Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1985, Page 20

Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1985, Page 20
20 DV. FIMMTUDAGUR12. DESEMBER1985. DV. FIMMTUDAGUR12. DESEMBER1985. 21 Iþróttir íþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Karl Heins Rummenigge. Rummenigge markahæstur — í 1. deildinni á (tah'u Vestur-þýski landsliðsmaðurinn kunni, Karl Heinz Rummenigge, er nú markhæstur í l.deildinni á Italíu. Hefur skorað átta mörk, skoraði eitt sl. sunnudag, þegar Inter og Torino gerðu jafntefli, 3-3, í Milano. Preben Elkjær, Daninn snjalli, og Aldo Ser- ena, Juventus, koma næstir með sjö mörk. Preben skoraði bæði mörk Hellas Verona í 2-0 sigrinum á Bnri á áúnnudag. f>á virðist Svíinn Dan Corneliusson vera að ná sér verulega á strik með Como. Hann skoraði enn einu sinni á sunnudag - annað mark- ið í sigrinum þýðingarmikla á úti- velli gegn l.ecce 1-4 í leik botnlið- anna. Það var íjórða mark Svíans í síðustu umferðunum. -hsím Fyrsta mark Gibsons — þegarMan. Utd og Norwichgerðu jafntefii, 1:1 Lítii brcyting varð í gærkvöldi á slæmu gengi Manchester United í ensku knattspyrnunni undan- farið í gærkvöidi. United lék gegn Norwich í Super Cup og lauk leiknum með jafntefli, 1:1, og er Manchester United þvi úr leik í keppninni. Það var David Will- iams sem skoraði fyrir Norwich strax á 9. mínútu en nýi leikmað- urinn hjá United, Colin Gibson, náði að jafna á 71. minútu. Hans fyrsta mark frá þvi hann var keyptur frá WBA fyrir skömmu. United þurfti að vinna, 0:2, i þessum leik til að komast áfram í keppninni. - SK. Blak knan tröppugangur mmc r mm mðuravið Blak HK-manna gegn ÍS á íslands- móti karla í fyrrakvöld var tröppu- gangur niður á við. Kópavogsmenn náðu góðri forystu í fyrstu hrinu með erfiðum uppgjöfum Skjaldar Vatnar Bjömssonar og sigruðu í hrinunni, 15-12. En eftir þetta var úr þeim allur vindur. Stúdentar tóku aðra hrinu 15-8, þriðju 15-5 og enn minnkaði geta HK-manna í fjórðu hrinu sem ÍS vann 15-3. Þorvarður Sigfússon, ÍS, lck manna best. -KMU. Kristján ekki með Kristján Arason, landsliðsmað- ur í handknattleik, mun ekki geta leikið með íslenska landsliðinu í handknattleik sem mætir því spánska annað kvöld í Laugar- dalshöll. Óvíst er hvort Kristján getur leikið síðari leikinn gegn Spánverjunum á sunnudaginn. Hann er meiddur í baki en ekki eru þau meiðsli þó talin alvarlegs eðlis. Það verður nokkur blóð- taka fyrir landsliðið að missa Kristján, sérstaklega þegar varn- arleikurinn er hafður í huga. Alfreð Gíslason getur heldur ekki leikið með íslenska liðinu gegn Spánveijunum. Hann leikur með liði sínu, Essen, um helgina. - SK. Tatum O’Neal er óf rísk Tennisstjarnan bandaríska, John McEnroe, tilkynnti í nótt að hann ætti von á barni með leikkonunni heimsfrægu Tatum ÓNeal. McEnroe tilkynnti þetta á blaðamannafundi í nótt. Hann sagðist ekki geta sagt nánar frá sambandi sínu við leikkonuna. - SK. Sigurður Gunnarsson er hér í þann veginn að skora eitt af mörkum sínum í leik nýverið með Tres de Mayo á Spáni gegn Athletico Madrid. Sigurður verður í sviðsljósinu annað kvöld þegar Islendingar mæta Spánverjum í Laugardalshöll. „Ættum að geta unnið Spánverja ef vel geng — segir Sigurður Gunnarsson, landsliðsmaður í handknattleik, sem leikur á Spáni. ísland mætir Spáni annað kvöld. Alonso og Miguel ekki með „Þetta verða örugglega hörku- leikir og við munum gera allt sem við getum til að leggja Spánverj- ana að velli. Þeir eru með mjög sterkt lið og verða erfiðir viður- eignar. Þess vegna er það mjög mikilvægt að handknattleiksunn- endur láti sig ekki vanta á leikina. Þeir hafa sýnt að þeir ráða oft úrslitum,“ sagði