Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1986, Síða 16
16
DV. FIMMTUDAGUR16. JANÚAR1986.
Spurningin
Heldur þú að ís-
lenska landsliðið í
handknattleik ráði
við A-Þjóðverja?
Bryndís Óskarsdóttir bílstjóri: Jó,
Islendingar vinna og ætli þeir lendi
ekki í þriðja sæti í Baltic Cup-keppn-
inni. Ég spái því.
Jón Guðmundsson á leið á vertið: Nú,
ísland vinnur með 18 gegn 17. Það
verður 10 gegn 10 í hálfleik, færri
mörk í seir.ni hálfleik. Svo lenda
þeir í öðru sæti í keppninni.
Jóhann Gröndal verkamaður: Nei,
A-Þjóðverjar eru mjög sterkir og
vinna með 21 gegn 17. Það er nú
verra með sætið en ég spái Islending-
um níunda til tíunda sæti.
Þorsteinn Baldursson bygginga-
verkamaður: Nei, íslendingar tapa
með 3 til 4 marka mun. En þeir verða
örugglega með í baráttunni, þeir eru
það sterkir.
Kristján Bjarnason trésmiður: Ja, ég
vona náttúrlega að Islendingar vinni
en ég er í mjög miklum vafa um það.
Ég gæti trúað að þeir nái þriðja sæti
í Baltic Cup.
Marta Þ. Geirsdóttir húsmóðir: Ég
er nú alveg rugluð í þessu en ffændi
minn er þama. Svo ég er bara bjart-
sýn, þetta eru svo sterkir og myndar-
legir strákar, allavega hann ífændi
minn. Ég vona að þeir vinni þetta.
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
Andlaust og mann-
skemmandi langskólanám
í hug að eyða dýrmætum árum i
langskólanám.
Nú má ekki skilja orð mín svo
að ég sé á móti því að almenningur
læri að lesajog skrifa. Alls ekki,
það þurfa allir að kunna. En það
er óhagganleg skoðun mín að lang-
skólanám sé að mestu leyti til
óþurftar og þess vegna ætti stofnun
eins og Lánasjóður íslenskra náms-
manna ekki að vera til.
Ég hygg að flestum þyki ég tala
tæpitungulaust. Það er þá eflaust
vegna þess að ég hef ekki lótið
troða inn í hausinn á mér neinum
langskólahugmyndum um hvað mó
og hvað ekki. En ég hef lesið mikið
um dagana og hugsað enn meira.
Þess vegna tel ég mig ekki síður
menntaðan en hvem þann sem
hefur gráðu upp á að hafa lært sína
rullu og fengið borgað fyrir. Og er,
eftir að hafa alltaf látið mata sig,
búinn að tapa hæfileikanum til
sjálfstæðrar og skapandi hugsunar.
Það sem er að fara með hinn
siðmenntaða heim er að almenn-
ingur er fullur af yfirborðslegri
tækniþekkingu en skortir allan
andlegan grundvöll og veit þ.a.l.
ekki neitt. En af því allir eru búnir
að ganga í gegnum hinn eða þenn-
an skólann halda þeir að hlutirnir
séu á hreinu. Það stendur jú á
skírteininu: Þú kannt þetta.
„Það er óhagganleg skoðun mín að langskólanám sé að mestu leyti til óþurftar."
Menntaður skrifar:
Ágætu lesendur! Eins og allir vita
er nú búið að reka Sigurjón Valdi-
marsson úr framkvæmdastjóra-
stöðu. Ekki þori ég að leggja dóm
á þnð hvort hann hefur staðið sig
vel eða illa og ætla enda ekkert að
ræða um það mál. Hins vegar vil
ég taka til umfjöllunar þó stofnun
sem hann vann fyrir: Lánasjóð ís-
lenskra námsmanna. Mér er til efs
að í allri lýðveldissögunni hafi
nokkur stofnun átt minni rétt á
sér. Það er nefnilega alveg óþol-
andi að fólki skuli borgað fyrir að
læra. Eða eigum við ekki frekar
að segja vera í skóla, því hvað ætli
fólk sé að læra i skólum annað en
undanbrögð og klæki? Það er svo
fjarri lagi að þar sé kennt eitthvað
nytsamt að mér myndi aldrei detta
Eiga unglingar kannski að hlusta
á Symfóníuhljómsveitina? Þeirri
spurningu er varpað fram í bréf-
inu.
