Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1985, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1985, Qupperneq 2
2 DV. FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER1985. Kaupin á Mjólkursamsöluhúsinu: Hneyksli eða stórkostleg ráðstöfun? Hneyksli eða stórkostleg ráðstöfun stórhuga menntamálaráðherra? Það sýnist sitt hverjum um þá ákvörðun Sverris Hermannssonar mennta- málaráðherra að kaupa hús Mjólk- ursamsölunnar undir Þjóðskjalasaf- nið. Sumir hafa kveðið svo fast að orði að kalla húsakaupin „nýtt Víð- ishús“ eins og Svavar Gestsson gerði á Alþingi í fyrradag. Öðrum þykir undarlegt að ráðherrann skuli ráðast i þessi húsakaup á meðan sá hinn sami hrópar á niðurskurð hér og niðurskurð þar. Enn aðrir botna ekkert í því hvers vegna ráðherrann gerir svo án þess að ráðfæra sig við Alþingi og fjárveitinganefnd. Margir aftur á móti, eins og þeir þjóðskjalasafnsmenn, eru himinlif- andi. Loksins geti þeir farið að sinna verkefnum sínum af einhverri al- vöru. En árum saman segjast þeir ekki hafa getað hreyft sig vegna þrengsla. Enn eru þeir sem velta fyrir sér hvort ráðherra geti einn og sér farið út í bæ og keypt húseign fyrir al- mannafé upp á 110 milljónir. DV leitaði álits nokkurra manna um mál þetta. - KÞ Guðlaugur Björgvinsson, forstjóri Mjólkursamsölunnar, sýnir líkan af samsöluhúsinu eftir að gengið hafði veriðfrákaupunum. DV-myndGVA M Góð bók gleður I Mál og menning John Fowles: Ástkona franska lautínantsíns Nýtt verk í heimsbókmenntaröð Máls og menningar Astkona franska lautinantsins er tvímælalaust þekktasta skáldsaga John Fowles, sem er einhver fremsti og umtalaðastí skáldsagnahöfundur Englendinga um þessar mundir. Ástkona franska lautinantsins er öðrum þreeði mögnuð ástarsaga um aðalsmanninn unga, Charles Smithson, og kennslukonuna dularfullu, Söru Woodruff, sem þorpsbúar kalla ástkonu franska lautinantsins. Hér segír ífá ástríðu- þrungnu sambandi þeírra og því stríða og ólgandi regindjúpi sem skilur þau að. Sögusviðíð er England Viktoríutímans með stéttskiptingu sínni, trúarkreppu og siðferðilegri hræsni. En Ástkonan er stór bók og ekki öll þar sem hún er séð: Kunnáttusamleg notkun Fowles á brögðum og vitneskju 20. aldar höfundar gefur henni aðra vídd og aukna dýpt. Ástkona franska lautínantsíns er þýdd af , Magnúsi Rafnssyni. Eftir henni var nýiega gerð mjög vinsæl kvikmynd með Meryl Streep í aðalhlutverki. Verð: 1375.- Yashar Kemal: Memed mjóí - saga um uppreisn og ást Ný bók í heimsbókmenntaröð Máls og menningar Sagan um Memed mjóa, stigamanninn unga, er hörkuspennandi ævintýri um alþýðu og útlaga í Tyrklandi á fyrri hluta þessarar aldar eftir fremsta og frægasta núlifandi höfund Tyrkja, Yashar Kemal. Söguhetjan elst upp í þorpi ríkismannsins Abdi aga sem hefúr sölsað undir síg landareign fólks í fimm þorpum á Tsjúkuróvasléttunní og drottnar með harðneskju. Strax á unga aldri gerir Memed misheppnaða tilraun til að risa gegn Abdí aga, og þegar hann hefur fengíð nasasjón af annars konar lífi ákveður hann að ræna unnustu sinni og ffýja. En armur valdsins er langur og hefur Iögin sín megin, þótt Memed öðlist hins vegar ást og aðdáun alþýðunnar. Þórhildur Ólafsdóttir þýddi bófúna úr tyrknesku og skrifar eftirmála. Verð: 1487.