Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1986, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1986, Blaðsíða 40
FRETTASKOTIÐ Ritstjóm, auglýsingar, áskrift og dreifing, sími 27022 Hafir þú ábendingu ' eða vitneskju um frétt — hringdu þá i sima 68-78-58. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í OV, greið- ast 1.000 krónur og 3.000 krónur fyrir besta fréttaskotið i hverri viku, Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 1986. Helgi Pétursson hættir á Tímanum Helgi Pétursson, ritstjóri Tímans, hefur látið af daglegri ritstjórn blaðsins næstu þrjá mánuðina. Hvað tekur við eftir þann tíma er óákveðið. „Ég hef ákveðið að sinna þeim fjölmiðlaviðræðum sem eiga sér stað um þessar rnundir," sagði Helgi. Hann á inni þriggja mánaða frí sem hann hyggst nota til þessara starfa. Tíminn yrði að leiða í ljós hvað hann ' tæki sér fyrir hendur að þeim tíma liðnum. Hann neitaði því að þessi ákvörðun hans væri tekin vegna samstarfsörð- ugleika við nýja stjórnendurTímans. „Ég tel að blaðið sé nú komið í nokkuð fastar skorður. Það er mitt mat að ég geri meira gagn í því að reyna að fá niðurstöðu í þeirri um- ræðu sem á sér stað í sambandi við breyttar aðstæður í fjölmiðlamálum. Ég hef tekið þátt í þessum viðræðum undanfarið. Ef það á eitthvað að ’ gera í þessum máium tei ég það vera mikilvægt að það sé gert núna,“ sagði Helgi Pétursson. Kristinn Finnbogason, stjórnar- maður Tímans, sagðist ekki vita um þessa ákvörðun Helga. Engin ák- vörðun hefði því verið tekin um eftir- mann hans. Kristinn sagðist búast við að nú um mánaðamótin yrði tekin ákvörðun um hversu margir starfsmenn NT yrðu endurráðrir hjá hinu nýja dagblaði, Tímanum. -APH Ráðist á íslenskar stúlkurí London Tvær íslenskar stúlkur urðu fyrir ^líkamsárás í nágrenni Lundúnaborg- ar um síðustu helgi. Eftir áreiðanlegum heimildum DV réðust á þær kynferðisafbrotamenn. Stúlkurnar kærðu atburðinn og hafa verið í yfirheyrslum. Stúlkurnar hafa dvalist um nokk- urt skeið í Bretlandi við vinnu. -ÞG HEIMSKERFI TIL HEIMANOTA LOKI Er það ekki fulllangt geng- ið af framsóknarmaddö- munni að bjóða fram klofið? græða eiga /á „Þróunarfélag íslands hf. er í tveim möppum hérna hjá mér,“ segir Davíð Scheving Thorsteins- son, forstjóri Sólar hf. og formaður félagsins. Hann segir að hingað til hafi starfsemi stjórnarinnár snúist um að ræða við menn og safna hugmyndum um arðbær verkefni. Búið er að innheimta fjórðung hlutíifjár, 80 milljónir króna. Næst á dagskrá er að ráða framkvæmda- stjóra. Hlutafé félagsins er320 milljónir króna. Fjórðungurinn greiðist núna og afgangurinn á næstu þrem árum. „Gallinn er sá að þeir pen- ingar koma óverðtryggðir og vaxtalausir. Raunvirði hlutafjár- ins verður því varla 200 milljónir króna þegar upp verður staðið," segir Davíð. Til viðbótar við 80 milljóna innborgun hlutafjár núna er Þróunarfélaginu heimilt taka 290 milljóna króna lán á Þátttaka Þróunarfélagsins í áhugaverðura og ábatasömum verkefnum á þessu ári getur þannig numið allt að 350 milljónum króna eða þar um bil. - HERB Togarínn kominn að bryggjuá Höfn Togarinn Þórhallur Daníelsson kominn að bryggju á Höfn eftir að dælt var úr skipinu. DV-mynd Ragnar Imsland Frá fréttaritara DV, Júlíu Ims- land, Höfn í Hornafirði: Snemma í gærmorgun tókst að dæla öllum sjó úr togaranum Þór- halli Daníelssyni og koma honum að bryggju. Fengin var flugvél sem flutti rafmagnsvatnsdælu frá Reykjavík en sú dæla reyndist bi- luð og