Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1985, Síða 12
12
DV. FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER1985.
Frjálst.óháð dagblað
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EirÍARSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTjANSSON og ELLERT B. SCHRAM
Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÚNSSON
Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og ÓSKAR MAGNÚSSON
Auglýsingastjórar: PÁLLSTEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINS^ON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift,
ÞVERHOLT111, SlMI 27022
Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: HILMIR HF„ ÞVERHOLT111
Prentun: ÁRVAKUR HF. -Áskriftarverð á mánuði 450 kr.
Verð I lausasölu virka daga 45 kr. - Helgarblað 50 kr.
Áherzlubreyting?
Þorsteinn Pálsson fj ármálaráðherra segir, að nú sé
grundvöllur fyrir áherzlubreytingu. Launþegar hafi
tekið á sig mikla kjaraskerðingu. Ekki verði gengið
lengra í því. Nú fari framleiðsla þjóðarinnar aftur
vaxandi, þótt hægt gangi. Því eigi nú að leggja megin-
þungann á umsvif hins opinbera. Draga verði úr út-
gjöldum ríkisins að fremsta megni. Launþegar hafi lagt
sitt af mörkum, nú sé komið að hinu opinbera. Aherzlan
verði lögð á að hafa fjárlög hallalaus og auka erlend
lán hins opinbera ekki meira en nemur afborgunum af
erlendum lánum. Þetta er í aðalatriðum rétt stefna.
Spurningin er þó, hvort ríkisstjórnin sé þessu trú eða
ekki.
Hvað hefur gerzt? Forystumenn Sjálfstæðisflokksins
fóru í stólaleik. Skipt var um fjármálaráðherra. Þor-
steinn settist í sæti Alberts. Áður hafði athyglisverður
fundur æðstu sveitar Sjálfstæðisflokksins samþykkt í
Stykkishólmi að hafna fyrirliggjandi fjárlagafrumvarpi.
Fundurinn lagði áherzlu á niðurskurð ríkisútgjalda,
hallalaus fjárlög og að erlendar lántökur skyldu ekki
verða meiri en afborganir. Þetta var í lok september.
Þorsteinn settist í ráðherrastólinn til þess að framfylgja
þessum ákvörðunum. Hann hófst handa um niðurskurð
og stærir sig enn af því að hafa minnkað erlendar lán-
tökur um 800 milljónir króna. Þetta var byrjunin hjá
Þorsteini. Á eftir kom óskemmtilegri þróun.
Halli ríkissjóðs verður á yfirstandandi ári yfir tveir
milljarðar í stað 743 milljóna, sem búizt var við. Þessu
verður mætt með samsvarandi erlendum lántökum.
Þetta þýðir, að ríkisstjórnin stendur ekki við fyrirheit
sín á þessu ári. Þorsteinn Pálsson þvær hendur sínar
og segir, að þetta hafi gerzt, áður en hann settist í
stólinn. Kennt er um gengislækkun dollars og kaup-
hækkun, sem veitt var í haust. Almenningur hlýtur að
spyrja, hvort ríkisstjórn, sem þannig hefur farið að ráði
sínu, sé treystandi fyrir framhaldinu þrátt fyrir góð
loforð.
Flest bendir til þess, að markmiðunum fyrir næsta ár
verði ekki náð fremur en gerist á þessu ári. Fjármálaráð-
herra segir, að erlend lán ríkissjóðs sem slíks verði
ekki á næsta ári meiri en afborganir. En þar talar hann
aðeins um hluta af opinbera kerfinu. Fróðir menn benda
á, að nú stefnir í, að erlend lán hins opinbera verði á
næsta ári 1,6 milljörðum meiri en afborganir. Svipað
má segja um halla ríkissjóðs. Ekkert bendir til þess, að
Qárlögin, sem nú er verið að samþykkja, standist miklu
betur en fyrri fjárlög. Þorsteinn Pálsson treystir sér
ekki til að fullyrða, að svo verði. Mikilvægur þáttur
verða kauphækkanirnar,sem samið veróur um eftir
áramótin. Þar verða líklega á ferðinni stærri stærðir
en gert verður ráð fyrir við afgreiðslu fjárlaga. Enn
má segja, að viðskiptahallinn á næsta ári verður að
líkindum miklu meiri en ríkisstjórnin hefur gefið fyrir-
heit um. Nú stefnir í, að ekki standi steinn yfir steini
af samþykkt sjálfstæðismanna í Stykkishólmi. Nýi fjár-
málaráðherrann hefur því engu breytt um vandræðin.
Efnahagsmálin verða enn í ógöngum. Þrátt fyrir niður-
skurð á ýmsum sviðum stefnir í, að þessi niðurskurður
verði hvergi nærri nógu mikill. Tekið hefur verið á
málum með vettlingatökum. Það breytir ekki þeirri
staðreynd, að nú er tækifæri til áherzlubreytingar. Það
tækifæri er bara ónotað.
