Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1986, Blaðsíða 19
í VÍTATEIGNUM -1VITATEIGNUM -1VITATEIGNUM -1VITATEIGNUM -
DV. FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR1986
DV. FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR1986
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
42 stig á fvrstu
tíu mínútunum
— hjá Haukum í sigrí þeirra á KR, 95-89. Pálmi skoraði
48 stig, þar af átta þriggja stiga körf ur
Það hefur líklega aldrei áður verið
jafnmikil stigaskorun hjá einu liði í
körfuknattleik eins og á fyrstu tíu
minútunum í leik Hauka og KR er
fram fór í íþróttahúsinu í Hafnarfirði
í gærkvöldi. Flest benti til þess í
byijun að Haukar mundu kafsigla
KR-inga því eftir frrgreindan tíu
mínútna kafia hafði liðið skorað 42
stig gegn 25 stigum KR. Þriggja stiga
metið fékk einnig að íjúka í Hafnar-
firðinum i gærkvöldi því að Pálmar
Sigurðsson, sem var potturinn og
pannan í öllum sóknaraðgerðum liðs
síns, skoraði hvorki fleiri né færri en
átta þriggja stiga körfur, þar af sex
þeirra í fyrri hálfleik. Það var líka
öðru fremur frammistaða Pálmars
sem skóp sigur Hauka, 95-89. Pálmar
skoraði 48 sem er mesta skorun hjá
leikmanni á keppnistímabilinu auk
þess sem hann dreifði boltanum vel.
KR átti möguleika á að komast í
fjögurra liða úrslit í úrvalsdeildinni
með sigri en vonir þeirra urðu að
engu strax í byrjunarkaflanum.
Pálmar og félagar voru í essinu sínu.
Náou 12-3 forystu og héldu sigling-
unni áfram út fyrri hálfleikinn. Mest
munaði 22 stigum, 58-36, en hálf-
leikstölur voru 62-44.
Meiri ró færðist yfir leikinn í seinni
hálfleik. KR-ingar þéttu vörn sína til
mikilla muna og tókst nærri þvi það
ótrúlega, að vinna upp forskot
Hauka. Tvivegis munaði einu stigi á
rafmögnuðum lokamínútum, 83-82
og 85-84, en skynsamlegur leikur
Hauka i lokin kom í veg fyrir óvænt
úrslit.
Pálmar var sem áður sagði allt í
öllu í liði Hauka. Ekki er beint hægt
að gera sér ljóst hvað mundi ske ef
hans nyti ekki við í liðinu en fallið
yrði hátt. ívar Webster komst einnig
vel frá sínu þrátt fyrir að kappinn
hafi oft í leiknum verið fullsvifa-
seinn.
Birgir Mikaclson stóð upp úr í liði
KR, iiitti mjög vel. Guðni Guðnason,
Páll Kolbeinsson og Ástþór Ingason
áttu einnig góðan Ieik í síðari hálf-
leik þrátt fvrir að sá síðastnefndi
hefði verið hvíldur lokakaflann.
Stig Hauka: Pálmar 48, ívar Web-
ster 20, Kristinn Kristinsson og Henn-
ing Henningsson 8, Ólafur Rafnsson
5, Ivar Ásgrímsson 4.
Stig KR: Birgir Mikaelson 32, Guðni
Guðnason 19, Páll Kolbeinsson og
Garöar Jóhannsson 10, Ástþór Inga-
son 8, Þorsteinn Gunnarsson 4, Guð-
mundur Jóhannsson 3, Guðmundur
Björnsson 2.
Bergur Steingrímsson og Sigurður
Valur dæmdu leikinn og komust
þokkalega frá honum. -fros
„Hef áhuga á að
þjálfa á íslandi”
— segir Willie Henderson, leikmaðurínn kunni
hjá Rangers á árum áður
„Ég er nýkominn frá Glasgow á
Skotlandi og þar hitti ég Willie Hend-
erson, leikmanninn kunna hjá
Rangers hér á árum áður. Hann
spurði mig um ísland að venju og
sagðist hafa mikinn áhuga á að koma
hingað til lands sem þjálfari,“ sagði
séra Robert Jack, prófastur, frétta-
ritari DV í Vestur-Húnavatnssýslu,
þegar hann leit inn á ritstjórn DV í
gær.
Willie Henderson var einn kunn-
asti og besti leikmaður Skotlands á
árunum 1960-1975. Lék alltaf með
Rangers og komst í aðallið þessa
fræga félags aðeins 16 ára. Lék 19
ára sinn fyrsta landsleik fyrir Skot-
land - árið 1963. Alls urðu landsleikir
hans 29, hinn síðasti 1971. Auk þess
lék hann íjölmarga úrvalsleiki.
