Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1986, Qupperneq 1
> x,' \
■■ V , >' *' *
' s v > ' >j<- s£ &
' »>,■' t ...... <*
Slökkviliðsmenn á Selfossi berjast við eldinn í mjólkurbúinu í gœr.
DV-mynd Iíristján Kinarsson
Skemmdir urðu ekki miklar
Frá Kristjáni Einarssyni, frétta-
ritara DV á Selfossi
Um miðjan dag í gær kom upp eldur
í Mjólkurbúi Flóamanna á Selfossi.
Slökkvilið Selfoss var kvatt á stað-
inn. Greiðlega gekk að slökkva
eldinn og urðu skemmdir ekki mjög
miklar.
Eldurinn kom upp í gömlu mjöl-
vinnslunni svokölluðu, en hún er
úföst við mjólkurbúið. Hafði verið
unnið að endurbyggingu á hús-
næðinu að undanförnu en vinna lá
niðri þegar eldsins varð vart. Var
fyrirhugað að einangra húsið og
var plasti því staflað á gólfið.
Brann allt plastið, svo og glugga-
karmar og dyraumbúnaður.
Mikill reykur gaus upp þegar
eldurinn komst í einangrunar-
plastið. Fylltist loftræstikerfiS af
reyk en það er sameiginlegt fyrir
alit mjólkurbúið. Er óvíst hvort
þetta kemur til með að hafa áhrif
á framleiðsluna.
Að sögn Birgis Guðmundssonar,
aðstoðarframkvæmdastjóra
Mjólkurbús Flóamanna, er óvíst
um upptök eldsins.
Rekin úr vinnu vegna þungunar en vann máfið
gegn vinnuveitanda sínum:
„Grátandi heim
úr vinnunni,r
„Ég er gift kona og lenti í því að
verða ófrísk. Ég vissi ekki um þung-
unina þegar ég byrjað að vinna hjá
hársnyrtistofunni Aristókratanum
haustið 1984.
Það gekk allt vel í upphafi þar til
ég sagði atvinnurekandanum frá því,
að ég væri ófrísk. Þá sneri hann við
blaðinu og fór að taka mig fyrir. Það
tóku allir eftir því, viðskiptavinir
stofunnar og starfsfólkið, hversu illa
hann kom fram við mig,“ sagði Una
Sveinsdóttir í samtali við DV í morg-
un en hún var fyrirvaralaust rekin
úr starfi 5. janúar 1985. Hún ákvað
að höfða mál gegn atvinnurekanda
sínum, Vilhelm Ingólfssyni, eiganda
Aristókratans. Una vann málið.
Óheimilt er samkvæmt lögum að
segja barnshafandi konu upp störfum
nema gildar og knýjandi ástæður séu
fyrir hendi. Vilhelm er gert að greiða
Unu laun allt fram að fæðingu barns-
ins, að frádregnum einum mánuði
fæðingarorlofs, alls 146 þúsund krón-
ur auk.málskostnaðar.
„Það kom fyrir að ég fór grátandi
heim úr vinnunni vegna þess að hann
þjarmaði svo að mér. Hann bað mig
þó afsökunar einu sinni fyrir jól. En
ekkert breyttist og þegar ég kom í
vinnu 5. janúar 1985 þá sagði hann
mér að hypja mig og koma ekki meir.
Það voru vitni að samtalinu. Vegna
slæmrar framkomu hans sætti ég mig
ekki við þetta og vildi láta reyna á
málið fyrir dómsstólum," sagði Una.
„Við hvaða dómsniðurstöðu mátti
búast þegar formaður Jafnréttisráðs
fellir dóminn? Hún er kona. Maður
gerði sér fyrirfram grein fyrir því
hvernig þetta mundi fara. Það er
óeðlilegt af fógeta í Kópavogi að
afhenda formanni Jafnréttisráðs
málið," sagði Vilhelm Ingólfsson,
eigandi Aristókratans, við DV í
morgun.
„Fyrir formann Jafnréttisráðs er
þetta kannski stærsti sigurinn, svona
í lok kvennaáratugarins," sagði Vil-
helm.
-KB
..
. fc . " ,
RITSTJORN ,‘AUGLYSINGAR OG
39.000 EINTÖK PRENTUÐ i DAG.
EIÐSLA SlMI 27022
Frjalst, onaö aagblaö
DAGBLAÐIЗVÍSIR
13. TBL. -76. og 1 2. ÁRG. - FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 1986.
FRAMSÓKN KLOFIN í
NORÐURLANDIEYSTRA
Framsóknarfiokkurinn í Norður-
landskjördæmi eystra er að klofna
vegna afskipta þingmanna hans af
sölu Kolbeinseyjar. Framsóknar-
menn í Norður-Þingeyjarsýslu
íhuga sérframboð í næstu þing-
kosningum.
Amþór Pálsson, formaður Fram-
sóknarfélags Raufárhafnar, iýsir
þessu yfir í viðtali við DV í dag.
Hann er harðorður í garð forystu-
manna flokksins. Fram kemur að
bresta fór í samstöðunni eftir kjör-
dæmisþing í haust.
Á blaðsíðu 2 varpar DV ljósi á
ýmislegt sem gerðist á bak við
tjöldin áður en stjórn Útgerðarfé-
lags Norður-Þingeyinga neyddist
til að draga tilboð sitt í togarann
Kolbeinsey til baka.
Sjávarútvegsráðherra lét í skyndi
semja leyniskýrslu sem sýna átti
— sjá nánar á bls. 2
fram á að áætlanir Norður-Þingey-
inga um kostnað víð breytingar á
togaranum Stakfelli væru óraun-
hæfar.
Bankastjóri Landsbankans,
Helgi Bergs, áður þingmaður
Framsóknarfiokksins, fékk af-
greiðslu kaupsamnings við ÚNÞ
frestað til að meiri tími ynnist í
örvæntingarfullri leit að veilum í
tilboði félagsins.
SÍS neitaði að veita aðildarfélög-
um sínum á Þórshöfn og Raufar-
höfn ábyrgð á einni greiðslu vegna
togarakaupanna. Lá við að frysti-
húsin gengju til liðs við Sölumið-
stöð hraðfrvstihúsanna.
-KMU.
ELDUR í MJÓLKUR-
BÚIFLÓAMANNA
A