Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1985, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1985, Page 18
■ 18 Gleðivaki Ég held glaöur jól - hljómplata með söng Kristins Sigmunds- sonar og Mótettukórs Hallgrímskirkju við hljóöfæraleik undir stjórn Harðar Áskelssonar. Upptaka: Halldór Vikingsson. Umslag: Sigurþór Jakobsson. Ljósmyndir: Sigurgeir Sigurjónsson. Skurður: Tape One. Pressun: Alfa. Útgefandi: Örn og Örlygur. Jólaplata er orðið að hugtaki sem fær hroll til að setjast að sumu fólki. í skjóli óprúttinnar sölu- mennsku hafa ýmsir komist upp með að selja alls kyns glutursöngva undir merkjum jólatónlistar svo að þegar á markaðinn kemur hljóm- plata með öðru efni en forpoppuð- um aðventusöngvum og ladderíi jólasnoddasanna rekur mann i rogastans. Einn slíkur undrunar- og gleðivaki barst á markað í byrj- un jólaföstu, hljómplatan „Ég held glaður jól“. Titillinn er tekinn úr einu erinda sálmsins „Sjá himins opnast hlið“. „I túninu heima“ getur Halldór Kiljan Laxness þess að hann hafi spurt ömmu sína hvort hún hlakkaði ekki til jólanna og þar stendur. „Amma mín taldi það jólunum helst til gildis að þá væri súngið uppáhalds sálmalag hennar In dulci jubilo, Sjá himins opnast hlið.“ Sálmurinn sá hefur reyndar fyrr ómað á plötu með ís- lenskum kirkjukór, eins og íjórir aðrir af umræddri plötu. Síst ber það að lasta og samanburðurinn verður til þess að undirstrika hversu geysigott hljóðfæri Mót- allur er leikurinn til fyrirmyndar. Því má líka þakka útsetningunum sem einatt falla fjarska vel saman. Hljóðfæraraddirnar notaðar til stuðnings og skrauts án þess að nokkurs staðar sé ofhlaðið. Það hlýtur að liggja í helgi jólalagsins að svo ólíkir menn sem Atli Heimir Sveinsson, Jón Þórarinsson og David Willcocks virðast vinna sitt handverk með sama lagi. En ekki er aðeins að góðar útsetningar, vel sungnar og leiknar, séu á plötunni. Atriðunum er líka raðað þannig upp að fram kemur markviss stíg- andi á hvorri síðu fyrir sig. Þar er byrjað á hinum einfaldari, gömlum jólasálmum, síðan farið yfir í hina ensku aðventusöngva með ögn líf- legra yfirbragð og endað á tindin- um, aríunum úr kantötu Bachs og Jólaóratoríunni. Þó svo að menn þykist geta hlustað á hvern bita einnar plötu úr samhengi eins og þeim sýnist þá verður ein hljóm- plata aldrei listaverk nema hún lúti eðlilegum kröfum um form- gerð og hér vantar ekkert upp á að þeim sé hlýtt. Tónlist EYJÓLFUR MELSTEÐ Réttara að hafa samræmi í öllu Upptakan er vel gerð og eftir- vinnan í góðu lagi. Tekið var upp ettukór Hallgrimskirkju er orðinn í höndum Harðar Áskelssonar á ekki lengri tíma en um það bil þremur árum. Að gera mikið úr litlu Þáttur kórsins er mikill og góður á plötunni, en skrautfjöður í hatt- inn er einsöngur Kristins Sig- mundssonar. í lokaverkum hvorrar síðu er söngur hans stórglæsilegur. En samt er það meðferð hans á því sem smærra er í sniðum, eins og lagi Sigvalda Kaldalóns, Nóttin var sú ágæt ein, sem lyftir hugan- um hæst. Snilldin fellst ekki síst í að gera mikið úr litlu án þess að þurfa að reyna að belgja það út. Hljóðfæraleikurinn er líka mjög góður. Ef hægt er að tala beint um hápunkta koma trompetleikurinn í brotunum úr Kantötu nr. 110 og Jólaóratoríu Bachs og óbóleikur- inn 1 „Nóttin var sú ágæt ein“ fyrst fram í hugann. Samt er tæpast rétt að telja þar eitt umfram annað því á tveimur stöðum, í Hallgríms- kirkju og Kristskirkju. Það heyrist að sjálfsögðu í mismunandi tónblæ á plötunni en gerir lítið til því að músíkinni er í báðum tilvikum komið vel til skila. En óneitanlega hefði verið réttara að hafa sam- ræmi í einu og öllu. Hins vegar get ég mér til að þar hafi til dæmis val á orgelum, og líkast til fleiri þættir, ráðið nokkru um. Útlit og frágangur umbúða eru smekklega og vel unnir þættir útgáfunnar, unnir af Sigurþór Jakobssyni og Sigurgeiri Sigur- jónssyni. Platan fæst einnig sem snælda en ekki hef ég fengið að hlýða á hana og hef því enga hugmynd um hvemig til hefur