Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1986, Page 31

Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1986, Page 31
DV. FIMMTUDAGUR16. JANÚAR1986. 31 Sandkom Sandkorn Menning___________Menning Menning Hopp og hí að Kjarvalsstöðum við opnun Listahátíðar ungs fólks. Lög unga fó/ksins Út af fyrir sig var það vel til fundið af borgaryfirvöldum að efna til sérstakrar sýningar á ýmiss konar sköpunarverkum ungs fólks, svona í kjölfar árs æskunnar: myndverkum, leikverkum, tón- verkum, myndböndum og handlist (sem er víst nýmóðins orð fyrir handavinnu). Sýningin fer fram að Kjarvalsstöðum og nefnist Lista- hátíð unga fólksins. Stendur hún til 19. janúar. Sýning af þessu tagi, og þá á ég sérstaklega við myndverkin á henni, gefur tæplega tilefni til lærðra umsagna eða dóma, þar eð sýnendur eru óþroskaðir og/eða undir áhrifum kennara sinna. Og allt í lagi með það. lín spyrja má hvort ekki hefði mátt sfanda öðru- visi að verki. Þarna ægir nefnilega öllum sam- an, óhörðnuðum unglingum með klippimyndir af poppstjörnum og hálfþrítugum myndlistarnemum í leit að fótfestu í heimslistinni. Ekki verður. heldur séð hvaða kröfur voru gerðar til innsendra verka né heldur hvaða sjónarmið réðu upp- hengingu þeirra. í þessu tilfelli er varla nema um tvennt að ræða, að setja einhverjar reglur um aldurstakmörk sýnenda og tegund verka, auk þess sem fyrirfram ákveðið tema hefði gert sýninguna að sterkari heild. Hinn valkosturinn hefði verið sá að láta unglingana ráða útliti sýningar- innar í einu og öllu. Þá hefðu þeir fengið að sýna nákvæmlega það sem þeir kærðu sig um og húsnæðið leyfði og koma verkunum fyrir eftir eigin höfði. í staðinn hafa menn dottið niður á daufa og fremur ruglingslega málamiðlun sem engan gleður, nema kannski einhverja þátttak- endur, sem njóta þess að vera komnir í „alvöru“ sýningarsal. Ég sagði hér í upphafi að sýning- in gæfi ekki tilefni til myndlistar- gagnrýni. En það er alltaf gaman að spá. Nokkrir sýnenda virðast hafa aflað sér betra veganestis en aðrir: Jónas Bragi Jónasson, 21 árs (gler), Höskuldur Harri, ? (silki- þrykk ), Hulda H. Ágústsdóttir, 20 ára (málv.), Brynja Baldursdóttir, 21 árs. Gangi þeim vel. - ai VEXTIR BANKA 0G SPARISJÓÐA (%) 11.-20.01. 1986 INNLÁN MEÐ SÉRKJÖRUM ■5 i t SJÁ SÉRLISTA llll bankira ii ifil ll ii lf i! INNLÁN ÖVERÐTRYGGÐ SPARISJÖÐSBÆKUR Úbundin innstæða 22.0 22,0 22.0 22,0 22.0 22.0 22.0 22.0 22.0 22.0 SPARIREIKNINGAR 3ja mán. uppsögn 25,0 26.6 25.0 25.0 23.0 23.0 25,0 23.0 25.0 25.0 C mán.uppsögn 31.0 33.4 30.0 28.0 26.5 30.0 29.0 31.0 28.0 12 mán.uppsögn 32.0 34.6 32.0 31.0 33.3 SPARNAÐUR - LÁNSRÉTTURSparaö 3-5 mán. 25.0 23.0 23.0 23,0 23.0 25.0 25.0 INNLANSSKIPTEINI Sp. 6 mán. og m. 29.0 26.0 23.0 29.0 28.0 Til 6 rnánaöa 28.0 30.0 28.0 28.0 TÉKKAREIKNINGAR Avisanareikningar 17.0 17.0 8.0 8.0 10.0 10.0 8.0 10.0 10.0 Hlaupareikningar 10.0 10.0 8.0 8.0 10.0 10.0 8.0 10,0 10.0 INNLÁN VERÐTRYGGÐ SPARIREIKNINGAR 3ja mán. uppsögn 2.0 1.5 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 2.0 1.0 6 mán.uppsögn 3.5 3.5 3.5 3.0 3.5 3.5 3.0 3.5 