonska að kalla staðinn Klepp því hann á skilið *****, þ.e.a.s. eins margar stjörnur og hægt er að gefa besta hóteli. Svo flottar eru innréttingar á þeim deild- um sem búið er að breyta. Þarna innfrá er hægt að fá alls konar þjálfun, bæði í sambandi við listsköpun og tjáningu. Þjálfun hug- ans, sem fram fer með samræðum í hópum og því að teikna á töflu, er sambærileg við að vera í háskóla. Ungir Ijóshærðir menn Gömul kona þakkar: Mig langar að þakka ungu, ljós- hærðu mönnunum tveim í videóleig- unni að Háteigsvegi 52 fyrir mikil liðlegheit. Ég er komin af léttasta skeiði og sé illa en þó nógu vel til þess að laugardagskvöld eitt fór ég þangað að velja mér myndir fyrir helgina. En það er nú víst fleira en sjónin farin að gefa sig því ég gleymdi að taka með mér gleraugun. Hamingjan hjálpi mér! hugsaði ég og tautaði í barminn: Nú er ég bara alveg eins og blindur kettlingur. En þegar neyð mín var stærst komu tveir ungir, ljóshærðir menn og hjálpuðu mér. Þeir leiðbeindu mér við val mynda og þegar ég kvaddi þá ákvað ég að sýna þeim þakklæti mitt með því að skrifa um þá í blöðin. Mér finnst líka allt of mikið um kvartanir í blöðunum en ég kvarta sko ekki yfir myndunum sem ég fékk, þær voru alveg stórgóðar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.