Henderson er nú 41 árs, hefur unnið
mikið að þjálfun. Algjör reglumaður.
Séra Robert bað DV að geta þess
að ef einhver félög hefðu áhuga á
að fá þennan kunna kappa til sín
væri hægt að fá upplýsingar hjá ís-
landsvininum David Moyse, sem
margoft hefur komið hingað til lands
með knattspyrnulið. Sími hans í
Glasgow er 9429200. Svæðismúmerið
íGlasgow41.
hsím
Verður handknattleiks-
deild Þróttar lögð niður?
„ Verði ekki breyting á rekstrí deildarinnar er það mín skoðun að leggja eigi hana
niður,” segirTryggvi Geirsson, f ormaður Þróttar
— AriHaan villsjá
hvort hann getur
leikið heilan leik
Frá Kristjáni Bernburg, fréttaritara
DV í Belgíu:
„Ég er mjög bjartsýnn á að þetta
gangi vel. Ég hef að visu ekkert
skotið ennþá með fætinum en hef æft
á fullu með aðalliðinu. Ég hef verið
slæmur daginn eftir að ég hef æft en
maður verður að vona það besta,“
sagði Arnór Guðjohnsen, knatt-
spyrnumaður hjá Anderlecht í Belg-
iu, i samtali við DV í gær.
Arnór er senn að ná sér af meiðsl-
unum og um næstu helgi á Arnór,
að beiðni Ari Haan, þjálfara And-
erlecht, að reyna að leika heilan leik
með Anderlecht gegn varaliði Loker-
en. Það er bæði mikilvægt fyrir
Anderlecht og ekki síst fyrir Amór
sjálfan að fá þetta tækifæri. Samn-
ingur hans rennur út í vor og vissu-
lega gæti Anderlecht fengið mun
meira fyrir Arnór ef hann væri
kominn í leikform ef forráðamenn
liðsins hefðu á annað borð áhuga á
að selja hann. Ef Arnór stenst prófið
hefur hann meiri möguleika á að
semja á ný við félagið.
Leikurinn um helgina verður mikil
prufa fyrir Arnór og eflaust mjög
erfið. Vellirnir í Belgíu eru mjög
harðir og hálir um þessar mundir en
vonandi tekst Arnóri að komast vel
frá leiknum. -SK.
„Ég get ekki tjáð mig mikið um
þetta mál að svo stöddu en það er
mín skoðun að ef reka á deildina með
svipuðu sniði og verið hefur í framtíð-
inni eigi að leggja hana niður,“ sagði
Tryggvi Geirsson, formaður Þróttar,
í samtali við DV í gærkvöldi en heyrst
hefur að Þróttarar hyggist leggja
handknattleiksdeild félagsins niður.
Handknattleiksdeild Þróttar hefur
Aberdeen í
annað sæti
—Jim Bett rekinn af velli
Skotlandsmeistarar Aberdeen
skutust upp í annað sætið í skosku
úrvalsdeildinni þegar þeir sigruðu
Rangers, 1-0, á miðvikudag. Ian
Angus skoraði eina mark leiksins í
síðari hálfleik. Rétt fyrir leikhléið
voru þeir Jim Bett, Aberdeen, og
Dougie Bell, Rangers, reknir af velli
Dasayev var
íbanastuði
— þegar Mexíkó vann
Sovétríkin, 1-0
Rinat Dasayev, markvörður sov-
éska landsliðsins í knattspyrnu,
sýndi í gærkvöldi og sannaði að hann
er með allra bestu markvörðum
heims er Mexíkó sigraði Sovétríkin,
1-0, í vináttuleik þjóðanna í Mexikó.
Dasayev sýndi snilldarmarkvörslu
og bjargaði Sovétmönnum frá ennþá
stærra tapi. Mexíkanar sýndu í þess-
um leik að þeir geta náð mjög langt
í heimsmeistarakeppninni sem fram-
undan er í júní. Það var Javier
Aguirre sem skoraði sigurmarkið
fyrir heimamenn með skalla. -SK.
eftir innbyrðisátök. Bett lék áður
fyrr með Rangers -Bell með Aberde-
en. Hearts er í efsta sæti í úrvals-
deildinni með 36 stig eftir 27 leiki.
Aberdeen í öðru sæti eftir 26 leiki
með betri markamun en Dundee Utd,
sem leikið hefur 24 leiki. Bæði lið
með 32 stig. Síðan kemur Celtic með
31 stig eftir 25 leiki.