3.0 INNLÁN GEMGISTRYGGD GJALDEYRISREIKNINGAR Bandarikjadollarar 8.0 8.0 7.5 7.0 7.5 7.5 7,5 7.5 8.0 Stcrlingspund 11.5 11.5 11.0 11.0 11.5 11.5 11.0 11.5 11.5 Vestur-þýsk mörk 5.0 4.5 4.25 4.0 4.5 4.5 4.5 5.0 4.5 Danskar krónur 10,0 9.5 8.0 8.0 9.0 9.0 9.0 10.0 9.0 ÚTLÁN ÚVERÐTRYGGÐ ALMENNIRVlXLAR (forvextir) 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 VIDSKIPTAViXLAR (forvextir) 34.02) kge 34.0 kge 32.5 kge kge kge 34.0 almennskuldabrEf 32,03) 32.0 32.0 32.0 32.0 32.0 32.0 32.0 32.0 VIÐSKIPTASKULDABRÉF 35.0 2) kge 35.0 kge 33.5 kge kge kge 35.0 HLAUPAREIKNINGAR YFIRDRÁTTUR 31,5 31,5 31.5 31.5 31.5 31.5 31.5 31.5 31.5 ÚTLÁN VERÐTRYGGÐ SKULDABRÉF Að 21/2 ári 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 Lengri en21/2ár 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 ÚTLÁN TIL FRANILEIDSLU SJÁNEÐANMÁLS1) 1) Lán til innanlandsframleiðslu eru á 28,5% vöxtum. Vegna útflutnings, í SDR 9,75%, í Bandaríkjadollurum 9,5%, í sterlingspundum 13%, í vestur-þýskum mörkum 6,25%. 2) Við kaup á viðskiptavíxlum og viðskiptaskuldabréfum er miðað við sérstakt kaup- gengi, kge, hjá þeim bönkum sem þannig er merkt við, einnig hjá sparisjóðunum í Hafharfirði, Kópavogi, Keflavík, Sparisjóði Reykjavíkur og Sparisj. vélstj. 3) Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs vanskilalána er 2% á ári, bæði á verðtryggð og óverðtryggð lán, nema í Alþýðuhankanum og Verslunarbankanum. Alúðleg afmælis- kveðja Það er mikið tíðkað að skrifa afmæliskveðjur í blöð. Margar eru þær logn- mollulegur samsetningur um afmælisbarnið. En öll eru þessi skrif með góðum huga gerð, svo það væri kvikindislegt að fara að hnýta frekar í þau. Svo birtast afmælisgrein- ar sem eru allt öðruvísi. Þar er látið vaða á súðum, þannig að lesandinn fær á tilfinninguna að afmælis- barnið hafi verið með lífs- marki allt fram á birtingar- dag. Hér á eftir fer hluti úr einni slíkri afurð sem birt- ist í Skagablaðinu á dögun- um: „Þrítugur varð á sunnu- dag æskulýðsfrömuðurinn Elias Þór Sigurðsson. Elias var strax mjög ódæll í æsku og það svo mjög að mæður í nærliggjandi hús- um forðuðu börnum sinum jafnan inn í snatri er Elías sástinánd. Svo mjög glöddust þessar sömu mæður er hann gekk f það heilaga að þær sendu konu hans björgunarlaun í þakklætisskyni. Börnum þeirra var þar með borg- ið...“ Því er svo aðeins við að bæta að það eru félagar Elíasar Þórs sem sendu honum afmæliskveðjuna. Upp á kant Það er ekkert skemmti- verk að heimsækja slysa- staða. En skótau fæst hins vegar ekkert á bensínstöð- inni. Umsjón: Jóhanna S. Sigþórsdóttir Innlán með sérkjörum Alþýðubankinn: Stjörnureikningar eru íyrir 15 ára og yngn og 65 ára og eldri. Inn- stæður þeirra yngri eru bundnar þar til þeir verða íullra 16 ára. 65-74 ára geta losað inn- stæður með 6 mánaða fyrirvara, 75 ára og eldri með 3ja mánaða fyrirvara. Reikningarn- ir eru verðtryggðir og með 8% nafnvöxtum. Þriggja stjörnu reikningar eru með hvert innlegg bundið í tvö ár, verðtryggt og með 9% nafnvöxtum. Lífeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá lífeyrissjóðum