Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1985, Qupperneq 10
10
DV. FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER1985.
ÚUönd Útlönd Útlönd Útlönd
FUNDIN TENGSL MILU
KRABBAMBNS OG EYÐNI
leggur reikningsdæmi fyrir börnin. Ef þau svara ekki rétt,
gefur tölvan svarið.
Samlagning, frádráttur, margföldun, deiling. Bæði létt
dæmi og þung, eftir óskum þess sem spilar.
Einnig leikir með tölvur. Þú getur notað hana sem venju-
lega reikningstölvu þegar þú vilt.
Látið litla | VKA |
reikningskennarann p
aðstoða við námið
Gæðatölva
með 1 árs ábyrgð.
Shrifuéiin hf
Suðurlandsbraut 12, Box8715, simi 685277.
Rannsóknir á sjaldgæfu krabba-
meini, sem nýverið hefur færst tölu-
vert í vöxt meðal ungs fólks í Afríku,
hafa fléttast inn í rannsóknir á
eyðniveirunni. Þykir vísindamönn-
um það mikilvæg uppgötvun að það
skuli finnast samsvörun milli
krabbameinsins, sem kallað er „æxli
kaposis", og svo eyðniveirunnar.
Þykir þar fundið enn eitt púslustykk-
ið í gátuna um hvernig æxli verða til.
Eyðniblóðpróf fundu tengslin
Síðan menn fundu það upp fyrir
tveim árum að leita í blóðsýnum að
mótefnum gegn eyðniveirunni, sem
sönnun fyrir þvi að viðkomandi ein-
staklingur hefði komist í snertingu
við eyðniveiruna, hafa orðið augljós
tengsl milli kaposiskrabbameinsins
nýmagnaða og eyðniveirunnar.
Læknum leikur mikil forvitni á að
vita hvernig þess tengsl eru til komin
og hvað reynsla Afríkumanna á
kaposisæxlinu muni þýða fyrir
eyðnisjúklinga og fyrir kaposissjúkl-
inga annars staðar.
Ein kenningin, sem fram er komin,
er sú að þetta nýja afbrigði kaposis-
æxlisins þrói krabba, sem noti tæki-
færið, þegar eyðniveira hefur veikt
mótstöðu AIDS-sjúklings, til þess að
búa um sig í honum.
Sumar þær breytingar, sem orðið
hafa á kaposisveikinni, hafa einnig
gert vart við sig í Bandaríkjunum
og víðar. En i ýmsu tilliti er sagt að
Afríkuafbrigðið hafi þróast á annan
hátt. Þó eru vísindamenn að gera sér
vonir um að rannsóknir á kaposistil-
fellum hjálpi þeim til þess að skilja
betur sérkenni og uppruna eyðni-
sjúkdómsins.
Umskipti í kaposisveikinni
Sérfræðingar, sem reynslu hafa í
meðferð sjúklinga með kaposisæxli,
segja að það hafi orðið stórfurðuleg
umskipti á hegðan þess. Þar í hópi
er Anne C. Bayley, breskur skurð-
læknir, sem starfað hefur í 14 ár í
Zambíu, og þykir orðin með allra
fróðustu læknum um kaposisæxlið.
Lawrence K. Altman hjá New York
Times heimsótti hana ekki alls fyrir
löngu á Háskólasjúkrahúsið í Lus-
aka og átti við hana viðtal sem birst
hefur í stórblöðum víða um heim.
Hún segist fyrst hafa tekið eftir
breytingunum 1983.
Aður höfðu 90% sjúklinga hennar
svarað vel lyfjagjöf tveggja krabba-
meinslyíja (actinomycin D og vinc-
ristine). En eftir 1983 tók hún eftir
óhugnanlegri þróun. 8 af hverjum 13
kaposissjúklingum hennar dóu inn-
an hálfs árs frá því að þeir komu til
LITLI REIKNINGSKENNARINN
Kaposisæxlis hefur orðið vart í börnum í Afríku, alveg eins og eyðniveirunnar, en hér sést Anne Bayley
læknir skoða einn slíkan sjúkling í Lusaka. Samsvörun hefur fundist milli kaposisveikinnar og eyðni.
hennar og það þrátt fyrir lyfjagjöf-
ina. Þetta var fólk á tvítugs- og þrít-
ugsaldri.
Algengara meðal karla
Kaposisæxlið er sjaldgæfur sjúk-
dómur. Hans hefur aðallega gætt
meðal karlmanna á Italíu, við Mið-
jarðarhafið og meðal gyðinga í Aust-
ur-Evrópu, og aðallega í aldursflokk-
unum fimmtugt til áttrætt. Einnig
gætir sjúkdómsins meðal karlmanna
í Afríku. í Bandaríkjunum og Evrópu
herjar sjúkdómurinn tíu sinnum oft-
ar á karla en konur. Löngu þekkt
afbrigði, en ennþá sjaldgæfara, hefur
lagst á og dregið til bana ung börn
í Afríku, þótt ekki séu samt til neinar
skýrslur yfir mismunandi aldurs-
hópa, sem sjúkdómurinn hefur herj-
að á frekar en aðra.
Þessi litla leiktölva frá
Canoti
Læknum þykir uppgötvunin á tengslunum milli eyðni og kaposisæxlis
merkilegur hlekkur í rannsóknum á eyðni.