handknattleiks- maðurinn Sigurður Gunnarsson í samtali við DV í gærkvöldi, en Sigurður leikur sem kunnugt er á Spáni með Tres de Mayo ásamt Einari Þorvarðarsyni. „Spánverjarnir hafa lítið sem ekk- ert leikið undanfarið af landsleikj- um. Þeir fá svipaðan tíma til undir- búnings fyrir HM eins og við. Þeir hófu æfingar fyrir keppnina 3. des- ember og leika nokkra landsleiki í Evrópu að loknum leikjunum gegn okkur. Spánverjar eru með eitt besta landslið í heimi að mínu mati en ég held að við ættum aða geta staðið verulega í þeim og jafnvel unnið þá ef vel gengur og áhorfendur verða með á nótunum. Spánverjar eru gjarnijr á að fara á taugum ef á móti blæs þannig að hlutverk áhorfenda í landsleikjunum verður stórt um helgina," sagði Sigurður Gunnars- son í gærkvöldi. ALONSO KEMUR EKKI Spánverjar mæta hingað með sitt sterkasta lið að því undanskildu að Cecilio Alonso einn besti handknatt- leiksmaður Spánverja í mörg ár kemur ekki með liðinu hingað til lands. Alonso leikur með Atletico Madrid. Markvörðurinn De Miguel, sem leikur með Tecnisan en lék með Barcelona í fyrra, kemur heldur ekki með spánska landsliðinu hingað vegna meiðsla. Það mun sem sagt vanta þá Kristj- án Arason og Alfreð Gíslason í ís- lenska liðið og Alonso og De Miguel í það spánska. í bæði lið vantar sem sagt tvo fastamenn. Það ætti ekki að breyta því að um hörkuleik verði að ræða í Laugardalshöllinni annað kvöld. Þeir áhorfendur sem mættu á leik Islands og Vestur-Þjóðverja á dögunum voru ekki sviknir af veru sinni í Höllinni. Allir handknattleik- sunnendur ættu að sameinast í því að troðfylla Höllina annað kvöld og taka Spánverjana á taugum og hvetja íslenska liðið til sigurs. Siðari landsleikur þjóðanna fer fram í Di- granesi í Kópavogi á sunnudaginn. - SK. UEFA-keppnin í knattspyrnu í gærkvöldi: MARTRÖD ÞÝSKRA GEGN REAL MADRID Gladbach vann fyrri leikinn, 5:1, en tapaði síðan, 0:4, á Spáni í gærkvöldi og er úr leik Efsta liðið í spönsku 1. deildar- keppninni i knattspyrnu, Real Madrid, kom verulega á óvart í gærkvöldi þegar liðið sló þýska liðið Borussia Mönchengladbach út úr 16-Iiða úrslitunum í UEFA- keppninni. Gladbach vann fyrri leikinn í Þýskalandi, 5:1, og eftir þau úrslit varð allt vitlaust á Spáni og mátti þjálfari Real Madrid þakka fyrir að halda stöðu sinni hjá liðinu. Heldur festist hann í sessi eftir úrslitin í gærkvöldi en Real Madrid sigraði, 4:0. Áhorfendurnir á leikvelli Real Madrid í gærkvöldi, 90 þúsund talsins, trylltust af fögnuði þegar Santilliana skoraði fjórða mark Real Madrid á síðustu mínútu leiksins og það nægði liðinu til að komast i 8-liða úrslitin á úti- markinu. Valdano skoraði tvö mörk á 5. og 17. mínútu og Santill- iana skoraði einnig tvö á 77. og 89. mínútu. önnur úrslit í gærkvöldi: Legia Varsjá - Inter Mílanó 0-l(eftir framlengingu), samanlagt 0-1. Hadjuk Split-Dnepr 2-0(3-0). Köln-Hammarby 3-l(4-3). Nant- es-Spartak Moskva 1-1(2-1). AC Mílanó-Waregem 1—2(2—3). Neuc- hatel Xamax-Dundee Utd 3-1 (4-3). Sporting Lissabon-At- hletico Bilbao 3-0(4-2). Butragueno og félagar í Real Madrid unnu eftirminnilegan sig- ur í gærkvöldi. getspakur Guðjón Guðmundsson, liðs- stjóri íslenska landsliðsins í hand- knattleik, er ekki bara góður söngvari heldur greinilega get- spakur maður með afbrigðum. Guðjón hefur á undanförnum mánuðum og árum sannað þessa sérgáfu sína þegar hann hefur spáð fyrir um úrslit í leikjum ís- lenska landsliðsins. Hefur það heyrt til undantekninga ef kapp- inn hefur ekki haft rétt fyrir sér þegar upp hefur verið staðið. Fyrir um það bil ári lék íslenska landsliðið gegn því júgóslavneska í Laugardalshöllinni. Fyrir þann leik, sem hér um