Tveir leikir voru í skosku bikar-
keppninni. Dundee sigraði Airdrie,
2-0, og Dundee Utd vann Kilm-
arnock, 1-0, á útivelli. í ð.umferð,
átta liða úrslitum, leikur Dundee á
heimavelli gegn Aberdeen en Dundee
Utd á útivelli gegn annað hvort
Alloa eða Motherwell. hsím
Kynningarfundur
Svæðisstjórn um málefni fatlaðra á
Suðurlandi og stjórn íþróttasam-
bands fatlaðra efna til kynningar á
íþróttum fatlaðra á Selfossi nk. laug-
ardag. Haldnir verða fyrirlestrar,
sýnd kvikmynd og fyrirspurnum
svarað í Gagnfræðaskólanum
kl.10-12. Síðan verður stofnfundur
nýs íþróttafélags fatlaðra á Selfossi.
Kl. 14 verður svo kynningarfundin-
um haldið áfram.
ræður í þessu máli og það kemur í
ljós hver hann verður í næsta mán-
uði,“ sagði Tryggvi Geirsson. -SK.
átt erfitt uppdráttar undanfarin ár
og sérstök óstjórn hefur verið á
deildinni í vetur. Aðalstjórn Þróttar
hefur orðið að taka á sig miklar
skuldbindingar vegna óreiðunnar
hjá handknattleiksdeildinni og hefur
fjárhagsstaða deildarinnar verið
mjög slæm á síðustu árum.
Tryggvi Geirsson sagði ennfremur
í gær: „Það hefur ekki verið stjórn
á handknattleiksdeildinni síðustu
árin og slíkt gengur auðvitað ekki.
Við munum halda aðalfund í næsta
mánuði og þá verður vilji fél'ags-
manna dreginn fram í dagsljósið. Ef
félags/fjárhagslegur grundvöllur fyr-
ir rekstri deildarinnar er ekki fyrir
hendi er það mín skoðun að leggja
eigi handknattleiksdeildina niður.
En það er vilji félagsmanna sem
• Guðbjörn Tryggvason á ný í Akra-
nesliðið.
Guðbjörn
ánýíÍA
Knattspyrnumaðurinn Guðbjörn
Tryggvason frá Akranesi hefur til-
kynnt félagaskipti yfir í Akranes á
ný eftir nokkra dvöl i Noregi þar sem
hann hefur leikið með liði í 3. deild.
Á því leikur lítill vafi að Guðbjörn
mun styrkja lið Akurnesinga mikið
en hann hefur löngum verið einn
besti leikmaður liðsins. Heyrst höfðu
raddir þess efnis að Guðbjörn ætlaði
í Fram en nú hefur hann sem sagt
tilkynnt félagaskipti yfir í ÍA til KSl.
-SK.
Allir fengu ACT-skó
Allir íslensku landsliðsmennirnir og fararstjórn
íslenska landsliðsins í handknattleik fengu í gær
afhent tvenn pör af ACT-skóm frá Sambandi ís-
lenskra samvinnufélaga og lætur nærri að þessi
höfðinglega gjöf sé í krónum talið um 140 þúsund.
Eins og sést á myndinni hér að ofan voru lands-
liðsmennirnir ánægðir með nýju skóna sína í
Laugardalshöllinni í gærkvöldi en þar voru þeir
afhentir fyrir æfingu. Á myndinni eru þeir Þorgils
Óttar Mathiesen og Kristján Arason hoppandi
kátir með skóþvenginn. Hver leikmaður fékk
spariskó og kuldaskó þannig að ekki ætti lands-
liðsmönnum okkar að verða kalt á tánum í frost-
hörkunum í Sviss og svo má örugglega nota
spariskóna til einhvers að heimsmeistarakeppn-
inni lokinni. Skógerð Sambandsins á Akureyri
er50áraáþessuári. -SK DV-myndBjarnleifur.
• • Pálmar Sigurðsson skoraði 48 stig
fyrir Hauka gegn KR.
Kraftajötnar til USA
Mestu kraftajötnar íslands héldu í gær
til Bandaríkjanna þar sem þeir munu taka
þátt í kraftlyftingakeppni, Kalifornía-Is-
land, sem verður með landskeppnisfyrir-
komuiagi. Á myndinni eru kapparnir sem
þar keppna fyrir íslands hönd í Fresco.
Efri röð frá vinstri. Víkingur Traustason,
Hjalti Árnason, Jón Páll Sigmarsson, Torfi
Ólafsson, Matthias Einarsson, Jóhann
Möller og Hörður Magnússon. Fremri röð.