Vísaði á eyðnina
Kaposisæxlið var án efa mikilvæg-
asti leiðarvísirinn sem leiddi til þess
að menn uppgötvuðu eyðni (AIDS)
fyrst í New York 1981. Fróðir menn
ætla að eyðni hefði ekki uppgötvast
ef menn hefðu ekki tekið að gefa
gaum hárri tfðni kaposisveiki hjá
ungum kynhverfingum í New York.
En eimmitt um sama leyti tóku
læknar að veita eftirtekt breytingum
í kaposissjúklingum sínum. Anne
Bayley, sem hefur rannsakað kapos-
issjúklinga og eyðnisjúklinga í
Bandaríkjunum, tók eftir því að
kaposissjúklingum hennar í Lusaka
elnaði sóttin hraðar og þeir entust
skemur en bandarísk tilfelli. - Lækn-
ana grunar að fleiri kaposissjúkling-
ar hafi fundist eftir uppgötvun eyðni-
veirunnar 1981 en samtals höfðu
fundist í allri sögu krabbameinsins
frá því að það var uppgötvað 1872.
Fyrstu einkenni sjúkdómsins eru
roðablettir á hörundi sem ekki
hverfa. Sams konar blettir hafa orðið
til þess að hjálpa læknum að bera
kennsl á eyðni í nær fjórðungi þeirra
15.172 eyðnitilfella sem tilkynnt hef-
ur verið um í Bandaríkjunum. Og
vitað er að kaposisæxli hafa þróast
hjá enn fleiri eyðnisjúklingum.
Algengur meðal kynhverfra
Yfir 90% kaposistilfella í Banda-
ríkjunum fundust meðal kynhverfra.
Hins vegar hafa þau afar sjaldan
fundist þar meðal dreyrasjúklinga,
fíkniefnaneytenda eða barna, sem þó
hafa veikst af eyðni.
Eftir að eyðniblóðprófið hafði verið
fundið upp ruku læknar upp til
handa og fóta og reyndu það á kapos-
issjúklingum sínum. Þeir ráku sig
strax á að flestir sjúklingar þeirra
með nýja afbrigðið af kaposisvei-
kinni sýndu í plóðprófinu að þeir
hefðu komist í snertingu við eyðni-
veiruna. Grunur vaknaði um að
eyðnivírus myndi einnig finnast í
sjúklingum með bemskuafbrigði af
kaposis, en öllum til undrunar fannst
engin samsvömn þar á milli. Þar
þykir þó frekari rannsóknar þörf.
Læknar telja að fjöldi tilfella sí-
gildrar kaposisveiki sé miklu meiri í
Afríku en annars staðar, en engar
skýrslur hafa verið færðar yfir það.
I Afríku hefur mest borið á kaposis
við miðbaug, í grennd við Viktoríu-
vatn og í Kivu og fjallahéruðum
Mið-Afríku.
Lengi verið til
Kaposisveikin hefur sjálfsagt lengi
verið til áður en læknar uppgötvuðu
hana 1872 með lýsingu Moritz
Kohns, lækni sem fluttist til Vínar
frá heimahéraði sínu, Kaposvar í
Suður-Ungverjalandi, en hann tók
sér eftirnafn eftir héraðinu og varð
einn kunnasti húðsjúkdómasérfræð-
ingur síns tíma. Við hann er veikin
kennd. - Mönnum sýnist nú nauð-
synlegt að taka til endurskoðunar
uppgötvanir hans á þessu eldra og
hugsanlega veirukynjaða krabba-
meini til þess að skilja betur eðli
þess og hins nýja háskalegra afbrigð-
is af Kaposisæxlinu sem virðist geta
kviknað í kjölfar eyðnismitunar.
Helstu einkennin
Roðablettunum er lýst á ýmsan
hátt af læknum, enda margbreytileg-
ir. Þeir geta verið allt frá því að vera
á stærð við baun og upp í skildings-
stærð. Stundum eru þeir einangraðir
dílar, stundum samtengdir flokkar.
Stundum eru þeir upphleyptir. Oft
eru fyrstu einkennin bólgur í fótum
og fótleggjum, síðan kemur roða-
blettur. Með tímanum aflagast fæ-
turnir af þessum þykkildum, sem
raunar geta myndast í höfuðleðrinu,
innan munns, í barkanum, í magan-
um eða iðrum og stundum í augum,
sem er sjaldgæfast. Stundum hverfa
þykkildin og blettirnir en birtast
aftur mánuðum eða árum síðar og
verða þá æxlkennd og illkynja.
Kaposi læknir greindi frá því að
þar til dauðinn sækti að væru algen-
gustu og þrálátusutu einkennin hjá
sjúklingunum, sem leituðu á hans
náðir, „þenslutilfinning og særindi í
höndum og fótum“. Sumir kvörtuðu
einnig undan sviða eða kláða.
Lengi talið vægasta krabba-
meinið
Frá upphafi veittu læknar því eftir-
tekt að kaposisæxlið skar sig úr
öðrum krabbameinum hvað því við-
vék að uppruni þess lá á mörgum
stöðum á líkamanum, en önnur
krabbamein byrjuðu á einum stað
út frá einni illkynjaðri frumu. Með
árunum var litið á kaposisæxlið sem
eina meinlausustu tegund krabba-
meins. Sumir lifðu með það áratug-
um saman án þess að hafa af því
annað en smáræðileg óþægindi. Hins
vegar hafði Kaposi læknir skrifað
hjá sér að sjúkdómurinn yrði ban-
vænn eftir tvö eða þrjú ár.