tekist um vinnslu hennar. En rétt þykir mér að benda á, þótt það sé öldungis óvíst í þessu tilviki, að ekki fara alltaf saman í íslenskum útgáfum gæði hljóm- plötu og tilsvarandi snældu. En plötunni er óhætt að mæla með - Hún er sannkallaðurgleðivaki.EM DV. FIMMTUDAGUR12. DESEMBER1985. Menning Menning Menning Guólaugur Arason SÓLA, SÓLA Skáldsaga 218 blaðsíður Mál og menning 1985 Það þykir tíðindum sæta þegar þekktur höfundur rýfur alllanga þögn með nýrri skáldsögu. í þetta sinn er það Guðlaugur Arason, sem þagað hefur eða talað lágt norður á Akureyri í fimm ár. Skáldsagan Sóla, Sóla er að mörgu leyti ris- mesta verk Guðlaugs hingað til og sýnir að höfundurinn er vel íþrótt- um búinn, textinn vandaður og vel stílaður. Sóla, Sóla markar þó varla tímamót á höfundarferli Guðlaugs. Líkt og oftast áður fæst hann við vandamál íslensks fjöl- skyldulífs á raunsæislegan hátt, setur þau þó í víðara samhengi en fyrr, metnaðurinn meiri. Skrifar og nær sjálfum sér, líkast til. ímynd- unaraflið er einnig frjálsara og ekki allt sem sýnist. Guðlaugur dregur ekki upp svarthvíta mynd af mannlegum samskiptum í þess- ari bók eins og t.d. í Eldhúsmellum; lýsir þeim þess í stað á býsna trú- verðugan hátt, persónusköpun til muna þroskaðri en fyrr. Sagan snýst og að miklu leyti um „reynsluheim karla“ sem nú mun vera i tísku af ókennilegum ástæð- um. Saga úr fortíð og samtíð I Sólu, Sólu tengjast saman tveir söguþræðir, annar úr samtíð, hinn úr fortíð. Ungur rithöfundur hittir aldraða konu á elliheimili og hrífst mjög af persónuleika hennar og frásagnargáfu. Konan heitir Sóla, jafngömul öldinni, og segir hún pilti ættarsögu sína, sem hefst snemma á 17. öld og nær fram til kreppuáranna um 1930. Framan af er sagt frá með ágætum og les- andinn leiddur inn í heim fátæks fólks á Ströndum, fólks sem í senn er listrænt og göldrótt og nábundið hafinu. I efninu býr þjóðsöguleg dul og þótt heimildanotkun sé augljós er skáldskapurinn ráðandi. Höfundur segir frá á hefðbundinn og hlutlægan hátt, lætur það vel og dregur upp margar minnilegar myndir af þjóðlífi og náttúru, venslum þeirra. Þegar líður á sögu Sólu sjálfrar verður hins vegar spennufall, seiðurinn hverfur úr frásögninni og upplýsingin tekur Guðlaugur Arason. við - sögulegar staðreyndir verða ráðandi. Saga Sólu er fleyguð af annarri sem sögð er á gjörólíkan hátt - í fyrstu persónu eintölu; andstæða fortíðar og nútíðar birtist á þann máta í frásagnarhættinum sjálfum. I þess- um hluta er rithöfundurinn sjálfur sögumaður, kallaður Hjalli, lista- maður og eldhúsgígóló, reyndar lítt dugandi í þeirri grein vísinda. Sambýliskonan er hins vegar sál- fræðingur hjá Sálfræðideild skóla á Akureyri, áhugamanneskja um ameríska karlmenn en lítt höll undir andlega mennt. Hann hug- fanginn af barni sem hún ber undir belti og þyngir hug hans eins og gamla Sóla, raskar hinum venju- bundna gangi. Af þeim sökum tek- ur hann sig til og skrifar því um þann heim sem bíður, segir frá skoðunum sínum, líðan og sam- skiptum við konu og tengdafor- eldra, lýsir á þann hátt sjálfum sér best. Margir lesendur munu án efa sjá sjálfa sig i persónunum að meira eða minna leyti, lifa sig inn í örlög þeirra, enda er munstrið gamalkunnugt: strið og kergja, afbrýði og eigingirni, ást - og sambandsleysi. Frásögnin hnitast og um alþekkt vandamál: réttleysi feðra. Guðlaugur lýsir mætavel tilfinningaflækju karlmanns sem sviptur er bami sínu. Sagan að því leyti gott innlegg í umræðu við lok kvennaárs. Á hinn bóginn finnst mér Guðlaugur halda sig um of á grunnu í persónusköpun sinni. Persónur hans eru full„hversdags- legar“ og ástæður þeirra um of einfaldar til að þær rísi og verði að ágengum og minnisstæðum skáldskap. Hann leggur ekki út á neitt djúpleiði í þeim efhum. Hvað ertu að kvarta, maður í kúskinnsskóm? Skáldsaga Guðlaugs gerist á tveim- ur tímasviðum, eða, öllu heldur, þremur. Rithöfundurinn, sem segir frá, er stadduur i óráðinni nútíð en horfir í senn til fortíðar og