eða almannatryggingum. Inn- stæður eru óbundnar og óverðtryggðar. Nafn- vextir eru 29% og ársávöxtun 29%. Sérbók. Við fyrsta innlegg eru nafnvextir 27% en 2% bætast við eftir hverja þrjá mánuði án úttektar upp í 33%. Ársávöxtun á óhreyfðri innstæðu er 33,5% á fyrsta ári. Búnaðarbankinn: Sparibók með sér- vöxtum, Gullbókin, er óbundin með 36% nafnvöxtum og 36% ársávöxtun á óhreyfðri innstæðu eða ávöxtun 3ja mánaða verð- tryggðs reiknings reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast 1,7% í svonefnda vaxtaleiðrétt- ingu. Tvisvar á ári má taka út án þessa frá- dráttar. 18 mánaða reikningur er með innstæðu bundna í 18 mánuði á 39% nafnvöxtum og 42,8% ársávöxtun, eða ávöxtun 6 mánaða verðtryggðs reiknings reynist hún betri. Iðnaðarbankinn: Bónusreikningar eru annaðhvort með 28% nafnvöxtum og 30% ársávöxtun eða verðtryggðir og með 3,5% vöxtum. Hærri ávöxtunin gildir hvem mánuð. Á hreyfðum innstæðum gildir verðtrygging auk 2% vaxta í úttektarmánuðinum. Taka má út tvisvar á hverju 6 mánaða tímabili án þess að vaxtakjör skerðist. Vextir eru færðir 30.06. og 31.12. Landsbankinn: Kjörbók er óbundin með 36% nafnvöxtum og 39,2% ársávöxtun eða ávöxtun 3ja mánaða verðtryggðs reiknings reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast 1,7% í svonefnda vaxtaleiðréttingu. Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur hefur stighækkandi vexti á hvert innlegg, fyrst 22%, eftir 2 mánuði 25%, 3 mánuði 27%, 4 mánuði 29%, 5 mánuði 31%, eftir 6 mánuði 37% og eftir 12 mánuði 37%. Ársávöxtun á óhreyfðu innleggi er 37%, eða eins og á 3ja og 6 mánaða verðtryggðum reikningum reyn- ist hún betri. Vextir færast einu sinni á ári. Útvegsbankinn: Ábót ber annaðhvort hæstu ávöxtun óverðtryggðra reikninga í bankanum, nú 34,6%, eða ávöxtun 3ja mán- aða verðtryggðs reiknings með 1% nafnvöxt- um sé hún betri. Samanburður er gerður mánaðarlega en vextir færðir í árslok. Sé tekið út af reikningnum gilda almennir spari- sjóðsvextir, 22%, þann mánuð. öndvegisreikningur er bundinn til 18 mánaðar, verðtiyggður og með 7% nafnvöxt- um á binditímanum. Eftir það reiknast sömu vextir og á 3ja mánaða reikning í bankanum. Verslunarbankinn: Kaskóreikningur er óbundinn. Þá ársfjórðunga sem innstæða er óhreyfð eða aðeins hefur verið tekið út einu sinni eru reiknaðir hæstu vextir sparifjár- reikninga í bankanum. Nú er ársávöxtun annaðhvort 34,8% eða eins og á verðtryggðum 6 mánaða reikningum með 3,5% nafnvöxtum. Af úttekinni upphæð reiknast almennir spari- sjóðsvextir, 22%, og eins á alla innstæðuna innan þess ársfjórðungs þegar tekið hefur verið út oftar en einu sinni. Innlegg fær strax hæstu ávöxtun sé það óhreyft næsta heila ársfjórðung. Sparisjóðir: Trompreikningur er verð- tryggður og með ávöxtun 6 mánaða reikninga með 3% nafnvöxtum. Sé reikningur orðinn 3ja mánaða er gerður samanburður á ávöxtun með svokölluðum trompvöxtum, 32%, með 34,3% ársávöxtun. Miðað er við lægstu inn- stæðu í hverjum ásfjórðungi. Reynist tromp- vextir gefa betri ávöxtun er þeim mun bætt á vaxtareikninginn. Hreyfðar innstæður inn- an