Ráðríkur
og eigin-
gjarn fær
orð í eyra
Ein réttlát skrifar:
Kæri lesandi! Ég ætla að kvarta
undan bréfi sem birtist þarna þann
3. janúar. Þar var einhver sem skrif-
aði um að það ætti ekki að ala börn
þjóðarinnar upp við að hlusta á
Duran Duran og Wham.
Nú spyr ég þig sem skrifaðir þetta
bréf: Ertu vangefinn? Af hverju má
ekki hlusta á þetta eins og allar aðrar
hljómsveitir? Krakkarnir hlusta á
það sem þeim þykir skemmtilegt en
ekki það sem þeim finnst fúlt út af
einhverju rausi í einhverjum vitleys-
ingi.
Ég var svo reið þegar ég las þetta
að ég gat ekki orða bundist. Af
hverju eyðileggur þetta þjóðina?
Eigum við unglingarnir kannski að
hlusta á einhverja symfóníu eða eitt-
hvað með Hauki Morthens eða eitt-
hvað eftir Sigfús Halldórsson? Því
megum við ekki hlusta á eitthvað
sem við fílum? Má ekki hver hlusta
á það sem honum þykir skemmtilegt?
Þú getur alveg sleppt því að hlusta
á Duran Duran og Wham úr því þér
finnst það svona fúlt. Þú getur samt
ekki bannað öðrum að hlusta á það.
Þú hlýtur að vera ráðríkur eða eigin-
gjam. Þetta eru nú líka einu sinni
vinsælustu hliómveitir heims.
inu en úti við Tjörn
Jón skrifar:
Ég. get ekki orða bundist þegar ég sé
að litli kínverski pönnukökuvagninn
sem var á Lækjartorgi yfir jólin er
kominn aftur á gamla staðinn úti við
Tjöm.
Mig langar líka að vita af hverju
vagninn var færður aftur því það hlýtur
að vera miklu betra að vera á Lækjarb
oigi. Það er svo langt úr leið að íara
út að Tjöm að ég nenni því ekki.
Hann á heiður skilirm sá sem nr með
vagninn því þetta er velkomin tilbi
ing. Svo er vagninn mikil borgarp
Hann er nú eitthvað annað en þ
pylsuvagnar sem eru allir útatai
auglýsingum. í guðanna bænum 1(
honum nð fnm nfhir á T .oolriar+riro
hluti af „Hjálparsveitinni“?
Vestriskrifar:
Það heíúr mikið verið skrifað um
lagið, sem nú er leikið dag og nótt, ef
svo mó segja, og á að hafa gefið um sex
milljónir króna til þess hjálparstarís sem
stundað er fyrir þá vannærðu í Afríku.
Ekkert er nema gott um það allt að
segja. Lagið er spilað og platan seld.
Lagið hefur orðið vinsælt og menn kyija
það hátt og í laumi ó vinnnstöðum eða
með sjálíúm sér.
En stundum er ekki allt sem sýnist.
Oft finnst manni sem sum hinna nýju
laga beri keim af einhverju, sem maður
man ekki í augnablikinu hvar heyrst
hefur.
Stundum er þetta hugarburður, stund-
um staðreynd. Auðvitað er oft reynt að
seilast tíl þess er áður hefúr verið gert.
Það á við um lagasmíð jafht og ritað
mál.
í þessu lagi Hjálparsveitarinnar, þ.e.-
a.s. seinni hlutanum, fannst mér sem ég
hefði heyrt þetta áður. Ég fór að rifja
upp og mundi þá allt í einu eftir þjóð-
söngnum rússneska.
Rússneski þjóðsöngurinn er mjög fal-
fegur en heyrist sjaldan leikinn hér sem
eðlilegt er. Þannig eru ekki margir sem
kunna hann hér á landi.
Þetta nýja lag, sem nú er kyrjað og
leikið hvað mest, líkist sem sé mjög, í
seinni hlutanum, rússneska þjóðsöngn-
um, hvað sem veldur.
Það væri fróðlegt að fá álit annarra
á þessu, nú eða birtar nótur laganna til
að skera úr um þetta. - Kannski er
þetta bara hugarburður eftir allt.
En ef þetta kemur heim og saman þó
er stórri spumingu ósvarað, nefiúlega
þeirri um tilganginn.
Lag hjálparsveitarinnar hefur orðið vinsælt og menn hafa kyijað það hátt cg í Iaumi á vinnustöðum eða með
sjálfúm sér, eins og segir i bréfinu.
Er rússneski þjóðsöngurinn