fram- tíðar. Sér á aðra hlið hefur hann deyjandi konu, á hina fóstur í móðurkviði - tvær Sólur. Þegar myrkrið sækir að og smáveröld hans hrynur hjálpa þær honum til að ráða fram úr sjálfum sér, takast á við eigingirni sína, þröngsýni og ófrjóa kvöl - líta til sólar á nýjan leik. Dauði og lífgjöf fylgjast að, eða, eins og segir við sögulok: Glæsileg og gagnleg bók FUGLARNIR OKKAR Texti: Stefán Aöalsteinsson. Ljósmyndir: Grétar Eirfksson o.fl. Útg.: Bjallan, 1985. Bjallan er bókaútgáfa sem einkum gefur út barnabækur og eina forlagið sem sýnir verulegan metnað í útgáfu fræðibóka fyrir börn. Fyrir þremur árum sendi Bjallan frá sér hina einstöku bók, Húsdýrin okkar, sem bætti úr brýnni þörf. Nú kemur á markað frá Bjöllunni Fugl- arnir okkar sem er ekki síður gagn- leg og glæsileg. Hún er gefin út í sama broti og Húsdýrin okkar og eins og sú síðarnefnda prentuð á þykkan glanspappír með stóru, skýru letri og prýdd fjölda litmynda. Um það bil helmingi íslenskra fugla er lýst í bókinni, eða 35. Sjö spörfuglar fá þar umfjöllun, einn hænsnfugl, sjö vaðfuglar, þrír rán- fuglar og sautján sundfuglar. Spörfuglar „Hrafninn er fyrsti fuglinn sem nefndur er í sambandi við landnám á fslandi." (Bls. 6.) Fer þá líka vel á því að höfundur velji honum stað fremst í riti sínu. Enda er krummi sá fugl sem hve mest og nánast teng- ist lífi og menningu fslendinga: þjóð- trú, hjátrú, þjóðsögum og skáldskap, en um fáa fugla hafa líklega verið ortar jafnmargar og snjallar bögur. í þessum kafla er margan fróðleik að finna um krumma, allt frá sam- fylgd hans við Hrafna-Flóka forðum og til fræðilegri vitneskju, s.s. um þyngd hans, litarhátt, fótlag, fæðu, varpstaði o.s.frv. Til viðbótar hefði verið gaman að fá vitneskju um hvernig hrafninn athafnar sig við hreiðurgerðina og hvað hann notar við hana. Þennan sama fróðleik finnst mér vanta um aðra spörfugla (nema músarrindil og sólskríkju), það er ekki nóg fyrir börn að fá að vita að skógarþrösturinn verpi í trjám og hrafninn byggi sér hreiður á stöðum sem erfitt er að komast að. Þau vilja líka vita hvernig hreiðrið er og hvernig það er búið til. Önnur ónákvæmni við textagerðina er að þar örlar stöku sinnum á skipulags- leysi. Sem dæmi um þetta má nefna að á bls. 8 segir frá því að meðan byggð var dreifð í landinu hafi hrafnar skipt sér á bæi og verið kallaðir bæjarhrafnar. Þremur dálkum síðar, á bls. 9, kemur svo þessi setning á milli annarra lítt skyldra: „Áður fyrr töldu menn að hrafnar kæmu saman á þing á hverju hausti ög skiptu sér á bæina yfir veturinn." Á eftir krumma fjallar Stefán um sex aðra spörfugla hvern fyrir sig. Fáum við að vita um ferðir þeirra, varp, heimkynni og helstu sérkenni. Þessir kaflar eru hnitmiðaðir og skipulegir. Gaman er t.d. að lesa um starrann sem við höfum varla viður- kennt sem íslending þó að hann hafi dvalið hér í u.þ.b. 4Ö ár. Hann hefur sín skemmtilegu sérkenni s.s. aðrir fuglar. Hér verðum við líka margs vísari um músarrindilinn sem aðeins vegur 14-16 grömm og dregur nafn sitt af líkingu við músina. Rjúpan-ránfuglar Mjög skilmerkilegur kafli er um rjúpuna og skiptist hann í undirk- afla. Þarna er t.d. að finna dæmi um þjóðtrú tengda rjúpunni og er líklega ágætt á þessum árstíma að hafa í huga að: „Ætíð er sultur og seyra í þvi búi þar sem mikið er veitt af rjúpum." (Bls. 20.) Vaðfuglum og sundhönum eru gerð góð skil. Einkum er gaman að lesa um mektarfuglana lóu, spóa og hros- sagauk sem syngja inn sumarið og spá um farsæld þess hvert vor. Haförn, fálki og brandugla fá hvert sinn kafla og er þar viðeigandi fróð- leik að finna. Sama má segja um álftina, gæsir, stokkönd, hávellu, straumönd og húsönd (ég sakna þess reyndar að ekki er sagt frá hvernig nafn hennar er til komið). Níu teg- undum sjófugla er hér lýst skilmerki- lega og endað á skrautfuglinum himbrima. Flestir þeir fuglar sem hér er lýst eru vel þekktir og auk þess eru nefndir allir sjófuglar íslenskir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.