Halldór Sigurbjörnsson, Kári Elíson, Bald-
ur Bergþórsson, Halldór Eyþórsson og
Ólafur Sigurgeirsson, sem jafnframt er
aðalfararstjóri. HV-my nd S/hsím.
einum
— erPhiladelphia
76'ersunnu Portland
Trailblazers
Það bar til tiðinda í leik Phila-
Idelphia 76’ers og Portland Trail- I
blazers í bandariska körfuboltan- i
Ium á miðvikudaginn að skoruð |
voru hvorki fleiri né færri en 286 .
I stig. Það voru 76urnar er höfðu |
5 betur, skoruðu 153 stig gegn „að- -
I eins“133stigumPortlands.
■ Af öðrum úrslitum í Banda- I
I rísku körfunni á miðvikudaginn ■
má nefna að Boston Celtics vann
Golden State Warriors, 115-100,
og Los Angeles Lakers vann
Indiana Pacers, 90-81.
I
I
I
Fyrsti sigurá
HMíbadminton
íslenska karlalandsliðið í badmin-
ton vann Zambíu í gær á heimsmeist-
aramótinu í badminton með 5 vinn-
ingum gegn engum. Liðið tapaði síð-
an gegn Svíum, 0-5. Kvennaliðið lék
gegn Hollandi og tapaði, 0-5. -SK
I HM-GETRAUN
1 DVOGJAPIS!
IEins og flestir (allír) eiga að vita, er Panasonic stærsti og
mesti myndsegulbandsframleiðandi heims.
Ekkert fyrirtæki kemst í hálfkvist við þá í þeim efnum,
Ieins og svo mörgu öðru.
Þetta cr í sjálfu sér ekkert skrítið þegar höfð eru í huga
gæði Panasonic tækjanna og hafa rannsóknir neytendasam-
Itaka víða um heim leitt i ljós að Panasonic myndsegulbönd
eru öruggustu og ábyggilegustu tækin á markaðnum.
| SPURNINGAR:
II. Á síðasta ári náðu Panasonic merkan áfanga í
sölu sjónvarpstækja er þeir framleiddu.
ID 10.000.000 sjónvarpstækið
□ 1.000.000 sjónvarpstækið
□ 100.000.000 sjónvarpstækið
I 2. Hvaða fyrirtæki hefur framleitt og selt fleiri
myndsegulbönd en nokkur annar?
| Svar: ---------
• Verðlaunin i HM-getraun DV og Japis eru þetta
glæsilega sjónvarpstæki frá Panasonic, 26 tommu
tæki með 42-liða fjarstýringu.
3. í hvaða sæti lendir íslenska landsliðið á HM?
Svar:-----------------sæti------------------
Lausnirskal senda til DV, Þverholti 11
Skilafresturertil
miðnættis 24. febrúar
Islandsmót
J) 2. og3. flokks stúlkna
innanhúss
verður haldið á Akranesi dagana 8. og 9. mars.
Þátttökutilkynningar skulu berast skrifstofu KSÍ,
pósthólf 8511,128 Reykjavík, fyrir 28. febr. ásamt
þátttökugjaldi, kr. 1500 pr. f lokk.
Knattspyrnusamband íslands.
Umdeild úthlutun
Eins og komið hefur fram i frétt-
um ákvað Afreksmannasjóður
íþróttasambands íslands í haust að
styrkja þá landsliðsmenn í hand-
knattleik sem iðka íþrótt sína hér
heima og yrðu valdir í liðið sem
keppir á heimsmeistarakeppninni í
Sviss. í fyrradag var þeim átta
landsliðsmönnum sem uppfylltu
skilyrði Afreksmannasjóðsins síð-
an aflientar 35 þúsund krónur
hverjum en þeir leikmenn sem
leika hér heima en komust ekki í
lokahópinn og þeir leikmenn sem
leika erlendis fengu ekki fjárstuðn-
ing frá sjóðnum. Þess skal getið að
úthlutun þessi var ákveðin í haust
og þá fékk spjótkastarinn Einar
Vilhjálmsson 200 þúsund krónur frá
sjóðnum.
Margir óánægðir
Nú þegar hefur sú aðferð sem Af-
reksmannasjóðyurinn ákvað að beita
við þessa styrkveitingu valdið mikl-
um úlfaþyt manna á meöal og þá
ekki sist á meðal landsliðsmannanna
sjálfra. Þeir leikmenn sem leika er-
lendis eru mjög óánægðir með að
þeir skuli ckki hafa verið með í þcssu
dæmi en samgleðjast hins vegar fé
lögum sínum sem styrkinn fcngu.