ræðir, sagði Guðjón að íslenska liðið myndi ekki eiga í erfið- leikum með andstæðinga sína og spáði íslandi sjö marka sigri. Þeir voru margir sem brostu að þessari spá „Gauba,, en leiknum lauk með sigri íslands, 20-13. Annað dæmi um getspeki Guðjóns: Fyrir rúmu ári lék íslenska landslið- ið tvo landsleiki við Dani í Dan- mörku fyrir Polar Cup mótið í Nor- egi. Fyrir fyrri leikinn sagði Guðjón Guðmundsson að Island myndi sigra 19-21 og það stóð heima. Nýjasta dæmið um getspeki liðs- stjórans er síðasti landsleikurinn gegn Vestur- Þjóðverjum á dögun- um. Guðjón spáði íslandi þriggja marka sigri og leiknum lauk sem kunnugt er með sigri Islands, 20-17. Þeir sem vilja fá að vita hvernig íslenska landsliðinu muni vegna á HM í Sviss geta haft samband við GuðjónGuðmundsson. - SK. „Attum annað stigið fylK- legaskiRó” — sagði Geir Sveinsson eftir eins markstap u-21 landsliðsinsgegn Svíum „Þetta er fyrsti leikur okkar þar sem við virkilega náum að halda haus í sextíu mínútur.Við áttum annað stigið fyllilega skilið en óheppni á lokamínútunum kom í veg fyrir að við næðum jafntefli. Ég er bjartsýnn á að við náum að vinna Sviss með sex mörkum og tryggja okkur þar með leik um 7-8 sætið,“ sagði Geir Sveinsson, einn leikmanna íslenska lands- liðsins er tapaði með eins marks mun fyrir Svíum, 19-18, á HM á Ítalíu í gærkvöldi. Svíar, sem hafa verið með yfir- burðalið á mótinu til þessa, hófu leikinn með fyrstu fjórum mörkunum sem flest voru skoruð úr hraðaupp- hlaupum. Það blés því ekki byrlega fyrir landann á fyrstu mínútunum. Svíar komust síðan í 5-1 áður en íslenska liðið, með markvörðinn Magnús Ingá Stefánsson í farar- broddi, fór að sýna sitt rétta andlit. Náði að jafna leikinn, 6-6, og komast einu marki yfir fyrir hlé, 8-7. Svíar náðu þriggja marka forskoti í byrjun síðari hálfleiks, 11-8, en ís- lendingar jöfnuðu, 13-13. Síðan var jafnt á öllum tölum til 17-17. Svíar skoruðu, 18-17, og íslendingar mis- notuðu síðan vítakast. Gylfi Birgis- son skaut í stöng og Svíar bættu nítjánda markinu við áður en íslend- ingar náðu að klóra i bakkann eftir venjulegan leiktíma er Gylfí. skoraði úr aukakasti. Magnús Ingi Stefánsson lék í fyrsta sinn með íslenska liðinu og hann stóð í marki liðsins allan tímann. Stóð sig frábærlega, varði um tutt- ugu skot og var besti maður liðsins í leiknum. Þá stóð Gylfi sig mjög vel i sóknarleiknum og Geir var traustur 'í vörninni. Liðið á frí í dag en á morgun mun liðið leika við Sviss sem sigraði Ítalíu í gær, 24-17. Leikur liðanna var í jafnvægi fram á síðustu tíu mínútur leiksins er Svisslending- ar náðu afgerandi forskoti. Leikur íslands og Sviss kemur til með að ráða því hvort liðið lendir í einu af átta efstu sætunum og vinnur sér þar með sjálfkrafa rétt til að leika í næstu heimsmeistarakeppni. Mörk íslands: Gylfi 6, Jakob Sig- urðsson 3, Hermundur Sigmundsson, Geir, Júlíus Jónasson og Árni Frið- leifsson 2, Valdimar Grímsson 1. -fros Gefum F ötluðum bömum aukin tækifæri til þroska og skemmtunar. Ljúkum leikskálanum í Reykjadal. Hann er jr r KAUPUM MIÐAISIMAHAPPDRÆTTI STYRKTARFÉLAGS LAMAÐRA OG FATLAÐRA. DREGIÐ 23. DES. Vmningar eru 8 Subarubflar, vinsælustu bflamir á íslandi. 6 Subaru Justy, fjórhjóladrifnir. 2 Subaru 1800 GL station, fjórhjóladrifnir. fötluð börn. Nú er verið að reisa leikskála við heimilið þar sem börnin geta dvalið við leik og þjálfun í sumarleyfum hvernig sem viðrar. Leikskálinn er ómissandi viðbót við núverandi aðstöðu og rennur afrakstur happdrættisins til að Ijúka verkinu. STYRKTARFÉLAG LAMAÐRA OG FATLAÐRA HÁALEITISBRAUT 11 -13. 105 REYKJAVÍK SI'MI 84999

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.