Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1986, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1986, Blaðsíða 4
4 DV. FIMMTUDAGUR16. JANÚAR1986. Blíðir veðurguðir—lítill sn jómokstur: Reykvíkingar spara líklega 20 milljónir Veðurguðirnir hafa leikið við Reykvíkinga og sparað þeim 20 millj- ónir af þeim 40 milljónum sem áætlað var til snjómoksturs í vetur. „Veður- blíðan hefur verið einstök, sú besta í manna minnum," sagði Pétur Hannesson, deildarstjóri Gatna- máladeildar Reykjavíkur. „Fjárveit- ing til snjómoksturs á götum var 40 milljónir. Ég sé ekki annað en vil skilum helmingnum aftur. Þetta er annað árið í röð sem við förum ekki fram yfir áætlun," sagði Pétur. Ekki er hægt að segja að snjór hafi fallið í Reykjavík á vetrinum. Menn muna þó eftir tveimur snjó- dögum, í lok nóvember og byrjun janúar. „Það hefur þó oft verið hálka vegna bleytu og frosta, þannig að töluvert af salti hefur verið borið á götur. Þá hefur verið mikil hálka á gangstéttum. Alls hefur verið dreift tvö þúsund tonnum af sandi á gang- stéttir," sagði Pétur. - sos ATVINNULEYSIÐ 0,9 PRÓSENT1985 Atvinnuleysisdagar á síðasta ári voru 288 þúsund. Það jafngildir því að allt árið hafi 1100 manns verið atvinnulausir. Samkvæmt, þessu hef- ur atvinnuleysi verið 0,9 prósent 1985. Atvinnuleysi var 1,3 prósent 1984 Skipun í Þjóðhátíðarsjóð: MagnúsTorfi formaður Stjórn Þjóðhátíðarsjóðs hefur ve- rið skipuð og er Magnús Torfi ,/lafs- son formaður hennar. Aðrir í stjórn eru Björn Bjarnason aðstoðarritstjöri, Eysteinn Jónsson, fyrrverandi ráðherra, Gils Guð- mundsson, fyrrverandi alþingismað- ur, og Jóhannes Nordal seðlabanka- stjóri. KÞ og atvinnuleysisdagar voru 97 þús- und fleiri þá en í fyrra. Skráð at- vinnuleysi kemur mjög misjafnlega niður í landshlutunum. Á höfuð- borgarsvæðinu, þar sem 55 til 60 prósent mannaflans starfa, var að- eins 0,3 prósent atvinnuleysi allt árið 1985. Hins vegar var atvinnuleysi á Norðurlandi og Suðurnesjum 2 pró- sent. I desember sl. var skráð atvinnu- leysi 1,6 prósent sem svarar til þess að 1900 manns hafi verið á atvinnu- leysisskrá allan mánuðinn. Skráðir atvinnuleysisdagar voru í þessum mánuði 40 þúsund. Það er mjög svip- að og var í desember 1984. 1983 voru atvinnuleysisdagar 48,5 þúsund i desember, sem er mesta atvinnuleysi frá því að skráning hófst 1975. Síðasta dag desember sl. voru 3.300 á atvinnuleysiskrá. Þetta stafar m.a. af því að uppsagnir í fiskiðnaði taka flestar gildi siðari hluta mánaðarins. Af þessum fjölda voru 2.900 verka- menn, 60 iðnaðarmenn og 340 úr öðrum starfsgreinum. APH Selma Rut Magnúsdóttir, deildarstjóri smáauglýsinga DV, dregur umslög vinningshafa úr bunkanum. Eins og sjá má var geysigóð þátttaka í jólagetrauninni. DV-mynd GVA Dregid í hinni glæsilegu jólagetraun DV: Hljómtækja- samstæðan fór í Hrafnhólana Dregið hefur verið í hinni glæsi- legu jólagetraun DV. Aðalvinning- inn, Fisher-hljómtækjasamstæðu „System 300“, hlaut Guðbjörg H. Guðmundsdóttir, Hrafnhólum 2, Reykjavík. Vinningur nr. 2, ferða- tæki með tvöföldu segulbandi, kom á nafn Jóns Guðlaugssonar, Jör- undarholti 132, Akranesi. Eftirtaldir hlutu svo Fisher-vasa- diskó: Hafdís Haraldsdóttir, Vatnsenda- vegi 9, Keflavík, Guðjón Einarsson, Fossheiði 56, Selfossi, Aðalsteinn ísaksson, Hrauntungu 28, Hafnar- firði, Rebekka Helga Sveinsdóttir, Garðavegi 6c, Hafnarfirði, Birgir Amar Guðmundsson, Hraunbæ 2, Reykjavík, Bjarni D. Sigurðsson, Flötum 16, Vestmannaeyjum, Gunnlaugur Þ. Guðmundsson, Höfðabraut 7, Akranesi, Hreinn Halldórsson, Kögurseli 34, Reykja- vík, Fjóla Sigurðardóttir, Bröttu- götu 