mánaðar bera trompvexti sé innstæðan eldri en 3ja mánaða, annars almenna spari- sjóðsvexti, 22%. Vextir færast misserislega. Spariskírteini Spariskírteini Ríkissjóðs íslands eru seld í Seðlabankanum, viðskiptabönkum, sparisjóð- \’m, hjá verðbréfasölum og í pósthúsum. Nýjustu skírteinin eru að nafnverði 5, 10 og 100 þúsund krónur. Þau eru: Hefðbundin, til mest 14 ára en innleysanleg eftir þrjú ár, 10.09.88. Nafnvextir 7%. Vextir, vaxtavextir og verðbætur greiðast með höfuðstól við innlausn. Með vaxtamið- um, skírteini til mest 15 ára, innleysanleg eftir 5 ár, 10.09.90. Vextir eru 6,71% á höfuð- stól og verðbætur, reiknaðir misserislega og greiddir út gegn framvísun vaxtamiða. Verð- bætur greiðast með höfuðstól við innlausn. Með hreyfanlegum vöxtum og 50% vaxta- auka, til 18 mánaða eða 10.03.87. Vextir eru meðaltal vaxta á 6 mánaða verðtryggðum reikningum bankanna og með 50% álagi. Vextir, vaxtavextir, vaxtaauki og verðbætur greiðast með höfuðstól við innlausn. Gengis- tryggð skírteini eru til 5 ára, 10.09.90. Þau eru bundin safngjaldeyrinum SDR og bera 9% vexti. Vextir og vaxtavextir greiðast við inn- lausn með höfuðstól, í samræmi við stöðu SDR. Almenn verðbréf Fasteignatryggð verðbréf eru til sölu hjá verðbréfasölum. Þau eru almennt tryggð með veði undir 60l/o af brunabótamati fasteign- anna. Bréfin eru ýmist verðtryggð eða óverð- tryggð og með mismunandi nafnvöxtum. Þau eru seld með afföllum og ársávöxtun er al- mennt 12-18% umfram verðtryggingu. Húsnæðislán Nýbyggingarlán frá Byggingarsjóði ríkis- ins, F-lán, nema á 4. ársfjórðungi 1985: Til einstaklinga 720 þúsundum króna, 2-4 manna íjölskyldna 916 þúsundum, 5 manna og fleiri 1.073 þúsundum, 7 manna og fleiri (í sértilvik- um) 1.237 þúsundum. Lánin eru til 31 árs. Lán til kaupa á eldri íbúðum, G-lán, nema á 4. ársfjórðungi 1985: Til kaupa í fyrsta sinn er hámark 348 þúsund krónur til einstaklings, annars mest 139-174 þúsund. 2-4 manna fjöl- skylda fær mest 442 þúsund til fyrstu kaupa, annars mest 177-221 þúsund. 5 inanna fjöl- skylda eða stærri fær mest 518 þúsundir til fyrstu kaupa, annars mest 207-259 þúsund. Lánstími er 21 ár. Húsnæðislánin eru verðtryggð með láns- kjaravísitölu og með 3,5% nafnvöxtum. Fyrstu tvö árin er ekki greitt af höfuðstól, aðeins vextir og verðbætur. Útlán lífeyrissjóða Um 90 lífeyrissjóðir eru í landinu. Hver sjóður ákveður sjóðfélögum lánsrétt, lánsupp- hæðir, vexti og lánstíma. Stysti tími að láns- rétti er 30-60 mánuðir. Sumir sjóðir bjóða aukinn lánsrétt eftir lengra starf og áunnin stig. Lán eru á bilinu 150-700 þúsund eftir sjóðum, starfstíma og stigum. Lánin eru verð- tryggð og með 5-8% vöxtum. Lánstími er 15-35 ár. Biðtími eftir lánum er mjög breytilegur. Hægt er að færa lánsrétt við flutning milli sjóða eða safna lánsrétti frá fyrri sjóðum. Nafnvextir, ársávöxtun Nafnvextir eru vextir í eitt ár og reiknaðir í eihu lagi yfir þann tíma. Séu vextir reiknaðir og lagðir við höfuðstól oftar á ári verða til vaxtavextir og ársávöxtunin verður þá hærri en nafnvextirnir. Ef 1000 krónur liggja inni í 12 mánuði