- Uglu-verð: 788,- „Heimildílögum til slíkra húsakaupa” — segir ráðuneytisstjórinn ífjármáiaráðuneytinu Safnahúsið við Hverfisgötu, eitt fegursta hús landsins. Menntamála- ráðherra hefur nú ákveðið að Þjóðskjalasafnið flytjist í hús Mjólkur- samsölunnar við Laugaveg, en ekki safnahúsið eins og áður hafði verið rætt um. Hlutverki safnahússins lýkur því sem slíks og eru um það deildar meiningar. „Það er heimild í lögum frá 1974 sem heimilar ríkisstjórninni að taka lán sem tengjast húsakaupum. Það er því ekkert sem hannar mennta- málaráðherra að gera þessi kaup upp á eindæmi sitt og ríkisstjórnarinn- ar,“ sagði Höskuldur Jónsson, ráðu- neytisstjóri í íjármálaráðuneytinu, í samtali við DV. Höskuldur sagði að þar sem ák- vörðun þessi kallar ekki á útgjöld úr ríkissjóði á árinu 1986 væri þetta ekki mál sem þyrfti að bera undir fjárveitinganefnd. -En er ráðherra þá ekki bara að fresta því. Kemur ekki að því að hann þurfi að fá samþykki fjárveit- inganefndar til að standa við skuld- bindingar sínar og greiða af láninu. Þarf hann þá ekki að fá peninga úr ríkissjóði og um leið samþykki Al- þingis? „Jú, það má segja að hann sé að taka sér vissan frest og sennilega þarf hann að leita til fjárveitinga- nefndar strax á næsta ári til að húsakaupin komist inn í fjárlögin fyrir árið 1987,“ sagði Höskuldur Jónsson. KÞ „Forkastanleg vinnubrögð" — segir Jón Baldvin Hannibalsson „Þetta eru forkastanleg vinnu- brögð,“ sagði Jón Baldvin Hannib- alsson, formaður Alþýðuflokksins, í samtali við DV um kaup mennta- málaráðherra á húsi Mjólkursamsöl- unnar. „Það eru ekki ýkjur að segja að það kemur manni á óvart að fá fréttir af því úti í bæ að einhver ráðherra skuli vera að kaupa húseignir fyrir opinbert fé á meðan við hér niðrá þingi erum að berja saman og af- greiða lánsfjárlögin. Það er eins og ráðherrann viti ekki að fjárveitinga- valdið er hjá Alþingi,“ sagði Jón Baldvin Hannibalsson. - KÞ „Ekki hægtað fara svona með menningarverðmæti” — segir Magnús Skúlason arkitekt um það að gera Safnahúsið að skrifstof uhúsnæði „Safnahúsið er með okkar merkile- gustu húsum og innréttingar þess ekki síður. Það er sárt að hugsa til þess ef á að rusla þar öllu til. Það er ekki hægt,“ sagði Magnús Skúla- son arkitekt í samtali við D V. Eins og kunnugt er hefur verið um það rætt að Safnahúsið verði sett undir Hæstarétt eða forsætisráðu- neyti. „Mann rak í rogastans að heyra þetta. Safnahúsið er ekki ætlað fyrir skrifstofur. Húsið er eitt af okkar helstu menningarverðmætum. Það er alveg eins og þeir kraftar ráði öllu nú sem vilja láta allt úr okkar fortíð hverfa. Ég trúi því ekki að óreyndu að svo fari um þetta hús. Það er ekki hægt að fara svona með menningar- verðmæti," sagði Magnús Skúlason. KÞ „Höfum beðið um greinargerð — en ekki fengið,” segir formaður fjárveitinganefndar „Það hefur verið beðið um það innan nefndarinnar að fá greinar- gerð um málið eða að minnsta kosti einhverja punkta en við höfum ekk- ert fengið enn, sagði Pálmi Jónsson, formaður fjárveitinganefndar, í sam- tali við DV. Pálmi sagði að sér skildist að ríkis- stjómin hefði einhverja heimild til að ráðast í kaup á borð við kaupin á Mjólkursamsöluhúsinu en hann hefði enga pappíra enn fengið til að staðfesta slíkt. Aðspurður sagðist hann ekki geta dæmt um það hvort hér væri um hyggileg húsakaup að ræða eða ekki. - Stendur til að setja inn heimild í fjárlögin um húsakaupin nú þegar verið er að ganga frá fjárlögunum? „Nei, ég á ekki von á því,“ sagði Pálmi Jónsson. KÞ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.