Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1986, Page 17
DV. FIMMTUDAGUR16. JANÚAR1986.
17
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
Lúxus að vera ráðherra
Skattpíndur skrifar:
Alveg er það stórmerkilegt hvað
ráðamenn þessa lands eru alltaf
harðir á því að bílaeign landsmanna
sé óþarfa lúxus. Þó láta þeir ríkið
borga fyrir sig bíla og viðhald og
rekstur á þeim jafnframt því sem
þeir láta hinn almenna borgara
borga himinháa skatta af öllu þvi
sem viðkemur bílunum.
Nú skyldi maður ætla að sjálfstæð-
ismenn, þ.m.t. þingmenn og ráðherr-
ar þess flokks, væru á móti óhóflegri
skattlagningu á nauðsynjavörur. Ln
hvað skeður? Þorsteinn er ekki fyrr
sestur í stólinn en hellingur af nýjum
og auknum sköttum dynur á þjóð-
inni. Ég man ekki éftir öðru eins á
„Þorsteinn er ekki fyrr sestur í
stólinn en hellingur af nýjum og
auknum sköttum dynur á þjóð-
inni.“
jafnstuttum tíma. Til að byrja með
er hætt við hina fyrirhuguðu tekju-
skattslækkun. Síðán er ætlunin að
leggja vörugjald á sætabrauðið sem
ekki gat nú kallast „hræbillegt"
fyrir. Og til að auka enn byrðar á
bíleigendur voru gjöld fyrir eigenda-
skipti og umskráningar hækkuð í
4.000 krónur, þ.e. 1.000 fyrir eigenda-
skipti og 3.000 króna sekt fyrir að
vilja halda eftir númeri sem maður
hefur dálæti á og vill ekki missa.
Þessi upphæð er ekki nema fjórðung-
ur af lægstu mánaðarlaunum: viku-
laun verkamanns.
En þetta eru nú 'bara örfá dæmi
um skattahækkanir, um hin vita
sjálfsagt flestir.
En einhvern veginn verður að fjár-
magna það sem hlaðið er undir botn-
inn á ráðamönnum þjóðarinnar því
ekki kemur til greina að láta ráð-
herrana aka bílum sínum sjálfa og
láta þá sjá um reksturinn á þeim þó
þar myndi sparast um ein milljón á
ári á ráðherra.
Enn fremur virðist brýn nauðsyn á
að skammta hverjum bankastjóra bíl
á fjögurra ára fresti, sem er ekki
undir einni milljón króna.
Nei, nei, það sr um að gera að
skattpína sauðsvartan almúgann,
því hvar ætti annars að taka þá
peninga sem alþingismenn fá fyrir
nefndastörf? Laun fyrir þá bitlinga
nema um tvöföldum verkamanna-
launum.
Talsmenn skattanna yppa gjarnan
öxlum og segja: Nú, einhvers staðar
verður að afla tekna. Nei, segi ég,
þá væri nú nær að skera niður sukkið
og svínaríið sem viðgengst hjá rík-
inu. Og ég er búinn að fá nóg, Ég,
sem hingað til hef fylgt Sjálfstæðis-
flokknum að málum, er nú alvarlega
farinn að íhuga að finna einhvern
annan flokk til að krossa við í næstu
alþingiskosningum, einhvern sem
gæti hugsað sér að minnka þessa
ræningjastarfsemi gagnvart almenn-
ingi.
HRINOIÐ í SÍIYLA
27022
IVIILLIKL. 13 OO 15
EÐA SKRIFIÐ
Urval
vid allra hæfi
Vonandi hefur æra Bowie ekki
beðið alvarlegan hnekki við ára-
mótaskaupið.
ErVörður
meiri háttar
undar-
legur?
E.Þ.J. ogcoskrifa:
Við viljmn mótmæla grein Varðar
sem birtist hér á lesendasíðu DV 6.
janúar sl. Okkur, eins og fleirum,
fannst þetta skaup bera af öðrum
áramótaskaupum. Ef þú, Vörður,
heldur að þjóðin hafi ekki séð í
gegnum þessar tæknibrellur þá ertu
eitthvað meiriháttar undarlegur.
Við tökum undir þá staðreynd að
Bowie og Jagger séu frábærir tónlist-
armenn og allt það en búumst ekki
við því að æra þeirra hafi beðið al-
varlegan hnekki í augum aðdáenda
við þetta saklausa grín.
Ef þú hefur horft á áramótaballið
í sjónvarpssal hefur þú eflaust tekið
eftir því að Albert Guðmundsson og
Steingrímur Hermannsson voru
spurðir hvernig þeim hefði líkað
skaupið og svöruðu þeir því til að
þeim hefði fundist það alveg ágætt.
Einnig kom það fram að þeir voru
búnir að sjá þau atriði sem þú heldur
að pólitískir andstæðingar þeirra
hafi staðið á bak við.
Okkur sýnist að þú hafir horft allt
of alvarlegum augum á skaupið og
okkur finnst líka málræktarþáttur
Áma Böðvarssonar einn albesti
gamanþáttur sem sjónvarpið hefur
sýnt lengi og aldrei voru laus sæti
við sjónvarpið meðan á honum stóð.
3. tbl. 48. árg. 16.-22. janúar 1M6. Verð 110 kr
Islenska víkinga-
sveitin
Einstæðar myndir og
frásögn af æfingum
Islenska leiðin til
frægðar, fjár og
frama
Hugleiðingarog leið
beiningar
Fjallamennska er
fíkn
Torfi Hjaltason segirfrá
starfsemi íslenska
Alpaklúbbsins
Varð sjálfstæðismaður af þv
að bera út Morgunblaðið
lilugi Jökulsson talar við Hannes
Hólmstein Gissurarson