á 22% nafnvöxtum verður innstæðan í lok tímans 1220 krónur og ársávöxtunin þannig 22%. Liggi 1000 krónur inni í 6 + 6 mánuði á 22% nafnvöxtum reiknast fyrst 11% vextir eftir 6 mánuði. Þá er upphæðin orðin 1110 krónur. Á hana koma svo 11% vextir eftir næstu 6 mánuði. Þannig verður innstæðan í lok tím- ans 1232 krónur og ársávöxtunin 23,2%. Dráttarvextir Dráttarvextir eru 3,75% á mánuði eða 45% á ári. Dagvextir reiknast samkvæmt því 0,125%. Vísitölur Lánskjaravísitala í janúar 1986 er 1364 stig en var 1337 stig í des. 1985. Miðað er við grunninn 100 í júní 1979. Byggingarvísitala á 1. ársfjórðungi 1986 er 250 stig á grunninum 100 frá janúar 1983 en 3699 stig á grunni 100 frá 1975. Léleg jólaverslun Jólaverslunin á siðasta La'knirinn kvaðst ekki geta sett konuna i röntgen. varðstofuna. Það vita þeir sem reynt hafa. Við getum til að mynda sagt frá konu einni sem varð fyrir því óláni að lenda í umferðarslysi. Slysið var að visu minni háttar en þó þótti konunni ástæða til að fara upp á slysavarðstofu, rétttilöryggis. Þegar hún hafði farið í gegnum allar hefðhundnar hindranir þar; beðið frammi á biðstofu, beðið inni á gangi og beðið inni í sjúkrastofu, komst hún loks undir hendurnar á lækni. Hann skoðaði hana vandlega en spurði síðan hvort henni væri ekki sama þótt hún væri ekki röntgen- mynduð. Konan gat ekki annað en játað þessum eðlu tilmælum. Þau munu ann- ars vera til komin vegna þess að röntgendeildin hef- ur verið eitthvað upp á kant við spítalakerfið. Bensinstöðvar, sem selja mjólk og brauð, eru ekki á hverju strái. Nestiá bensínstöð Hér áður fyrr þótti það góður siður að leggja ekki i langferðir öðruvísi en að hafa með sér nóg a .' nesti svo og nýja skó. Þeir sem gerðu það ekki áttu á hættu að verða hungurmorða á miðri leið eða að þurfa að gera stans vegna fótsær- inda. Þetta hefur breyst mjög á seinni árum. Vissulega verða menn svangir eins og fyrr. Og enn geta þeir dáið úr hungri. En nestismálum er öðruvísi háttað en áður. Við höfum til að mynda dæmi um staði sem heita einfaldlega „Nesti“. Þar má fá allt sem mögulega getur fallið undir þennan fæðuflokk. Og nýlega var opnuð við Gullinbrú, sem liggur að Grafarholts- byggð, ný bensínstöð. En þar er ekki bara selt bensín heldur lika mjólk og brauð. Er þetta vafalaust gert til að Grafarholtsbúar verði ekki hungurmorða milli 1 Jólavertíðin réð örlögum margra verslana. ári var rekin með plast- kortum, eins og menn grunaði nú raunar áður en vertiðin hófst. Verslunar- eigendur voru misánægðir með afraksturinn. Þó geta kaupmenn i Reykjavík lík- lega verið ánægir sé miðað við suma starfsbræður þeirra í nágrannabyggðun- um. A Selfossi mun jólaversl- un hafa verið mun minni en gert hafði verið ráð fyrir. Er það talið vera vegna þess að Selfyssingar hafi þeyst til Reykjavíkur og gert stærstan hluta jólainn- kaupanna þar. Og afleiðingarnar láta ekki á sér standa.Nú upp úr áramótum hætta þrjár verslanir á Selfossi; Bóka- búð K.V. Blöndal, Radíóver og Djásnið, sem er fata- verslun. Peningamarkaður

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.