Einnig gætir óánægju á meðal þeirra
leikmanna sem duttu út úr landsliðs-
hópnum á síðustu stundu og fengu
ekki krónu frá Afreksmannasjóðn-
um. Þeir telja sig hafa átt rétt á
styrkveitingu frá sjóðnum enda liafa
þeir æft vel og reglulega með lands-
liðinu frá þvi æfingar hófust fyrir
HM-keppnina.
Hverjir og hverjir ekki?
Það er skoðun þess er þetta ritar
að ekki hafi verið rétt að þessari
styrkveitingu staðið þrátt fyrir að
virða beri viljann fyrir verkið. í fyrsta
lagi er þessi styrkveiting alltof seint
á ferðinni og það er ekki rétt að vera
að gefa sumum landsliðsmönnum
pening rétt fyrir svo stóra keppni sem
framundan er en sumum ekki. Auð-
vitað eru skiptar skoðanir manna á
meðal hverjir áttu að fá styrk og
hverjir ekki. Aö mínu mati hefðu allir
landsliðsmennirnir, þeir sem kcppa í
Sviss og eins þeir sem duttu út á
síðustu stundu, átt að fá styrk frá
Afreksmannasjóðnum. Þá hefðu allir
setið við sama borð og engin óánægja
gert vart við sig. Hins vegar hefðu
þeir leikmenn sem leika hér heima
átt að fá hærri upphæð en þeir sem
leika með erlendum liðum. „Útlend-
íngarmr" fá jú greitt fyrir að vinna
leiki og einnig fyrir að iðka hand-
knattleik. Bjóða slik vinnubrögð sem
þessi hættunni heim og hún hefur svo
sannarlega þegið heimboðið. Þegar
svona er staðið að verki er alltaf
hætta á að óþörf óánægja í landsliðs-
hópnum geri vart við sig og sú hefur
orðið raunin á. Slíkt er afar slæmt
svo skömmu fyrir heimsmeistara-
keppni. Þess vegna fyrst og fremst
hefði styrkveitingin átt að vera
mánuðum fyrr á ferðinni.
Allir við sama borð
Á meðan á undirbúningi lands
liðsins fyrir keppni stendur er afar
mikilvægt að gera landsliðsmönnum
jafnt undir höfði. Það hefur þvi miður
ekki verið gert. HSÍ á hér einnig hlut
að máli. Þeir leikmenn sem leika
erlendis hafa haft afnot af bílaleigubíl
á meðan þeir hafa stundað æfingar
hérlendis með landsliðinu. Nokkrir
leikmenn scm leika hér heima eiga
ekki bil. Af hverju fengu þeir leik-
menn ekki lika bilaleigubil til afnota?
Þess eru dæmi að einn af þessum
leikmömium sem á bíl hefur þurft að
sækja hina sem ekki eiga bíl fyrir
æfingu og útkoman orðið sú að þcir
hafa mætt of seint á æfingu. Fyrir
I
I
I
slikt er þeim refsað með sérstökum _
þrekæfingum. Það eru svona smáat-|
riði sem fara í taugarnar á mönnum ■
ogþarfaðlaga. ■
Margtvelgert ■
Hér að framan hefur verið rætt um"
ýmis atriði sem betur mega fara enl
lika verður að geta þess sem vel er"
gert. Stjórn HSl, með Jón Hjaltalín J
Magnússon formann í broddi fylking- _
ar, hefur gert marga góða hluti og|
reynt að reynast landsliðsmönnum m
okkar sem hin besta móðir. MjögB
margir menn sem standa fyrir utanB
leikinn sjálfan hafa fórnað tíma og“
fé vegna starfa fyrir HSÍ. HverjuB
sérsambandi, sem stcndur í slíkum™
Istórræðum sem HSÍ nú, er ómetan-|
legt að hafa sUka menn á sínumfc
iSnærum. Þeirra starf gleymist oft en®
má ekki gleymast. |
Gerum betur næst |
Einhvers staðar stendur að mistök- g
in séu til að læra af þeim. Það er|
vonandi að þeir scm að mínu matiB
hafa misstigið sig á allra síðustuB
dögum sníði agnúana af gjörðumB
sínum og þá mun án efa birta yfir™
framtíðinni. I
Stefán Kristjánsson®
i h ■■ 8H 9bm m m m J|
• i \m.
• Arnór Guðjohnsen leikur með
Anderlecht um helgina.
Arnór prófar
gegn Lokeren