18, Vestmannaeyjum, og Kristinn Steinarsson, Áshlíð 14, Akureyri. DV óskar vinningshöfum til hamingju með hina veglegu verð- launagripi. I dag mæiir Dagfari_______I dag mælir Dagfari_______I dag mælir Dagfari Slegist í tuminum Það er svo sannarlega enginn vangadans sem flugumferðarstjór- ar stíga við yfirmann sinn, Pétur flugmálastjóra, þessa dagana. Allt verður sjálfsagt komið í bál og brand þegar þessi grein er komin á prent. Flugumferðarstjórar hafa verið æstir og illorðir í fjölmiðlum en Pétur hefur verið hinn rólegasti. Enda segir hann að þessi deila standi ekki um neitt og varla fara menn að æsa sig út af engu. Fram- koma flugmálastjóra hefur farið afskaplega i taugarnar á þessum tiltekna hópi undirmanna hans og hafa þeir krafist þess að stjóri verði settur af án tafar. Þessi krafa er auðvitað skiljanleg í ljósi þess að flugumferðarstjórar vilja greini- lega ekki sætta sig við það eitt að stjórna umferð flugvéla. Þeir vilja líka fá að stjórna sér og sínum eftir því sem henta þykir hveiju sinni og finnst það alveg óþolandi sletti- rekuskapur þegar Pétur eða ráðu- eytið vilja skipta sér af því hvernig skipað er i stöður hjá þessu emb- ætti. Þessi afskiptasemi er stór- hættuleg því í ljós hefur komið að hún hefur snert svo mjög fínustu taugar fínu stjóranna að þeir eiga bágt með að einbeita sér að stjórn- un flugumferðar. Því segja þeir að það sé nánast lífshætta að fljúga þessa dagana vegna þess að þeir séu vart með sjálfum sér meðan þeir eru svona arrí. Eins og menn rekur minni til greip svipaður kvilli eitt sinn flug- umferðarstjóra í Bandaríkjunum og virtist engin lækning fáanleg. Þá greip Reagan forseti til þess ráðs að segja öllu liðinu upp á einu bretti, eða á annan tug þúsunda flugumferðarstjóra. Þótti karli betra að þjálfa nýja menn til starfa en búa við sífellt óöryggi þeirra taugaveikluðu. Síðan hafa ekki borist fréttir af vandræðum á þessu sviði vestur þar. Nú verða menn að átta sig á því að það er nokkur munur á Pétri og Ron. Sá fyrrnefndi er reynsluminni og miklu yngri og hafa undirmenn hans raunar bent á þetta reynslu- leysi sem áberandi galia. Á hitt ber að líta að Pétur er nú búinn að vera lengur flugmálastjóri en Ron var búinn að gegna embætti forseta þegar hann greip til brottreksturs- ins mikla. Því eru sumar aðstæður þeirra að öllum líkindum ekki ósvipaðar að því leyti. Hins vegar verður Pétur að sækja styrk til misstyrkra ráðherra en Ron gat rekið upp á eigin spýtur eins og honum sýndist. Hins vegar er ekki Ijóst enn hvort hér þarf að fara í smiðju til Ron eða ekki. Einn flug- umferðarstjóri mætti Pétri í sjón- varpi á dögunum og notaði tækifæ- rið til að segja upp starfi með til- þrifum. Það var í eina skiptið í þessum sjónvarpsþætti sem sjá mátti nokkur gleðimerki á Pétri. Eins og fram kom í fréttum fyrir skömmu fluttu Flugleiðir fleiri far- þega innanlands í fyrra en nemur íbúatölu alls landsins. Af þessu má glöggt sjá að íslendingar fljúga mikið og oft hér innanlands ekki síður en milli landa. Truflanir á flugi vegna tauga- veiklunar flugumferðarstjóra munu því skjótt vekja mikla reiði hinnar fljúgandi þjóðar og þá ekki síst ef taugaveiklunin er tilkomin út af engu. Dagfari leggur til að ef flugumferðarstjórar láti sér ekki segjast og komi taugunum i lag verði þeim gert að sækja fyrirlestra hjá erkióvini sínum tvisvar á dag þar sem hann fer yfir réttindi og . '. yldur opinberra starfsmanna og verklega uppriijun á ýmsum atrið- um í störfum flugumferðarstjóra. Ætli heilsan komist ekki fljótt í lag við slíka úrslitakosti. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.