því algjörlega ónothæf. Þá var það notað sem til er á staðnum, dælur frá Hafnarhreppi, slökkvi- liðinu, Steinunni s/f og seinast loðnudæla frá loðnubræðslunni á Höfn. Fregnir þess efnis að kraft- mikla dælan frá Reykjavík hafi ráðið úrslitum í dælingunni eru því alrangar. Unnið hefur verið nótt og dag við björgun togarans. Ekki er ákveðið enn hvort gert verður við hann hér heima. Með ólíkindum þykir að þessi atburður skuli hafa gerst í Horna- fjarðarhöfn sem er án efa ein ör- uggasta höfn landsins. - KB Neskaupstaður: ALLTIHAALOFTIUT AF STÖÐUVEITINGU Miklar deilur eru á Neskaupstað vegna ráðningar framkvæmda- stjóra Fjórðungssjúkrahússins þar í bæ. Á bæjarstjórnarfundi þar í fyrradag, þegar gengið var til at- kvæða um ráðninguna, lá við „að allt spryngi í loft upp“, eins og einn Neskaupstaðarbúi orðaði það. „Við sættum okkur ekki við þetta og þá einkum störf nefndarinnar. Þarna ræður pólitík greinilega ferðinni," sagði Sigurbjörg Egils- dóttir, annar fulltrúa Sjálfstæðis- flokksins í bæjarstjóm, en þeir tveir greiddu atkvæði gegn ráðn- ingunni. Um stöðuna sóttu sex menn, bæði austanmenn og Reykvíkingar. Sá sem hlaut hnossið er Neskaupstað- arbúi, Kristinn ívarsson, húsa- smiður að mennt. í lögum um ráðningu á borð við þessa skal sérskipuð þriggja manna nefnd fjalla um umsækjendur. í henni sitja Jón lngimarsson, skrif- stofustjóri í heilbrigðisráðuneyt- inu, Davíð Á. Gunnarsson, forstjóri Ríkisspítalanna, og Eggert Brekk- an, sjúkrahúslæknir á Neskaup- stað. Er óheimilt að kjósa milli annarra en þeirra sem nefndin mælir með. í þessu tilviki sagði nefndin aðeins einn hæfan, þann sem hlaut stöðuna. í atkvæðagreiðslunni í bæjar- stjórn greiddu 5 atkvæði með ráðn- ingu Kristins, 2 sátu hjá og 2 voru á nióti. „Við bárum fram tillögu á fund- inum um það að fresta ráðningunni um mánuð til að nefndin gæti fjall- að um hina umsækjendurna, sem við teljum einnig hæfa,“sagði Sig- urbjörg. „Því var hafhað og því greiddum við atkvæði gegn tillög- unni. Með því vorum við að mót- mæla vinnubrögðum nefndarinnar. f fyrsta lagi kom þessi nefnd aldrei saman til að fjalla um umsækjend- urna. í öðru lagi er greinilegt að nefndin hefur ekki kynnt sér feril hinna umsækjendanna. Við teljum þetta því pólitískt raál, enda sá sem fékk stöðuna yfirlýstur alþýðu- bandalagsmaður.11 Þá má geta þess að þeir tveir, sem sátu hjá við atkvæðagreiðsluna, eru framsóknarmennimir í bæjar- stjórninni. Þeir létu bóka á fundin- um mótmæli gegn störfum nefndar- innar. - KÞ Pétur fær \ stuðning - f lugumferðarstjórar fresta vinnustöðvun Stjórn Félags íslenskra flugum- ferðarstjóra ákvað síðdegis í gær að fresta vinnustöðvun sem vera átti í dag. Vegna eindreginna óska ráð- herra og fyrirheita um viðræðufund á morgun var þessum „varnarað- gerðum" frestað fram yfir þær við- ræður. Stór hluti annarra starfsmanna Flugmálastjórnar, 77 starfsmenn, skrifaði i gær undir þessa yfirlýs- i i íngu: „Við teljum Pétur Einarsson flug- málastjóra mjög hæfan stjórnanda og að hann hafi lagt sig sérstaklega fram um að halda góðu samstarfi við okkur, starfsfólk stofnunarinnar.“ Varaflugmálastj óri og þrír fram- kvæmdastjórar Flugmálastjórnar sendu einnig frá sér yfirlýsingu i gær: „Að okkar mati hefur Pétur Einarsson gengið sköruglega fram í þessari deilu og látið einn brjóta á sér í þeim þætti deilunnar sem snýr að fjölmiðlum," sögðu þeir meðal annars. -KMU. i i i i i á

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.