Haukur Helgason.
Fara banka-
ráðsmenn í
jólaköttinn?
Nú fylgist þjóðin með alþingis-
mönnum sínum. Ekki vegna bjórs
eða bílakaupa ráðherra heldur
vegna kosninga í bankaráð. Aldrei
hefur verið meiri þrýstingur á
gömlu flokkana að slíta hin
flokkspólitísku tengsl þings og
banka.
Sala ríkisbanka
Bandalag jafnaðarmanna hefur
gert ítrekaðar tilraunir til að slíta
þessi tengsl.
Til að fá umræðu um nýtt fyrir-
komulag peningamála lagði BJ
fram tillögur en fornflokkarnir
hafa hafnað öllum breytingum.
1. Á þinginu 1983-84 lagði BJ fram
tillögu til þingsályktunar um sölu
ríkisbanka. Hún var felld með
atkvæðum þingmanna allra
flokka.
GUÐMUNDUR
EINARSSON
FORMAÐUR BANDALAGS
JAFNAÐARMANNA
Raddir munu heyrast um að það
sé óviðkunnanlegt að endurkjósa
þá til að ríkja yfir rústunum. Þær
raddir verða líklegast kveðnar
niður með þeim rökum að slíkt
jafnist á við að gera þá ábyrga.
Svo kynni að virðast að þeir bæru
einhverja ábyrgð ef þeir væru settir
af. Það má alls ekki koma fyrir að
neinn sé gerður ábyrgur.
Afstaða Sjálfstæðisflokksins verð-
ur fróðleg. í umræðum um rann-
sóknarnefnd Alþingis vegna Haf-
skipsmálsins lýstu talsmenn
flokksins því yfir að Alþingi væri
vanhæft til að rannsaka málið því
það ætti þar beina aðild vegna
kosninga þingsins í bankaráð og
setu þingmanna þar. Því verður
tæpast trúað að Sjálfstæðisflokk-
urinn uni því að löggjafarsam-
koman sé vanhæf til að sinna eftir-
„Því verður tæpast trúað að Sjálfstæðisflokkurinn uni því, að löggjafarsamkoman sé vanhæf til að
sinna eftirliti með rikisstjórn og framkvæmdavaldi.“
a „Þingflokkar Sjálfstæðisflokksins og
™ Alþýðubandalagsins munu líklega
endurkjósa sína alþingismenn í Útvegs-
bankaráð. Það verður jólagjöfin til þjóð-
annnar.
2. Á þinginu 1984-85 lagði BJ til
eftirfarandi:
a) Ríkisbönkum yrði breytt í
almenningshlutafélög í árslok
1986.
b) Þangað til sú breyting yrði
gerð skyldi viðskiptaráðherra
skipa bankaráðin og
c) alþingismönnum væri óheimilt
að sitja í þeim.
Allar þessar tillögur voru felldar
með atkvæðum þingmanna úr
öllum flokkum.
3. Á yfírstandandi þingi hafa þess-
ar tillögur allar verið endurflutt-
ar og þrátt fyrir Útvegsbanka-
ósköpin virðast þær ætla að falla
enn einu sinni.
Niðurstaðan er sú að gömlu flokk-
amir vilja eiga vísa leið í banka-
ráðin.
Þingmenn og bankaráð
Nú engjast gömlu flokkarnir. Þeir
verða að kjósa í bankaráðin um
helgina því þeir hafna tillögu BJ
um að ráðherra skipi í ráðin.
Þingflokkar Sjálfstæðisflokksins
og Álþýðubandalagsins munu lík-
lœa endurkjósa sína alþingismenn
í Útvegsbankaráð. Það verður jóla-
gjöfín til þjóðarinnar.
Þannig verður alþingismönnunum
þökkuð hin vakandi umsjón og hið
dygga eftirlit með eigum með-
borgaranna.
liti með ríkisstjórn og fram-
kvæmdavaldi.
Samkvæmt þessu er Alþingi van-
hæft til að skoða ríkisbanka, Se-
mentsverksmiðju og fleiri fyrirtæki
sem Alþingis kýs í.
Morgunblaðið hefur í Reykjavík-
urbréfi lýst Alþingi vanhæft til að
hafa eftirlit með ríkisstjórn og
stofnunum hennar.
Því verður ekki trúað að þingmenn
Sjálfstæðisflokksins taki því þegj-
andi að Styrmir Gunnarsson setji
svona ofan í við þá.
Þess vegna eiga þeir að taka á með
öðrum frjálslyndum mönnum sem
vilja að Alþingi geri hreint fyrir
sínum dyrum með því að
- banna alþingismönnum setu í
stjórnum og ráðum framkvæmda-
valds,
- breyta lögum þannig að ráð-
herrar skipi í ráð og stjórnir sem
heyra undir ríkisstjórn og
- leggja ríkisbanka niður og
koma þeim í hendur almennings-
hlutafélaga.
Guðmundur Einarsson.